Alþýðublaðið - 27.07.1976, Side 13
alþýðu-
blaðið
Þriðjudagur 27. júlí 1976.
DJEGRADVÖL
Öryggisloki er i itölsku istungunum og er þvi ekki hægt að stinga i
þær máimhiut.
fái i sig straum þó þau stingi
bandprjóni eða nagla inn í þær.
En þessum töppum fylgir sá ó-
kostur að taka þarf þá i burtu ef
setja á rafmagnstæki i sam-
band. Oft vill þvi gleymast að
setja þá á sinn stað aftur, auk
þess sem börn geta auðveldlega
plokkað þá i burtu.
— AV
16. kali
Barninu batnaði fljótt, en enn
vissi enginn hver hafði sett það á
tröppurnar hjá Robert. Ann hafði
nóg að gera, þgar hún byrjaði aft-
ur að vinna. Hún kom á óðalssetr-
ið þrisvar eða fjórum sinnum.
Lafði Barcombe spurði um barn-
ið, enlét sér nægja að vita, að það
væri á batavegi.
Þegar Ann var búin að nudda
hana á föstudag, sagði hún, að
hún teldi, að þetta yrði i siðasta
skipti, sem hún þyrfti að gera
það. Meðferðin hafi reynzt vel.
Það var ekki minnzt meira á
hringinn og barnið. Eftir nuddið
hringdi lafði Barcombe á te og
bauð Ann.
— Segið mér, systir, sagði hún
jafnmynduglega og hún var vön,
— hefur eitthvað heyrzt frá móð-
ur fundna barnsins?
— Nei, svaraði Ann og fékk sér
sopa. — Og ég held, að hún finnist
aldrei.
— Ég hef hugsað mikið um
þetta mál, systir, sagði lafði Bar-
combe. — Ég held, að það væri
rétt af lögreglunni að hafa upp á
Anne-Marie Weigan...
— Anne Marie Weigan,... var
það ekki au-pair stúlkan, sem var
hjá yður etóíi alls fyrir löngu?
Ann starði undrandi á hana.
— Jú. Ég neyddist til að senda
hana á brott. Hún sýndi alltof
mikinn áhuga á syni miijum. Ég
sendi hana til London til systur
minnarv en^hún tolldi ekki þar.
— HaWið þér... að hún eigi
barnið?
Lafði Barcombe var alvarleg á
svipinn. — Það kæmi mér ekki á
óvart! Ekki vegna þess að ég sé
að ásaka son minn. Þó að hún eigi
barnið er ekki þar með sagt, að
hann eigi það. Það er bara gull-
hringurinn okkar, sem varð til
þess, að mér datt þetta i hug.
— Haldið þér, að sonur yðar
hafi gefið henni hann?
— Mér kæmi ekki á óvart, þó að
hún heföi tekið hann sjálf! Og ég
held ekki, aö hann hafi flækst
óviljandi með f fötum barnsins.
Ég held, aö það hafi verið ætlun-
in, að hringurinn fyndist og
skjaldarmerkið þekktist. Ætli
barnið hefði ekki fiindist á tröpp-
unum hjá okkur, ef það hefði ekki
veriö veikt, i staðinn fyrir hjá dr.
Mowe ! Ég veit ekki, hvortjþessi
kenning min stenzt, en ég hef
hugsað mér að tala við lög-
regluna.
Guð veit, hvað verður um
veslings barnið!
— Frú Scott vill taka það, sagði
Ann. — Hún missti barnið sitt og
vill gjarnan fá annað barn.
— Ég hefði nú haldið, að frú
Scott ætti nóg af börnum fyrir,
sagði lafði Barscombe súr. — En
við sjáum nú tO...
Það var farið að hausta að i
Meldersyde. Vinátta frk.
Brackley og Brand ofursta
stefndi i átt að einu hugsanlegu
lausninni. Þau voru alltaf saman.
Vitanlega stormar fólk ekki i
hjónabandið á þessum aldri,
sagði Ann við Robert, það kemur
bara af sjálfu sér.
— Aumingja maðurinn! Sagði
ég ekki einu sinni við þig, að
þetta yrði endirinn , þó að allt
væri skreytt túlipönum og postu-
linsstyttum?
Það var agnið á önglinum, sem
karlgreyið beit á.
— Hann þurfti ekki að bita á, ef
hann vildi það ekki, sagði Ann.
— Krókurinn var svo lokkandi,
sagði Robert þvermóðskulega.
Robert og Ann höfðu um svo
margt að tala, að þau hittast all
oft upp á siðkastið, og æ oftar
barst talið að litla barninu. Lafði
Barcombe hafði farið á sjúkra-
húsið til að sjá barnið, og hún
hafði viðurkennt fyrir Robert, að
henni virtist vera svipur með
telpunni og syni sinum, en lengra
vildi hún ekki ganga að sinni....
Sonur hennar Julian, var spillt-
ur af eftirlæti, og það orð fór af
honum i þorpinu, að hann væri
illa innrættur, þó að hann væri
glæsilegur að sjá og mjög að-
laðandi. Nýlega hafði hann lent i
alls konar dómsmálum i London
vegna brjálæðingslegs aksturs,
og það var aðeins eitt af mörgu
sem ástrik móðir hans reyndi að
loka augunum fyrir.
Robert sagði, að litla barnið,
sem fannst á tröppunum hans,
ætti kannski glæsta framtiö fyrir
höndum.ef lafði Barscombe væri
amma hennar, en henni hafði
hann alltaf i huganum likt við
Elisabetu fyrstu Englandsdrottn-
ingu.
Brddge
Fann ekki vinningsleið-
ina.
Spilið i dag:
& DG76
J942
DG8
*. K95
% DG105
4 A964
A AG1062
A2
V 76
4 K107532
4 873
4 K1098543
¥ ÁK83
4-------
4 D4
Sagnir gengu þannig:
Suður Vestur Norður Austur
lsp. dobl 2 sp. 3 tigl.
4sp. 5 tigl. dobl pass
5 sp. pass pass dobl.
Vestur spilaði út tigulás, sem
sagnhafi trompaði og spilaði
spaðakóngi út. Austur tók á ás-
innog sló út hjarta sjöi, sem sagn-
hafi tók á ás og spilaði iaufa-
fjarka. Vestur tók á ásinn og
spilaði hjarta. Sagnhafi tók á
hjartakóng og spilaði blindi inn á
tromp og spilaði siðan út
tiguldrottningu. Kóngur frá
Austri og sagnhafi trompaði.tók á
laufadrottningu og spilaði blindi
inn á spaða og fleygði tapslögun-
um i hjarta i tigulgosa og laufa-
kóng. Unnið spil. En veslings
Austur, sem hafði doblað spaðann
sat eftir með sárt ennið. Hann
mátti vissulega sjálfum sér um
kenna, þvi hann átti örugga leið
til að hnekkja spilinu og vinna
sina tvö földun. Það var máske
ekki alveg augljóst. Ef Austur
spilar smá tigli i þriðja slag.
getur sagnhafi að visu fleygt
niður tapspili í laufi eða hjarta.
En sama er hvort hann gerir.
Hann verður aö missa sinn
slaginn i hvorum litnum. Vestur
verður aðeins að gæta þess að
drpa ekki smálaufið með ás. en
geyma hann fyrir laufa-
drottninguna. Ef þið trúið ekki.
þá reynið sjálf! x
Þetta er skák þeirra
Guðmundar §igurjónssonar og
Ungverjans Sax. Skákin var
tefld i 12. umferð IBM skák-
mótsins i Amsterdam.
Hvitur: Guðmundur Sigur-
jónsson
Svartur: Sax
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 Cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 e6 6. Be2 a6 7. f4
Dc7 8. 0-0 Be7 9. Del 0-0 10. Dg3
Db6 11. Be3 Dxb2 12. Bf2 Db4 13.
e5Dxe5 14. fxe5 Re8 15. Re4 Rd7
16. Bd3 Da5 17. Rf3 f5 18. exf6
Rxf6 19. Rxf6+ Rxf6 20. Hael
Dxa2 21. Bd4 Dd5 22. Dh4 Bc5 23.
Bxc5 Dxc5+ 24. Khl Dh5 25. Db4
a5 26. Db6 a4 27. Bc4 Da5 28. Dd6
a3 29. Re5 He8 30. He3 a2 31. Hal
Rd5 32. Bxd5 Dxd5 33. Dc7 Hf8
34. Hg3 Bd7 35. Rxd7 Hfl+ 36.
Hxfl al (vekur upp drottningu)
37. Df4 Dxd7 38. Hgf3 Df6 og
hvitur gefst upp.
Bréfaskipti: Ísland-Japan
19 ára gömul, japönsk stúlka,
sem hefur mikinn áhuga á bætt-
um samskiptum þjóða i milli,
hefur Sent Alþýðublaðinu bréf.
Hana langar mjög mikið að ná
bréfasambandi við islenzka
unglinga.
Hún heitir Sachino Tanaka og
utanáskrift hennar er:
Miss Sachino Tanaka
17-3 Harima 1-C
Abeno-K, Osaka-S
545 Japan.
Hún skrifar ágæta ensku.
FRÉTTA-
GETRAUN
Svör
uossuuBuijy jiu/fajj ‘oi
UOSBISJO JE5JSO '6
iunipi|je§05|s Qv '8
uuijnui|Bs iQnBy •£
UOSSJBUiapiB^ UUIQPU <)
joquiaAOu ■?. -g
uoSSJEJO JnpiBAUgpH o
Jinopsuor jnQ!aqu§B>] -j;
JiUQpsupf bijji 'Z
uosEupn;) .íngjoji j
1. Hver er maðurinn?
2. Hvað heitir fulltrúi sá hjá
saksóknara er stjórnar rann-
sókn Grjótjötunsmálsins?
3. Islenzk listakona hlaut fyrir
skömmu verðlaun á Biennal-
grafiklistasýningunni. Hvað
heitir hún?
4. Sunnudagsleiðari Alþýðu-
blaðsins fjaliaði um Húsavikur-
kirkju. Hvað hét sá sem reisti
kirkjuna?
5.1 opnu sunnudagsblaðs var
fjallað um helztu stefnumál
þeirra sem til greina koma sem
forsetaframbjóðendur i Banda-
rikjunum. Hvenær fara
kosningarnar fram?
6. Alþýðublaðið hefir tekið upp
þann sið að birta einu sinni i
viku gamlar blaðagreinar sem
fjölluðu um mál sem ollu deilum
eða voru timamótamarkandi á
sinni tið. 1 sunnudagsblaðinu
var grein, sem bar heitið Rikis-
lögreglan og ihaldið. Hver var
höfundur hennar?
7. Það er ekki alvanalegt að
ungverskar kvikmyndir séu
sýndar i kvikmyndahúsum hér-
lendis. Háskólabió sýnir þessa
dagana eina slika sem mánu-
dagsmynd. Hvaö heitir hún?
8. Nú um helgina var haldið
hestamannamót á Suðurlandi.
Hvar var það? '
9. Þessa dagana stendur yfir
ljósmyndasýning að Kjarvals-
stöðum. Hvert er nafn ljós-
myndarans sem sýnir þar?
10. Ilvað heitir formaður Neyt-
endasamtakanna?