Alþýðublaðið - 25.01.1977, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 25.01.1977, Blaðsíða 13
albvöu- biaöiö 'Þriðjudagur 25. janúar 1977 Þriðjudagur 25. janúar 7.00 Morgunútvarp Veöurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgun- leikfimikl. 7.15 og 9.05 Fréttir kl. 7.30 8.15 (og forustugr. dag- bl.) 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.50.Morgunstund barnanna kl.8.00: Herdis Þorvaldsdótt- ir les framhald sögunnar „Beröu mig tilblómanna” eftir Waldemar Bonsels (8). Til- kynningar kl. 9.30. Þingfréttir kl. 9.45. Létt lög milli atriöa. Hin gömlu kynnikl. 10.25: Val- borg Bentsdóttir sér um þátt- inn. Morguntónleikarkl. 11.00: Michael Ponti og Sinfóniu- hljómsveitin i Hamborg leika Pianókonsert i c-moll op. 185 eftir Joachim Raff: Richard Kapp stjórnar. Hljómsveit franska rikisútvarpsins leikur Sinfóniu i C-dúr eftir Georges Bizet: Sir Thomas Beecham stjórnar. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til- kynningar. 12.25 Veöurfregnir og fréttir. Til- kynningar. Við vinnuna: Tón- leikar. 14.30 Listþankar: þriöjiog siöasti þátturSigmarsB. Haukssonar. Fjallaö um auglýsingaiðnaö og list. 15.00 Miödegistónleikar Dvorák- kvartettinn og Josef Kodusek leika Strengjakvintett i Es-dúr op. 97 eftir Antonin Dvorák. Kammersveit undir stjórn Libors Peseks leikur „Sögu hermannsins”, ballettsvitu eftir Igor Stravinski. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popphorn 17.30 Litli barnatiminn Guörún Guðlaugsdóttir stjórnar timan- um. 17.50 A hvitum reitum og svört- um. Jón Þ. Þór flytur skákþátt og greinir frá úrslitum i jóla- skákþrautum. 18.20 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Hver er réttur þinn? Lög- fræöingarnir Eirikur Tómas- son og Jón Steinar Gunnlaugs- son sjá um þáttinn. 20.00 Lög unga fólksins Sverrir Sverrisson kynnir. 20.50 Frá ýmsum hliðum Hjálmat Arnason og Guömundur Arni Stefánsson sjá um þáttinn. 21.30 Sönglög eftir Tsjafkovski Evgeni Nesterenko syngur: Evgeni Shenderevitsj leikur á pianó. 21.50 Ljóömæli Jóhanna Brynjólfsdóttir les 22.00 Fréttir 22.15 Veöurfregnir Kvöldsagan: „M inningabók Þorvalds Thoroddsens” Sveinn Skorri Höskuldsson prófessor les (35). 22.40 Harmonikulög Jo Basile leikur. 23.00 A hljóöbergi,,Fröken Júlia” natúraliskur sorgarleikur eftir August Strindberg Persónur og leikendur: Fröken Júlia / Inga Tidblad, Jean / Ulf Palme, Kristin / Marte Dorff. Leik- stjóri: Alf Sjöberg. Siöari hluti. 23.50 Fréttir. Dagskrárlok. Sjjonvarp Þriðjudagur 25. janúar 20.00 Fréttir og veöur 20.30 Auglýsingar. og dagskrá 20.35 Sögur frá Munehen. Þýskur myndaflokkur Þjóöleg skemmtun. Þýöandi Jóhanna Þráinsdóttir. 21.25 Utan úr heimi. Þáttur um erlend málefni ofarlega á baugi. Umsjónarmaöur Jón Hákon Magnússon. 22.05 tþróttir. Landsleikur íslend- inga og Pólverja i handknatt- leik. '23.10 Dagskrárlok. 1 kvöld er á dagskrá sjónvarps- Myndin i kvöid nefnist Þjóöleg ins mynd úr þýska mynda- skemmtun. Þýöandi er Jóhanna flokknum Sögur frá Munchen. Þráinsdóttir. 1 Sjjónvarp SÖGUR FRÁ MUNCHEN Volkswageneigendur Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Huröir —Véiarlok — Geymslulok á Wolkswagen i aliflestum litum. Skiptum á einum degi meö dagsfyrirvara fyrir ákveöiö verö. Reyniö viöskiptin. Bilasprautun Garðars Sigmundssonar. Skipholti 25 Simar 19099 og 20988. t... TIL KlfÖLPS 13 HOBMIÐ1 Skýringar vegna Ijósmynda Herra ritstjóri, Geriö svo vel að birta eftir- greint i heiðruðu blað yöar: Fyrir nokkru spurði vinkona min hvenær ég heföi á siðast- liðnu sumri veriö I orlofsdvöl húsmæöra. Þegar ég sagöist enn ekki hafa notiö þeirra fri- inda, kvaðst hún hafa séð ljós- mynd af mér, sem hlyti að hafa verið tekin i orlofsdvöl, þar sem grein, er birt var með myndinni, hefði fjallað um orlofsdvöl hús- mæðra, og verið byggð á sam- tali viö Steinunni Fnnbogadótt- ur, sem mjög hefir látið sig varða þetta mál. Þessi vinkona min kom aftur til min i gær, og hafði þá tekið með sér úrklippu Alþýöublaðs- ins frá 12. des.sl. Allt stóð þetta heima. Þar var myndin af Steinunni og frásögn af samtali við hana um orlofsmálið. Með greininni er birt mynd af húsmóður, sem situr i sólskins- skapi með vindling i höndum við kaffiborð, hlaöið kökum. Er auðsætt að þessi kona kann vel að meta þann árangur, sem orð- inn er af baráttu Steinunnar Finnbogadóttir fyrir orlofsdvöl húsmæðra, og er nú auðskiliö hvers vegna vinkonu minni lék hugur á að aö vita hvenær og hvar ég hefði dottið i þennan lukkupott. Myndin, sem birtist af mér við kaffiborðiö er prýöilega tek- in, og ég er ekkert að kvarta undan félagsskap við þá ágætu konu Steinunni Finnbogadóttur, i orlofsdvalargreininni. En þar sem jafnan er réttara aðhafa það fremur, sem sannara reynist en hitt sem blekkingum veldur, er þess að geta, aö myndin er tekin af mér i sumarbústað okkar hjónanna fyrir löngu, er ljós- myndari og blaðamaður frá Visi ákváðu, einn sólskinsdag, að leita uppi eitthvert fólk, sem væri i sumarbústað, ljósmynda og rabba við þaö um dag og veg. Þar sem blaðamaðurinn á Visi reyndist vera góðkunn- ingi minn fengum við okkur kaffisopa, og var þá tekin mynd af mér með vinkonu minni, sem haföi heimsótt mig þennan dag. Löngu siðar er þessi mynd tekin i heimildarleysi i staðinn fyrir að sýna fremur tvær bros- mildar konur en eina, orlofs- málinu til vegsemdar, hefir ver- ið talið betur fara á þvi að klippa myndina i tvennt og birta • einungis þann hluta hennar, þar sem ég sést, ein við orlofs- dvalarborðiö mitt i sumarbú- staðnum, sem kunningjar minir nefna stundum Armannslund i góðlátlegu gamni þeirra um hve miklu betur ég uni mér þar en annars staðar að sumarlagi. Ekki kann ég við þessa blaða- mennsku ykkar , og tel bezt fara á því að hver njóti þess sem honum ber, Armannslund- ur minn og orlofsdvalastaðir þeir, þar sem húsmæður fá hvild og hressingu að sumar- lagi, m.a. vegna baráttu Stein- unnar Finnbogadóttur fyrir þvi að þær fái eigi siður tilbreytingu frá hversdagsleikanum en þær konur, sem geta notið fristund- anna aö sumarlagi i bústöðum sinum með ljósmyndurum, blaðamönnum og öðrum góðum gestum, er vilja sækja þær þar heim. Dýrieif Ármann Frú Dýrleif Ármann. Við biðjum þig afsökunar á þessari notkun myndar, sem þú gerir að umræðuefni. Auövitað er myndin hvorki betri né verri, þrátt fyrir þessa birtingu. En okkur verða á mistök, eins og öðrum. 1 þessu tilviki er það sama sólin, sem skin á Ar- mannslund og orlofsdvalar- heimili, en ekki rétta andlitið. Við erum fremur auralausir hér á blaðinu, og geymum þvi vandlega gamlar myndir. Við gripum til þeirra til aö mynd- skreyta greinar, og komiö hefur fyrir aö sama myndin birtist nokkrum sinnum. Þetta veröur að virða okkur til vorkunnar. Hins vegar höfum við engan rétt á þvi, að færa fólk frá frið- sælum dvalarstað eitthvað út i buskann. Ég endurtek afsökun blaðsins og mina og vona að þetta hafi ekki bakaö þér óþægindi. Ritstjóri. TÍÐ UMFERÐASLYS í DANMÖRKU í Danmörku er haf- inn mikill áróöur gegn slysum i umferðinni. t framhaldi af því hefur danskur læknir, Steffen Torp, komið fram með þá kenningu að hægt sé að komast að mestu leyti hjá umferðar- óhöppum, ef allir þeir sem hafa ökuskirteini, gangist undir sáifræði- legt próf. En það eru ekki allir á sama máli og Torp. Annar spekingur, sem er hvorki meira né minna en mag. scient. soc.og heitir östergaard, hefur sagt, að þetta séu aðeins orö Torps, en hvergi skjalfest. Að hans áliti séu þess- ar rannsóknir læknisins ekki þeirra fjármuna viröi sem fara til þeirra. Aðrar rannsóknir sem farið hafa fram i Véstur-Þýskalandi benda til að raunverulega finn- ist engar „óhappakrákur” i umferöinni. Aöeins 1-2% þeirra sem hafi lent i umferöaróhöpp- um, endurtaki þessa óskemmti- legu lifsreynslu. Hins vegar sé það staöreynd, að margir noti umferöina, þegar þeir ætli að fremjasjálfsmorö,þ.e. stökkvi i veg fyrir bifreiöar o.þ.h. Meira um kenningar Torps. En ef vikið er aftur að danska lækninum Steffen Torp, og kenningu hans um hvernig minnka megi tiöni bifreiða- slysa, þá er rauði þráðurinn i henni sá, aö fimmti hver maður sem aki bifreiö, eigi við sálræna erfiðleika að striða, sem valdi þvi aö viðkomandi sé óöruggur bilstjóri. „Þaö eru miklu fleir bilstjór- ar sem eru i sjálfsmorðshug- leiðingum, en fólk gerir sér al- mennt grein fyrir, segir hann. Þaö er þvi beinlínis nauðsyn- legt, aö gera mönnum grein fyrir, á hve ófullnægjandi hátt er staöiö að uppáskriftum öku- tækja. Þar af leiöandi verður að breyta þeim reglum sem gilda um bilprófin. Nú er þeim svo háttað aö læknirinn skoðar þann sem gangast skal undir ökupróf. Skal hann gefa vottorð um hvernig sálarástandi viðkom- andi sé háttað. I reynd þýðir þetta, að ekkert eftirlit sé með hvort fólk sé yfirleitt tilbúið að taka við stjðrn ökutækis. Að minu viti er miklu eðlilegra að fólk gangist undir strangt sál- fræðilegt próf og niöurstöður séu látnar ráða hvort viökom andi fá bilpróf eða ekki. Sem dæmi, þessu til rökstuðn- ings má nefna stórslys sem varð i Sviþjóð á sinum tima. Þar létu sjö manns lifið og raunar allir i bilunum sem skullu saman, nema einn — nefnilega sá, sem ætlaöi aö fyrirfara sér. Mennirnir eru býsna mismun- andi. Sumir eru fljótir að reiðast, en aörirþurfa mjög litiö til að veröa „stressaöir.” Enn aðrir verða mjög óöruggir við akstur, ef þeir hafa fengiö sér aðeins eitt litið staup af vini. Það er heldur ekki vist, að all- ir beiti réttum viðbrögðum viö erfiðar aðstæður. Hið rétta er, að hluti ökumanna sýnir rétt viðbrögð, en hina er auövelt aö finna eftir aö þeir hafa gengiö i gegn um sálfræðileg próf.”

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.