Alþýðublaðið - 16.10.1976, Side 10
14 FRÁ MORGNI..
Laugardagur 16. október 1976 pafui1^
FRÉTTA-
GETRAUN
1. Hverjir eru mennirnir?
2. Um helgina fór fram prest-
kosning i Dómkirkjusöfnuðinum
i Reykjavik, og er talningu nú
lokið. Hver fékk flest atkvæði?
3. Þá fór einnig fram prestkosn-
ing i Háteigsprestakalli. Hver
fékk flest atkvæðin þar?
4. Strætisvögnum Kópavogs
hefur bæst nýr farkostur I flot-
ann.
Af hvaða gerö er hann?
5. Hver var kjörinn 1. varafor-
maðurBSRB á nýafstöðnu þingi
samtakanna?
6. Nýlega var veitt úr minn-
ingarsjóöi Kjartans Sigurjónss.
til styrktar við söngnám. Hver
hlaut styrkinn i þetta sinn?
7. Hver varð sigurvegari á sið-
asta hraðmóti skákfélagsins
Mjölnis?
8. Hver veitir gitarskóla
Yamaha forstöðu? t
9. Hvar er Innréttingabúðin til I
húsa nú?
10. Bráðlega veröur gerð könn-
un á notkun almenningsvagna á
stór-Reykjavikursvæðinu. Til j
hve margra aðila nær sú könn-
Lausn gát-
unnar í dag
N
r
N
R
N
F
n a
ÍL
R
r
r
N
r
H
N
K
£
R
F
K
F
R
R
N
m
/i
N
73
r
SVOR:
'BQI0lpUBH[
3o ‘MAS‘HAS 'BfggucJ ni '01
£1 iSoAspsuaao qv '6
uossijaggg uejjefyi g
uosjepunui[ps snu8eiv t
JinöPJBQjeH M JPio '9
uossppo JJSJ3H 'S
PUB[X9H V
uossuiaAS seuipx 'JS '£
'juies Z
uosspunuiQnf) jiiefH JS 'I
HVENÆR BER AÐ
INU AÐ ÞAÐ
SÉ ÆTTLEITT?
SEGJA BARN-
Þegar kom að þvú að
dóttir okkar átti að ferm-
ast, spurðum við prest-
inn, hvort við ættum að
segja henni, að hún væri
ættleidd. Við höfðum
lengi ætlað að segja henni
þetta, en alltaf gugnað,
og afsakað hugleysi okk-
ar með því, að betra væVi
að bíða þar til hún yrði
fullorðin.
Presturinn ráðlagði
okkur að segja henni
þetta undir eins, því hans
álit væri, að börn ættu að
fá vitneskju um slfka
hluti, þegar í æsku.
En eftir að við höfðum sagt
henni, að við værum ekki raun-
verulegir foreldrar hennar,
gerðist einmitt það sem við ótt-
uðumst mest. Hún tók þessu
mjög vel til að byrja meö, en
seinna meir varð hún öðru visi
en hún átti að sér, úrill og við-
skotaill. Hún lætur nú orðið skap
sitt bitna á mér, en lætur föður
sinn að mestu i friði. Hún segir
ýmislegt sem bæði er ósann-
gjarnt og ekki rétt, eins og aö ég
haldi miklu meira upp á litlu
systur hennar heldur en hana
sjálfa. Ég veit sjálf aö þetta er
ekki rétt en ég veit ekki hvernig
ég get komið henni i skilning um
það-
Er það möguleiki, að við höf-
höfum gert rangt, með þvi að
segja henni að við séum ekki
foreldrar hennar i strangari
skilningi?
Skilningur er besta lausn-
in.
Sú saga sem sögð er hér að
framan, er ekkert undan-
tekningartilfelli. Þau eru mörg
vandamálin sem skapast, þegar
kemur að þvi að segja á barn-
inu, aö það sé ættleitt. For-
eldrarnir eiga oft i harðri bar-
áttu við sig, áður en þau geta
gengið að barninu, eða ungl-
ingnum og sagt þvi frá hvers
kyns er. Og barnið verður
undantekningarlaust fyrir
miklu áfalli.
Þvi vilja þeir meina, sem hafa
haft slik mál til umfjöllunar,
eða hafa haft af þeim að segja á
einhvern hátt, aö bezt sé að
segja börnunum frá þessu strax
.iæsku. Þá verður áfallið minna,
heldur en þegar um viðkvæma
unglinga er að ræða.
Þá hefur reynslan sýnt, aö ef
dætur eiga hlut að máli, þá láta
þær áfallið bitna á mæörum sin-
um, en drengirnir veitast að
feðrum sinum. A þetta einkum
viö ef um unglinga er að ræða.
Víst er það þreytandi fyrir
foreldra að þurfa að hlusta á
ósanngjarnar ásakanir dag eftir
dag. En ef þau stilla sig meðan
mestu vonbrigðin eru að ganga
yfir hjá unglingnum, þá lagast
sambandið vonum fyrr og eftir
tiltölulega stuttan tima er allt
komið I samt lag. Það versta
sem hægt er að gera i sliku til-
felli er að beita foreldravaldinu
fram úr öllu hófi, og ætla sér að
siða barnið þannig að það hætti
þessu nöldri. Uppreisnargirni
unglingsáranna er nóg fyrir þó
ekki sé verið að bæta gráu ofan
á svart, með alls kyns aðfinnsl-
um og nöldri.
FRAMHALDS5AGAN
Staðgengill stjörnunnar 7 *
eftir Ray Bentinck
þessa mynd frá byrjun. Við get-
um ekki lokið við hana án hennar.
Max sagði ekki orð, en Shirley
vissi, hvað hann hugsaði. 011
framtið hans var komin undir
þessari kvikmynd...
19. kafli
Þó að Silverstein reyndi að
halda þessu leyndu komst sá orð-
rómur brátt á kreik i húsinu, að
aldrei yrði lokið við myndina.
Þrir dagar voru liðnir frá komu
sérfræðingsins, og Paula, sem
vissi, að hann hafði ráðlagt öllum
að senda hana til Bandarikjanna,
varð óþolinmóð. — Hvers vegna
gerir Walt ekki neitt? vældi hún.
— Ef hann heldur að mér batni
fyrir kraftaverk til að bjarga
myndinni hans skjátlast honum
illa!
Loks kom Max og sagöi, að allt
væri til fyrir brottför hennar.
Shirley sem hafði sjaldan séö
hann eftir að Paula fékk tauga-
áfall fannst hann fölur og tekinn.
—Það kemur sjúkrabíllá morgun
og ekur þér út á Heathrow-flug-
völl, sagði hann við Paulu, — og
þaðan flýguröu heim með leigu-
flugvél.
Paula andvarpaði léttara og tók
um hönd hans. — Hvað um þig,
Max? spurði hún.
— Walt vill, að ég verði hérna
og við reynum að finna einhvern
endi á myndina, sagði Max. —
Hann heldur, að hann geti
kannski notað Shirley. — Hann
getur ekki gert mér það! hrópaði
Paula. — Ég fer í mál við hann, ef
hann lætur staðgengil leika i minn
stað slðasta hlutann.
Max yppti öxlum. — Ég er ekk-
ert að ásaka þig, en þetta er áfall
fyrir okkur öll. Ég verö vist að
reikna með þvi að veröa óþekktur
áfram.
Paula leit bliðlega á hann. —
Komdu með mér til Hollywood,
Max, hvislaði hún. — Ég get út-
vegað þér annað hlutverk ekki
síður en þetta. Þar batnar mér
fljótlega.
— Takk, Paula, en ég get ekki
svikið Walt!
— Þú verður að hugsa um
sjálfan þig, sagöi Paula. — Walt
stórtapar auðvitað á þessu, en
hann þarf ekki að draga þig I
svaðið með sér.
Shirley til skelfingar leit út
fyrir, að Max væri að láta undan.
— Það... hljómar vel, Paula,
stamaði hann. — Auðvitað vonar
Walt, að þú jafnir þig á siðustu
stundu, svo að hægt sé að ljúka
við myndina. Það er litið eftir af
þlnum atriðum.
— Ég yrði kyrr ef þeir næðu
Luke! andvarpaði Paula. — En
það gera þeir ekki, og ég fer!
Komdu meö mér. Max. Ég
þarfnast þin enn...
— Walt lika! sagöi Shirley
hvasst. Ef þú ætlar að hjálpa hon-
um að ljúka myndinni, Max, skal
ég gera mitt bezta.
Paula hló hæðnislega. — Þú
gerir þitt bezta fyrir sjálfa þig,
elskan, en ég er að hugsa um
Max. Hann fer á morgun... með
mér.
Max hikaði aðeins sekúndubrot,
svo kinkaði hann kolli. — Allt I
lagi, sagði hann lágt. — Ég verð
að hugsa um mig... og þig, auðvit-
að!
Eigingirni hans hneykslaði
Shirley, þó að hún væru nú farin
aðvenjastþessu. —Þér er þó ekki
alvara, Max? sagði hún. — Þú
getur ekki svikið Walt!
— Ég svik sjálfan mig, ef ég fer
ekki!
Shirley leit fyrirlitningaraug-
um á hann og snérist á hæl. Hún
fór inn til sin og grét þar sáran.
Þegar hún hafði grátið út, fór hún
niöur i bókaherbergið til að vita,
hvort hún gæti eitthvað hjálpað
Silverstein. — út! Heim með þig!
hrópaði hann. — Verið ekki aö
hengja nef og væla yfir ein
hverju, sem enginn getur breytt.
Það er enn hætta á þvi, að Luke
Castle hefjist handa, áður en
Paula fer, svo þér skulið ekki láta
sjá yður. En sendið Janet Gibbs
til min til að hjálpa mér með
uppsagnirnar en segið þetta eng-
um nema henni.
Þegar Shirley hafði látið niður I
töskurnar fór hún inn til Janet og
KOSTABOÐ
á kjarapöllum
KJÖT & FISKUR
Breiðholti
Simi 71208
74201
®-0
%V" P0STSENDUM
TRULOFUNARHRINGA
k>ll.mnts UcifBSon
l.iugiiOtgi 30
áiillll 19 209
punn
Síðumúla 23
/íffli 04900
Heimiliseldavélar,
6 litir - 5 gerðir
Yfir 40 ára reynsla
Rafha við Óðinstorg
Símar 25322 og 10322
Birgir Thorberg
málarameistari
sími 11463
önnumst alla
málningarvinnu
— úti og inni —
gerum upp gömul husgögn">