Alþýðublaðið - 22.10.1977, Qupperneq 3
ssr..
Laugardag
ur 22. október 1977
Lagt til að stjórnarskránni verði breytt:
„Brýnt ad taka af tvímæli um
eignarrétt á náttúruauðaefum”
Þingmenn Alþýðu-
bandalags/ þeir Ragnar
Arnalds/ Geir Gunnars-
son, Helgi F. Seljan og
Stefán Jónsson, flytja á
Alþingi frumvarp til
stjórnskipunarlaga um
BREYTINGU A
STJÓRNARSKRA IS-
LANDS.
Segir í greinargerð, að
brýnt sé orðið að taka af
öll tvímæli um eignarrétt
á náttúruauðæfum og
landi og marka skýra
stefnu í því máli. Hér sé
miðað við þá grund-
vallarreglu:
að eignir, sem enginn hefur
sannanlega átt fram að þessu
og eru þess eðlis, að þær þurfa
að nýtast a'f þjóðarheildinni,
verði i stjórnarskrá lýðveldis-
ins lýst sameign þjóðarinnar
allrar:
að mörkin milli einkaeignar og
sameignar þjóðarinnar verði
ákveðin með löggjöf, þar sem
hagsipuna þéttbýlisbúa sé
fyllilega gætt, og þeim sé
tryggður réttur til eðlilegrar
umgengni og útivistar I land-
inu og til þess lands undir
húsbyggingar á sanngjörnu
verði:
að staða bænda sé ekki skert og
þeir haldi þeim hlunnindum,
sem fylgt hafa islenskum
búskaparháttum á liðnum
öldum.
t greinargerðinni eru nefnd
nokkur dæmi um tegundir
náttúruauðæfa sem gætu orðið
og sem jafnvel hafa verið bit-
■bein manna á meðal: verðmæti
i sjó og á sjávarbotni, afréttir og
almenningar, námur i jörðu,
orka f rennandi vatni og jarð-
hiti. Um siðasttalda atriðið
segja flutningsménn, að „frá-
leitt sé að landeigendur geti
slegið eign á jarðhita djúpt I
jörðu, ekki siður en á orku
vatns. Með stjórnarskrár-
ákvæði þurfi að tryggja rétt
samfélagsins til orkunnar i
iðrum jarðar, og taka af öll tvi-
mæli um það, aö eignarréttar-
ákvæði 67. gr. stjórnarskrár-
innar verndi ekki rétt landeig-
andans til jarðhita á ótak-
mörkuðu dýpi.
„Það er margyfirlýst skoðun
fræðimanna, sem um þetta hafa
fjallaði, m.a. skoðun prófessor-
anna ólafs Lárussonar og Ólafs
Jóhannessonar, að landeigandi
eigi ekki rétt til jarðhita niður á
hvaða dýpi, sem er og þvi megi
með lögum takmarka rétt hans
við ákveðið dýpi, t.d. 50-100
metra dýpi, en séreignaröflin
munu vafalaust spyrna á móti,
eins lengi og þau geta, og visa til
67. gr. stjórnarskrárinnar. Þess
vegna þarf að ákveða það i
stjórnarskrá, að allur jarðhiti,
a.m .k. neðan viö 199 metra dýpi,
sé áameign þjóðarinnar”, segir
i greinargerðinni að lokum.
Eignarréttur á orku I rennandi vatni hefur lengi verið deiluefni á tslandi. Fyrir 60 árum, þegar orku-
málin voru hvað efst á baugi, var það álit meiri hluta svonefndrar fossanefndar, og ráðgjafa hennar,
Einars Arnórssonar, þáverandi lagaprófessors og siðar hæstaréttardómara, aö orka vatnsins væri ekki
undirorpin eignarrétti landeigenda.
Oflugt starf FUJ
í Hafnarfirdi
Gunnar Fridþjófsson kförinn
formaður
Aöalfundur Félags
ungra jafnaðarmanna í
Hafnarfirði var haldinn í
fyrradag, fimmtudag, i
Alþýðuhúsinu í Hafnar-
firði. Fráfarandi formað-
ur, Lárus Guðjónsson,
greindi frá fjölbreytilegu
og miklu starfi á síðasta
ári. Það fólst m.a. í útgáfu
blaða og dreifirita, bar-
áttufundi í Bæjarbíói,
ferðum í Munaðarnes,
skemmtanahaldi og fleiru.
A fundinum var Gunnar Frið-
þjófsson kjörinn formaður til
næsta árs. Mikill hugur var I
fundarmönnum að efla starfið
enn meira á næsta starfsári, og
þá sérstaklega með hliðsjón af
þvi, að I hönd fara tvennar kosn-
ingar.
Á fundinum var mikið rætt um
prófkjörið i Reykjaneskjördæmi
og niðurstöðu þess. Töldu fundar-
menn, að FUJ hefði náð þar góð-
um árangri og haldið skyldi
áfram á sömu braut. í lok fundar-
ins var skorað á Gunnlaug
Stefánsson að gefa kost á sér i
þriðja sæti á framboðslista Al-
þýðuflokksins i kjördæminu fyrir
næstu Alþingiskosningar, en hann
hlaut 1100 atkvæði i prófkjörinu i
annað sætið.
Kosið í 1. des.
nefnd
stúdenta
Kosning til 1. des. nefndar
1977 fer fram i Sigtúni við
Suðurlandsbraut laugardaginn
22. október n.k.
t framboði eru tveir listar, A-
listi VÖKU og B-listi VERÐ-
ANDI.
VAKA býður fram efnið
MENNTUN OG MANNRÉTT-
INDI og nefndarmenn: 1. Anna
Sverrisdóttir, 2. Auðunn Svavar
Sigurðsson 3. Einar örn Thor-
lacius, 4. Kristinn Arnason, 5.
Ottó Guðjónsson, 6. Stefán Jóns-
son, 7. Sveinn Geir Einarsson.
VERÐANDI býður fram efnið
KVENFRELSISBARATTAN og
nefndarmenn: 1. Aðalheiður
Steingrimsdóttir, 2. Guðrún
Pálina Héðinsdóttir, 3. Jón Ingi
Sigurbjörnsson, 4 Mörður Arna-
son, 5. Svava Guðmundsdóttir,
6. Þórunn Reykdal, 7. örn
Daniel Jónsson.
Fundurinn hefst kl. 14 með
framsöguræðumbeggja lista.,
Siöan hefjast almennar
umræður. Kosning hefst kl 15 og
stendur þar til mælendaskrá er
tæmd, en húsinu verður lokað
kl. 17.
Stúdentum er bent á að hafa
með sér stúdentaskírteini.
Kjörstjórn 1. des. nefndar
1977.
Frá Vöku
1 dag velja stúdentar við
Háskóla tslands hvaða efni þeir
vilja að 1. desemberhátið þeirra
verðihelguð. Kosningarnar fara
fram i Sigtúni við Suðurlands-
braut. Fundurinn hefst klukkan
14 með framsöguræðum af hálfu
lista Vöku og Verðandi. Klukk-
an 15 hefst siðan kosning, og
stendur fram til klukkan 17.
Húsið verður opið allan timann.
Þar með hefur margra ára bar-
átta Vöku fyrir þvi að-mönnum
sé gert sem auðveldast að neyta
atkvæðisréttar, borið nokkurn
árangur.
Nauðsynlegt er að stúdentar
kjósi snemma og taki stúdenta-
skirteini með sér.
Menntun og
mannréttindi:
Vaka félag lýðræðissinnaðra
Framhald á bls. 10
Stuðningsfólk
Benedikts
Gröndals í prófkjöri
Þeir, sem eru reiðubúnir til að vinna að kjöri Benedikts Gröndal i
prófkjörinu, eru beðnir að koma til fundar i dag, laugardag,
klukkan 14 i kaffistofu starfsfólks Hraðfrystistöðvarinnar i
Reykjavik, Mýrargötu 26.
Stuðningsmenn
Rfkið greiði 75% stofnkostnaðar sundlauga
2 f ullnægjandi sund-
stadir á Vestf jördum!
— frumvarp um breytingu á
lögum um skólakostnað
Þingmennirnir Karvel
Pálmason, Jónas Arnason
og Sighvatur Björgvinsson
ftytja á Alþingi frumvarp
til laga um breytingu á lög-
um um skólakostnað, en
samhljóða frv. hefur verið
fluttá tveimur undanförn-
um þingum, á þess að
hljóta afgreiðslu.
I greinargerð frum-
varpsins segir, að það hafi
lengi verið Ijóst að með nú-
gildandi ákvæðum um
hlutdeild ríkissjóðs í
greiðslu stofnkostnaðar
skólahúsnæðis og óbreyttri
stefnu í hönnum slíkra
mannvirkja, þar á meðal
sundlauga, eigi fjölmörg
minni sveitarfélög við
sjávarsíðuna víðs vegar
um landið þess engan kost
að koma upp sundlaugum
svo viðynandi sé.
Litil og févana sveitarfélög geti
með engu móti lagt fram 50% af
stofnkostnaði slikra mannvirkja,
enda sýni þær upplýsingar sem
fyrir liggi, að ástand i þessum
málum sé hið hörmulegasta og
fjöldi útgeröarstaða á landinu
hafi alls enga aðstööu til sund-
kennslu.
Áberandi verst er ástandið á
Vestfjöröum, en þar munu 13
staöir falla undir ákvæði frum-
varpsins, ef samþykkt verður, og
af þessum 13 stöðum hafa 8 alls
enga sundlaug, 3 staðir hafa ófull-
nægjandi aðstöðu eða aðstöðu
sem er i byggingu og aðeins 2
staðir á Vestfjörðum hafa aðstöðu
til sundkennslu.
Frumvarpið felur i sér, að við
byggingu sundlauga i minni
sjávarþorpum, þ.e. þeim sem
hafa innan við 4000 ibúa, skuli
rikissjóður greiða 75% stofn-
kostnaðar i stað 50%. „Með slikri
breytingu væri þeim sjávarþorp-
um, sem nú hafa enga möguleika
á að eignast sundlaug, gert kleift
að byggja slikt mannvirki”, segja
flutningsmenn.
Með frumvarpinu er birt fylgi-
skjal, þar með birtur er fjöldi
sundstaða i hinum, einstöku
landshlutum.
Mótmæla-
staða
1 dag upp úr klukkan hálf
f jögur munu nokkur félög inn-
an BSRB standa fyrir mót-
mælastöðu fyrir framan Há-
skólann.
Eins og kunnugt er byrjar
samningafundur klukkan
fjögur og er fólk kvatt til að
mæta hálftíma áður og taka á
móti samninganefnd rikisins.
Eri ráði að mætaráðherrunum
með þögulli mótmælaaðgerð.
Aðgerðir þessar eru ekki á
vegum BSRB, heldur á vegum
nokkurra aðildarféiaga, með
Starfsmannafélag Rikisins,
SFR. f broddi fylkingar.