Alþýðublaðið - 02.02.1977, Page 15
SJÓNARMIÐ 15
sass1
Miðvikudagur 2. febrúar 1977
Bíóin / Leikhúsdn
3* 2-21-40
Árásin á Entebbe flugvöil-
inn
Þessa mynd þarf naumast að
auglýsa, svo fræg er hún og at-
burðirnir, sem hún lýsir vöktu
heimsathygli á sinum tima, þegar
Israelsmenn björguðu gislunum á
Entebbe flugvelli i Uganda.
Myndin er i litum með
ÍSLENZKUM TEXTA.
Aðalhlutverk: Charles Bronson,
Peter Finch, Yaphet Kottó.
Bönnuð innan 12 ára
Sýnd kl. 5, 7.15 og 9.30.
Hækkað verö.
lonabíó
3*3-11-82
Lögreglumenn á glapstig-
um
Bráðskemmtileg og spennandi
ný mynd.
Leikstjóri: Aram Avakian
Aðalhlutverk: Cliff Gorman, Jos-
eph Bologna
ÍSLENZKUR TEXTT
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
LEIKFÉLAG *£* A *
•REYKJAVIKUR
SKJALDHAMRAR
i kvöld — Uppselt.
Þriðjudag kl. 20.30.
MAKBEÐ
fimmtudag kl. 20,30.
STÓRLAXAR
föstudag kl. 20,30.
Fáar sýningar eftir.
ÆSKUVINIR
laugardag kl. '20,30 Fáar
föstudag kl. 20,30.
Allra siöasta sinn.
SAUMASTOFAN
sunnudag kl. 20,30.
Miðasala i Iðnó kl. 14-20,30.
Simi 1-66-20.
i&MÓÐLEIKHÚSÍfi
LISTDANSSÝNING
Les Filfides Svita úr Svanavatn-
inu og atr. úr nokkrum öörum
ballettuih.
Gestur: Nils-Ake Haggbom.
Ballettmeistari: Natalja Konjus.
i kvöld kl. 20.
Miðvikudag kl. 20.
Aðeins þessar tvær sýningar.
GULLNA HLIDIÐ
fimmtudag kl. 20,
laugardag kl. 20.
SÓLARFERÐ
föstudag kl. 20.
DÝRIN 1 HALSASKÓGI
laugardag kl. 15.
Litla sviðið:
MEISTARINN
fimmtudag kl. 21.
Miðasala 13,15-20.
3* 1-89-36
Okkar bestu ár
The Way We Were
ISLENZKUR TEXTI
Viðfræg amerisk stórmynd æi lit-
um og Cinema Scope með hinum
frábæru leikurum Barbra Streis-
and og Robert Redford
Leikstjóri: Sidney Pollack
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10
Simi50249
Útsendari mafíunnar.
Aðalhlutverk: Jean Louis
Trintignant, Ann Margret, Angie
Dickinson
Leikstjóri: Jacques Deray
Bönnuð börnum inan 16 ára.
Sýnd kl. <).
3* 3-20-75
Hæg eru heimatökin
Henry Fonda
Ný, hörkuspennandi bandarisk
sakamálamýnd um umfangs-
mikið gullrán um miðjan dag.
Aðalhlutverk: Henry Fonda,
Leonard Nimoy o.fl.
Bönnuð innan 12 ára.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
tSLENZKUR TEXTI
Æsispennandi og mjög vel gerð
ný bandarisk kvikmynd, sem alls
staðar hefur verið sýnt við met-
aðsókn. Mynd þessi hefur fengið
frábæra dóma og af mörgum
gagnrýnendum talin betri en
French Connection I.
Aðalhlutverk: Gene Hackman,
Fernando Rey.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7.15 og 9.30.
Hækkaö verö.
.Si^íi
3*16-444
Fræknir félagar
IUt jn (Ml 1,1.
JAMES
B0LAM
R0DNEY
BEWES
.rfEEHEELra
Sprenghlægileg og f jörug, ný ensk
gamanmynd i litum.
tSLENZKUR TEXTI.
Sýnd kl. 9 og 11.
Samfelld sýning kl. 1,30 til 8,30:
//Kornbrauð" Jarl og ég
Spennandi og athyglisverð, ný
bandarisk litmynd með Moses
Gunn og Rosalind Cash — og
Sterkir smávindlar
Spennandi sakamálamynd.
Endursýnd.
ISLENZKUR TEXTI.
Bannað innan 12 ára.
Samfelld sýning kl. 1,30 til 8,30.
Bak við múrinn
Bandarisk sakamálamynd
tSLENZKUR TEXTI
Bönnuð börnum innan 16 ára
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Hvað kem-
ur næst?
Staut og stöður!
Um nokkurt skeið virðist þaö
hafa verið einskonar timanna
tákn, þegar menn þykjast þurfa
að mótmæla, eða vekja athygli á
einhverju, sem þeim liggur á
hjarta, að raða sér upp i hópa,
stóra eða smáa, nú eða þá að
ganga einhvern spotta i sama
skyni!
Þekktastar eru Keflavikur-
göngur svokallaðra hernámsand-
stæðinga, sem öðru hvoru hafa
verið farnar með miklum gný,
auglýsingaskrumi og öðrum til-
heyrandi vindgangi. Um árangur
af þessu eyðisandarápi er minna
að tala, enda máske aðalatriðið
að láta áhugann i ljós með þvi að
fá einhverjar umsagnir i f jölmiðl-
um landsins!
Auðvitað er svo sem engin
ástæða til að amast við þvi þó fólk
geri sig að hálfgerðum flónum
með svona tilburðum. Það gerir
það á eigin ábyrgð og er vissulega
ekki á neinn hátt ofgott að fá
þessar auglýsingar!
Hér skal ekki dreginn i efa á-
huginn á málefninu — annað væri
ekki sanngjarnt! En mikið lif-
andis ósköp má það vera rótgró-
inn misskilningur, að halda að
annað eins og þetta hafi nokkur
raunveruleg áhrif á gang mál-
anna.
Vitanlega kann sýndarmennsk-
an að vera einhverjum einhvers
virði. Það er aldrei gott að segja.
En skorturinn á skynsamlegum
vinnubrögöum og liklegum til ár-
angurs verður enn berari, eftir
þvi sem fyrirgangurinn er meiri.
Sjálfsagt er að viðurkenna, að
við ramman reip kann að vera
hér að draga. En skyndiupphlaup
ogeinhverjargeldstöður utan við
einhverjar stofnanir, sem við-
komandi telja að hlut eigi að
máli, áorka vitanlega ekki öðru
en svona góðlátlegum aðhlátri i
bezta falli.
Af svipuðum rótum og ofan-
nefnt hefur það einnig tiðkazt, að
koma á fót allskonar nefndum,
sem telja sig hafa áhuga á, jafn-
vel stórpólitiskum málum á
heimsmælikvarða og vilja i tima
og ótima láta ljós sitt skina.
Enginn er álasverður fyrir að
hafa áhuga, sem beinist að þvi að
leysa margskonar hnúta i heims-
málunum. Annað mál er svo, að
telja má fremur litlar likur til að
við hér getum haft mikil áhrif,
nema þá i hópi annarra skoðana-
bræðra og systra, sem sameig-
inlega gætu fengið einhverju
áorkað.
Við vonum að minnsta kosti, að
okkar þátttaka i samtökunum
Amnesti International geri eitt-
hvað ofurlitið meira en að frið-
þægja okkur sjálfum, svo dæmi sé
nefnt.
Núna mun vera sýnd i Háskóla-
bió mynd, sem gengur undir
nafninu „Arásin á Entebbe”.
Svo vill nú vel til, að einhver
hefur komið á fót nefnd sem
kennir sig við Palestinu, og mun
vera hliöholl, liklega vill berjast
fyrir rétti Palestinuaraba.
Oddur A. Sigurjónsson
Þessi nefnd mun hafa komið sér
niður á einhverja friðsamlega
geldstöðu utan við bióhúsið mál-
efninu til framdráttar!
Það er svo aftur meiri ráðgáta
hversvegna þessi syning var val-
in til þess að láta baráttuviljann i
ljós.
Skemmra er en svo siðan þeir
atburðir gerðust, sem hér á að
sýna, að það geti ekki verið i
fersku minni þeim, sem vita vilja.
Kveikjan i þessari „árás” var
eins og allir vita flugvélarrán
hryðjuverkamanna, en slikir at-
burðir gerast nú nokkuð tíðir og
valda stjórnvöldum margra
landa ærið miklum áhyggjum, að
vonum.
Við skulum á engan hátt reyna
að draga fjöður yfir, að
Palestinuarabar hafa á ýmsan
hátt verið hart leiknir. Þar eiga
fleiri hlut að máli en tsraels-
menn, þó þeir fengju yfirráðin á
landinu á vafasömum forsendum
og meö samkomulagi stórvelda!
Hinsvegar eru viðbrögð ýmissa
úr hópi Arabanna heldur litið geö-
felld. Menn minnast enn morð-
anna á iþróttamönnum Israels i
Miinchená Olympiuleikunum. En
þar var, að þvi að telja verður,
saklaust fólk sallað niður með ný-
tizku morðtólum. Flugvélarránið
var aðeins angi af þessari sömu
rót sprottið, og bersýnilegt var,
að þar átti að beita annan hóp
saklauss fólks harðræðum, ef
ekki svipta það lifinu beinlinis.
Þessi árás, sem veriðer sýnilega
að mótmæla með stöðu utanvið
bióhúsið, var nú ekkert annaö en
tilraun sem heppnaðist, til að
bjarga á annað hundrað saklauss
fólks, sem ekki hafði annað af sér
brotið en að vera þegnar Israels-
rikis!
Otrúlegt má raunar telja, að
þessi „staða” hér verði neinn
fréttamatur i heimspressunni. En
ef svo færi nú þrátt fyrir allt.
Liggur þá ekki beint við, að
hryðjuverkamenn hlytu að telja
þetta siðferðilegan stuðning við
framferði sitt? Það er bágt að
hugsa sér annað, enda þótt við
hér vitum, að sú er trúlega ekki
ætlun stöðumanna.
Verður ekki næsta skrefið, að
koma á fót einhverri nefnd til
þess að beita sér fyrir stöðum eða
rápi til styrktar við málstað irska
lýðveldishersins, sprengjutilræði
og morð á saklausu fólki? Þaö er
sannarlega ekki gott að segja við
hverju við getum búizt af ráp- og
stöðuglöðu fólki.
I HREINSKILNI SAGT
Ritstjórn Alþýðublaðsins er i j
; Síðumúla 11 - Sími 81866]
Hatnarfjaröar Apatek
Afgreiðslutimi:
Virka daga kl. 9 18.30
'Laugardaga kl. 10-12.30.
Helgidaga kl. 11-12
Eftir lokun:
Upplýsingasimi 51600.
1
Svefnbekkir á
verksm iðjuverði
H'WaiMllllJ
Hcfðatúnl 2 - Sirni 15581,
Reykjavik
J
<4>
£
SENVlíMASWDIN Hf