Alþýðublaðið - 17.09.1976, Page 3
Föstudagur 17. september 1976.
FRETTIR 3
ÁRSSKÝRSLA RAFMAGNSVEITUNNAR:
Ekki hægt að halda áfram
erlendum lántökum til
að mæta greiðsluhalla
í ársskýrslu Raf-
magnsveitu ReykjaL
vikur um reksturinn á
siðast liðnu ári segir
m.a., að i fyrra hafi enn
gætt áhrifa verð-
stöðvunarlaga frá árinu
1970 og framhalds þeirr-
ar stefnu stjórnvalda að
takmarka sjálfsfjár-
mögnun fyrir tækja svo
sem Rafmagnsveitu
Reykjavikur með þvi að
setja hömlur á eðlilegar
gj aldskrárhækkanir.
Óhjákvæmilegt reyndist að
taka þrjú erlend lán á árinu, að
upphæð samtals um 514 milljön-
ir króna. Þar af voru 70 milljón-
ir vegna vörukaupa til spenni-
stöövar Korpu. Lán til langs
tima, nær eingöngu erlend, juk-
ust af þessum sökum, svo og
vegna gengisbreytinga, úr 938
milljónum i 1.587 millj. króna
frá fyrra ár. Lán þessi ,. valda
Rafmagnsveitunni verulegum
erfiðleikum og viröist augljóst,
að lengra er ekki hægt að halda
á þeirri braut, segir I skýrsl-
unni.
Þá kemur það fram, að
rekstrarjöfnuður ársins 1975 var
493,4 milljónir og höfðu þá verið
afskrifaðar 79,8 millj. Þess ber þó
að gæta, að gengistap á erlendum
skuldum fyrirtækisins var á árinu
um 408millj., en þaraf voru færð-
ar til gjalda 27,2 milljónir, eða
sem samsvaraði gengistapi af af-
borgunum af skuldum, en á árinu
1974 var allt gengistap af erlend-
um skuldum fært til gjalda.
Hættulegar afkomu
fyrirtækisins
Síðan segir: Hefði gengistapið
verið fært til gjalda að fullu á ár-
inu 1975, hefði rekstrarjöfnuður
lækkaði 112,3 milljónir króna. Er
af þessu augljóst, hve hættuleg-
ar erlendar skuldir fyrirtækisins
eru afkomu þess, og augljóst er,
að ekki verður haldið lengra á
þeirri braut að taka erlend lán til
þess að mæta greiðsluhalla á
rekstri, enda er áhrifa þeirra á
gjaldskrá Rafmagnsveitunnar nú
farið að gæta að marki.
Afleiðingar rangrar stefnu i
gjaldskrármálum undanfarin ár
er annars vegar 1.000 milljóna
króna aukinn skuldabaggi fyrir-
tækisins, og hins vegar, að
raforkuverð hefði á árinu 1975
getað verið 6,5% lægra en það
var. Ennfremur má geta þess, að
rafmagnsverð árið 1976 er 14 -
15% hærra en annars hefði orðið,
segir i skýrslu rafmagnsstjóra.
Bundinn kostnaður 70%
Athyglisvert er, að af heildar-
kostnaði samkvæmt rekstrar-
reikningi reyndist bundinn kostn-
aður um 70%, þar af námu raf-
orkukaup rösklega 35%, gjöld til
rikissjóðs og Rafmagnsveitna
rikisins tæplega 28% og kostnaður
vegna erlendra lána rúmlega 7%.
Tekjur Rafmagnsveitu Reykja-
vikur á árinu 1975, að frádregnum
söluskatti og verðjöfnunargjaldi,
voru áætlaðar 2,256 millj. en urðu
2.188 millj. Heildartekjur með
söluskatti og verðjöfnunargjaldi
námu 2.837 milljónum og enn-
fremur voru innheimtar fyrir
Hitaveitu Reykjavikur 1.174
milljónir króna. Heildarfjöldi
orkureikninga á árinu varð um
350.000.
Rekstrargjöld v.oru áætluð 1.526
milljónir en urðu tæpar 1700
millj., eða 11% hærri en áætlað
var.
Aukning orkusölu
Ibúafjöldi á orkuveitusvæði
Rafmagnsveitunnar jókst aðeins
um 1%. 1 Kópavogi, Kjalarnes-
hreppi, Garðahreppi og á Sel-
tjarnarnesi var aukningin um 4 —
7%. I Mosfellshreppi um 20%, en
i Reykjavik fækkaði ibúum örlit-
ið. Hins vegar jókst orkusalan um
5,5%.
Orkusalan nam rösklega 319
gigawattstundum. Meðalverð
seldrar orku var um 8,40 krónur
hver kilowattstund, en var um
4,3Ö árið áður. Þessi hækkun
nemur þvi um 96%. Að opinberum
gjöldum frátöldum var meðal-
verð á kilowattstund kr. 6,40 eða
um 76% hærra en árið 1974.
Oformlegt verkfall hjá sjónvarpsmönnum:
Fjármálaráðuneytið fer
sér hægt
Blaðam. Alþýðu-
blaðsins leit inn hjá
Sjonvarpinu í gær til
þess að afla sér upplýs-
inga um það. sem þar
er að gerast, eða öllu
heldur sem ekki er að
gerast. Fréttamenn og
aðrir starfsmenn Sjón-
varpsins sem þarna
voru sögðu að þetta
væri ekki verkfall i
venjulegam skilningi,
heldur væru þeir með
sérstökum aðgerðum
að leggja áherzlu á
kaupkröfur.
Fram kom að stór hópur sjón
varpsihanna hefur þegar sagt
upp starfi vegna lélegra launa-
kjara. Viðræður hefðu átt sér
stað við fjármálaráöuneytið, en
árangur verið litill sem enginn
til þessa.
Þá ræddi blaðamaöur við
Pétur Guöfinnsson, fram-
kvæmdastjóra Sjónvarpsins og
spurði hann frétta af málinu.
Hann sagðist ekkert hafa rætt
viö.'starfsfólkið.Það hefði heldur
ekkert samband haft við sig út
af málinu. Þó hefði veriö ljóst
strax i gærmorgun, að hverju
Það gekk allt heldur rólega fyrir sig i sjónvarpinu i gær.
stefndi. Starfsfólkið heföi komið
til vinnu og hefði veriö i bygg-
ingunni allan daginn. Hann taldi
ekki á sinu færi að taka neinar
ákvarðanir út af málinu. Hins-
vegar vonaðist hann til að fjár-
málaráðuneytið tæki endanlega
afstöðu til málsins, sem yrði til
þess að leysa þann ágreining,
sem skapast hefði milli starís-
fólks Sjónvarpsins og rikis-
valdsins.
Pétur Guðfinnsson sagði það
sina skoðun, að skipun rikis-
starfsmanna i launaflokka væri
handahólfslega unnin. Bremsu -
nefndin svonefnda væri skipuð
yfirhlöðnum embættismönnum,
sem hefðu enga aöstöðu til þess
að leysa þessi mál sómasam-
lega af hendi. „Þessi vanda-
sömu verk þurfa þeir svo að
vinna i aukavinnu”.
Framkvæmdastjóri Sjón-
varpsins sagðist ekkert geta
sagt um þaðhvortmálið leystist
i dag eða hvort útsending sjón-
varpsins mundi falla niður.
Ýmislegt bendir þó til þess að
fjármálaráðuneytið hafi engan
sérstakan áhuga á að leysa
deiluna og ef aö likum lægur
munu hinir yfirhlöðnu em-
bættismenn telja sér holt að
fara að öllu með gát, þótt ekki
'væri nema af heilsufars-
ástæðum.
---------------------------,
Gæðavörur
Fótlagaskór með sterkum hrágúmmísóla
Sniö 132
Stærð: 24—41 kr. 4.285.-.
Litir: Millibrúnt og mosagrænt.
Styðjum
íslenzkan
iðnað
Snið 155
Stærð: 34—41 Kr. 3.980.-.
Stærð: 42—46 Kr. 4.745.-.
Litur: Dökkbrúnt.
SKEMMTANIR — SKEMMTANIR
HÓTEL LOFTLEIÐIR
Cafeteria, veitingasalur með sjálfsafgreiöslu opin alla
daga.
HÓTEL LOFTLEIÐIR
Biómasalur, opinn aila daga vikunnar.
HÓTEL SAGA
Griilið opiö alla daga. Mimisbar og Astrabar, opiö alla
daga nema miövikudaga. Simi 20890.
INGÓLFS CAFÉ
viö Hverfisgötu. — Gömlu og nýju dansarnir. Sími 12826.
SKEMMTANIR — SKEMMTANIR
Ingólfs-Café
Gömludansarnir í kvöld kl: 9
Hljómsveit Gaéðars Jóhannessonar.
Söngvari'Björn borgeirsson.
Aðgöngumiðasala frá kl. 8. — Simi Í2826.