Alþýðublaðið - 27.07.1976, Síða 8
8 OR YMSUM ÁTTUM
Þriðjudagur 27. júlí 1976.
/öu-
bláöíó
alþyóu-
blaöiö
Þriðjudagur 27. júlí 1976.
VETTVANGUR 9
Mikill álits-
hnekkir fyrir
lögreglu
Upplýsingar rannsóknar-
llögreglunnar i Reykjavik á
jföstudag um að einn rannsóknar-
ílögreglumaöur hefði verið
istaðinn að verki og handtekinn
Ifyrir ávisanafals, kom sem reið-
|arslag fyrir allan almenning. Tiö-
sindin eru mjög alvarleg og mikið
|áfall fyrir stétt lögreglumanna.
Mgður þessi hafði unnið að
irannsókn umfangsmikils ávis-
íjanafals, sem tengist öðrum saka-
|málum. Máþvi ætla, aðnauðsyn-
fjlegt sé að rannsaka á ný þann
|hluta málsins, sem þessi maður
Ihafði með höndum. Þá er liklegt,
að kanna þurfi hugsanlegt sam-
aband hans við aöra ávisanafals-
lara og misindismenn.
Alvarlegast er þó hve mjög
Iþessi atburður rýrir traust al-
Imenningsá lögreglunni. Mörgum
Iverður á að segja: Nú er ekki
llengur hægt að treysta lög-
freglunni. Og staðreyndin ersú, að
Seinn svartur sauður 1 hvitri hjörö
Igerir hana mislita.
Allir gera sér ljóst hve nauð-
isynlegt er að vanda val manna i
I lið lögreglunnar. Lögreglumenn
Igegna miklu ábyrgðarstarfi og
lerfiðu og kjör þeirra eru til
Iskammar. Þau eru slik og fjarri
jer að þau freisti nokkurs manns.
lEkki hefur verið hlustað á óskir
j lögreglumanna um bætt laun og
jþeir eru óánægðir. A meðan sh'kt
j ástand rikir verður erfitt að gera
Imiklar kröfur.
Afbrot meðal islenzkra lög-
] reglumanna eru nær óþekkt. Viöa
lerlendis hefur komizt upp um
Ihópa lögreglumanna, sem framið
j hafa hverskonar afbrot. Vonandi
jgerist slikt aldrei á tslandi og
I bezta ráðiö til að koma i veg fyrir
jþaö, er að búa vel að þessari
jmikilvægu stétt. Vonandi gera
j lögregluyfirvöld allt, sem i þeirra
í valdi stendur til að bæta þann
; álitshnekki, sem rannsóknarlög-
j reglumaðurinn hefur valdið með
jafbrotum sinum, þvi að með
jlögum skal landið byggja.
IGróska í
rekstri
Heklu á
Akureyri
tslendingur á Akureyri skýrir
frá ]?vl, aö framleiðsla Heklu á
jAkureyri á mokkakápum hafi
jaukizt mjög mikiö á þessu ári. Sé
: það einkum að þakka stórum
samningi viö Rússa. Þeir vilja fá
á þessu ári 5000 mokkafrakka, og
séþess að vænta að pöntun þeirra
á næsta ári verði sizt minni.
t samtali við Sigurð Arnórss.,
fulltrúa verksmiöjustjóra i
Heklu, kemur meöal annars
fram, að I fyrra voru framleiddar
daglega 8 til 10 mokkakápur, en
nú sé þessi tala komin upp i 35
kápur á dag. „Þetta er gifurleg
aukning,enviövonumsttil að hér
sé þö aðeins um byrjun á enn
meiri aukningu á framleiðslu
mokkaflika”, segir Siguröur.
I vor flutti skinnasaumastofa
Heklu i nýtt húsnæði á Öseyri á
Akureyri, og var þar um að ræða
100% húsnæðisaukningu fyrir
saumastofuna. Kom sú stækkun
sér vel, þvi á sama tima var að
hefjast framleiðsla 5000
nokkafrakka fyrir Rússlands-
markað, og er þaö langstærsta
,,magnpöntun”,sem Heklahefur
fengið á mokkakápur.
Sigurður segir, að allt séu þetta
karlmannafrakkar. Rússarnir
hefðu einnig viljað fá kvenkápur,
en fyrirtækið hefði ekki treyst sér
til að standa við afgreiðslu meira
magns en pöntunarinnar á
karlmannafrökkunum á þessu
ári.
- Sigurður segir: ,,Ég geri hins
vegar ráðfyrir, að strax á næsta
ári verði hægt að framleiða kven-
kápur lika, og jafnvel að huga að
fleiri mörkuðum i Evrópu og
Ameriku”. — En Hekla framleið-
ir ekki eingöngu til útflutnings. A
þessu ári veröa framleiddar
2-3000 flikur af mismunandi gerö-
um fyrir innanlandsmarkað:
kápur og jakkar af ýmsum gerð-
um fyrir karla og konur.
Alþýðu-
bankinn
ný stefna
í mótun
1 timariti Málm- og skipa-
smfðasambands Islands, Málmi,
er viötal við Stefán M. Gunnars-
son, bankastjóra, um stefnu
bankans i útlánamálum og fleira.
Fyrst er lögö fyrir hann þessi
spurning: „Nú er Alþýðubankinn
búinn að ganga i gegnum mikið
og erfitt uppgjör. Hvaða von er
um viðreisn Bankans?” — Og
Stefán svarar:
„Eins og kom fram á aðalfundi
bankans er fyrirsjáanlegt að
bankinn tapar nokkrum tugum
milljónar. En von bankans er
bundin við það að verkalýðsfélög-
um standiá bak viö hann,ogkomi
með fé inn i bankann til að rétta
við lausafjárstöðu hans, san er
slæm idag. Ef þetta gerist, getum
við breytt útlánastefnunni og
veittfleirum þjónustu. Þó viötöp-
um ekki fleiri skuldum er samt
mikið af stórum útlánum, sem
Stefán M. Gunnarsson,
bankastjóri Alþýöubankans.
tekur langan tima að koma I eðli-
legt horf, og þetta allt þrengir
mjög lausafjárstöðu bankans i
dag. Hins vegar á bankinn fyrir
skuldum og ef eigendur bankans
eru ákveðnir i þvi að rétta hag
hans, þá trúi ég ekki öðru en að
það takist.”
Siðar i viðtalinu er Stefán
spuröur: „Nú hefur það færst i
vöxt að bankar skýra frá þvi
hvernig þeir hagi sinum lánveit-
ingum og hvernig bankastjórar
haga sinum störfum gagnvart
bankaráðum. Hvernig veröur
þetta I Alþýðubankanum?”
Stefán svarar: „Það er ekki
komiöfastform á þetta ennþá, en
þaö er verið aö ganga frá erindis-
bréfi fyrir bankastjórann. Þar
veröur kveðiö á um ákveðna
prósentu af heildarútlánum bank-
ans, sem hann mun sjálfur taka
ákvöröun um. Þegar komiö er að
ákveðnum mörkum gagnvart ein-
staklingi eða fyrirtæki, mun
bankastjóri veita lán I samráöi
viö bankaráösformann, og ef um
enn hærri upphæð er aö ræða
kemur til kasta bankaráðs að
fjalla um lánsbeiðnina. Banka-
ráðiö á að halda fundi að jafnaöi
tvisvar i mánuði, og það ber að
leggja fyrir þaö þær skýrslúr,
sem þaö óskar eftir um útlán
bankans og aðra starfsemi hans.
Bankaráö á aö geta fengiö upp-
lýsingar um þaö hvenær sem er
hvernig mál standa og hvað hver
og einn skuldar mikið. Þá er i
undirbúningi vinnuplagg fyrir
bankaráöið þar sem gert er ráð
fyrir að bankaráðsformaður fylg-
istreglulega meðstarfsemi bank-
ans ásamt öðrum bankaráðs-
manni og þeir skipti með sér
verkum Skrifstofustjórinn, Gisli
Jónsson, er farinn til annarra
starfa og I hans stað hefur veriö
ráðinn Kristján Ölafsson, lög-
fræðingur sem áður hefur starfað
hjá tslenzkri endurtryggingu og
sem fulltrúi hjá bæjarfóget-
aembættinu i Kópavogi. Þá er
gertráð fyrir aö ráöa mann, sem
veröur yfirmaður i afgreiðslu-
deild bankans, og ennfremur að
ráða mann, sem annast daglega
endurskoðun i bankanum, og sá
maður yrði tengiliður milli
bankaráðsins og hinna kjörnu
endurskoðenda bankans”.
—AG
Hafsteinn Sveinsson, formaður Snarfara.
Hér sést hluti hradbátanna, sem tóku þátt í hópsigling-
unni.
■
\ ,.
Á sunnudaginn var
nokkuð mikill mann-
fjöldi samankominn
við Elliðavoginn, nánar
tiltekið þar sem hrað-
bátaeigendur hafa að-
stöðu sina.
Undirritaður blaða-
maður Alþýðublaðsins
átti leið þarna framhjá
og vakti þessi mann-
fjöldi athygli hans.
Eðlislæg forvitni knúði
hann til að spyrjast
fyrir um, hvað þarna
færi fram. Fékk ég þau
svör, að félagsmenn
sigiingaklúbbsins
Snarfara ætluðu að
fara hópsiglingu út i
Viðey og þaðan inn i
Reykjavikurhöfn.
Ástæðan var, að vekja
athygli manna á þvi, að
til væri fjöidi manna,
sem áhuga hefði á
þessari iþrótt. Sá
blaðamaður sér nú leik
á borði að fá að fara i
siglingu og betlaði far.
Fyrstur út i Viðey
Klukkan tvö var lagt af stað.
Lögðu minnstu bátarnir af stað
fyrst, þvi þeir ná minnstri ferð.
Þar sem undirritaður, fékk far
með einum alminns'ta bátnum,
hafði hann þá ánægju að komast
fyrstur út I eyjuna. Siöan heyrð-
ust heilmiklar drunur er stóru
bátarnir komu á mikilli ferð og
reyndu með sér. Ekki varð ljóst,
hver hafði bezt I þeirri viöureign
enda menn ekki á eitt sáttir um
það.
14 bátar
Út i Viðey komu um 14 bátar
af ýmsum gerðum og stæröum.
Eitt httfa þeir þó sameiginlegt
að þeir eru allir vélknúnir.
Margir þeirra eru heimasmið-
aöir. Er út i Viðey kom, var
gengið að tjaldi, þar sem selt er
kaffi og meðlæti. Settust menn
nú niður og skeggræddu yfir
kaffibolla fyrirhugaða siglingu
inn I Reykjavikurhöfn. Var á-
kveðið, að fyrst skyldi siglt inn i
vog nokkurn þarna i Viöey, en
þar voru staddir um 300 skátar.
Úr voginum átti siðan að sigla á
15milna hraða úr Viðey, upp að
Skúlagötu, sigla meðfram henni
og inn i Reykjavikurhöfn.
■“■i.
-
■éœÆésf-£ir'L*i
Safnastsaman við Elliðavoginn. Hér sést aðstaða sú, sem félagsmenn Snarfara hafa komið sér upp.
VIÐEYJARFERÐ
SIGLINGAKLÚBBSINS
SNARFARA
Um 200 félagar
Meöan menn skeggræddu
þetta, náði ég i formann klúbbs-
ins, Hafstein Sveinsson. Sagði
Hafsteinn, aðnú væru rétt innan
við 200manns Iklúbbnum. Þetta
er afar áhugasamt fólk, og hef-
ur það komiö sér upp þessari
aöstööu við Elliöavoginn I sjálf-
boðavinnu aö mestu leyti.
Klúbburinn hefur starfað i tæpt
ár og er i vexti. Aður var að-
staöa þeirra dapurleg og raunar
engin, og sú aöstaöa sem nú er
fyrir hendi, er afrakstur af
vinnu félagsmanna sjálfra.
Nú varö Hafsteinn að fara,
þvi hann stjórnar Viðeyjarferj-
unni Skúlaskeið, sem flytur
menn út i Viðey, þegar vel viðr-
ar.
Lagt af staö
Nú var lagt af staö i einfaldri
röð. Fóru stærstu bátarnir
fyrstir en þeir minnstu siöastir.
Var undirritaöur þvi nokkuð
aftarlega I hópnum. Var siglt á
15 milna hraöa, en það var af til-
litssemi viö minni bátana, sem
þessi hraði var valinn.
Það, að láta litlu bátana vera
aftasta, telur undirritaður að
hafi verið mistök, þvi sjórinn
var orðinn nokkuö ókyrr eftir
stærri bátana þegar komið var
aftast i röðina.
Ferð þessi vakti greinilega
nokkra athygli, þvi mörgum bil-
um haföi verið lagt við Skúla-
götuna og fylgdust þeir, sem i
bilunum voru með ferð bátanna
af miklum áhuga, að bezt varð
séð. Fór ekki alveg hjá þvi, að
maður væri hreykinn af þvi, að
vera einn bátverja.
Drepið á vélinni
Þegar inn á höfnina kom, tóku
menn að þeytast um höfnina
alla á bátum sinum. Tók þá
skipstjóri (stýrimaöur, vél-
stjóri) bátsins, sem ég var á upp
á þeim ósóma, að drepa á vél-
inni. Sagöist hann ætla að lag-
færa benzinslönguna (eða eitt-
hvað i þá áttina). Þegar þvi var
lokiö var ætlunin að gangsetja
vélina aftur. Gekk þaö ekki of
greitt. Hafði nú safnast saman
fjöldi fólks viö höfnina. Og
fylgdist fólkið með siglingu vél-
bátanna. Ekki leiö á löngu, áður
en meirihluti áhorfenda tók aö
fylgjast með átökum skipstjór-
ans á bátnum, sem ég var i, við
vélina. Er hann dró upp árar og
bað mig að róa að bryggjunni,
fannst mér þaö afar pinlegt að
hafa alla þessa áhorfendur.
Varð þvi áralagið skrýtiö og
gekk vonum seinna að koma
bátnum aðbryggjunni. Enda fór
það svo, aö vélin komst i gang
um leiö og ég hafði náð bryggj-
unni.
Sigldum viö nú um og haföi
undirritaður hina mestu
skemmtun af þessu öllu saman.
ATA
iiE ■ |
tJr saumastofu Heklu á Akureyri.
Þessi siglir í kjölfar okkar.
...Síðan setti hann benzingjöf ina í botn og þeyttist f ramúr okkur.
;•••. ■ •• ■.■ . . ■■•:■■■-"•:......................
Lagt af stað úr Viðey.