Alþýðublaðið - 06.10.1976, Side 13
Miðvikudagur 6. október 1976
...TILKVðLDS 13
Flokksstarfið----------------------
30. þing SUJ.
Veröur haldiB á Akureyri dagana 8. og 9. okt.
1976.
Dagskrá auglýst siöar.
Siguröur Blöndal (form.)
Harpa Ágústsdóttir (ritari)
Alþýðuflokksfólk i Vesturlandskjördæmi
Aöalfundur kjördæmisráös veröur haldinn i Borgarnesi
sunnudaginn 10. október.
Sveinn Guömundsson
formaöur
Frá Trúnaöarráði Alþýöuflokks-
félags Reykjavikur.
Listi meö uppástungumum fulltrúa Alþýöuflokksfélags
Reykjavikur á 37. þing Alþýöuflokksins liggur frammi á
skrifstofu félagsins, Hverfisgötu 8-10.
Uppstillingarnefnd
FUJ í Hafnarfirði
Aöalfundur félagsins veröur haldinn fimmtudaginn 7.
október i Alþýöuhúsinu i Hafnarfiröi, og hefst hann kl.
8.30.
Dagskrá.
Venjuleg aöalfundarstörf.
Kosning fulltrúa á 30. þing SUJ
önnur mál. Stjórnin.
Kvenfélag Alþýðuflokksins í Reykjavik
Heldur fræðslufund mánudaginn 11. október n.k. kl. 20.301
Iönó uppi.
Umræöuefni:
Fjölbrautarskólar. Frummælandi Sjöfn Sigurbjörnsdóttir
kennari.
Allar Alþýðuflokkskonur velkomnar.
Stjórnin
Alþýðuflokksfélag
Reykjavikur.
Allsherjar atkvæöagreiðsla um kjör fulltrúa á 37. flokks-
þing Alþýöuflokksins fer fram f Alþýöuhúsinu viö Hverfis-
götu laugardaginn 9. og sunnudaginn 10. október n.k.
Stjórnin.
Fulltrúaráð Alþýðuflokksfélaganna í
Reykjavik
Fundur i hverfisráði Breiöholts 2 og 3 veröur haldinn miö-
vikudaginn 6. október i fundarsal verzlunarinnar Kjöt og
fiskur, Seljabraut 54.
Björgvin
Guðmundsson
Þetta veröur óformlegur kaffifundur þar sem spjallaö
verður um þau mál sem mönnum liggja á hjarta, m.a.
skólamál hverfisins og aöstööu fyrir börn.
Björgvin Guðmundsson, borgarfulltrúi Alþýöuflokksins
og Guömundur Magnússon, varaborgarfulltrúi mæta á
fundinn.
Formaöur hverfisráös Breiöholts 2 og 3
Siguröur Biöndal
Alþýðuflokksfélag Reykjavikur.
Félagsvist
Félagsvistin hefst með þriggja daga
keppni laugardaginn 16. október kl. 2 e.h.
Siðan heldur félagsvistin áfram eftir talda
daga: 30. október, 13. nóvember og 27.
nóvember. Byrjað verður stundvislega kl.
2 e.h. Góð verðlaun eins og að venju.
Spilað verður i Iðnó, uppi.
Skemmtinefndin.
Ritstjórn Alþýðublaðsins
er í Síðumúla 11
- Sími 81866
Guömundur
Magnússon
ÍHORNIÐ
■\
HVAÐ ERU „ELDRI
BÖRNIN” GÖMUL?
Blaðinu barst eftir-
farandi bréf frá 5 barna
móður:
,,Það hafa vist allir
krakkar og margir full-
orðnir fagnað þvi að sjá
Palla aftur i Stundinni
okkar i sjóávarpinu á
sunnudaginmt Yngstu
krakkarnir H'iíj'a tfekið
miklu ástfóstri við
Palla og Sirri. Þetta er
allt svo eðlilegt og gott
hj| þeim.
Mér hefur oft fundizt eitthvað
vanta fyrir eldri krakkana i
Stundina okkar. Mér þótti þvi
sérstaklega vænt um þaö, þegar
siðari hluti þáttarins átti aö
vera fyrir eldri krakkana. Ein-
hvern veginn finnst mér, aö hún
Sirri litla hafi ekki áttaö sig á
þessu. Þvi þegar hún fór aö tala
viö eldri krakkana, hélt hún
áfram aö tala, eins og hún væri
aö tala viö smábörn. Ég veit aö
þetta er ekki auðvelt fyrir alla,
og allra sizt þá sem ekki hafa
reynslu af börnum, en þetta er
ekki hægt. Þaö er ekki hægt aö
tala við börn á aldrinum 6 til 10
ára eins og maður sé aö tala við
börn á aldrinum tveggja til
fimm ára.
Spurningarnar sem Sirri lagði
fyrir skólakrakkana voru lika
alveg fyrir neöan allar hellur.
Ég held að Sirri hafi staöið sig
mjög vel meö litlu börnin, en ég
er þeirrar skoðunar aö þaö
hljóti að vera" hægt að fá ein-
hverja betri manneskju til aö
sjá um þátt fyrir eldri krakk-
ana. Það er svo sannarlega þörf
á slikum þætti. Með þökk fyrir
birtinguna.
5 barna móöir.’
gallaðar eldspýtur
Enn um
Tóbakskarl skrifar horninu á
ný:
„Mér finnst alveg nauösyn-
legt aö forstjóri ATVR geri
opinberlega grein fyrir þvi, aö
hann er aö selja landsmönnum
gallaöar vörur. Samkvæmt upp-
lýsingum, sem ég hef fengið frá
flugmanni sem flýgur I hverri
viku milli Evrópu og Ameriku,
fer ekki á milli mála, aö eld-
spýturnar sem viö erum aö
kaupa hér fyrir milligöngu
ATVR eru þriöja flokks vara,
stórgölluð vara, sem kaupsýslu-
menn erlendis mundu ekki láta
bjóða sér.
Bara vegna þess aö rikiö
hefur einokun á innflutningnum
ætti það ekki aö vera nóg til þess
aö allir segi takk fyrir og haldi
sér saman. Ég held aö þaö ætti
aö láta gera rannsókn á þessu
máli, enda er mér ekki grun-
laust um að hér sé eitthvað
meira en litið sleifarlag á
feröinni.
ATVR flytur inn vörur, sem
eru svo svimandi dýrar aö þaö
er full ástæöa til aö hafa stlft
eftirlit með þvi sem þar er aö
gerast. Ég vilbeina þeirriósk til
forstjóra ATVR að hann geri
opinberlega grein fyrir þessum
málum, áöur en lengra veröur
haldiö. Tóbakskarl.”
1HRINGEKJAN
STUH HÁR, EÐA SÍTT
- og þú tollir í tískunni
Þær lita óneitanlega vel út
stúlkurnar á myndunum hér aö
ofan, enda engin furöa þar sem
þær eru aö sýna þaö nýjasta i
hártfzkunni. Þetta mun vera
þaö sem koma skal I hártízkunni
I vetur. Og þaö er óneitanlega
gott til þess aö vita, aö hægt sé
aö vera meö sitt hár eða stutt
eftir þvi hvor klippingin klæöir
viökomandi vetur, og tolla jafn-
framt i tizkunni. En eins og
meistarinn segir: Ef þú litur út
fyrir aö vera a.m.k. 5 árum
yngri, eftir aö þú ert búin aö
heimsækja hárskerann þinn, þá
er tilganginum náö.