Alþýðublaðið - 16.12.1976, Blaðsíða 20
Árið 1976 hefur
o
verið mörgum erfitt
— segir Sævor Guðbergsson hjá Félagsmálasiofnun Reykjhvíkur
— Desember er alltaf
erfiðastur allra mánaða
fyrir það fólk sem leitar
aðstoðar okkar, sagði
Sævar Guðbergsson for-
stöðumaður fjölskyldu-
deildar Félagsmálastofn-
unar Reykjavíkur f við-
tali í gær.
Sævar var að þvf spurð-
ur hvort starfsmenn
stofnunarinnar hafi orðið
varir við meiri efnahags-
lega erfiðleika fólks í
desember í ár, en jóla-
mánuðina á síðustu ár-
um.
— Nei, ekki get ég sagt það.
Það verður að meta árið i heild
til þess að sjá hvernig ástandiö
er meðal fólks. Það hafa heldur
fleiri leitaðtil okkar i ár en verið
hefur siðustu árin og það er ekki
eingöngu vegna fjárhagslegra
erfiðleika, heldur ekki siður
vegna alls kyns félagslegra
erfiðleika sem leitt geta til efna-
hagsörðugieika síðar. Fólk'
kemur hingaö og rekur vanda-
mál sin og þiggur ráðleggingar.
Hvað árið 1976 snertir, er
greinilegt að árið hefur verið
erfitt fyrir marga, þó að það
sjáist ekki endilega á aukningu
aðstoðarbeiðna hjá okkur. Það
sést betur á aukningu hjálpar-
beiðna fólks til ýmissa frjálsra
félagasamtaka. Við finnum þó
greinilega aö aðsóknin hingað
hefur þyngst talsvert nú i þess-
um mánuði. Fólk vill gera sér
dagamun um jólin og það er
beinlinis ætlast til þess að það
geri sér dagamun. Menn vilja
gjarnan eignast ný föt fyrir jól-
in, en geta það ekki sakir þess
að þau eru dýr. Þvi er oft eina
ráðið að leita til samtaka og
stofnana sem gefa föt. Það sem
svo gerir ástandið erfiðara fyrir
fólk um þes^rmunðir er það,
að bankak'erfið hefur verið lok-
að siðustu mánuði og fólk sem
hefur oft bjargað sér yfir jólin
með vixli, hefur hreinlega ekki
átt kost á þvi að fá lán. Þannig
gæti skapast þörf fyrir tima-
bundna fjárhagsaðstoð.
— Við höfum ekki séð fleiri ný
andlit i ár, en verið hefur siö-
ustu ár. Það bætist alltaf viö
fólk á hverju ári sem þarf á ein-
hvers konar aðstoð að halda,
sagöi Sævar Guðbergsson —ÁRH
Verið að skipa í
samninganefndina
KRAFLA:
BÚAST MÁ VIÐ
SKJÁLFTAVIRKNI
INNAN TÍÐAR
Blaðið haföi i gær samband við
Harald Steinþórsson varafor-
mann Bandalags starfsmanna
rikis og bæja, til að kanna, hvern-
ig gengi aö móta kröfur sam-
Hvorki heyrt
hann né séð
í tvö ár
Vegna orðróms sem gengið
hefur um bæinn þess efnis að
Jósafat Arngrimsson, kaup-
maður í Keflavík, sé viðriðinn
meint brot Guöbjartar Páls-
sonar, leigubilstjóra, hafði
blaðamaöur Alþýðubiaðsins
samband viö Jósafat og innti
hann eftir með hverjum hætti
viðskiptum hans og Guð-
bjartar væri hagað.
Sagðist Jósafat engin við-
skipti hafa átt við þennan
mann undanfarin tvö ár og
hvorki heyrt hann né séð þann
tima. Siðustu viðskipti þeirra
hefðu verið er lögfræðingur
hans hefði stefnt Guðbjarti
vegna vixilskuldar. En hvar
það mál væri niður komið
núna vissi hann ekki.
bandsins fyrir næstu samninga
þess.
— Félögin eru þessa dagana að
tilnefna fulltrúa í samninganefnd
BSRB, en það er hún sem á aö
möta kröfur sambandsins i
væntanlegum samningum, sagði
Haraldur. — Þessar kröfur þurfa
að liggja fyrir 1. april, þannig aö
viðræður við riki og sveitarfélög
geti hafizt timanlega áður en
samningar renna út, en það gera
þeir 1. júli næstkomandi.
Þegar samningarnir renna út,
ganga i gildi lögin um samnings-
rétt og takmarkaðan verkfalls-
rétt opinberra starfsmanna, og
það eitt sér gefur okkur ákveðiö
umhugsunarefni. Það er, hvort
sumartiminn sé i rauninni hent-
ugur timi til svona samninga.
Þessi timasetning er samkvæmt
lögum, en mjög vafasamt að það
sé ávinningur fyrir okkur að
standa i samningaþófi á þeim
árstima. Þetta þarf að ihuga
vandlega, þar sem samningarnir
eiga að gilda til tveggja ára i
senn, samkvæmt lögunum og
timasetningin skiptir þvi miklu
máli upp á framtiðina.
—-Nei, við höfum ekki rætt um
einstök atriði i samningagerð,
enda er þaö hlutverk þessarar
samninganefndar,sem áöur er
getið og það verður hún sem ræð-
ur ferðinni.
- —hm
„Haldi landris á Kröflusvæðinu
áfram með svipuðum hætti og
verið hefur aö undanförnu, má
gera ráð fyrir aö skjálftavirkni
þar hefjist að nýju áður en langt
um liður”, sagöi Páll Einarsson,
jarðeðlisfræðingur, er blaðamað-
ur Alþýðublaðsins ræddi við hann
i gær.
Undanfarnar vikur eða allt frá
þvi að land seig á Kröflusvæðinu
að undangengnu miklu risi, hefur
skjálftavirkni þár legið niðri.
Sama tima hefur land verið aö
risa á nýjan leik og er landris nú
sem fyrr segir að komast á það
stig, að búast má við skjálfta-
virkni þar um slóðir innan tiðar.
—GEK
Umræður um járnblendiverk-
smiðjuna utan dagskrár
Þeir Skúli Alexandersson og
Stefán Jónsson kvöddu sér
hljóðs utan dagskrár á fundi i
Sameinuðu þingi i gær. Beindu
þeir þeirri spurningu til iðnað-
arráðherra, Gunnars Thorodd-
sen, hverju það sætti að þing-
menn Alþýðubandalagsins og
Samtakanna hefðu ekki fengið
aö sjá samninginn, sem rikis-
stjórnin hefði gert viö Elkem
Spiegeverket 8. þessa mánaðar.
Þeir Skúli og Stefán gagn-
rýndu iðnaöarraöherra mjög
harðlega fyrir þau vinnubrögð,
aö ganga frá þessum samning-
um áöur en Alþingi fengi að
kynna sér málið.
I ræðu sinni sagði Stefán
Jónsson, að rikisstjórnin heföi
enn á ný „aukiö á heiöur Alþing-
is” meö þvi að láta alþingis-
menn heyra fyrst frá erlendri
útvarpsstöö að rikisstjórnin
hefði gert samning viö erlendan
auöhring.
Er verið að handjárna
eða ekki?
„Er verið að koma handjárn-
um á stjórnarflokkana og fylgi-
fiska þeirra?” spurði Stefán.
„Rikisstjórnin hefur ekki heim-
ild til að afgreiða þetta mál eins
og hér hefur verið gert.”
Þá gerði Stefán samanburö á
samningaviðræðunum viö
Union Carbide og þessum nýja
samningi við Elkem: „í fyrra
skiptið var þó ekki búið að gera
annað en ráða forstjóra, grafa
nokkrar gryfjur og drepa eitt
hross. Nú er gengiö feti framar.
Það er búið að undirrita samn-
inginn.”
Siöan sagöi Stefán: „Hér hef-
ur verið unnið svo óþingræðis-
lega og ólýðræðislega að engu
lagi er likt. Málið er lagt fram
hér á Alþingi i dag, mál sem var
undirritaö 8. desember.”
Málið liggur ljóst fyrir
Gunnar Thoroddsen iðnaöar-
ráðherra sagði að þeir Stefán og
Skúli misskildu algerlega þetta
mál. Benti hann á, að i 23. grein
samningsins stæði, að samning-
urinn öðlaðist gildi eftir að hann
hefði verið samþykktur af Al-
þingi og rikisstjórn.
„Þessi samningur er það skýr
að ekki ætti aö þurfa að ræöa
þetta atriöi frekar,” sagöi ráö-
herrann. Hann benti á að samn-
ingaviðræöurnar hefðu staðið
yfir frá þvi i april.
Siöan sagði iðnaöarráðherra:
„Hvernig dettur þessum mönn-
um i hug, aö þeir yrðu kvaddir i
samninganefndina. Þaö heföi
hvorki greitt fyrir málinu né
heldur orðið þeim til nokkurrar
ánægju.”
Hann benti á, að þingmenn
Alþýðuflokksins hefðu á hinn
bóginn verið hlynntir þvi, að ál-
blendiverksmiöjan yrði reist.
Þess vegna hefði hann talið eðli-
legt aö hafa samráð við Alþýöu-
flokkinn.
Það hefur engu verið
leynt
„Það hefur engu verið leynt,”
sagði ráðherrann. „Það hefur
verið greint frá gangi málsins
alltaf annað kastiö. 1 fréttum
rikisútvarpsins klukkan 19, 8.
desember átti fréttamaður tal
við framkvæmdastjóra Járn-
blendifélagsins, dr. Gunnar Sig-
urösson, þar sem fram kom, að
samningarnir yrðu fljótiega
lagöir fyrir Alþingi.
Þá benti ráðherrann á, að i
sjálfu sér heföi ekki þurft laga-
heimild til aö ganga frá þessum
samningi. A hinn bóginn hefði
hann taliö eölilegast að Alþingi
samþykkti lög um málið.
Frumvarp til laga um járn-
blendiverksmiðju i Hvalfirði
hefur nú veriö lagt fyrir Alþingi,
en i 1. grein þess frumvarps
segir: „Rikisstjórnin skal beita
sér fyrir stofnun hlutafélags, er
reisi og reki verksmiðju aö
Grundartanga I Hvalfirði til
framleiðslu á kisiljárni og hafi
meö höndum þá framleiðslu og
tengdan atvinnurekstur.
—BJ
flMMTUDAGUR
16. DESEMBER 1976
alþýöu
blaöið
Lesið: 1 Sjávarfréttum:
„Sjávarfréttir hafa fregn-
að aö töluvert meira sé nú
um það en áður að útlend-
ingar leiti hér eftir atvinnu
i frystihúsum, en verið hef-
ur undanfarin ár. Munu
það aðallega vera stúlkur
frá Bretlandi sem hingað
sækja, en sem kunnugt er
þá hefur verið töluvert at-
vinnuleysi i Bretlandi að
undanförnu, og sérstaklega
hefur ungum stúlkum
reyiist örðugt að fá þar
vinnu. Flestar stúlkurnar,
sem hingað koma til þess
að vinna f fiski, munu
starfa i frystihúsum á
Vestfjörðum, en þar hefur
viða verið' nokkur vinnu-
“aflsskortur.”
Frétt: Aö við atkvæða-
greiðslu um breytingatil-
lögur við fjárlagafrum-
varpið hafi tillaga frá þing-
mönnum Alþýðuflokksins
um að hækka framlag til að
styrkja munaðarlausa,
vanrækta eða fatlaða ung-
linga úr 300 þúsund krónum
i eina milljón verið fellt.
Einng tillaga um einnar
milljón króna framlag til
umferðarfræðslu fyrir
aldrað fólk.
Séð: 1 Verzlunartiðindum,
riti Kaupmannasamtak-
anna: „Kaupmaður
hringdi til samtakanna og
ræddi um sjónvarpsauglýs-
ingu þá, sem tslenzk iðn-
kynning hefur látið gera og
sýnd er i sjónvarpinu. Þótti
honum framgangsmáti af-
greiðslustúlkunnar i aug-
lýsingunni ekki til fyrir-
myndar, eða til sóma fyrir
verzlunarmenn. Kaup-
manninum var gefin sú
skýring, að forráðamenn
íslenzkrar iðnkynningar
hefðu sennilega allt i einu
áttað sig á hve stórt hlut-
verk smásölunnar væri i
söiu á islenzkum iðnaðar-
vörum og ætti þessi auglýs-
ing liklega að vera leið-
beinandi um hvernig ekki
ætti aö koma fram.”