Alþýðublaðið - 24.11.1976, Side 11
œisr (Miövikudagur 24. nóvember 1976
11
MINNING
Ragnar Jóhannesson, skólastjóri
Fæddur 14. mai 1913. Dáinn 16.
nóvember 1976.
1 dag er til moldar borinn frá
Fossvogskirkju Ragnar
Jóhannesson, fyrrverandi skóla-
stjóri, sem andaðist á Borgar-
spitalanum i Reykjavik hinn 16.
þ.m. eftir langa og erfiða
sjúkdómslegu. Ragnar var
Dalamaður að uppruna, fæddur i
Búðardal i Laxárdal 14. mái 1913,
einkabarn hjónanna Jóhannesar
Jónssonar skósmiðs og
verzlunarmanns og Guðrúnar
Halldórsdóttur.
Þegar Ragnar Jóhannesson er
kvaddur hinztu kveðju, er margs
að minnast. Gamlir samferða-
menn muna hann sem óvenjulega
glæstan æskumann i Mennta-
skólanum á Akureyri, þaðan sem
hann brautskráðist sem stúdent
vorið 1934. Hann var svo
bráðgjör, að þegar á unga aldri
orti hann ljóð og samdi sögur.
Snemma varhann listaskrifari og
svo snjall teiknari, að venjuleg
pappirsörk eða jafnvel smámiði
gat á svipstundu orðið augnayndi
i meðförum hans. A stúdents-
árum sinum i 'Háskóla Islands,
þaðan sem hann lauk kandidats-
prófi i íslenzkum fræðum árið
1939, var hann hrókur alls
fagnaðar og átti mikinn þátt i
félagslifi stúdenta, orti þá mörg
tækifærisljóð, oft söngtexta, sem
lifguðu upp á samkvæmi. Einnig
setti hann saman leikþætti,
kryddaða gamansemi, en einnig
með alvarlegu ivafi, ef svo bar
undir. Skólaárin voru Ragnari
jafnan hugstæðari en almennt
gerist, eins og bezt sést á þvi, hve
mikinn þátt hann tók lengi fram
eftir ævi i margvislegum félags-
skap stúdenta.
Þegar út i lifið kom, leitaði
margt á hug Ragnars. Hér gefst
ekki rúm til að rekja æviferil
hans.endaóþarftum þjóðkunnan
mann, sem lesa má um i
handbókum. Þess skal aðeins
getið, að samhliða blaða-
mennsku, fulltrúastörfum og
skólastjórn fékkst hann jafnan
við margvisleg ritstörf, og liggur
margt eftir hann á þvi sviðibæði
frumsamiö og þýtt. Var mikið af
þvi flutt i útvarp, en margt hefar
einnig birzt á prenti. 1 blóma
aldurs sins var hann fulltrúi i
skrifstofu útvarpsráðs um fimm
ára skeið og siðan tólf ár skóla-
stjóri Gagnfræðaskólans á
Akranesi. Varð hann snemma
þjóðkunnur og vinsæll útvarps-
maður. Naut sin þar vel
skörulegur flutningur hans, og
kom honum þar aö góðu haldi
listfengi og staðgóð þekking á
bókmenntum og sögulegum
efnum. Er vafalaust stór sá hópur
útvarpshlustenda viðs vegar um
landið, sem minnist hans með
þakklæti frá liðnum árum.
Ragnar hafði einnig marga ágæta
kosti til að bera sem skólamaöur.
Sérstaklega hafði hann gott lag á
að umgangast ungt fólk og setja
sig inn i hugsunarhátt þess.
Einnig tók hann rikulegan þátt i
félagslifi á Akranesi, þar á meðal
leiklistarstarfsemi, enda
eignaðist hann þar trausta vini.
Um mörg undanfarin ár var
Ragnar farinn að heilsu og
kröftum.
Eftirlifandi kona Ragnars er
Ragna Jónsdóttir kennari frá
Norðfirði, bæjarstjóra og skatt-
stjóra Sigfússonar og konu hans
Ingibjargar Einarsdóttur. Þau
Ragnar og Ragna bundust ung
tryggðum i Menntaskólanum á
Akureyri, en gengu 1 hjónaband
11. nóvember 1939. Heimili þeirra
var lengi að Stóragerði 26 i
Reykjavik, en nú siðustu
mánuðina aö Skjólbraut 10 i
Kópavogi. Börn þeirra eru
Ragnar, byggingaverkamaður,
Ingibjörg,kennari,og Guðrún, gift
Arna Jónassyni verkfræðingi.
Ragna reyndist Ragnari hinn
traustasti lifsförunautur til hinztu
stundar.
Við Kristin sendum Rögnu
vinkonu okkar, bekkjarsystur
minni og sveitunga, börnum
hennar og öðru venzlafólki
innilegustu samúðarkveðju og
þökkum þeim hjónum órofa
vináttu og tryggð.
Já, þannig endar lifsins
sólskinssaga.
Vort sumar stendur aðeins fáa
daga.
Á það erum við minnt margan
haustdaginn.
Bjarni Vilhjálmsson.
Fregnin um andlát Ragnars
Jóhannessonar kallarfram i huga
mér fjölmargar minningar, sem
eru allar bjartar. 1 þeim er
Ragnar ávallt broshýr
gáfumaður, glöggur og skemmti-
legur félagi. Þó skiptust vissulega
á skin og skúrir i ævi hans, og fór
hann ekki varhluta af þvi siðar-
nefnda.
Leiðirokkar Ragnars lágu fyrst
saman á ritstjórn Alþýðublaðsins
fyrir hálfum fjórða áratug. Þá
var ritstjórnin ekki fjölmenn en
blaðiö að taka stökkið úr 4 siðum i
8, sem er mikil breyting. Við
settum upp algjörlega nýtt blað
undir ritstjórn Stefáns
Péturssonar, og komu fram i þvi
margar nýjungar, sem hafa
reynzt langlifar i islenzkri
dagblaðamennsku.
Það kom sér vel við þessar
aðstæður að hafa á að skipa fjöl-
hæfum blaðamönnum, og þann
kost hafði Ragnar i ríkum mæli.
Hann var magister i islenzkum
fræðum að menntun og þvi fær til
að glima við hin háfleygustu
menningarverkefni og ræða af
viti við innlenda sem erlenda.
Hann skrifaði ágætt mál og hafði
áhuga á flestum mannlegum
málefnum. Þessu til viðbótar var
hann listamaður i eðli sinu og
innan þess ramma kom
fjölhæfnin enn frekar i ljós: hann
gat teiknað og skrautritað fyrir
blaðið og hann gat ort gaman-
visur, tækifæriskvæði eða
alvarleg ljóð. Ofan á allt þetta
bættist, að Ragnar var hinn mesti
húmoristi og kom þar fram Hfs-
gleði hans i þá tið, hæfileiki til að
sjá hinar skoplegu hliðar við
menn og málefni, án allrar
illgirni.
Hvaða ritstjóri gæti óskað eftir
meirui einum blaðamanni? Hefði
Ragnar starfað við auðugt
stórblað i stað þess að vera við
litið og fátækt baráttublað, þætti
mér ekki óliklegt að langur og
glæsilegur ritstjóraferill hefði
orðið hlutskipti hans.
Ragnar starfaði einnig um sinn
við dagskrárskrifstofu Rikis-
útvarpsins og var. ágætur
útvarpsmaður, upplesari og
leikari, auk þess sem hæfileikar
hans nýttust vel við dagskrár-
undirbúning að tjaldabaki.
Frá blaðamennskunni lá leið
Ragnars til kennslu, og gerðist
hann skólastjóri við Gagnfræða-
skólann á Akranesi. Varð hann á
skömmum tima vinsæll og virtur
bæði meðal nemenda sinna og
allra þeirra mörgu Akurnesinga,
sem hann kynntist. Ljúfmennska
hans og gnægtabikar
hæfileikanna komu að gagni á
fjölmörgum sviðum i skóla- og
félagslifi Akurnesinga, og hann á
enn hjörtu þeirra, sem honum
kynntust þar.
Ragnar fékkstað sjálfsögðu við
fleiri ritstörf en dagblaöa-
mennsku. Hann gaf út þrjár
frumsamdar barnabækur, enda
fóru lifsviðhorf hans og kunnátta
vel saman i slikum verkefnum.
Hann þýddi fjölmargar bækur,
bæði fagurfræðilegs efnis og fróð-
leiksverk. Þá skrifaði hann fjölda
greina og flutti erindi og annað
efni i útvarp, svo að afkköst hans
voru ærin.
Ragnar háði langa baráttu við
erfiðan sjúkdóm, einn þeirra sem
valda hvað mestum búsifjum I
nútíma þjóðfélögum. Hefði sú
byrði ekki verið á hann lögð, sér-
staklega hin siðari ár, væri þjóðin
stórum rikari af verkum þessa
einstaka listamanns.
Alþýðuflokkurinn sér á bak
góðumog virkum félaga. Ragnar
var jafnaðarmaður að hugsjón og
fórnaði flokknum miklu af tima
og störfum. Fyrir það færi ég
honum þakkir að leiðarlokum.
Ragnar átti stórgáfaða og
mikilhæfa konu, Rögnu Jóns-
dóttur, og lifir hún mann sinn. Ég
færi henni og fjölskyldu Ragnars
allri samúðarkveðjur.
Benedikt Gröndal
Ragnar Jóhannesson, fyrrver-
andi skólastjóri, er horfínn af
sjónarsviðinu. Hann lézt 16. þ.m.
63 ára að aldri. Ragnar var fædd-
ur i Búðardal 14. mai 1913. Hann
stundaöi nám við Menntaskólann
á Akureyri og lauk kandidatsprófi
i islenzkum fræðum frá Háskóla
tslands 1939. Arin 1947 - 1958 var
Ragnar skólastjóri við
Gagnfræðaskólann á Akranesi.
Ekki ætla ég hér að rekja verk
Ragnars Jóhannessonar, en mig
langar til að flytja þessum kæra
læriföður minum nokkur kveðju-
orð. Við, sem vorum nemendur
Ragnars á Akranesi eigum hon-
um margt að þakka á skilnað-
arstundu. Ragnar kenndi jafnan
mannkynssögu og Islenzku við
gagnfræðaskólann. Margar
kennslustundir hans I þessum
greinum verða okkur lengi
minnistæðar. I mannkynssögu-
timum fór hann oft á kostum.
Skýringar hans á viðburðum sög-
unnar voru bæði snjallar og
skemmtilegar. Hreinasta unun
var að hlýða á hann er hann lagði
frá sér bókina og fór um viða
vegu á fáki hinnar óviðjafnan-
legu frásagnargáfu og gleði.
Við islenzkukennslu i 4. bekk
hafði Ragnar jafnan fyrir venju
að láta nemendur lesa Egilssögu,
amk. þegar ég var i gagnfræða-
skólanum. Þær kennslustundir
voru einhverjar þær allra
skemmtilegustu, sem hægt er að
hugsa sér.
Jafnan gekk Ragnar rikt eftir
þvi, að nemendur tileinkuðu sér
námsefnið og gekk jafnan strangt
eftir að þeir væru vel búnir undir
kennslustundir. Fyrir það var
hann virtur af nemendum, en
einnig naut hann sannra vinsælda
hjá þeim. Utan kennslustunda
var Ragnar nánast jafningi nem-
enda og hafði augljósa ánægju af
þvi að starfa með þeim að hvers-
konar félagslifi i skólanum, hvort
sem það var að undirbúningi
skólablaðs, árshátiða eða annars,
sem fyrir var tekið. Ragnari var
svo margt til lista lagt og i þessu
félagsstarfi miðlaði hann óspart
úr sjóði sinna fjölbreyttu hæfi-
leika.
Ragnar kallaði nemendur öðru
hvoru ,,á sal” og þá kom stundum
fyrir, að réttmætar ávitur voru
fluttar fyrir það, sem miður þótti
fara. I þvi sambandi minnist ég
atviks sem mér verður lengi
minnisstætt. Einhverju sinni
snertu þessar ávitur mig og bræð-
ur mina og einhverja fleiri. Mér
fannst þá að við ættum þetta full-
komlega skilið, en þó man ég að
skólastjóri var nokkuð hvass-
yrtur. Siðar um daginn var ég
kallaður fyrir hjá skólastjóra og
grunaði strax að enn væri þessu
ekki lokið. Þegar ég kom inn til
Ragnars var hann hinn alúðleg-
asti og sagðist hafa tekið fulldjúpt
i árinni ,,á sal” I morgun og bað
mig velvirðingar á orðum sinum.
Ég vissi vart hvaðaná mig stóð
veðrið. Ég á ekki von á þvi að
mörg dæmi sem þessi fyrir-
finnist, en það sýnir glöggt, hvern
drengskaparmann Ragnar hafði
að geyma.
Ég veit að fjölmargir gamlir
nemendur Ragnars hér á Akra-
nesi geyma um hann góðar minn-
ingar. En nú er hann allur og
horfinn á eilifðarbraut. Við
geymum minningar um virtan og
ástkæran læriföður og i brjóstum
okkar rikir söknuður. Ragna,
eiginkona Ragnars var okkur
góður kennari einnig og hjá henni
og börnum þeirra er nú upp kveð-
inn sárari tregi. Ég flyt þeim
innilegar samúðarkveðjur. Um
leiö og ég bið þann sem öllu ræð-
ur, að blessa minningu góðs upp-
fræðara vil ég ljúka þessum lin-
um með efirfarandi orðum Jónas-
ar Hallgrimssonar:
„Tiíaldar þakkir þvi ber færa
þeim, sem að guðdómseldinn/
skæra
vakið og glætt og verndað fá
vizkunnar helga fjalli á.”
Guðmundur Vésteinsson
ftæUst 1 hópmn
Bætist i vaxandi hop nyrra
askrifenda Alþyóublaösins.
Askrift er odyrari en lausasala
— og tryggir blaðið heim á
hverjum morgni.
Flugleiðir
kaupa
þriðju DC-8
63 þotuna
Stjórn Flugleiða hf. hefur
ákveðið að kaupa þriðju þot-
una af gerðinni DC 8-63 og
hafa sámningar þar að lútandi
verið undirritaðir. Þotan sem
hér um ræðir hefur verið i
þjónustu Flugleiða undan-
farin ár og hefur flogið á
leiðum International Air
Bahama og að nokkru á
leiðum Loftleiða. Einkennis-
stafir þotunar eru N 8630.
Sem fyrr segir er þetta
þriðja þota Flugleiða af þess-
ari gerð. Þær fyrri, TF-FLA
og TF-FLB voru keyptar af
Seaboard World Airlines sam-
kvæmt kaup-leigusamningi
sumarið 1975. Hin nýfengna
þota er einnig keypt af Sea-
board. Kaupverð er 11 millj.
dollarar og greiðist 10% þess
við afhendingu, en eftír-
stöðvar með jöfnum afborgun-
um á sjö árum. Vextir af lán-
um vegna kaupanna verða 2%
hærri en forvextir i Banda-
rikjunum á hverjum tima en
aldrei lægri en 8% og ekki
hærri en 10%. Innifalið i
kaupverði eru varahlutir svo
sem þotuhreyfill og ennfrem-
ur vöruhleðslutæki. Hdr er um
hagstæða samninga að ræða
þvi afborganir af lánum vegna
þotukaupanna eru næstum þvi
sömu upphæðir og greiddar
voru i leigu fyrir þotuna áður.
DC 8-63 þotan N 8630 var
smíðuð hjá McDonnell
Douglas flugvélaverk-
smiðjunum i Kaliforniu árið
1968. Hún er knúin fjórum
JT3D-7 þrýstiloftshreyflum og
er flughraðinn um 900 km á
klst. Loftsiglingatæki og ann-
ar búnaður er eins og i tveim
fyrri þotum Flugleiða af sömu
gerð. Þotan mun áfram verða
i einkennislitum International
Air Bahama og verður að
mestu i flugi milli Nassau og
Luxemborgar en mun fara
einstakar ferðir i leiðum Loft-
leiða yfir Norður-Atlantshaf. I
þotunnf er sæti fyrir 249 far-
þega.
Fjórða
þotan svo
leigð næsta
sumar
Stjórn Flugleiða hf. hefur
ákveðið að félagið taki á leigu
þotu af DC 8-63gerð yfir mesta
annatimann sumarið 1977.
Þotan verður leigð af Car-
golux og flogið á leiðum Loft-
leiða milli Luxemborgar
Keflavikur, New York og
Chicago og ennfremur nokkr-
ar ferðir á leiðum Flugfélags
Islands til Norðurlanda og ef
til vill ti) Þýzkalands fáist til
þess nauðsynleg leyfi. Leigu-
timi þotunnar verður fjórir
mánuðir.
KOSTABOÐ
á kjarapöllum
KJÖT & FISKUR
Breiðholti
Simi 7 1200 — 7 1201
P0STSENDUM
TRULOFUNARHRINGA
Joii.omts Utiieson
U.iua.iUtBi 30
é'imi ii> 20ð
Dúnn
Síðumúla 23
/ími 64200
Heimiliseldavélar,
6 litir - 5 gerðir
Yfir 40 ára reynsla
Rafha við Oðinstoig
Símai 25322 og 10322
Birgir Thorberg
málarameistari
simi 11463
onnumst alla
málningarvinnu
— úti og inni —
gerum upp gömul husgögn