Alþýðublaðið - 10.09.1976, Page 3

Alþýðublaðið - 10.09.1976, Page 3
MaSíð1* Föstudagur 10. september 1976. FRÉTTIR 3 utanrikísrAðherra PÓLLANDS KEMUR I HEIMSÓKN Utanrikisráðherra Póllands, Stefan Olszowski, hyggst endur- gjalda heimsókn Einars Agústs- sonar, utanrikisráðherra, til Pól- lands i maimánuði 1973. Að þvi er fram kemur I frétta- tilkynningu frá utanrikisráðu- neytinu, mun Stefan Olszowski og eiginkona hans koma i opinbera heimsókn til íslands, mánudag- inn 20. september næstkomandi. Hér á landi hafa hjónin tveggja daga viðdvöl og halda aftur utan miðvikudaginn 22. september. EINAR ÁGUSTSSON TIL LANDSINS Á MORGUN Alþýðublaðið fékk þær upp- lýsingar i utanrikisráðuneytinu i gær, að ' samkvæmt óstað- festum fréttum væri Einar Agústsson utanrikisráðherra væntanlegur til landsins á morgun, en hann hefur verið i opinberri heimsókn I Tékk-. óslóvakíu og Ungverjalandi sið- ustu vikur. Ráðuneytið sagðist telja lik- legt að ráðherrann kæmi til starfa strax á mánudag og mundi þá e.t.v. svara fyrir- spurnum fréttamanna. ENN RÆÐST P0LYNF0N- KÓRINN í STÓRVIRKI Mikið starf er fram- undan hjá félögum Pólýfónkórsins, sem nú er að hef ja 20. starfsár sitt. Kórnum hefur borizt boð frá útgáfu- fyrirtækinu Deeca i London um að syngja inn á hljómplötu messu eftir rússneska tón- skáldið Rachmaninoff, — og hafinn er undir- búningur að viðamikilli söngferð um sjö borgir Italiu. Þá verða hinir árlegu páskatónleikar, kórsins, sem að þessu sinni verða jafnframt afmælistónleikar, en á næsta ári eru liðin 20 ár frá þvi Ingólfur Guð- brandsson söngstjóri stofnaði kórinn. Nánar verður sagt frá vetrarstarfi kórsins i blaðinu eftir helgi, en I kvöld hefur stjórn kórsins ákveðið að boða til fundar i hliðar- sal inn af Súlnasal Hótels Sögu, þar sem æskilegt er að allir kór- félagar mæti. Á fundin- um I kvöld, sem hefst klukkan 20.30 verða teknar ákvarðanir um mál þessi. Leiðrétting Sú meinlega villa slæddist inn i viðtal sem blaðamaður átti við Ragnar Georgsson skólafulltrúa Reykjavikurborgar, að haft var eftir honum að laun kennara við barna og gagnfræðiskóla væru nákvæmlega þau sömu. Þetta sagði Ragnar aldrei, það sem átti að standa var, að laun karla og kvenna við hvort stigið fyrir sig væru nákvæmlega þau sömu. Við biðjum Ragnar Georgs son og Samband isl. barnaskóla- kennara afsökunar á þessum mistökum. Neytendasamtökin: HARMA L0KUN MJÓLKURBÚÐANNA Ályktun Neytendasam- takanna um mjólkursölu- málin Neytendasamtökin fagna því, að sett hefur verið löggjöf, sem heim- ilar almennum matvöru- verzlunum smásölu á mjólk og mjólkurafurð- um. Þessi afstaða byggist á þeirri skoðun, að með þessum hætti verði þjón- usta við neytendur aukin f rá því sem nú er, án þess að verðhækkanir komi til á umræddum vöruteg- undum vegna þessara breytinga. Hinsvegar ber að harma þann ásetning AA.S. að loka öllum mjólk- urbúðum í Reykjavík í senn, enda ekki ætlun lög- gjafans, f stað þess að loka aðeins þeim sem skortir verkefni. Kemur þar tvennt til. 1 fyrsta lagi er hér um stórfeildar breyt- ingar að ræða, og óþarft að stiga bitna á starfsfólki þeirra, en það mun ekki koma til, ef nauðsyn- legar lokanir koma til fram- kvæmda smám saman með hliðsjón af fenginni reynslu. Reykjavik, 7.9,1976 f.h. Neytendasamtakanna Reynir Ármannsson skrefið til fulls i einni svipan, þvi vafalaust tekur töluverðan tima að brúa það bil eða þann þjónustumissi, sem margir neytendur verða fyrir með lok- un miólkurbúða. Helzt mun þetta bitna á þeim neytendum, sem erfitt eiga fyrir af ýmsum ástæðum. I öðru legi mun tafar- laus lokun allra mjólkurbúða Smásöluverzlun í dreifbýli á við ýmsa erfiðleika að etja Vandamál smásölu- verzlunar i dreifbýli voru rædd á ráðstefnu, sem Samband islenzkra samvinnufélaga gekkst fyrir að Bifröst i Borg- arfirði, dagana 1. og 2. september. Smásöluverzlun i dreifbýli hefur átt við nokkra erf iðleika að etja að undanförnu. Telja menn eina helztu örsök þessa vera þá, að leyfð álagning er of lág til að standa straum af þeim kostnaði, sem óhjá- kvæmilega hlýzt af f jar- lægð slikra verzlana frá heildsöludreifingaraðil- um. Einnig mætti nefna ýmsa aðra liði sem halda uppi kostnaði við rekstur smásöluverzlana i dreif- býli. Eru það flutningskostnaður, póst- og simakostnaður og kostn- aður við húsnæði undir vöru- birgðir, en verzlanir i dreifbýli þurfa oft að hafa fyrirliggjandi mun meiri vörubirgðir en verzl- anir i þéttbýli. Arstiðabundin landsfjárþörf sauðf járbænda eru þó eitt stærsta vandamál smásöluverzlunarinn- ar, en hún hefur haft i för með sér sivaxandi erfiðleika á þvi, að út- vega nauðsynlegt rekstrafjár- magn. Þá kom það fram á ráð- stefnunni, að á Suður- og Vestur- landi gætir þess í vaxandi mæli, að stórmarkaðir á Reykjavíkur- svæðinu dragi til sin viðskipti frá verzlunum i sveitunum. 6 framsöguerindi Alls voru flutt sex framsöguer- indi á ráðstefnunni. Axel Gisla- son, framkvæmdastjóri, ræddi um aðstöðumun verzlunar i* dreif- býli og þéttbýli. Gerði hann mn. grein fyrir nokkrum atriðum, sem valda mismun á kostnaðar- liðum hjá verzlunum i dráfbýli og þéttbýli — svo sem nauðsyn á meiri vörubirgðum i dreifbýli, dýrari pantanaafgreiðslu nauð- syn á þvi að eiga birgöir af sér- vörum og óhjákvæmileg lánsviö- skipti. Benti hann einnig á eftir- farandi leiðir til úrbóta: 1. Hækk- un álagningar. 2. Afsláttur af inn- heimtum söluskatti. 3. Beinir styrkir til dreifbýlisverzlunar. 4. Stýrkir til húsabygginga. Georg Ólafssai, verðlagsstjóri, ræddi um framtiðarhlutverk verðlagsyfirvalda með sérstöku tilliti til hverfis- og dreifbýlis- verzlana. Erlendur Einarsson, forstjóri, rasddi um aðgerðir annarra þjóða til þess að leysa vandamál smá- söluverzlunar i dreifbýli. Kom m.a. fram i ræðu hans, að i Nor- egi, Sviþjóð og Finnlandi hefur verzlun i hinum dreifðu byggðum veriðstudd verulega af hálfu hins opinbera. Ólafur Sverrisson, kaupfélags- stjóri i Borgarnesi, ræddi um vandamál dreifbýlisverzlunar kaupfélaganna. Einkum dvaldi hann við þá erfiðleika, sem kaup- félögin eiga við að striða vegna hinnar árstiðabundnu lánafyrir- greiðslu, sem þau veita sauðfjár- bændum árlega og er stöðugt að verða stærra og stærra vanda- mál. Ingi Tryggvason, alþingismað- ur, flutti erindi og skýrði frá vinnubrögðum sex manna nefnd- arinnar varðandi ákvörðun um álagninguá búvörum. Raktihann og sögu þessara mála frá þvi lög um Framleiðsluráð landbúnaðar- ins voru sett árið 1949. Ólafur Jóhannesson, viðskipta- ráðherra, talaði um viðskiptamál og svaraði fyrirspurnum fundar- manna. I ræðu hans kom það ma. fram, að hann hefði ákveðið að láta fara fram á næstunni sér- staka athugun á vanda dreifbýlis- verzlunarinnar. Þá skýrði ráð- herra frá drögum að frumvarpi um ný verðlagslög, sem þriggja manna nefnd embættismanna hefði nú lokið við að semja. Sagði hann þessi drög vera samin með norsk og dönsk verðlagslög sem fyrirmynd, en i Noregi og Dan- mörku er verölagning að mestu leyti frjáls, en þá haldið uppi ströngu verðlagseftirliti. Aö loknum flutningi framsögu- erinda voru á ráöstefnunni fyrir- spurna- og umræöutimar og vinnuhöpar störfuðu. Gestir á ráðstefnunni voru um 70, flestir frá Sambandinu, en einnig frá ýmsum opinberum sto&iunum, bönkum og stjórnmálaflokkum. Ráðstefnustjóri var Valur Arn- þórsson, kaupfélagsstjóri á Akur- eyri, en ritari var Gunnar Grims- son, fyrrum starfsmannastjóri Sambandsins. AV.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.