Alþýðublaðið - 16.12.1976, Síða 15
æær Fimmtudagur 16. desember 1976
15
Kann stiörnuspekin svör við spurningum raunvísindanna?
HVENÆR FARAST
FLUGVÉLAR?
Sovétskur vísindamaður hefur athyglisverða tilgátu
Eftir V. Zakharko
Enginn veit með
vissu hversu mörg slys
hafa orðið á og yfir
Atlantshafi á svæðinu
milli Bermuda-eyja,
Florida og Puerto Rico,
en mörg eru þau orðin.
Við hlifum lesendum
við lýsingum á hræði-
legum viðburðum, en
minnumst aðeins nokk-
urra af þeim hundruð-
um staðreynda sem
ekki hafa hlotið viðun-
andi útskýringu allt til
þessa dags.
5. desember 1945 hófu
fimm orrustuvélar sig til flugs i
fyrirtaks veðri frá Fort-Lauder-
dale herflugvellinum i Florida-
fylki. Flugvélarnar báru sam-
heitið „Squadron - 19” og yfir-
flugstjóri var Charles Taylor,
lautinant. 65 minútum eftir flug-
tak heyrði flugumferðarstjórinn
i Fort Lauderdale rödd Taylors
sem sagði áhyggjufullur: „Við
erum aö farast... við hljótum
að hafa villst..”
Sjóflugvél frá hernum hóf sig
þegar til flugs til að leita þeirra
sem lent höfðu i slysinu. En
brátt rofnaði einnig sambandið
við sjóflugvélina. Alls hafa yfir
lOOstór og smá skip og u.þ.b. 20
flugvélar týnst á svæöi
„Bermuda-þrihyrningsins” sið-
an þetta gerðist.
En þetta er ekki eini staðurinn
þar sem gætt hefur svo undar-
legra atburða. A svæðinu milli
Japans, eyjunnar Guam og
Filippseyja hafa svo mörg skip
og flugvélar farizt að japanska
rikisstjórnin hefur lýst það
hættusvæði.
Sú skoðun er mjög á kreiki að
ekki sé um að ræða neinn „þri-
hyrningsleyndardóm” heldursé
það sem á þessum svæðum ger-
ist afleiðing reynsluleysis og
mistaka skipstjóra og flug-
manna. En þetta sjónarmið
byggir ekki á pottþéttum rök-
um. Enginn vafi leikur á þvi að
fyrr eða siðar mun gátan verða
ráðin. En þangað til er verið að
rannsaka þessi svæði gaum-
gæfilega. Eannsóknirnar fara
fram á sjónum, i loftinu, úti i
geimnum og á rannsóknarstofn-
unum visindamanna. Sovézki
eðlis- og stærðfræðingurinn dr.
A. Jolkin,kom nýlega fram með
athyglisverða og timabæra til-
gátu.
— Ég vil ekki halda fram sér-
staklega annarri af tveimur
skoðunum sem myndast hafa
um þrihyrningana, sem sé
visindalegt vandamál eða að
þetta komi visindunum ekki við.
Ég gekk aðeins útfrá þvi að
vandamálið væri fyrir hendi og
reyndi að komast að raun um
hvort möguleiki væri á þvi aö
þessi slys hlýddu einhverju
ákveðnu lögmáli, — segir dr.
Jolkin.
Þegar ég hafði safnað saman
tölfræðilegum upplýsingum um
flugvélarnar sem farizt höfðu sá
ég að ákveðið lögmál gilti um
timasetningu hvarfs þeirra
(þegar um skip er að ræða er
timasetningin ónákvæmari) og
var þetta lögmál i tengslum við
stjarnfræðileg fyrirbæri, nánar
tiltekið staðsetningu og inn-
byrðis afstöðu jarðar, tungls og
sólar.
Eins og kunnugt er þeytist
heimkynni okkar, jörðin um
geiminn eftir mjög flókinni
braut og tekur þátt i mörgum
mekaniskum hreyfingum. Þar
af leiðir að afstaða jarðar til sól-
ar og tungls er stöðugt að breyt-
ast, enda standa þau heldur ekki
kyrr á sama stað. Sól og tungl
hafa þvi ekki alltaf sömu áhrif á
jörðina.
Þar sem jörðin er samanþrýst
við heimskautin hafa sól og
tungl meiri áhrif á hluta hennar
við miðjarðarbaug sem næstur
þeim er. Við þetta myndast öfl
sem reyna á vissan hátt að snúa
öxulhreyfingum jarðarinnar
við. Ahrif þessara afla eru mest
i desember og júni, en minnst i
marz og . september. Auk
þessara afla hafa sól og tungl
áhrif á plánetu okkar með flóð-
myndandi öflum, sem breyta
nokkuð lögun jarðarinnar.
Styrkleiki þeirra og stefna er
heldur ekki alltaf eins. Mest eru
áhrif þeirra þegar nýtt tungl er
og aftur þegar fullt tungl er.
Braut tunglsins umhverfis jörð-
ina er sporbaugsmynduð og þvi
er tunglið sifellt að nálgast okk-
ur eða f jarlægjast. Þegar tungl-
ið er næst jörðu er flóðmynd-
unarafl þess 40% meira en þeg-
ar það er lengst i burtu.
Ég reiknaði út hver afstaða
tungls og sólar hefði verið þá
daga sem flugvélar höfðu horfið
sporlaust. Þá kom i ljós að þær
höfðu horfið annaðhvort þegar
nýtttunglvar eða fullt og þegar
tunglið var næst jörðu.
Þetta lögmál gefur ástæðu til
að ætla að við þessar ákveðnu
aðstæður geti flóðöfl tungls og
sólar komið af stað hreyfingum
jónaðra jarðlaga neðansjávar,
sem auka skyndilega segul-
magn jarðar á við komandi
svæði. Við þessar aðstæður er
mögulegt að venjulegir áttavit-
ar, úr, raftæki og rafeindatæki
bili, og það gerðist einmitt i
þeim tilvikum sem hér er um að
ræða. Og þetta gæti hafa verið
ein af ástæðunum fyrir slysun-
um.
Tilgátan er enn ekki orðin að
kenningu, en engin visinda-
kenning verður til nema tilgáta
komi fyrst. Ef i ljós kemur að
tilgáta dr. Jolkins bendirtil þess
að visst lögmál hafi verið rikj-
andi þegar flugvélarnar hurfu,
en tilviljun hafi ekki ráðið
(möguleiki sem höfundur tilgát-
unnar útilokar þóekki),þá get-
ur þetta ekki aðeins haft
„hreina” visindalega merk-
ingu, heldur einnig praktiska.
Nærallir „þrihyrningarnir” eru
mikil umferðarsvæði, bæði i
lofti og á legi. Það væri þvi mjög
æskilegt að vita með vissu
hvenær óhætt er að ferðast um
svæðið og hvenær það getur haft
áhættu i för með sér.
Ef tilgátaner rétt verða næstu
hættuaugnablik 20. desember og
18. janúar.
Dr. Jolkin telur ekki útilokað
að þau öfl sem eru að verki á
þrihyrndu svæðunum hafi einn-
ig áhrif á myndun aðstæðna á
ákveðnum svæðum neðansjáv-
ar, sem leiða til jarðskjálfta.
Þetta getur haft þær afleiðingar
að miklir jarðskjálftar verði á
timabilinu 5.-8. og 20.-25. des-
ember i ár, og 5.-8. og 18.-22.
janúar næsta ár á eftirtöldum
svæðum: Tyrkland (i Taurus-
fjöllum), Nýja Sjáland og
Japan, Suöur-Amerika (frá 20.
til 35. gráðu suðlægrar breidd-
ar) og Kaliforniufylki i Banda-
rikjunum.
Að lokum getum við bætt þvi
við, að s.l. sumar spáði dr.
Jolkin þvi að jarðskjálfti yrði i
Tyrklandi i lok nóvember. Sem
kunnugt er rættist sú spá. „Það
getur vel verið að það hafi lika
verið tilviljun” — segir visinda-
maðurinn.
APN.
Aðalfundur Islenzkrar réttar-
verndar ályktar um réttarfarsmál
Á aðalfundi félagsins Is-
lenzkrar Réttarverndar,
sem haldinn var á Hótel
Esju á mannréttindadag-
inn, sem er 10. desember,
voru samþykktar eftirfar-
andi ályktanir:
Aðskilnaður milli lögreglu-
rannsóknar og dómsvalds
Aðalfundur íslenzkrar Réttar-
verndar haldinn að Hótel Esju
föstudaginn 10. desember 1976
fagnar framkomnu frumvarpi til
laga um rannsóknarlögreglu
rikisins og frumvarpi til laga um
breytingu á lögum um meðferð
opinberra mála.
Fundurinn hvetur alþingis-
menn til að hraða afgreiöslu þess-
ara frumvarpa, sem bæði stefna
að fullkomnum aðskilnaði milli
lögreglurannsóknar og dóms-
valds, og stuðla þar með að
auknu réttaröryggi i landinu.
Skipun rannsóknarnefndar
dómsmála
Aðalfundur Islenzkrar Réttar-
verndar haldinn að Hótel Esju
föstudaginn 10. desember 1976 vill
vekja athygli á þeim miklu og al-
mennu umræðum, sem farið hafa
fram um framkvæmd dómsmála,
refsimála og rannsókn sakamála.
Fundurinn bendir á að mikil af
þvi misrétti sem viðgengst i þjóð-
félaginu má rekja til seinagangs i
dómskerfinu. Félagsleg og
réttarfarsleg röskun á lifsháttum
þeirra, sem árum saman þurfa að
biða eftir afgreiðslu máia sinna
fyrir dómstólum hlýtur að vera
áhyggjuefni allra þeirra, sem
trúa á frjálst og heilbrigt réttar-
far á íslandi.
Fundurinn hvetur alþingis-
menn til að samþykkja þings-
ályktunartillögu um skipan sér-
stakrar þingnefndar til þess að
kanna gang og framkvæmd
dómsmála og vinna á annan hátt
að þvi að efla réttarkerfið i land-
inu.
Embætti umboðsmanns til
að gæta réttar þegnanna
gagnvart hinu opinbera
Aðalfundur íslenzkrar Réttar-
verndar haldinn að Hótel Esju
föstudaginn 10. desember 1976
beinir þeirri áskorun til Alþingis
að gerð verði gangskör að þvi að
sett verði lög um embætti um-
boðsmanns, er gæti réttar þegn-
anna gagnvart hinu opinbera.
Skýrari ákvæði i samninga
og löggjöf um réttindi og
skyldur launþega
Aðaifundur tslenzkrar Réttar-
verndar haldinn að Hótel Esju
föstudaginn 10. desember 1976 vill
benda forystumönnum verka-
lýðshreyfingarinnar á þá hörmu-
lega takmörkuðu vernd, sem ein-
staklingar á hinum almenna
vinnumarkaði njóta gagnvart
uppsögnum og brottrekstri.
Má þar minna á nýlegt dæmi,
þar sem löggjafinn og vinnuveit-
andinn leggjast á eitt um að
leggja niður heila starfsstétt, þar
sem eru afgreiðslustúlkur i
mjólkurbúðum, þar sem öll
mannleg sjónarmið eru virt að
vettugi.
Fjölmörg dæmi sýna að ára- og
áratugalöng dvöl á vinnustað,
sem þannig er orðinn snar þáttur
i lifsmynstri fólks, gefur þvi eng-
an rétt gagnvart tilefnislausri og
órökstuddri uppsögn af hálfu
vinnuveitanda annan en hálfs
mánaðar til þriggja mánaða
greiðsla vinnulauna.
Minnir fundurinn á, að slik ein-
hliða ákvörðun vinnuveitanda um
ráðningu og uppsögn starfsfólks
Framhald á 14. siðu
PALLI VAR-----
I EINN ( HEIMINUM
Vinsælasta barnabókin á tslandi er komin i bókaverslanir.
Bókaútgáfan Björk.
KOSTABOÐ
á kjarapöllum
KJÖT & FISKUR
Breiðholti
S POSTSENDUM
TROLOFUNARHRINGA
JotMiutts TLnlsson
í..iiiB,\urai
á>iini 10 200
f
Dunn
Síðumúla 23
/íffli 84QOO
V
. Heimiliseldavélar.
6 litir - 5 gerðir
Yíir 40 ára reynsla
Rafha við 0-ðinstoig
Simat 25322 og 10322
Birgir Thorberg
málarameistari
simi 11463
onnumst alla
málningarvinnu
- uti og inni —
gerum upp gömul husgögn