Alþýðublaðið - 24.11.1976, Síða 10
10
Miðvikudagur 24. nóvember 1976. æ*
Kvenfélag Alþýðuflokksins i Reykjavik
heldur fund I AlþýBuhúsinu (niöri) þriöjudaginn 23.
nóvember nk. kl. 8.30.
Dagskrá:
Spilaö veröur bingó.
Félagskonur fjölmenniö og takiö meö ykkur gesti.
Stjórnin
Félagsvist Félagsvist
Munið eftir félagsvistinni n.k. laugardag 27. nóvember I
Iönó uppi.
Hefst stundvfslega kl. 2 siödegis. Góö verölaun.
Skemmtinefnd.
Aðalfundur Fuiltrúaráðs Alþýðuflokksfélag-
anna i Reykjavik
verður haldinn i Tjarnarbúð uppi iá morgun,
fimmtudag 25. nóvember og hefst klukkan 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. önnur mál
Félagar i Fulltrúaráðinu eru hvattir til að
mæta.
Stjórnin.
Kosningaréttur 2
Stjórnarskrár -
breytingin
Framhald málsins varð svo
það, aðá næsta reglulega Alþingi,
87löggjafarþingi, sem var siöasta
þing á kjörtimabili, var sam-
þykkt sú breyting á stjórnarskrá
lýðveldisins Islands, aö kosninga-
rétt skyldi miöa við 20 ár I stað 21
árs. Þessi stjórnarskrárbreyting
var tekin fyrirafturáAlþingiá88.
löggjafarþinginu, strax á fyrsta
þingi aö þingkosningum loknum,
og samþykkt þar endanlega 29.
marz 1968. Jafnframt voru á þvi
þingi samþykkt lög um breytingu
á sveitarstjórnarlögum, pr.
58/1961, þar sem kosningaréttur
til sveitarstjórna var færður Ur 21
ári í 20 ár, og lög um breytingu á
lögum um kosningar til Alþingis,
nr. 52/1959, til samræmis viö
stjórnarskrárbreytinguna.
Viröist full samstaða hafa rikt
meöalallra þingflokka um þessar
breytingar.
Flutningsmenn þessarar tiUögu
telja, að i ljósi reynslunnar, sem
fengizt hefur af lækkun kosninga
réttar úr 21 úr 20 ár, þeirrar
þróunar, sem þegar hefur orðið
og fyrirsjáanleg er í þeim málum
meðal nálægra þjóöa, svo og
þeirrar ■ staöreyndar aö islenzk
ungmenni eru yfirleitt virkari
þátttakendur i atvinnulifi og
félagsmálum þjóöar sinnar og er
iðulega gert að axla meiri ábyrgð
og skyldur en tiökast meðal
ýmissa annarra þjóöa, þá sé nú
fyllilega timabært að stiga sporiö
til fulls og miða kosningarétt og
kjörgengi til alþingis- og sveitar-
stjórnarkosninga á Islandi viö 18
ára aldur. Jafnframt telja
flutningsmenn eðlilegt og sjálf-
sagt að jafnframt verði endur-
skoðaðar til samræmis aðrar
aldurstakmarkanir laga á
réttindum unga fólksins.
Með réttum og
eðlilegum hætti
Rétt er að sami háttur verði
hafður á þessum athugunum og
áður — þ.e. að Alþingi kjósi til
þess sérstaka nefnd og verði við
það miðað, að i henni eigi sæti
fulltrúar frá þingflokkunum
öllum. Með þvi móti væri
auðveldaö að samstaða gæti
tekist á Alþingi um þær
breytingar, sem gerðar yrðu.
Flutningsmenn eru þeirrar
skoðunar, að rétt sé og skylt að
Volkswageneigendur
Höfum fyririiggjandi: Bretti — Hurðir —Vélarlok —
Geymslulok á Wolkswagen I allflestum litum. Skiptum á
einum degi með dagsfyrirvara fyrir ákve'ðið verð. Reyniö
viðskiptin.
Bílasprautun Garðars Sigmundssonar.
Skipholti 25 Simar 19099 og 20988.
gefa nefndinnirúman timatilþess
aðljúka athugunum á þessu máli
og samningu þeirra lagafrum
varpa, sem þvi fylgja. Jafnframt
telja flutningsmenn sjálfsagt, að
Alþingi og aðrir þeir, sem málið
kann að varða, fái þann tima,
sem til þarf, til þess að kynna sér
væntanlegar niðurstöður athug-
ananna. Þvi væri eðlilegt, að
nefndin fengi tima til athugunar á
málinu þar til á öðru reglulegu
Alþingi hér frá. Þá yrðu niður-
stöður hennar kynntar opin-
berlega, en siðan teknar til
umræðna og afgreiðslu á næsta
þingi þar á eftir — siðasta reglu-
legu þingi á yfirstandandi kjör-
timabili — þannig að stjórnar-
skrárbreytingin.sem gera verður
varðandi lækkun kosninga-
aldursins, þurfi ekki að valda
þingrofi og nýjum kosningum
fyrr en þær á að bera að með
réttum og eðlilegum hætti. —BJ
Dómstólaskipan 6
stöður fyrir háskólamenn ættu
að vera aðallega lærdómsstöður
i framtiðinni. Að fenginni
reynslu geta þeir horfið til ann-
arra starfa hjá rikinu eða
annarsstaðar. Rikið mundi sið-
an aðeins ráða sérfræðinga eins
og til dæmis dómara I fastar
stöður. Deildarstjórastöður hjá
sýslumanns- og bæjarfógetaem-
bættunum mundu verða slikar
stöður.
Hjá öllum dómstólunum ætti
að koma á fót embættum fram-
kvæmda- eða skrifstofustjóra,
sem sæju um yfirstjórn daglegs
reksturs, svo ekki sé verið að
eyða i það starfskröftum
þeirra.sem fara með dómara-
embættin. I þessar fram-
kvæmdastjórastöður þyrfti að
veljast ungir, röskir menn, sem
auga hefðu fyrir rekstri slikra
embætta.
Erlendis, svo sem i Dan-
mörku, Noregi og Englandi
þekkist það ekki, að sá, sem
stjórnar daglegum rekstri, sé
fyrirsvarsmaður dómstóls og sé
hæst launaði starfsmaður dóm-
stólsins. Æðsti starfsmaðurinn
er auðvitað dómari og fer með
dómsmál, enda þykir dómara-
starf virðingarstarf með öðrum
þjóðum. I Hæstarétti er þessu
eins farið og erlendis, þar sér
hæstaréttarritari um daglegan
rekstur.
Segja má, að þörf sé á þvi að
gera allt starfsmannakerfi
rikisins opnara og sveigjan-
legra og þá lika starfsmanna-
kerfi dómstólanna, ekki aðeins
varðandi löglærða menn, heldur
og varðandi aðra starfsmenn,
enda þótt hér sé að vonum aðai-
lega miðað við löglært starfsfólk
þessara embætta.
TRCLOFDNARHRINGAR
Fljót afgreiðsla.
Sendum gegn póstkröfu
GUDM. ÞORSTEINSSON
gullsmiður, Bankastr. 12
Kaupið bílmerki
Landverndar
k'erndum
llf
ramdum
yotlendi
Ódýrt bu; — Odýrt KUR
bu; Gallabuxur KUR Stórlækkað verð
Flauelsbuxur Miðvikudag,
Karlmanna fimmtudag og
vinnubuxur föstudag
VINNUFATABÚÐIN
Laugavegi 76
VINNUFATABUÐIN
Hverfisgötu 26
KðpanisfcaupstaiWr K1
Húseigendur
Kópavogi
Að gefnu tilefni er vakin athygli á 1. kafla
grein 8 i byggingasamþykkt Kópavogs þar
sem segir: Að hver sá sem vill fá leyfi til
að setja upp auglýsingaskilti á lóð sina,
eða húsi skuli leggja umsókn um það fyrir
bygginganefnd.
Byggingafulltrúinn i Kópavogi.