Alþýðublaðið - 24.09.1976, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 24.09.1976, Blaðsíða 4
Föstudagur 24. september 1976 4 VIDHORF SKATTAR ÞAR - OG HÉR Sven-Bertil Taube islenzkur iæknir, sem búsettur er í Sci- þjóð, var eitt sinn að lýsa fyril mér dásemd- um sænska velferðar- rikisins. Af lýsingu hans mátti ráða, að Sviar mættu varla missa i buxurnar án þess að rikið væri kom- ið aðvifandi með papp- ir á lofti til að skeina þá. Mér skildist að ibú- arnir byggju við svo fullkomið trygginga- kerfi, að við hið minnsta mótlæti þyrfti ekki annað en taka i út- rétta hönd ríkisins og öllu kippt i lag á stund- inni. Ég spurði um heilsufar fólks i þessu dýröarriki, minnugur blaðagreinar um gifurleg forföll á vinnustöðum i Sviþjóð vegna veikinda starfsfólks. Læknirinn fullvissaði mig um að þetta væri allt saman misskilningur. íbú- ar væru meö afbrigðum heilsu- hraustir og allt heilbrigöiskerf- ið skipulagtúti æsar. Þetta með veikindin væri allt annars eölis. Hann tók sem dæmi, að stuttu eftir að hann fór að vinna þar úti kom til hans maður með smá skeinu á fingri.Hér heima hefðu sumir ef til vill smellt plástri á fingurinn, en skeinan var svo ó- merkileg að þess hefði varla þurft. En Sviinn bað um veik- indavottorð til 10 daga vegna þess arna til aö afhenda vinnu- veitenda. Læknirinn hló til að byrja með og hélt að um gamansemi væri að ræða. En manninum var fúlasta alvara, stóð upp og sagði eitthvað á bá leið, að fengi hann ekki vott orðið færi hann bara til næsta læknis. Hann skyldi einn- ig láta þess getið á vinnustaö, aö þessi islenzki læknir væri ó- merkilegur pappir sem ekki borgaði sig að leita til. Vottorö- ið var skrifaö á stundinni. Lofsöngur læknisins um sælu- rikið kom mér satt að segja ekkert á óvart, enda heyrt hann oft áður og Sviar sterkrík þjóð eins og allir vita. Það má minna á, aö islenzkir námsmenn i Sviþjóö hótuðu aö sækja um sænskan rikisborgararétt ef ekki yrði gengiö um hærri námslán og styrki héðan að heiman. Þegar það kom svo i ljós, að almenningur hér var þess fremur fýsandi að náms- menn geröu alvöru úr hótun sinni féll máliö niöur. Undir áratuga stjórn sænskra jafnaöarmanna hefur rikið seilst æ lengra i afskiptum sín- um af borgurunum. Það er þvi engin furða þótt fólki væri orðið eilitið bumbult og kysi aö skipta um stjórn til aö fá einhverja til- breytni. Auk þess kosta þessi si- auknu rikisafskipti sitt og gjald- heimtan i Sviþjóð er ekkert lamb að leika sér viö. Frægt er orðið þegar frægasti leikstjóri Svia, Bergmann, gafst upp á of- sóknum skattyfirvalda og flutti úr landi. Nú hefur landi hans, Sven- Bertil Taube, en hann er sonur hins ástsæla visnasöngvara Evert Taube, lýst þvi yfir, að hann muni aldrei framar koma fram i Sviþjóð. Kveðst hann vera búinn að fá sig fullsaddan af yfirgangi skattheimtumanna og framvegis muni hann ekki koma fram á hljómleikum, i sjónvarpi né syngja inn á plötur i sælurikinu. Þessu lýsti Taube yfir í sænsku dagblaöi á sjálfan kosningadaginn og eflaust hefur það ýtt undir þá kjósendur sem voru á báðum áttum um, hvort þeir ættu nú að kjósa eitthvað annað en jafnaöarmenn, að láta verða af þvi. Þrátt fyrir ýmsa galla sænsks þjóöfélagsskipulags verður þvi ekki neitað, að margt gott má af þvi læra og ýmislegt er þar til fyrirmyndar. Til dæmis eru um- ræður um þjóðfélagsmál þar ákaflega opnar og menn ó- hræddir við að láta i ljós skoð- anir sinar á opinberum vett- vangi. Hér telst það til meiri- háttar viðburða ef einhver ráða- maöur leyfir sér að tala eins og honum býr i brjósti og ræöir mál af fullri hreinskilni. Þess i stað eru menn að þvæla fram og aftur með harðlifissvip um hin mikilsverðustu mál án þess að segja nokkuð i raun og veru. Gott dæmi um slikt eru skattamálin. Nú keppast iands- feður við að lýsa þvi yfir að skattalögunum verði aö breyta og þá i réttlætisátt að sjálf- sögðu. En hverju á að breyta og hvernig? Þeirri spurningu er enn ósvarað. Vel getur svo far- ið, að lögunum verði breytt á þann hátt, að erfiöara verði fyrir hátekjumenn að svikja undan skatti og skal það ekki lastað. En dettur einhverjum i hug að það veröi til að létta skattabyrði almennings, launa- fólksins? Þvi miður eru engar horfur á að svo verði. Jafnvel þó svo fari, aö beinir skattar komi réttlátar niður verður séð til þess að rikið nái þvi af fólki með ööru móti. Við erum sifelltað fjargviðrast út af beinu sköttunum. En það er minna talað um óbeinu skatt- ana. Samt er það svo, að ef þú kaupir hlut sem kostar eitt þúsund krónur renna tvö hundr- uð krónur af upphæðinni beint i rikishitina i formi söluskatts. Þar fyrir utan eru svo tollar af hlutunum og aðrir skattaliðir. Hver meðalfjölskyida borgar þúsundir króna á hverjum mán- uði I formi óbeinna skatta til rlkisins og samt er rikið alltaf á hausnum. Nei* þaö þarf enginn að búast við lægri sköttum þótt eitthvað veröi hrært I skatta- lagasúpunni. Það er staðreynd sem ekki verður á móti mælt, að lifskjör alls almennings hérlendis hafa hrlöversnaö á einu ári. Jafnt og þétt hafa lifsnauðsynjar hækkaö og hækkanir sem nema 25—30% á nokkrum mánuöum heyra ekki lengur til tiðinda. En ef far- ið er fram á 10% kauphækkun eöa svo ætlar allt af göflunum að ganga. Hvar er nú allt þetta rikidæmi okkur Islendinga? Við setjum okkur ekki úr færi að snapa uppi alla aukavinnu sem hægt er að komast yfir til þess að geta fætt okkur og klætt. Fólk þykist hafa himin hönd- um tekið ef það kemst i starf þar sem það getur þrælað myrkr- anna á milli alla daga vikunnar 1 sumum löndum er lagt bann viö slikum þrældómi, en hér er það lofað i bak og fyrir. Ráða- menn ljúga þvi blákalt að við búum við eina ódýrustu orku I heimi, vatnsorkuna. Nú er kom- iö á daginn, að raforkuverðið er orðið svo hátt aö t.d. iðnfyrir- tæki okkar greiða meir fyrir orkuna er samkeppnisaðilar I nágrannalöndunum. Ég get ekki að þvi gert, að oft verður mér flökurt þegar ráða- menn halda hjartnæmar ræður um dugnað islenzku þjóðarinn- ar. Það er ekki dugnaðurinn einn sem ræður þvi að fólk vill vinna 12 tima á sólarhring. Það er fyrst og fremst nauösyn sem rekur fólk út i þann þrældóm og það sem fólk ber úr býtum er svo litiö aö ekki sæmir siðuðu þjóðfélagi i dag. Hvenær ætlar islenzk verkalýðsforysta að gera sér ljóst, að almenningur i landinu á rétt á lifvænlegum launum fyrir átta stunda vinnu- dag? Sæmundur Guövinsson. Islenskubættir Albýðublaðsins eftir Guðna Kolbeinsson Oft er blaðamönnum legið á hálsi fyrir slæmt málfar. Þeir bera við timaskorti og segja að handrita— og prófarkalesarar eigi að lagfæra þær málvillur sem þeir i fljótfærni festi á blað. Ekki skal þvi móti mælt að blaða- menn hafi oft á tiðum nauman tima, en gera verður þær kröfur til hæfni þeirra og starfs- þjálfunar að þeir skrifi eigi að siður skammlaust mál. Starf handritalesara við dagblað hlýtur að eiga að vera i þvi fólgið að lagfæra smámuni sem betur mætti orða, en ekki i þvi að umsemja heilar greinar. En við skulum nú staldra við og fletta dagblöðunum dálitið til þess að athuga hvort málfarið sé jafn slæmt og af er látið. Litum fyrst á Visi, mánudaginn 13. sept. Á forsiðu er frétt um jaröstöö sem reisa á hérlendis i samvinnu viö Mikla norræna ritslmafélagiö. Þar segir svo: „Brynjólfur sagði aö af hálfu Mikla norræna heföi ekki verið fallist á þaö að Islendingar byggðu jaröstöö utan einka- leyfissamningsins, sem gildir til 1984. Þvi heföi veriö um þaö aö ræða að hætta á að vanefna samninginn og lenda I skaöa- bótamáli eöa...” Ekki er nógu vel að orði komist þegar talað er um aö byggja „jaröstöð utan eik '.- leyfissamningsins”. Hún væri frekar byggð I bága við samn- inginn. En betra hefði verið aö segja eitthvað á þá leið að norræna ritsimafélagiö heföi ekki viljað veita undanþágu frá samningnum. — Það mun nýtt i málinu aö tala um aö vanefna samning. Fram til þessa hafa menn rofið samninga eða ekki staðið viíþá. Hins vegar er til lýsingaroröið vanefna sem merkir fátækur, eignalitili. Næst skulum við bera niöur á bls. 4. Þar er mynd af allmörgum karlmönnum meö börn i fangi. Undir myndinni stendur (Leturbreytingar eru undan minum rifjum runnar.): „Lif sjómannsins er ekkert sældarlif, sjómenn verða aö sjá af f jölskyldum slnum svo vikum skiptir og hafa fá tækifæri til að fylgjast með uppvexti af- kvæmanna. Þegar flugmóðurskipið breska Ark Royal lagðist að bryggju um mánaðarmótin reiknuðu skipverjarnir út, aö sjómennirnir um borö ættu samtals 15 kjölturakka, sem þyrfti aö skira. Þeim dattl hug aö slá saman i eina allsherjar skirnarathöfn og var þaö skipspresturinn, sem athöfnina framdi. Af augljósum ástæöum fannst einginn skírnarfontur um borö og varö þvi aö snúa skipsbjöllunni viö og nota hana. Það þarf vart að geta þess aö hiö blessaða vatn, sem börnin voru skirö upp úr var salt. A myndinni sjáum viö feðurna og börnin og fremst stendur skipstjórinn með tvo rakka, sem hann hélt á undir skirn...” Heldur er þetta hjákátlegur ruglingur og ætti ekki að sjást i sjálfstæðu og vönduðu blaöi. Blaðamaðurinn viröist rugla saman orðunum rakki, sem merkir hundur og oröinu krakki. Til er oröið kjöltubarn sem merkir ungbarn, kornabarn,- en ekki er gott að ruglast á kjöltubörnum og kjölturökkum. Ennfremur er venjulega talað um, að halda börnum undir skirn en ekki að halda á þeim undir skirn. A sömu blaðsiöu er grein um bilnúmer i Englandi og segir þar m.a.: „I auglýsingum dag- blaðanna er gjarnan dálkur undir heitinu „Falleg númer”, þar sem boðið er upp á úrval skemmtilegra númera fyrir góöar fjárhæöir, jafnvel hundruöir þúsunda ." Orðið þúsund hefur tvenns konar fleirtölu: þúsund (hvorugkyn) og þúsundir (kvenkyn), en orðið hundrað hefur á hinn bóginn einungis eins konar fleirtöiu: hundruö (hvorugkyn). Þvi er rangt að tala um hundruðir. Rúmsins vegna verðum við að láta hér staöar numiö og komust þvi aöeins yfir 4 blaösiður aö þessu sinni. Litið á 4 síður í Vísi

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.