Alþýðublaðið - 16.10.1976, Side 2
2 STJÖRNMÁL FRÉTTIR
Laugardagur 16. október 1976
fTillaga um gerð sund-
[laugar
Gjafir, fyrirgreiðsla: fram á Alþingí
við Grensásdeild
tJtgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Rekstur: Reykjaprent hf. Ritstjóri
og ábyrgðarmaður: Árni Gunnars-
son. Fréttastjóri: Bjarni Sigtryggs-
son. íítbr.stj.: Kristján Einarsson,
simi 14900. Aðsetur ritstjórnar er i
Siðumúla 11, simi 81866. Auglýsinga-
deild, Aiþýðuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi 14906. Askriftar -
simi 14900. Prentun: Biaðaprenti h.f. Askriftarverö: 1100
krónur á mánuði og 60 krónur I lausasölu.
Engum þarf aö blandast hugur um mikilvægi þess-
arar tillögu, enda hefur hún þegar vakið mikla at-
hygli. Hér er hreyft máli, sem aðrar þjóðir hafa fyrir
löngu sett skýr lög um. Sem dæmi má nefna, að í
Bandaríkjunum má enginn i þjónustu hins opinbera
veita viðtöku gjöf eða þjónustu, sem er að verðgildi
hærri en 50 dollarar eða tæplega 10 þúsund íslenzkar
krónur. öllu öðru verður að skila til bandaríska ríkis-
ins.
Frægtdæmi eru um eiginkonu eins af varaforsetum
Bandaríkjanna, sem fékk að gjöf verðmætan demant,
er þau hjón voru á ferðalagi í Afríku. Blaðamaður
fékk veður af þessari gjöf, og sagði frá henni. Frúin
skilaði demantnum umsvifalaust, og er hann nú í eigu
bandaríska ríkisins.
í greinargerð með tillögu þingmanna Alþýðu-
f lokksins segir meðal annars: „Að sjálfsögðu er ekki
nema mannlegt, að aðili — einstaklingur eða fyrirtæki
— sem á allan sinn hag undir því kominn, hverjar
viðtökur erindi hans fær hjá forráðamönnum eða
umsjármönnum þessara stofnana almannavalds, leiti
ýmissa leiða til þess að tryggja sér velvild þess eða
þeirra, sem málum ráða.
öðru nafni mútur
Þingmenn Alþýðuf lokksins hafa lagt fram tillögu til
þingsályktunar um samningu afdráttarlausra laga-
ákvæða, er banni opinberum starfsmönnum að veita
viðtöku umtalsverðum gjöfum umfram það, sem
starfsréttindi kveða á um.
Þar er óskað eftir því við dómsmálaráðherra, að
hann feli þeim aðilum, sem starfa að endurskoðun á
lögum um réttindi og skyldur opinberra starf smanna,
að þeir geri sérstaklega tillögur um ný og afdráttar-
lausari fyrirmæli en nú er að finna í lögum, er banni
opinberum starfsmönnum að veita viðtöku umtals-
verðum gjöfum, endurgjaldslausri þjónustu, sér-
stökum fríðindum eða óvenjulegri fyrirgreiðslu
umfram starfsréttindi, er meta má til peningaverðs,
frá opinberum aðilum, einstaklingum eða fyrir-
tækjum, sem viðkomandi starfsmaður hef ur starfsleg
samskipti við.
Þá vilja Alþýðuflokks-þingmennirnir, að í lögunum
verði kveðið á um skyldu opinbers starfsmanns til
þessaðupplýsatil réttra aðila um þaufríðindi, gjafir,
endurgjaldslausa þjónustu og f leira, er hann kynni að
hafa þegið, svo og um viðurlög við brotum.
Þá vilja þtngmennirnir, að þeir er endurskoða lög
um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna, geri
tillögur um sambærilegar reglur varðandi ráðherra
og alþingismenn, sveitarstjórnarmenn og starfsfólk
sveitarstjórna og aðra þá, sem ráðnir eru eða kjörnir
til opinberra starfa.
Fjórir alþingismenn,
■ sem allir hafa dvalizt á
■ Endurhæfingardeild
Borgarspitalans við
Grensásveg, hafa flutt
tillögu til þings-
ályktunar um að gerð
verði sundlaug við
deildina.
■ Flutningsmenn eru
■ þeir Magnús
Kjartansson, Jóhann
Hafstein, Einar
Ágústsson og Eggert G.
Þorsteinsson.
Tillagan er þess efnis,
aö Alþingi álykti að beita sér fyrir
þvi i samráði við rikisstjdrnina að
á fjárlög ársins 1977 verði tekið
framlag til sundlaugageröar við
Endurhæfingardeild Borgar-
spitalans við Grensásveg.
í greinargerð er tekið fram, að
flutningsmenn hafi allir dvalizt á
deildinni, mislengi þó. Enda þótt
Grensásdeildin sé myndarleg
stofnun sé að sjálfsögðu þörf
framkvæmda sem stuðlaö gætu
að þvi að hún kæmi að enn meira
gagni. Fyrsti flutningsmaður
ræddi nokkuð við starfsfólk um
það hverjar framkvæmdir væru
brýnastar, einkum við Asgeir B.
Ef til vill smávægilegur jólaglaðningur til forstöðu-
manns lánastofnunar? Kannski boð um sérstaka
„kynnisferð" til forstöðumanns opinberra fram-
kvæmda frá fyrirtæki, erlendu eða innlendu, sem
viðkomandi forstöðumaður stendur í samningum við
um stórframkvæmdir fyrir hönd íslenzkra skatt-
borgara? Ellegar þá kurteislegt og velviljað tilboð f rá
aðila, sem þarf á sérstakri fyrirgreiðslu f járveitinga-
valdsins að halda, að það væri ef til vill ekki úr vegi
fyrir þá, sem um eiga að fjalla, að kynna sé starf-
semina þeim að kostnaðarlausu?
Allt þetta ogýmislegtíleira getur verið fyrir hendi.
Allt kann þetta að vera ósköp saklaust og eðlilegt. En
hvenær er svo ekki lengur? Hvar eru mörkin?"
Að sjálfsögðu verður slík markalína að vera til hjá
þjóð, sem vill telja sig siðmenntaða. Flutningsmenn
hafa þá trú, að því fyrr sem hún verður dregin, því
betra. Eðlilegast og öruggast er, að það sé gert með
löggjöf, þar sem mörk eru dregin á milli eðlilegrar
kynningarstarfsemi, vináttu og virðingarvottar við
opinberan starfsmann, ráðinn eða kjörinn, annars
vegar, og óeðlilegra „góðvildarkaupa" hins vegar.
AG—
Óvenju fagurt haustveður hefur rfkt i borginni að undanförnu og hefur það verið svolitil sárabót eftir fá-
dæma leiðinlegt veður I sumar. Og það er sjálfsagt að fá sér fs i haustbliðunni.
Ellertsson yfirlækni. Niðurstaða
hans var sú, að gerð sundlaugar
handa fötluðum væri það verkefni
sem gagnlegast væri og liklegast
til að skila árangri. Fylgir
greinargerð yf irlæknisins
tillögunni.
Samvinna við borgina.
1 greinargerð flutningsmanna
kemur fram, að um þetta mál
hefur verið fjallað i æðstu
stofnunum Reykjavikurborgar.
A fundi borgarráös 1, okt. s.l.
lögðu borgarráðsfulltrúar Sjálf-
s t æ ð i s f 1 o k k s i n s fram
svohljóðandi tillögu sem siðarvar
einróma staðfest á borgar-
stjórnarfundi 7. okt.:
„Borgarráð samþykkir að fela
borgarverkfræöingi i samráði við
borgarlækniað kanna, hvort hægt
er að ^koma fyrir sundlaug við
Grensasdeild Borgarspitalans, og
leggja fyrir borgarráð umsögn
ásamt kostnaðaráætlun að
þessari könnun lokinni.”
Þannig eru fullar forsendur
fyrir samvinnu rikisins og
Reykjavikurborgar um þessa
brýnu framkvæmd, segir i
tillögunni og er lagt til að meðferjj,
hennar verði hraðað.
-SG
Erling Blöndal leikur
sex svítur eftir Bach
- á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins
Fyrstu og aðrir
tónleikar Kammer-
músikklúbbsins á
starfsárinu 1976-77
verða haldnir i
Bústaðakirkju sunnu-
daginn 17. okt. kl. 21. og
þriðjudaginn 19.
október kl. 21.
A tónleikunum leikur
Bengtsson sex svitur
fyrir einleiksselló,
eftir J.S. Bach.
—AB