Alþýðublaðið - 16.12.1976, Blaðsíða 8
8
alþýóu
Fimmtudagur 16. desember 1976 biaöið
MERRI VIK: Nýr bókaflokkur handa stúlkum 10—15 ára:
Labba ... það er ég 1.
Labba ... sjáið hvað hún getur 2.
Labba er hún kölluð — en reyndar heitir hún María Soffía Mánsson.
Hún er 13 ára og auðvitað gengur hún í skóla, en stærðfræði og
landafræði eru vægast sagt ekki uppáhaldsnámsgreinar hennar,
en hvað um það. Þar sem hún hefur tarið er eins og fellibylur hafi
ætt yfir, og viðkvæðið heima hjá henni er: „Auðvitað er það Labba
litla." Allt er henni að kenna. En samt er það svo, að án hennar
getur tjölskyldan ekki verið. — Þýþandi: GISLI ÁSMUNDSSON.
Frank og Jói: Dularfulla merkið 16.
Frank og Jói: Leynihöfnin 17.
Frank og Jói eru synir hins snjalla leynilögreglumanns, Fentons
Hardý. Þeir hafa ákveöið að feta í fótspor hans, en vilja þó vinna
sjálfstætt að ýmsum dularfullum ráðgátum, sem berast þeim svo
að segja daglega, og þeir eru fyllilega færir um það . . . Bækurnar
um Frank og Jóa eru víðlesnar og vinsælar . . . Lesið nýjustu
bækurnar um þá og þið verðið ekki fyrir vonbrigðum.
Ingibrigi Davik:
MUMMI OG JÓLIN
Mummi er 6 ára norskur snáði.
Hann á heima í Nesi i Landey,
sem er skammt undan landi. —
Hann er einkabarn foreldra sinna
og er snjall og duglegur strákur.
Um jólin drífur margt á daga
Mumma. Hann fær mikið af alls
konar jólagjöfum og er ákatlega
þægur um jólin.
Þýðandi: BALDUR PÁLMASON.
CAROLYN KEENE
•j V/VNSÍimtiY -4
BIKARKEPPNIN
ERIC SPEED
NANCY
og leyndarmól
Wynn og Lonny: GT-kappaksfturínn 3.
Wynn og Lonny: Bikarkeppnin 4.
Tvær áður útkomnar bækur í þessum bókaflokki, „Rallý á Mexicali
1000“ og ,,Kappar i kappakstri" tryggja röskum strákum æsi-
spennandi frásagnir af kappaksturshetjunum þeim félögunum Wynn
og Lonny. Þeir hafa nú selt Datsuninn sinn, en á þeim bíl, vitan-
lega nokkuð endurbættum, unnu þeir GT-keppnina, í hörkubaráttu
við bófa og ökufanta. En nú hafa þeir félagar fengið nýsmíðaðan
Super-V-bíl og ætla að taka þátt í sjálfri bikarkeppninni, en þar
eiga þeir i höggi við sænska ökusnillinginn og stórmeistarann,
Sven Rosen. Það er barist af hörku og brot úr sekúndu ræður
úrslitum. En hver sigrar? Um það fjallar sagan um Bikarkeppnina.
Þýðandi: ARNGRÍMUR THORLACIUS.
Nancy og leyndarmál sirkussftjórans
Nancy og rauðu balletftskómir
Nancy vinkona okkar er komin, ásamt vininum Ned og vinstúlk-
unum Georgíu og Bess, sem aðstoða hans við að leysa úr hinum
margslungnu ráðgátum sem hún hefur við að glima.
Þýðandi: GUNNAR SIGURJÓNSSON.
David Reed: ANNA
ANNA er ekki skáldverk . . . ANNA er ein átakanlegasta ástarsaga okkar daga . . .
ANNA er saga um unga, fagra konu, sem bilar á geðsmunum. — Enginn lesandi
þessarar magnþrungnu bókar getur vitað, hvernig hann — eða hún — muni snúast
við þeim vandamálum, sem þar er lýst: — Það er eiginmaður Önnu, sem ritar
bókina af hreinskilni og snilld. — Þýðandi: HERSTEINN PÁLSSON.
Jack Higgins: ÖRNINN ER SEZTUR
/ bókinni er greint frá þvi, hvernig leyniþjónusta þýska hersins, undir stjórn Canaris,
ætlaði að ræna — eða myrða Churchill forsætisráðherra Breta. Þetta skeði í
nóvember 1943. — Höfundur staðhæfir, að frásögnin sé að miklu leyti sannsöguleg.
Sagan var kvikmynduð á síðastliðnu ári, og bókin varð metsölubók i Bandaríkjunum.
— Höfundur bókarinnar, Higgins, er 46 ára að aldri og fæddur á Norður-lrlandi,
búsettur í Englandi, hámenntaður og heimsþekktu rithötundur.
Þýðandi: ÓLAFUR ÓLAFSSON, lögfræðingur.
FÁST HJÁ ÖLLUM BÓKSÖLUM
LEIFTUR HF. Höföatúni 12
Árelius Níelsson: Á bjargi aldanna
Bók þessi segir sögu Armensku kirkjunnar allt frá því, er fyrsta
kirkja heimsins var byggð í dölum Araratfjalls um 300 e. Kr.
og til þessa dags. — Sú athyglisverða spurning er m. a. rædd i
bókinni: Voru armenskir biskupar hér á 'lslandi fyrstu 50 árin eftir
kristnitöku? — Er Öræfatindur og Araratfjall skyldari en ætlað
hefur verið? — Bókin fjallar um armensku þjóðina í áþján og of-
sóknum á umliðnum öldum, er fróðlegt lesefni um framandi þjóð.
Louise Hoffman: Undir fölsku flaggi
Höfundur bókarinnar er at þýskum ættum, en fædd og uppalin
á Irlandi. — Louise Hoffman er mjög vinsæll höfundur á Bret-
landseyjum. — Sérstaklega eru það yngri konurnar, sem hrífast
af sögum hennar. — Þýðandi: HERSTEINN PÁLSSON.
GUÐFRÆDINGATAL
1847-1976
BJÖRN MAGNÚSSON
/ þessari bók eru æviskrár nálega 570
manna, allra þeirra guðfræðinga, sem lok-
ið hafa prófi frá Prestaskólanum og guð-
fræðideild Háskóla Islands, og að auki
þeirra, sem luku guðfræðipróti frá Hafnar-
háskóla eftir að Prestaskólinn var stofn-
aður. Sjötíu og sjö nýir guðfræðingar hafa
bætzt við síðan önnur útgáta Guðtræðinga-
tals kom út 1957. Gerð er grein fyrir ætt-
erni manna, námsferli og starfsferli, rit-
störfum, hjúskap og börnum, og visað til
nánari umsagnar um þá í bókum, blöðum
og timaritum, ettir þvi sem til hefur náðst.
Bjarni Eyjólfsson: Ur djúpi reis dagur
Engum dylst að hér er höfundur að segja sína eigin sögu og eykur
það stórlega á gildi bókarinnar. Bjarni var sjálfmenntaður gátu-
maður, sem miðlaði öðrum af þekkingu sinni og reynslu, ekki síst
unga fólkinu, sem leitaði til hans með dýpstu spurningar lifsins. —
Bókin er samin og gefin út á norsku, um 1960, en BENEDIKT
ARNKELSSON, cand. theol., undirbjó þessa útgáfu.
Jónas Guðmundsson: Ágúsft berhenfti
Þessi saga gerist á öðrum tug aldarinnar. Bóndi austan úr sveit-
um kemur til höfuðstaðarins til þess að innheimta útistandandi
skuldir. Hann er ekki með\eski í vasanum, skjalatösku í hend-
inni né bankakertið sér til aðstoðar. Hann er með kistilinn sinn
undir hendinni — það er tryggast, að geyma peningana þar. —
Lesið þessa bók og kynnist hvaða örlög Jónas skapar þessum
efnaða — en drykkfellda bónda.