Alþýðublaðið - 09.09.1976, Blaðsíða 7
AtJGLYSlNGAST
Fimmtudagur 9. september 1976.
OTLÖND 7
KYNÞÁTTAÓEIRÐIR í BRETLANDI
uppgangstímar fasista
350 lögreglumenn og 150
óbreyttir borgarar særðust i
átökum sem sigldu i kjölfar
hátíðahalda vestur-indfumanna
i Notting Hill i Lundúnum i sið-
ustu viku. 35 lögreglubifreiðar
urðu fyrir skemmdum og tvær i
viðbót brunnu til ösku. Fjórir
einkabilar hlutu sömu örlög, og
meira en þrjátiu skrifstofur,
verslanir og veitingahús urðu
fyrir skemmdum.
Nefndar hafa verið tvær ólik-
ar skýringar á þessum átökum:
hinir þeldökku framkvæmda-
stjórar hátiðarhaldanna hafa
sakað lögregluna um að hafa
„virkað ögrandi” á fólkið, með
þvl að hafa á mUli fimmtán
hundruð og tvö þúsund manna
lið á verði.
Lögreglan kennir hins vegar
flokkum litaðra ungmenna um
óeirðirnar á mánudaginn fyrir
vikuogsegir aðhið mikla útboð
hennar á mannskap, hafi verið
til að varna uppþotum, en ekki
að koma þeim af stað. Báðir að-
ilar hafa liklega nokkuð til sins
máls.
Undirrót óeirðanna.
Miklu mikilvægara en að skella'
skuldinni á ákveðna aöila, er
þetta: Notting Hill-uppþotin
munu enn auka á þau átök kyn-
þátta sem hafa magnast á Bret-
landseyjum á siðustu mánuð-
um, og styrkja öfl
hægri-æsingamanna, sem hafa
unnið töluvert á þar um slóðir.
Með viðbrögðum sinum á m-
ánudaginn hafa bæði samtök lit-
aðra og lögreglan lagt sitt af
mörkum til beggja hluta: ein-
stakir formælendur litaðra hafa
krafist sérstakra „bannsvæöa”,
þar sem lögreglunni skuli mein-
aður allur aðgangur. Hins
vegar hefur yfirmaður lögregl-
unnar i London, Sir Robert
Mark svarað ásökunum um að
lögreglumenn hafi öskrað , jcyn-
blendingar” og „hökkum þá i
okkur” á litaöa innflytjendur i
óeirðunum, með þvi að segja:
„Ég lit svo á að minir menn séu
venjulegt fólk sem bregst við á
mannlegan hátt”. Hann lauk
setningunni með bros á vör,
eins og „The Times” sagði frá
þvi.
Samtök hægri-æsinga-
manna i Bretlandi.
Hér á undan voru
hægri-æsingamennirnir nefndir.
Hverjir eru þeir?
Þeir eru aðallega saman-
komnir i tveimur flokkum, i
Þjóðfylkingunni (The National
Front), sem mynduð var áriö
1966 úr 5 minni hópum og i Þjóð-
lega flokknum, sem er
klofningshópur úr Þjóövylking-
unni. 1 kosningunum 1970 bauð
Þjóðfylkingin fram 10 fulltrúa,
sem fengu til samans rúmlega
11.000 atkvæði. Við kosn-
ingarnar i febrúar 1974 bauð
Þjóðvylkingin fram 54 fulltrúa,
sem fengu yfir 76.000 ahkvæði,
og við siðustu þingkosningar, i
október 1974, komst tala f ulltrúa
upp i 90. Fylkingin fékk þá um
115.000 atkvæði, eða yfir 3% af
heildaratkvæðatölunni. 1 næstu
þingkosningum áætlar Þjóð-
fylkingin að bjóða fram á fjórða
hundrað fulltrúa, og hún hefur
krafist þess að fá jafn langan
tima i útsendingum sjónvarps
fyrir kosningarnar og hinir
flokkarnir.
Á að taka Þjóð-
fylkinguna alvarlega?
Það sem gerir það að verkum
að menn veröa nú að taka Þjóð-
fylkinguna alvarlega, er hinn
áberandi góði árangur sem fas-
istarhafa náð i héraöa- og auka-
kosningum til neðri deildar
breska þingsins i sumar. Þeir
hafa hlotið um 10% atkvæöa i
tveimur kosningum til þingsins,
um 20% i mörgum kosningum i
Leicester og næstum 30% i
tvennum kosningum i kjördæm
um i Lundúnaborg. 1 júli fengu
Þjóðfylkingin og Þjóðlegi flokk-
urinn samanlagt um 44.5% at-
kvæða i Deptford, og 1
Lweisham i suðaustur-hluta
Lundúna fengu þau til samans
48% miklu meira en frambjóö-
andi Verkamannaflokksins,
sem þó sigraöi i kósningunni!
Eitt af höfuðstefnuatriðum
Þjóðfylkingarinnar er brott-
rekstur allra litaðra af Bret-
landseyjum, að „lög og reglur”
séu haldin, riki og fylkingin eru
yfirlýstur andstæðingur sam-
vinnu við Efnahagsbandalag
Evrópu. Hoaas lektor, sem ber
á móti þvi að 6 milljónum gyð-
inga hafi verið útrýmt i stríðinu,
hefur trygga bandamenn i röð-
um málpipna Þjóðfylkingarinn-
ar sem einnig eru sannfæröir
um að gyðingaofsóknirnar hafi
aldrei verið annaö en uppspuni.
1 skólaritlingi frá fylkingunni
segir svo: „Ert þú jafn mótfall-
inn þvi og við, að duglegu nem-
endurnir séu neyddir til þess að
sitja i sömu skólastofu og hinir
tomæmu?”
Afneita nasisma.
Auðvitað afneitar Þjóðfylk-
ingin stuðningi sinum við nas-
isma, en leiðtogi Þjóölega
flokksins, John Kingsley Read,
hefur látið svo ummlt um John
Tyndall, leiðtoga Þjóðfylking-
arinnar, að „hann hafi oft sagt i
kunningjahópi hvernig hann
ráðgerði að komast til valda-
baráttu gegn innflytjendum.
Þegar það hefði tekist, væri timi
til kominn að gera upp sakir við
þann kynþáttinn sem hann hat-
aöi mest, nefnilega gyðingana”.
1962 var þessi sami Tyndall
ritari i „hinum þjóðlega sósia-
listaflokki”, ogþá skrifaöi hann
arabiska sendiráðinu I London
og falaðist eftir 15.000 sterlings-
pundum til „sameiginlegs
markmiðs beggja aðila”. Þar
var átt við baráttuna gegn
zionisma og gyðingum. Sendi-
ráðið svaraði þessu neitandi.
En John Tyndall hefur átt
meiri velgengni að fagna i bar-
áttunni gegn lituðum innflytj-
endum. Margir liðsmenn
Verkamannaflokksins eru þeg-
ar komnir i varnarstööu i kvn-
þáttamálinu.
(Arbeiderbladet)
ÍSLENSK FÖT/76
Verið
LAUGARDALSHÖLL 8.-12. SEPT.
30 framleiðendur sýna úrval islenskrar fataframleiðslu
í aðalsal Laugardalshallarinnar.
Stærstu og glæsilegustu tískusýningar hérlendis eru
á sýningarpöllum í aðalsalnum, þar sem jafnframt er
veitingasala.
Allt besta sýningarfólk landsins (Karon og Modelsamtökin)
sýnir það nýjasta í íslenskri fatagerð, við tónlist og
Ijósskreytingu.
Tiskusýningar verða: Miðvikudag, fimmtudag og föstudag
kl. 17.30 og 21.00.
Laugardag og sunnudag kl. 15.30, 17.30 og 21.00.
í veitingasal fást Ijúffengir smáréttir, og auðvitaö kaffi
og kökur og öl, þar geta gestir því fengið sér hressingu
um leið og þeir horfa á tiskusýningarnar.
I anddyri eru hárskerar og hárgreiðslufólk með
hárgreiöslusýningu, þar veröur starfrækt hárgreiðslu-
og rakarastofa þar sem gestir geta séð nýjustu klippingar,
og jafnvel fengið sig klippta. í anddyrinu verða einnig
kjólameistarar og klæðskerar með sýningardeildir.
í ókeypis gestahappdrætti verður dreginn út vinningur
daglega; úttekt á íslenskum fatnaði fyrir 25.000 krónur,
og í sýningarlok verður dreginn út aðalvinningurinn,
föt á alla fjölskylduna fyrir krónur 200.000.
Opið kl. 3-10 daglega, svæðinu lokað kl. 11.
og v kly2-10ilaugardag og sunnudag. . m a
Syningunm lykur
á sunnudag
velkomin - strax í dag.