Alþýðublaðið - 23.07.1977, Qupperneq 5
•JJgJJ*' Laugardagur 23. júli 1977.
5
larformann, í tilefni af því, að brauðgerðin hættir nú störfum:
Baldvin Jónsson, formaöur
stjórnar Alþýöubrauögerðar-
innar.
ber vitni ef svo væri. Hér eru
karlar og konur sem hafa unniö
upp undir 50 ár hjá fyrirtækinu.
Hér hefur verið gott fólk og mér
hefur lánazt það vel, þótt við
neyddumst til að segja þvi upp
núna, enda var það ekki sárs-
aukalaust.
Auk þess má geta þess hér, að
ég var i 12 ár formaður Bakara-
sveinafélagsins, svo það má geta
nærri hvort mér hefur ekki verið
svolitið annt um það félag. A
þeim árum, sem ég var formað-
ur, var aldrei farið i verkfall.
Ekki vegna þess að við værum
deigari en aðrir, heldur vegna
þess að við náum betri samning-
um án þess að fara i verkfall.
Enda var aldrei kvartað undan
linku i félaginu.
Nú verður það hins vegar að
segjast eins og er, að kjör bakara
hafa dregizt aftur úr siðustu árin
og þeir þurfa umtalsverðar
bætur.
— En hvað verður nú, við aö Al-
þýðubrauðgerðin hættir starf-
rækslu? Verður hlutafélagið leyst
upp?
— Nei, segir Baldvin Jónsson.
—■ Við ætlum að halda þvi áfram.
Hins vegar hefur ekkert verið
ákveðið um framtiðina. Forstjóri
fyrirtækisins er orðinn 82 ára og
sagði raunar upp störfum fyrir
tveimur árum, en við leyfðum
honum þá einfaldlega ekki að
hætta.
A nýafstöðnum aðalfundi voru
málin skýrð fyrir hluhöfum og nú
mun nýkjörin stjórn taka ákvörð-
un um hvaða starfsemi hluta-
félagið hyggst hafa i framtiðinni.
Heldur er ótrúlegt, að svona stórt
brauðgerðarhús verði rekið á
gamla staðnum, þannig að fyrsta
verkefnið verður sjálfsagt aö
taka ákvörðun um, hvort leggja
skuli i stórkostlegar viðgerðir á
gömlu húsunum, eða fara i ný-
byggingu.
—hm
Við þetta skrifborð hefur Guðmundur unnið ótatdar vinnustundir, enda ber það aldurinn með sér og þætti
aldeilis fint á timum antiktizkunnar.
Hluti af stofnsamningi hlutafélagsins Alþýðubrauðgerðarinnar, en hún er dagsett 29. október 1940.