Alþýðublaðið - 24.09.1976, Síða 11

Alþýðublaðið - 24.09.1976, Síða 11
bSaöiö1' Föstudagur 24. september 1976 LISTIR/MENNING 11 8. Iþróttaþing ISt haldið & Akranesi 4. og 5. sept. 1976, skorar á öll sveitar- og bæjarfélög landsins, að byggja nauðsynleg iþróttamannvirki til þess að mæta auknu iþróttastarfi og tekið verði þá fullt tillit til þarfa skóla og iþróttasamtakanna. 9. Iþróttaþing tSt, haldið á Akranesi 4. og 5. sept. 1976 fagnar auknu starfi rikis og sveitarfé- laga að æskulýðsmálum viða um landið. Þingið bendir á nauðsyn þess að koma á virku samstarfi héraðssambanda og þessara að- ila til aö samræma æskulýðs- starfsemi á sambandssvæðunum. 10. tþróttaþing ISt, haldið á Akranesi 4. og 5. sept. 1976 beinir þvi til hæstvirts heilbrigöis- og tryggingarmalaráöherra, að hraðað verði útgáfu reglugerðar um slysatryggingar iþróttafólks, sbr. lög frá 16. mai 1975. • XI. tþróttaþing ISt, haldið á Akranesi 4. og 5. sept. 1976 beinir þvi til framkvæmdastjórnar ISI, að hún á komandi kjörtímabili beiti sér fyrir auknu samstarfi skóla og iþróttasamtaka landsins með það markmið að auka þátt- töku i iþróttum. 12. tþróttaþing ISl, haldið á Akranesi 4. og 5. sept. 1976, beinir þeim tilmælum til ÍKI og sérsam- banda tSt, að þessir aðilar hefji nú þegar samstarf um vinnslu og útgáfu samræmds kennsluefnis i hinum ýmsu iþróttagreinum — sé það samstarf ekki nú hafið. 13. tþróttaþing ISI, haldið á Akranesi 4. og 5. sept. 1976 beinir þeim tilmælum til framkvæmda- stjórnar tSI, að hún beiti sér fyrir lárlegum fundi með kennurum Grunnskóla ÍSt. 14. Iþróttaþing ISl haldið á Akranesi 4. og 5. sept. 1976 þakkar þá viðleitni framkvæmdastjórnar að fá ferðakostnað lækkaðan. Þingiö beinir þvi til allra iþrótta- félaga og sambanda aö skipu- leggja timanlega ferðir iþrótta- manna innanlands og utan, svo unnt sér enn frekar en oröið er að lækka ferðakostnaðinn. Telur þingið, aö til greina komi að tSI geti gerztaðiliaö samtökum, sem ráöa yfir eigin farkostum, gagn- gert i þvi skyni að lækka enn frekar ferðakostnað samtakanna og auka á möguleika þeirra til vaxandi samskipta bæði innan- lands og utan. 15. tþróttaþing 1976 lýsir yfir eindregnum stuðningi sinum við tillögur skólanefndar tþrótta- kennaraskóla tslands til mennta- málaráðherra um: 1. Byggingu íþróttahúss og sundlaughr við skólann. 2. Ráðningu sérstaks kennara að skólanum til þess að annast um fræðslu leiðbeinenda i iþróttum i samráði við skóla- nf fnd. Með nýjum lögum um skólann, sem samþykkt voru á Alþingi 1972, var skólinn gerður aö 2ja ára skóla. Með þeim breytingum viðurkenndi rikisvaldiö þörfina á aukinni og fjölþættari menntun iþróttakennara og leiðbeinenda i iþróttum en veriö heföi fram að þeim tima og mátti þvi ætla að i beinu framhaldi af þeirri breyt- ingu myndi rikisvaldið halda áfram nauðsynlegri uppbygg ingastarfsemi viö skólann og sjá honum fyrir eölilegri starfsað- stöðu. A þessu bryddar ekkert enn nú 4 árum seinna. tþróttaþing telur nauðsynlegt að rikisvaldið búi nú þegar þannig að skólanum, að honum verði gert fært að gegna þvi hlut- verki sinu, sem Alþingi sjálft hefir ætlað honum i samræmi við 1. grein laganna um skólann. 1 þinghléi siðari fundardagsins var þingfulltrúum boöið að skoða nýja iþróttahúsið, iþróttavöllinn og byggðasafniö. Einnig nutu þeir gestrisni bæjarstjórnar Akra- ness, Sementsverksmiðju rfkisins og Iþróttabandalags Akraness. Næsta stjórn íSi t stórn til næstu 2ja ára voru kjörnir: Gisli Halldórsson forseti, Sveinn Björnsson varaforseti, Gunnlaugur J. Briem gjaldkeri, Hannes Þ. Sigurðsson ritari og Alfreð Þorsteinsson fundarritari, sem kom i stjórnina i staö Þor- varöar Arnasonar, sem baðst undan endurkosningu. Við þingslit var Gisli Halldórs- son forseti ÍSt sæmdur gullmerki tþróttabandalags Akraness. íslenskir leikrita- þýðendur Vilja samvinnu við starfs- félaga á Norðurlöndum Nýlega voru stofnuð i Reykja- vik samtök leikritaþýðenda. A stofnfundi félagsins voru mætt- ir sextán leikritaþýðendur, en öörum starfsfélögum þeirra verður gefinn kostur á að gerast stofnfélagar fram að fyrsta að- alfundi, sem haldinn verður fyrri hluta næsta árs. Aöalmarkmið samtakanna, er að vinna að hagsmunum leik- ritaþýöenda, sem telja vinnu sina ekki metna á við aðra vinnu ileikhúsi. A stefnuskrá samtak- anna er, auk þessa, að stuðla aö útgáfu á þýddum ' leikritum, aukinni samvinnu þýöenda við leikstjóra og leikara og jafn- framt að leita eftir aukinni sam- vinnu við hliðstæð félög á Norðurlöndum. Stjórn samtaka leikritaþýð- enda skipa til bráöabirgöa þau Þorsteinn Þorsteinsson, óskar Ingimarsson og Margrét Jóns- dóttir. —JSS Sex vísindastyrkjum NATO úthlutað Menntamálaráðuneytið hefur úthlutað af fé þvi sem kom i hlut islendinga til ráðstöfunar til vis- indastyrkja á vegum Atlants- hafsbandalagsins (NATO Science Fellowships) á árinu 1976. Umsækjendur voru 23 og hlutu 6 þeirra styrki sem hér segir: 1. Axel.Björnsson, eðlisfræðing- ur, 500 þúsund krónur til jarð- eðlisfræðirannsókna, einkum á nýjum aðferðum i rafleiðni- mælingum, við jarðfræöi- stofnun Árósaháskóla og há- skólana i Braunschweig og Göttingen i Þýskalandi. 2. Höröur Kristjánsson, B.S., 250 þúsund krónur til framhaldsnáms og rannsókna i lifefnafræði við University of Maryland i Bandarikjunum. 3. Jóhann Þorsteinsson, lifefna- fræðingur, 500 þúsund krónur til að kynnast nýjum aðferð- um við rannsóknir á nýtingu aukaafurða i fisk- og slátur- iðnaði, við háskólann i Tromsö i Noregi. 4. Kristján R. Jessen, M.Sc., 250 þúsund krónur til rann- sókna á sviöi taugaliffræði til undirbúnings doktorsprófi við University College i London. 5. Sigurður B. Þorsteinsson, læknir, 200 þúsund krónur til að ljúka rannsóknum á öndunarvegasýkingum á sjúkrahúsum, við Baylor College of Medicine i Houston i Bandarikjunum. 6. örn Helgason, dósent, 500 þúsund krónur til náms- og rannsóknadvalar við Verk- fræðiháskóla Danmerkur i Kaupmannahöfn til að kynna sér jarðeðlisfræðilegar mæl- ingar með sérstakri geisla- mælitækni. Grafíkmyndum til útláns fjölgar Frá Norræna húsinu Ný deild, iistlána- deild, tók til starfa við bókasafn Norræna hússins sl. vor. Eru þar til láns um 180 norrænar graffkmyndir, sem Norræna grafikbandalagið gaf húsinu, en þessar graflk- myndir voru valdar á stórri norrænni yfirlitssýningu á grafik, sem haldin var i Bergen vorið 1975. Frá listlánadeildinni hafa þegar verið skráð yfir 300 út- lán, og hefur hingað til ekki veriö hægt að anna öllu meiru, þar eð rammaeign listlánadeildarinnar var af mjög skornum skammti. Nú hefur verið bætt úr þvi, og hafa nú verið settar upp tii sýnis, bæði i anddyri hússins og I bókasafni, flestar þær myndir, sem enn hafa ekki farið i umferð. — Myndirnar eru lánaðar út með sömu kjörum og bækurnar i bóka- safni hússins og er öllum heimilt að fá mynd til láns, eigi þeir útlánskort. Kostar útlánskort 50 kr. og gildir I eitt ár. Lánstimi myndar er að öðru jöfnu 30 dagar. Vilhjálmur Bergs- son, listmálari, hefur nú opnab málverkasýningu I sýn- ingarsölum i kjallara húss- ins og stendur hún til 3. októ- ber. Sýningin er opin frá kl. 15—22. SfLislafréttir WS:-; Sölusýning á grafík myndum Þessa dagana stendur yfir I húsakynnum Upplýsinga- þjónustu Bandarikjanna, Neshaga 16, Reykjavík, sýning 48 grafik-mynda eftir 36 bandariska listamenn. Myndirnar eru allar i eigu Jane Haslem Gallery I Washington og sýndar á vegum þess. Þær eru allar til sölu, en þeir sem kynnu að hafa áhuga á að kaupa þær verða að hai.' samband við fyrrgreint gallery, en það er til húsa að 2121 P Streetw, Washington DC. Listamennirnir sem þarna sýna eru á öllum aldri, sá elzti er fæddur árið 1888. Það er Josef Albers, en hann og kona hans Anni eiga bæði serigraf-myndir á sýningunni. Josef Albers á raunar dýrustu myndina, á 900 dali. Yngsti þátttakandinn er ab likindum Bryan Kay, en hánn er svo ungur að starfsfólk Upplýs- ingaþjónustunnar gat ekki orðið sér úti um neinar upplýsingar um hann aðrar en þær að mynd- in sem hann sýnir heitir Crowhill, State 3 og er átumynd. Eins og áður segir er dýrasta myndin á sýningunni á 900 dali en sú ódýrasta er á 50 dali. Sýningin verður opin til 1. október n.k. —hm. Myndlist á sjúkrahúsi Undanfarnar vikur hafa stað- ið fyrir málverkasýningar lista- manna af Suðurnesjum, á sjúkrahúsi Keflavikur. Nú hafa sýnt verk þar Halla Haraldsdóttir og Erla Sigurbergsdóttir. Yfir standa sýningar á verkum Helga S. Jónssonar, Gisla Einarssonar, Jónasar Hörðdal Jónssonar, Soffiu Þorkelsdóttur og Hafsteins Danielssonar. Sýningin er opin I öllum heimsóknartimum virka daga frá 17.30—18.30, og um helgar frá kl. 15—16. AB Hugleiðingar um lífssambönd Félag Nýalsinna hefur gefið út 7. hefti timaritsins Lifgeisiar. Lifgeislar flytur ýmsar greinar, þar sem byggt er á rannsóknar- niðurstöðum dr. Helga Pjeturss varðandi lifið i alheimi og sam- bönd þess. En athygli visinda- manna og annarra beinist nú i auknum mæli að öörum stjörn- um og möguleikum á lifi annars staðar en hér á jörðu. Helzta inntak þessa 7. heftis Lifgeisla er, hugleiðingar um lifsambönd, alis kyns draumar og vitranir, reynsla á miðils- fundum og fleira. —AB 8 fá glaðning Stjórn Rithöfundasjóös tslands ákvað á fundum sinum 25. mai og 20.ágúst siðastliðinn að úthluta eftirtöldum rithöf- undum úr sjóðnum áriö 1976, hverjum um sig 200 þúsund krónum: Einari Braga, Gisla J. Ástþórssyni, Ingimar Erlendi Sigurðssyni, Nirði P. Njarðvík, Ása i Bæ, Jóhannesi Helga, Kristni Reyr og Jónasi Guömundssyni. Stjórn Rithöfundasjóðs skipa nú þessir menn: Indriði G. Þorsteinsson rithöf- undur, Sigurður A. Magnússon rithöfundur, Runólfur Þórarins- son stjórnarráðsfulltrúi. MÍR-starfið að hefjast MtR-fundur verður haldinn i MtR-salnum, Laugavegi 178, nk. laugardag, 25. september, kl. 2 siðdegis. A fundinum verðurstarfsemi MtR næstu vikur og mánuði kynnt, sendinefndarmenn segja frá ferð til Sovétrikjanna fyrr i sumar og sýna myndir teknar i ferðinni. Þá verður sýnd kvik- mynd um þjóðdansa i Georgiu og loks efnt til ókeypis happdrættis um eiguiega minja- gripi.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.