Alþýðublaðið - 27.07.1976, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 27.07.1976, Blaðsíða 16
ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 1976 HEILSUGÆZLUSTÖÐ RÍS AF GRUNNI Á PATREKSFIRÐI Matthlas Bjarnason heilbrigöis- og tryggingarráöherra tók fyrstu skóflustunguna aö heilsugæzlustöö á Patreksfiröi. Sl. sunnudag tók Matthias Bjarnason heil- brigðis- og tryggingaráð- herra fyrstu skóflustung- una að nýrri heilsugæzlu stöð á Patreksfirði, en bygging hennar er nú að hefjast og rís hún af grunni við sjúkrahúsið á staðnum. Starfssvæði hinnar nýju heilsugæzlu- stöðvar mun ná yfir alla hreppa V-Barðastrandar- sýslu auk Múlahrepps í A- Barðastrandarsýslu. Viðstaddir athöfnina voru fulltrúar allra viðkomandi sveitarfélaga, sýslunefnd, starfsfólk sjúkrahússins og aðrir gestir. Jóhannes Arnason sýslumað- ur og formaður stjórnar sjúkra- hússins gerði grein fyrir að- draganda að byggingu heilsu- gæzlustöðvarinnar. Verkið var boðið út og verk- takinn við bygginguna er Byggir sf. á Patreksfirði og hljóðaði tilboð þess upp á 150 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að byggingunni ljúki i árs- lok 1978. Sýslumaður gat þess i ávarpi sinu að hinn 4. mai s,l, voru 30 ár liðin frá þvi að núverandi sjúkrahús var tekið i notkún, en Sveinn heitinn Björnsson forseti tslands lagði hornstein að bygg- ingu þess i ágústmánuði 1944 og var það fyrsta bygging sem hann lagði hornstein að i forsetatið sinni. Þá færði sýslumaður starfs- fólki sjúkrahússins starfsfólki þess þakkir fyrir gjafir sem það hefur fært sjúkrahúsinu að undanförnu en meðal þess má nefna barnavöggur með tilheyr- andi útbunaði, súrefnistjald, gluggatjöld o.fl. Ráðherra flutti ræðu i sam- komuhúsinu Sólberg i samsæti sem þar var haldið að athöfn- inni lokinni og óskaði hann Barðstrendingum til hamingju með þennan nýja áfanga í heil- brigðismálum héraðsins og lagði hann -áherzlu á, að fjár- veitingum til verksins yrði hag- að þannig að unnt yrði að ljúka þvi á tilsettum tima. Það var Jón Haraldsson arkitekt i Reykjavik sem teiknaði heilsugæzlustöðina. EB. KÓPAVOGUR BÝÐUR KRON LÓÐ Kópavogskaupstaöur hefur gefið KRON vilyrði fyrir lóð undir stórmark- að, en stjórn KRON telur þá lóðof litla. Enn standa yfir viðræður við borgar- yfirvöld Reykjavíkur um' hentuga lóð undir stór- markað í Reykjavík, og á meðan þær viðræður fela i sér einhverja von um viðunandi lausn, verður beðið með ákvörðun um lóðina í Kópavogi. Þetta kemur fram i nýjustu félagstiðindum KRON. — Mikl- ar umræður urðu vegna þeirrar ákvörðunar Reykjavikurborgar að synja KRON um nauðsynleg . leyfi til að koma á fót stórmark- aði i húsakynnum StS við Sundahöfn. I Félagstiöi ndum segir: „KRON hefur i langan tima stefnt að skipulagsbreytingum I verzlunarstarfsemi, en mætt mikilli óbeinni andstöðu borgar- yfirvalda, sem meðal annars hefur komið fram i þvi, að fé- laginu hefur gengið ákaflega illa að fá hentugar. lóðir fyrir rekstur sinn. Rygging stórmarkaðar er langviðamesta verkefni, sem KRON hefur unnið að. Það er ákaflega mikilvægt að félaginu takist að leysa þetta verkefni af hendi sem allra fyrst til hags- bóta fyrir félagsmenn og aðra samvinnumenn. Þessi fram- kvæmd hlýtur að takast fyrr en siðar með samstilltu átaki fél- agsmanna, samvinnuhreyfing- arinnar og launþegasamtak- anna”. NÆG ATVINNA Á PATREKS- FIRÐI í SUMAR Það sem af er sumri hef- ur atvinnuástand verið mjög gott á Patreksfirði. Að sögn Ágústs Pétursson- ar ber þar tvennt til, bygg- ingaf ramkvæmdir hafa verið óvenjulega miklar og gera má ráð fyrir það þeg- ar lokiðer bygginguá þeim húsum sem þegar er hafið að /'eisa þá hafi ibúðum á Patreksfirði fjölgað milli 20 og 30. Sl. laugardag var landað oliu- malarefni sem lagt verður á rúma tvo km. i byggðarlaginu og mun þetta vera fyrsta oliumölin sem lögð hefur verið þar á land. Þá er verið að steypa þekju á 2- 300 metra langa þekju á fremsta hluta hafnargarðsins i Patreks- Skattskráin mikið lesin Mikil örtröð hefur verið á Skattstof unni frá því skattskrá var lögð fram á föstudag. Að sögn afgreiðslufólks á Skattstofu finnst mörgum gjöldin hafa þækkað ískyggilega frá fyrra ári en menn þó verið rólegir og rætt málin æsingalítið. Mjög margir koma til að kynna sér skatta náungans. Nú er i fyrsta skipti lagt á sjúkratryggingagjald sem er 1% af útsvarsskyldum tekjum. Lagasetning um þessa skattheimtu hefur farið fram hjá mörgum og leita þeir þvi skýringa á þessu gjaldi. Arlega berast nokkur þúsund kærur eftir framlagningu skatt- skrár og verður sjálfsagt áfram- hald á þvi. Kærufrestur rennur út 5. ágúst og liggur skattskráin frammi þangað til. Þótt einhverj- ir fái lækkun á sköttum eftir kæru má samt sem áðurreikna með heildarupphæð álagðra gjalda hækki eins og vanalega eftir að Skattstofan hefur framkvæmt endurskoðun framtala. —SG Minnisvarði % afhjúpaður á Akranesi Brjóstmyndir af Haraldi Böðvarssyni útgerðar- manni á Akranesi og Ingveldi konu hans voru nýlega afhjúpaðir. Myndunum hefur verið valinn staður í lóðinni við hús þeirra hjóna á Akranesi. Tilefnið að þvi að minnisvarðar þessir voru reistir er það, að um þessar mundir eru liðin 70 ár frá þvi að Haraldur setti fyrirtæki sitt á Akranesi á stofn. Haraldur hefði orðið 87 ára á þessu ári hefði hann lifað. Forgöngu um minnisvarðana hafði Sturlaugur Haraldsson og náði hann að koma þvi verki i höfn áður en hann lézt fyrr á þessu ári. Gyða Jónsdóttir sem á ættir sinar að rekja til Akraness gerði myndirnar, en hún hefur verið við listnám erlendis á undanförnum árum. Viðstaddir afhjúpunina voru fjölskyldumeðlimirnir og nokkrir úr hópi elztu starfsmanna fyrir- tækisins. EB. fjarðarhöfn, en áður var einungis malarþekja á garðinum. Nokkuð hefur verið um að ferðamenn koma á Patreksfjörð i sumar og meira en oft áður. Agúst sagði að únnið hefði verið i báðum hraðfrystihúsunum á Patreksfirði i sumar og hefur afli verið góður fram á sumarið, en hefur heldur farið minnkandi undanfarnar vikur, en hvað at- vinnuástandið varðar hefur það litið eða ekki komið að sök vegna þess að margvislegar aðrar framkvæmdir, einkum i bygg- ingaiðnaði hafa tekið til sin allt fáanlegt vinnuafl. — EB alþýðu blaðið Frétt: Að hafin sé rannsókn á umboös- launum islenzkra fyrir- tækja erlendis og hvort brögð séu að þvi, og þá hvermkil, að verð á innfluttum varningi sé gefið upp hærra en það eriraun. Grunur leikur á þvi að einhverjir selj- endur erlendis gefii upp hærra verð á varningi að ósk kaupenda. Séð: Að Ullarverk- smiðjan Gefjun og Prjónabókin Elin hafa efnt til samkeppni um prjónaðar og heklaðar flikur. 40 verðlaun eru i boði og 40 uppskriftir keyptar til birtingar. Greiddar verða allt að 25 þúsund krónum fyrir meiriháttar uppskrift. Séð: úthlutun atvinnu- leysisbóta i Hafnarfirði á siðasta ári nam tæp- lega 4.4 milljónum króna og skiptist þann- ig: Verkamannafélagið Hlif 889 þúsund krónur, Sjómannafélag Hafnar- fjarðar 75 þúsund og Verkakvennafélagið Framtiðin liðlega 3,4 milljónir króna. Lesið: í Lögbirtinga- blaðinu: Að húseign i Vestmannaeyjum er auglýst á nauðungar- uppboði vegna skuldar að fjárhæð 1551 króna, auk vaxta og kostnaðar. Lesið: í Málaranum: Að i desember á siðasta ári hafi ung stúlka á tsafirði, Bjarndis Friðriksdóttir lokið sveinsprófi i málaraiðn með ágætiseinkunn. Hún hóf nám hjá föður sinum, Friðriki Bjarnasyni, 1971, þá 17 ára að aldri. Bróðir hennar, Jón Björn, lauk prófi á sama tima, einn- ig með ágætiseinkunn. Séð: I Lögbergi- Heimskringlu: Að auglýst er eftir ritstjóra að blaðinu, en núver- andi ritstjóri , Caroline Gunnarsson, er að hætta störfum fyrir aldurs sakir. Ritstjór- inn þarf að vera jafn- vigur á islenzku og ensku og kunna að vélrita. Usóknir skal senda: Mr. S. Aleck Thorarinson, 7085294 Protage Ave., Winnipeg R3COB9, Kanada.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.