Alþýðublaðið - 17.09.1976, Side 10

Alþýðublaðið - 17.09.1976, Side 10
10 LISTIR/MENNING Föstudagur 17. september 1976.1 Atvinna Viljum ráða: 1. Rafvélavirkja. 2. Verkamenn i byggingarvinnu á Kefla- vikurflugvelli. Fæði og húsnæði á staðn- um. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrif- stofum vorum á Keflavikurflugvelli og Lækjargötu 12, Reykjavik. íslenzkir aðalverktakar s.f. Fræðsluskrifstofa Reykjavíkur óskar eftir að ráða umsjónarmenn til starfa i skólum borgarinnar. Laun skv. kjarasamningi borgarstarfsmanna. Umsóknum skal skila til fræðsluskrifstofu Reykjavikur, Tjarnargötu 12, fyrir 25. sept. n.k. Tilkynning Vér viljum hér með vekja athygli heiðraðra viðskiptavina vorra á þvi, að vörur sem liggja i vörugeymsluhúsum vorum eru ekki tryggðar af oss gegn bruna, frosti eða öðrum skemmdum og liggja þar á ábyrgð vörueigenda. — At- hygli bifreiðainnflytjenda er vakin á þvi að hafa frostlög i kælivatni bifreiðanna. H.F. Eimskipafélag íslands Hitaveita Suðurnesja óskar að ráða matráðskonu að mötuneyti við varmaorkuverið i Svartsengi. Búseta i Grindavik æskileg. Umsóknir sendist Hitaveitu Suðumesja, Vesturbraut 10A, Keflavik fyrir 25. þ.m. íslenzka skipafélagið tilkynnir Stofnfundur islenzka skipafélagsins verð- ur haldinn i Átthagasal Hótel Sögu föstu- daginn 17. september kl. 19.20. Safnað verður hlutafjárloforðum að upp- hæð kr. 500 milljónir, og greiði hver aðili a.m.k. kr. 30 þúsund inn á væntanlegt hlutafé innan 5 mánaða. Kr. 700 milljónir eru þegar fyrir hendi. Allir sem áhuga hafa, eru hvattir til að mæta á þessum fundi. Skipið sem væntan- lega verður keypt verður rekið á likum grundvelli og m.s. Gullfoss, og einnig fraktskip sem loforð eru fyrir hendi með nóga flutninga. íslenzka skipafélagið. RÍKJANNA Dagana 17:-29. júli fór Karlakórinn Fóstbræður i söngför til Sovétrikj- anna i boði menningar- málaráðuneytisins þar. Kom kórinn við i Finn- landi þar sem haldin var ein söngskemmtun. í Sovétrikjunum hélt kór- inn 2 söngskemmtanir i Leningrad, eina i Vilnius i Litháen og eina i Druskieniki i Litháen. Söngstjóri i ferðinni var Jónas Ingimundarson, einsöngvarar þeir Er- lingur Vigfússon og Hákon Oddgeirsson en undirleik annaðist Lára Rafnsdóttir. Nær ein- göngu var flutt íslenzk tónlist, — þjóðlög, lög eftir látin tónskáld og is- lenzk nútimatónlist. 1 Finnlandi tók vinakór Fóst- bræöra, Muntra Musikanter, á móti kórnum. 18. júll héldu Fóst- bræöur söngskemmtun I Borg- bakken sem er skemmtigaröur i Helsingfors. Áheyrendur voru fleiri en rúmuöust I sætum og var þessi söngskemmtun eftirminni- leg öllum sem þátt tóku. Daginn eftir buöu M.M. Fóstbræörum i siglingu i skerjagaröinum og siö- an i hádegisverö á einni af eyjun- um þar. Veöur var fallegt,sólskin og bliöa, og veröur feguröinni vart með oröum lýst fremur en móttökum M.M. Til Leningrad komu Fóstbræö- ur 20. júll. Var haldin söng- skemmtun 22. júli fyrir þéttsetnu húsi áheyrenda sem hylltu kórinn óspart. Mátti kórinn syngja átta aukalög áöur en unnt var aö yfir- gefa sviöiö. önnur söngskemmt- un var svo haldin 24. júli á hátlbisdegi sjóhersins. Fór sú söngskemmtun fram á útisviöi og varö kórinn einnig þá aö syngja mörg aukalög. 1 Vilnius I Litháen, sem er borg með um 500 þúsund ibúa, hélt Karlakórinn Fóstbræöur söng- skemmtun I gamalli kirkju sem gerö hefur veriö aö málverkas. og hljómleikahöll sem tekur 1000 manns I sæti. Var sungið fyrir troöfullu húsi og voru ekki sæti fyrir alla. Hljómburður I þessari gömlu kirkju var mjög góður og skapaöist mikil stemmning meö söngmönnum og áheyrendum. Sem dæmi um þaö má geta þess ab er söngmenn komu út af söng- skemmtuninni beið fjöldi manns fyrir utan kirkjuna og urðu Fóst- bræöur aö syngja nokkur lög þar. í Druskieniki, sem er 150 þús- und manna borg um 35 km frá landamærum Póllands og Lithá- en, hélt svo Karlakórinn Fóst- bræöur slna slöustu söngskemmt- un I þessari ferö. Voru móttökur áheyrenda frábærar eins og alls staðar annars staöar. Uröu Fóst- bræður aö syngja mörg aukalög. Ennfremur biðu áheyrendur I for- sal hljómleikahússins er söng- menn gengu til búningsher- bergja. Hylltu þeir kórmenn ós- part sem varö til þess aö Fóst- bræður sungu þarna sem svaraði hálfum konsert til viðbótar. Eins og áður sagöi var ferð þessi farin i boöi sovéska menn- ingarmálaráöuneytisins. Voru móttökur af hálfu sovétmanna stórkostlegar. Létu þeir ekki sitt eftir liggja aö gera ferö þessa eft- irminnilega. Kórinn fékk frltt uppihald og fariö var meö kór- menn I margar skoöunarferðir. Að ferö lokinni var staldrað viö I Kaupmannahöfn þar sem Fóst- bræöur sungu hálftima dagskrá fyrir danska útvarpið og einnig var sungiö inná hljómplötu. Undanfarin ár hafa Fóstbræður efnt til haustskemmtana fyrir styrktarfélaga kórsins. A siöasta ári varö aö fella þessar skemmt- anir niður sökum anna vegna 60 ára afmælisárs og ferðarinnar til Sovétrlkjanna. Olli þaö mörgum styrktarfélögum vonbrigðum. Verður nú bætt úr þessu og þráð- urinn tekinn upp aö nýju og efnt til fjölbreyttra kvöldskemmtana I haust. Verður styrktarfélögum skýrt frá þeim bréflega á næst- unni. Karlakórinn Fóstbræöur I Vilnius I Litháen. Fóstbræöur I Taivallahtikirkju Helsingfors, en kirkjan er byggö inní klettahæö. AF SÖNGFERÐ FÓST- BRÆÐRA TIL S0VÉT-

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.