Alþýðublaðið - 09.09.1976, Qupperneq 3
SQm jFimmtudagur 9. september 1976.
FRÉTTIR 3
MEÐ LEIÐSÖGU-
MANN I VASANUM
Skortur á handhægum
og trúverðugum ferða-
handbókum um helztu
slóðir islenzkra ferða-
langa erlendis á eflaust
einhverja sök á þvi er
landinn verður fyrir ó-
þægindum af einhverju
tagi, og án slikra ieið-
beiningabóka missir
hann oft af markverðum
stöðum eða viðburðum.
Þannig má segja að án góðrar
handbókar verður ferðin lfkt og
hópferð án fararstjóra.
Bókaútgáfan Búkolla, Fram-
nesvegi 11 i Reykjavik, hefur ráð-
izt á þennan garð — á einum stað
a.m.k. — og gefið út nákvæma og
itarlega en jafnframt handhæga
leiðarbók af þessu tagi um hinn
vinsæla áningarstað sólþyrstra
norðurálfubúa, Costa del Sol á
suður-Spáni og Andalúsiuhérað.
1 tilkynningu útgáfunnar um
þessa bók segir m.a.
,,1 bókinni COSTA DEL SOL -
ANDALÚSIA er fjallaö um ýmiss
þau atriöi, sem ferðamanninum
er nauösynlegt að vita um — at-
riði eins og þau á hvaða hátt er
hentugast að ferðast til „fyrir-
heitna landsins”, hvað þar er
helzt að sjá og njóta, hvernig á að
koma fram við „innfædda” til
þess að gera sér dvölina þar
syðra sem ánægjulegasta — þá
siöi og venjur, sem Spánverjar
halda i heiðri og ferðamaðurinn
ætti að hafa i huga þegar hann
gistirland þeirra ogennfremur er
að finna i bókinni lista yfir al-
gengustu orð og orðasamböid.
Höfund bókarinnar, ÖRNÓLF
ARNASON, mun óþarft að kynna
fyrir þeim, sem undanfarin ár
hafa lagtleið sina til sólarstranda
Spánar. Hann hefur starfað árum
saman sem fararstjóri hjá Feröa-
skrifstofunni OTSÝN, er hund-
kunnugur á þessum slóðum og
veitmannabeztum þærmargvis-
legu spurningar, sem ferðamað-
urinn leitar hvað oftast svar við,
enda má finna i bók hans fjölda á-
bendinga, er reynzt hafa farþeg-
um, sem notið hafa fararstjórnar
hans, hvað bezt á liðnum árum.
Bókinnium COSTA DEL SOL —
ANDALOSIU er skipt 1 5 aðal-
hluta. í fyrsta hlutanum er fjallað
um land og þjóð, lýst atvinnuhátt-
um, stjórnarfari og fólkinu sjálfu
— þá er „stiklað á stóru” I sögu
Spánar, allt frá forsögulegum
tima til okkardaga. Þá eru i bók-
inni kaflar um héraðið Andalúsiu
og lýstmörgum þeim merku stöð-
um og borgum, sem hver einasti
ferðamaður ætti aö heimsækja. 1
bókinni eru götukort yfir helztu
borgir eins og Malaga, Sevilia og
Cordoba, og einnig þá staði, sem
flestir ferðamenn dveljast á:
Torremolinos og Fuengirola.
1 þeim hluta bókarinnar er
nefndur er „Hagnýt ferðafræöi”
er að finna ábendingar um atriði
eins og klæðaburð, tryggingar,
sóttvarnir, samgöngur, mataræði
og matarvenjur, veitinga- og
skemmtistaði, þjórfé — hið eilífa
vandamál ferðamannsins og yfir-
leitt, hvernig bezt er að béra sig
aö, ef menn vilja virkilega njóía
lífsins þar syðra.
Þá er i bókinni orðasöfn, er
geyma lausnir á þeim ráðgátum,
sem svangur ferðalangur stendur
frammi fyrir, þegar honum er
fenginn matseðiil á spænsku og
einnig algengustu orð og orða-
sambönd.” —BS
HVERJUM ERUM
VIÐ AÐ BORGA?
Á þessum siðustu og
verstu timum, þegar
almenningur þarf að
horfa i hverja krónu og
spara við sig i einu og
öllu, er siður en svo
undarlegt að fólk velti
þvi fyrir sér til hverra
allar þær upphæðir
sem reiddar eru af
hendi i verzlunum fari.
Margir bölsótast yfir
þvi, að kaupmennirnir
hirði svo og svo mikið
fyrir að rétta vöruna
yfir búðarborðið — en
eru þeir einir um hit-
una?
Hér á eftir munum við gefa
eitt dæmi um það, hvernig verö
einnar vörutegundar skiptist á
milli kaupmannsins og rikisins.
Vissulega eru slik dæmi alls
ekki tæmandi, enda misjafnt
hversu háir tollar eru á hinum
ólikustu vörutegundum, af
hverju greiða þarf vörugjaíd og
hversuhá álagning kaupmanns-
ins má vera á hverja vöruteg-
und.
Snemma i malmánuði sl. voru
keyptar hingað til landsins
þrjár litlar rafritvélar frá
Þýzkalandi. Þá var gengi þýzka
marksins rúmar 53 krónur is-
lenzkar.
SUNDURLIÐUN
Innkaup............ 1145.40 <DM)
Flutningsgjald.................
Vátrygging.....................
Cifverð........................
35% tollur.....................
10% vörugjald..................
Uppskipun......................
Akstur.........................
Vörugjald.......................
Bankakostnaður.................
ERLEND MYNT ÍSL. KRÓNUR
................................... 80.646.-
.................................... 2.275.-
..................................... 211.-
................................... 83.132,-
................................... 29.096.-
................................... 11.223.-
...................................... 172,-
...................................... 172.-
....................................... 50.-
.................................... 1.612,-
123.845.-
Vextir 1 1/2%............................................................................... 1.858.-
Kostnaðarverð............................................................................. 125.703.-
Álagning 18,8 ............................................................................. 23.632.-
Alagningkr.885.-pr/st....................................................................... 2.655.-
151.990.-
Söluskattur 20% ......................................................................... 30.398.-
Heildarupphæð........................................................................... 182.388.-
Sölugengi 159.24 — erlent innkaupsverð pr/vél DM 381.80
— Otsöluverð pr/véi 60.797 — Samtals kr. 182.391
Af þessu sést að rikið fær i
sinn hlut kr. 70.717( með þvi að
innheimta toll, vorugjald og
söluskatt. Af heildarsöluverði
vörunnar eru þá eftir 111.674
krónur. Þar af dragast siðan
þær 83.132 krónur sem vélarnar
þrjár kostuðu áður en á þær
voru lögðýmis gjöld hér á landi.
Þá eru eftir 28.542 krónur. Þar
af á kaupmaðurinn eftir að
greiöa fyrir uppskipun, akstur,
vörugjald og bankakostnað
krónur 2.006.- 1 þessu tilfelli er
leyfileg áiagning á vöruna
18.8% auk 885 króna álagningar
á hvern hlut, sem leyfð er ef
vöruveröer yfir 11 þúsund krón-
ur. Einnig er kaupmanninum
heimilt að bæta við vöxtum
vegna væntanlegrar rýrnunar
peninganna frá þvi að varan var
keypt og þar til hún verður seld.
Fyrir það að selja þessar þrjár
ritvélar fær kaupmaðurinn þvi
rúmar 26 þúsund krónur af þeim
tæpu 100 þúsund krónum sem á
sendinguna hafa verið lagðar.
— AV
Réttir
- Otlit fyrir
Nú fer að liða að þvi,
að réttir hefjist. Föstu-
daginn 10. september
verður réttað i
Tjarnarrétt i Keldu-
hverfi. 12. þ.m. verður
réttað í Hrútatungurétt
og 13. sept. verður
m.a. réttað i Brekku-
rétt i Norðurárdal i
Borgarfirði.
Til gamans má geta
þess, að 20. sept. verð-
ur svo réttað í Hafra-
vatnsrétt og þá gefst
borgarbúum tækifæri
til að bregða sér i rétt-
irnar, án þess að þurfa
að fara langar vega-
leiðir.
Sveinn Hallgrimsson sauö-
fjárræktarráðunautur sagði i
viðtali við blaðið i gær, aö svo
virtist sem dilkar yrðu nokkuö
vænir I ár.
„Hitt er svo annað mál, sagði
Sveinn, að gamla reglan var
sú, að ef veturinn var snjóléttur
og snemma voraði, þá urðu
dilkarnir rýrir. Astæðan fyrir
þessu er sú, að grös spretta
snemma og falla þvi fýrr en
ella, og kemur það niður á dilk-
unum”.
Sé þetta heimfært upp á sum-
arlðsem nú er að llða, ætti þessi
hefjast senn
að dilkar verði vænir í ár
regla fremur að gilda um Noið-
urland en Suðurland, þvi þar
var snjór niður i miðjar hliðar
fram eftir vori. Hins vegar gæti
orðiö undantekning á þessu nú,
þvi veðrið hefur verið með ein-
dæmum hlýtt norðanlands og
gróðurinn mikill.
Lofar góðu.
Þá sagði Sveinn, að nú væri
byrjað að rétta það fé sem kom-
ið væri af afréttum og hefði leg-
ið viö girðingarnar. Or Húna-
vatnssýslu hefðu þær fréttir
borizt, aö dilkarnir sem komnir
væri niður þættu nokkuð vænir,
og sömu sögu hefðu bændur á
Snæfellsnesihu að segja.
„Hins vegar verður að taka
það með I reikninginn, sagði
Sveinn, að ef veður hefur verið
þurrt og gott, þá er féð brúsandi
og fallegt og litur betur út.
En boriðsaman við undanfar-
in ár, þá eru dilkarnir með
vænna móti og ekki hægt annað
að segja en að byrjunin lofi góðu
um framhaldið”. — JSS.
Nú eru glósur einnig fáanlegar
Nú hefur verið tekin
upp sú nýstárlega þjón-
usta við nemendur, að
gefnar hafa verið út
glósur við allar helztu
kennslubækur fyrir
framhaldsskóla. Er það
Glósuútgáfan sem sér
um útgáfuna, og hafa
verið gefnar út glósur
við kennslubækur fyrir
menntaskóla, 5, 6, og 7.
bekk iðnskóla og 8, 9, og
10 bekk grunnskóla.
Verða bækurnar fáanlegar i öll-
um bóka- og skólaverzlunum um
land allt.
Þess má geta að i fyrra var
gerð tilraun með slika útgáfu og
voru glósurnar gefnar út undir
nafni Landsambands Mennta-
skólanema. Voruglósurnar unnar
i samráði við kenara og seldar
um land allt. Fengu þær svo góð-
ar undirtektir, aðfull ástæða þótti
til að halda þessari starfsemi á-
fram.
Eins og fyrr segir var höfð náin
samvinna við kennara um þessa
samantekt, enda ermarkmiðið að
spara nemendum tima og jafn-
framt að tryggja þeim betri
námsárangur.
-JSS
STJÓRN S.Í.B. MÓT-
MÆLIR UMMÆLUM
SKÓLAFULLTRÚA
REYKJAVÍKURBORGAR
Stjórn Sambands íslenzkra
barnakennara vill harðlega
mótmæla þeim fullyröingum
sem hafðar eru eftir skólafull-
trúa Reykjavikurborgar Ragn-
ari Georgssyni i einu dagblað-
anna 7. sept. siðastl. En þau
eru: ,,að laun barnakennara
væru nákvæmlega þau sömu og
hjá kennurum við gagnfræða-
skólana”.
Stjórnin vill vekja eftirtekt
skólafulltrúans á eftirtöldum
atriðum:
1. Kennsluskylda barnakennara
er fjórum stundum meiri á viku.
íarnakennarar fá 3.4 stig fyr-
ir hvert unnið starfsár til 1974.
Veldur það mun hægari tilfærsl-
um i launaflokkum en hjá kenn-
urum 7.-9. bekkja sem fá 4 stig.
3. Alag á yfirvinnu er lægri hjá
barnakennurum.
4. Barnakennarar sem kenna
við 8 mán. skóla verða að sæta
l/12skerðingu i launum, en ekki
aðrir kennarar.
Fleiri atriði má tilgreina.
Stjórnin vill eindregið hvetja
alla skrifstofufulltrúa mennta-
kerfisins til aö gefa réttar upp-
lýsingar bæði hvaö varðar
kennaraskortinn og launakjör
kennara.