Alþýðublaðið - 24.11.1976, Síða 7
Miðvikudagur 24. nóvember 1976
STJÖRWMÆL 7
. þings S.U.J. um stjórnmál og verkalýðsmál
Ungir jafnaðarmenn berjast fyrir
frelsiT jafnrétti og bræðralagi -
GEGN ÓRÉni,
ÓJÖFNUÐI OG
NIÐURLÆGINGU
Ályktun 30
30. þing S.U.J. hvetur ai-
þýðu landsins til að taka
höndum saman og breyta
þeirri geigvænlegu þróun
þjóðf élagsmála, sem
hlotist hefur af óstjórn
siðustu ára:
— Á sviði efnahagsmála
með þeim af leiðingum að
af hefur hlotist:
1. Stórkostleg, óþörf skulda-
söfnun erlendis.
2. Veik staða islensku krón-
unnar.
3. Alvarleg kjarárýrnun,
vegna minni kaupmáttar en áð-
ur.
4. Ranglát eigna- og fjármála-
tilfærsla i skjóli óðaverðbólgu.
5. Óþolandi skattalöggjöf.
6. Ótimabærar stórfram-
kvæmdir, svo sem Kröfluvirkj-
un.
— Á sviði dómsmála, með
þeim afleiðingum að af hefur
hlotist:
1. Afleit vinnubrögð i meðferð
dómsmála.
2. Slæm aðstaða, mannafla-
og tækjaskortur.
3. Niðurlæging dómsstóla.
4. Virðingarleysi fyrir reglum
lýðræðisþjóðfélags eins og þvi
sem meiri hluti islensku þjóðar-
innar hefur álitið hentugasta
stjórnarformið.
— A sviði atvinnu og byggða-
mála, þar sem notast er við hina
ósýnilegu hönd frjálshyggjunn-
ar með þeim afleiðingum að:
1. Arðsemissjónarmið fjár-
festingar i islensku atvinnulifi
er einskis metið.
2. Heildaryfirsýn um ástand i
atvinnumálum þjóðarinnar er
ekki til.
3. Stórhætta er á ofnotkun
helstu auðlindar þjóðarinnar,
fiskinum umhverfis landið.
— Á sviði menntamála, þar
sem varhugaverðum stjórnar-
aðferðum er beitt með þeim af-
leiðingum að:
1. Aðstaða til náms hefur orð-
ið frekar ójafnari vegna skerð-
ingar á kjörum námsmanna er
rikisstjórnin stóð að s.l. vetur.
2. Jafnrétti milli karla og
kvenna virðist meir i orði en á
borði a.m.k. ef dæma má af
mjög ófullkominni löggjöf um
dagvistunarstofnanir.
— A sviði félags- og heil-
brigðismála, með þeim afleið-
ingum að:
1. Aldraðir og öryrkjar búa við
mjög erfið lifskjör.
2. Einstaklingurinn þarf nú að
greiða fyrir ýmsa sjúkraaðstoð
sem áður var endurgjaldslaus.
3. Ungu fólki er gert nær
ókleift að komast yfir eigið hús-
næði án þess að neyðast til að
stunda ýmisskonar siðspillandi
verðbólgubrask.
— Á sviði orku- og iðnaðar-
mála með þeim afleiðingum að:
1. Iðnaðurinn sem skapandi
atvinnugrein fær ekki þau skil-
yrði til vaxtar og viðgangs sem
með þarf.
2. Ráðist er i framkvæmdir
vegna óvisindalegra, handa-
hófskenndra ákvarðana saman-
ber Kröfluvirkjun.
3. Skipulagsleysi rikir á eign-
ar- og framkvæmdaatriðum
varðandi sölu og dreifingu
orku.
Hér skal staðar numið við
upptalningu en af nógu er að
taka. Þó verður ekki látið hjá
liða að benda á eina sameigin-
lega afleiðingu allrar óstjórnar-
innar. Sú afleiðing er slæm og
þjóðhættulegt siðferðismat.
Gegn þvi verður nú þegar að
snúast og færa i það horf, að
siðferði þjóðarinnar hæfi menn-
ingararfleifð hennar og þvi lýð-
ræðisfyrirkomulagi sem megin
þorri landsmanna vill að riki i
þjóðfélaginu, annars er vá fyrir
dyrum og lýðræðinu hætt.
— Til þess að snúast gegn
þeirri hættu vill 30. þing SUJ
benda á tvennt sem ihuga verð-
ur:
— I fyrsta lagi, hvers vegna
hefur svo farið sem raun ber
vitni um.
— t öðru lagi hvað er til úr-
bóta.
Varðandi fyrra atriðið þá er
vert að geta þess að jafnaðar-
og samvinnuhugsjónin eru af
sama meiði og þvi augljóst
að vegur og virðing þeirra er
háð þvi að aldrei beri þar á
milli. ógæfa samvinnu- og jafn-
aðarhugsjónarinnar liggur i þvi
að Framsóknarflokkurinn hefur
hagsmuna að gæta i óréttlátu
kjördæmafyrirkomulagi og i
þeim efnum fara saman hags-
munir Sjálfstæðis- og Fram-
sóknarflokks.
Varðandi fyrra atriðið er þó
mikilvægt að komið verði i veg
fyrir að óábyrgum, öfga-og aft-
urhaldsöflum, Alþýðubandalags
og Sjálfstæðisflokks leyfist að
ráðskast og velja tilfinningamál
sem kosningamál.
30. þing S.U.J. vill i þvi sam-
bandi benda á að afstaða þess-
ara flokka um her i landi og
veru tslands i NATO, hefur ver-
ið aðaltæki þessara öfga-og aft-
urhaldsafla til að deyfa og
sljóvga vitund alþýðu varðandi
hagsmunamál hennar i þeim til-
gangi einum, að tryggja fyrir
Sjálfstæðisflokk eins hægfara
þróun velferðar og unnt er, en
fyrir Alþýðubandalagið að
skapa ringulreið og óánægju.
Varðandi siðara atriðið hvað
sé til úrbóta, ályktar 30. þing
S.U.J.:
— t efnahagsmálum:
Að nú þegar verði gerð breyt-
ing á i skattamálum. Vænlegast
til árangurs telur þingið vera:
1. Að afnema beri tekjuskatt
algjörlega.
2. Að taka upp staðgreiðslu-
kerfi útsvars.
3. Að til grundvallar verði nú-
verandi útsvarslöggjöf.
4. Að útsvar verði ört stig-
hækkandi.
5. Að mánaðarlaun lægri en
75.000 krónur verði undanþegn-
ar útsvari.
6. Til að bæta rikissjóði tekju-
tap, verði launaskattur hækk-
aður úr 3.5% i 13%.
7. Lækkun og afnám
söluskatts.
8. Að virkum áætlunarbúskap
verði nú þegar komið á.
9. Að byrjað verði á hag-
kvæmis- og árangursmati i
rekstri hins opinbera og má i þvi
sambandi ekki spara aurana og
henda krónunni.
— í dómsmálum:
1. Að þegar verði stórbætt öll
aðstaða til rannsókna og afplág-
unar.
2. Að dómskerfið verði lýð-
ræðislegra og virkara.
3. Að sýna alþjóð fram á það
að dómsvaldð sé virkt með þvi
að upplýsa öll þau stóru mál
sem enn eru óleyst og þjóðin
verður að fá lausn á. Verði það
ekki gagna breytingar litils til
þess að endurvekja traust al-
þjóðar.
4. Að viðurlög við skattsvikum
verði þyngd.
— i atvinnu og byggðamál-
um:
1. Að tekið verði tillit til arð-
semissjónarmiða i fjárfesting-
armálum islensks atvinnulifs.
2. Að mótuð verði heildar-
stefna i atvinnumálum þjóðar-
innar, sem hafi að markmiði
sem mesta velmegun og velferð
þegna hennar m.a. með þvi að
samræma sjónarmið um arð-
semi atvinnuþeganna og mennt-
un og hæfni verkafóiks.
3. Að Alþingi beiti sér nú þeg-
ar fyrir rannsókn og úttekt á
stööu lágtekjuhópa i þjóðfélag-
inu með það að markmiði að
þessum hópum verði gert kleift
að lifa mannsæmandi lifi af 40
stunda vinnuviku.
— 1 félags- og heiibrigðismál-
uni:
1. Að Alþingi beiti sér nú þeg-
ar fyrir rannsókn og úttekt á
stöðu aldraðra með það að mark
miði að gera þeim kleift að lifa
áhyggjulausu ævikvöldi.
2. Að koma á fót löggjöf um
atvinnulýðræði sem tryggir
grundvallarrétt einstaklingsins
i þvi lýðræðisþjóðfélagi, sem
byggir á rétti allra til þess að
hafa áhrif á og vera virkir þátt-
takendur i mótun þess.
3. Að koma á betri heildar-
stjórn heilbrigðismála.
— i orku- og iðnaðarmálum:
1. Að styðja og styrkja is-
lenskan iðnað svo hann verði
hæfur til þess að gegna þvi
nauðsynlega hlutverki, sem
honum er ætlað i framtiðinni.
2. Aðlækka söluskatt. með þvi
eykst verðmæti sparifjár hag-
kvæmi fjárfestingar. fram-
leiðsla islensks iðnaðar.
3. Þegar verði látið af handa-
hófskenndri stjórri orkumála.
— i menntamálum:
1. Að lánasjóði islenskra
námsmanna verði gert kleift að
rækja hlutverk sitt, þannig að
jafnrétti til náms verði haft að
leiðarljósi.
2. Að komið verði á fót náms-
launakerfi.
3. Að þegar verði notaðar
auknar útsvarstekjur samkv.
framkominni tillögu til þess að
bæta úr og koma i viðunandi
horf á næstu árum þörf þjóðar-
innar á dagvistunarheimilum,
með það að markmiði að
tryggja forsendur fyrir jafnrétti
kynjanna.
Aö lokum ályktar 30. þing
SUJ:
Bráöabirgðalögln.
Enn einu sinni hefur rikis-
stjórnin látið grimuna falla og
sýnirsina réttu ásjónu. Nú, með
svivirðilegri og öldungis ónauð-
synlegri árás á samningsrétt
sjómanna, með þvi að lögbinda
samningsuppkast er sjómenn
um allt land höfðu fellt, þó að
engin verkföll hafi verið, né hafi
staðið til að boða.
Skorar 30. þing S.U.J. á sjó-
menn og allan verkalýð, að snúa
nú bökum saman og hrinda
þessari árás stjórnvalda á lög-
mætan samningsrétt sjómanna.
Þetta er aðeins fyrirboði alvar-
legri aðgerða af hálfu ríkis-
valdsins. Næst er það nýja
vinnumálalöggjöfin og þá verð-
ur ekki um neitt hálfkák af hálfu
rikisstjórnarinnar að ræða. Þvi
fyrr sem verkalýðurinn hefur
varnarbaráttu gegn árásum á
áunnin réttindi, þvi betra.
Islensk alþýða! Það mun eng-
inn heyja þessa varnarbaráttu
fyrir ykkur. Hún verður ekki
háð i þingsölum, heldur með
fjöldabaráttu alþýðunnar um
allt land.
Samstaöa islenskra
verkalýösf lokka
Það væri islenskri aiþýðu til
framdráttar ef islenskir jafnað-
armenn sameinuðust i einum
flokki. Nú er vitað að rikis-
stjórnin mun reyna að þrengja
mjög réttindi verkafólks, með
nýju vinnumálalöggjöfinni. Það
er þvi skilyrðislaus krafa is-
lenskrar alþýðu að verkalýðs-
flokkarnir nái sem viðtækastri
samvinnu sin á milli, þannig að
varnarbaráttan megi vera sem
öflugust. Takist verkalýðs-
flokknum ekki að kveða niður
önnur ágreiningsmál. er flest
eru um menn en ekki málefni.
verður ekki annað sagt en að
þeir hafi brugðist i baráttunni
fyrir kjörum alþýðunnar. Is-
lenskur verkalýður verður þá að
leita i aðrar áttir.
Bankamál
Stjórn bankakerfisins hefur
sýnt það á liðnum árum að vera
allt annað en óvilhöll. A meðan
almenningi hefur verið neitað
um smá lán úr bönkum hafa
stórbraskarar fengið eins mikið
og þeir höfðu not fyrir. Á timum
óðaverðbólgu eins og hér hefur
verið siðustu árin. hafa banka-
lán verið nánast gjafir. Yfir-
menn bankakerfisins hafa sýnt
að þeir eru alls ekki starfi sinu
vaxnir, enda flestir pólitiskir
bitlingadrengir. er þekkja ekki
annað en að mismuna einstak-
lingum.
Það er þvi krafa 30. þings
S.U.J. að þegar verði gerð upp-
stokkun á núverandi banka-
kerfi, þannig að mismunun ein-
staklinga verði brtt, og al-
menningur geti öðlast traust sitt
aftur á bankakerfinu.
Að alit verði gert til þess að
efla jafnaðar- og samvinnuhug-
sjónina. Að efling islenskrar al-
þýðustéttar verði sett ofan
hagsmunum afturhalds og öfga-
afia. Þannig verður best tryggt
að lýðræðisfvrirkomulag þjóð-
arinnar fái þróast og dafnað.
Þannig verður best barist gegn
órétllæti, ójöfnuði og niðurlæg-
ingu. fyrir jafnrétti, frelsi og
bræðralagi.
Frá SUJ
Sambandi ungra jafnaðarmanna
Umsjón:
Tryggvi iónsson, Bjarni P. Magntísson,
Guðmundur flrni Stefánsson, Óðinn Jónsson y