Alþýðublaðið - 11.11.1977, Síða 2
2
Föstudagur 11. nóvember 1977
AF NÝJUM BÓKUM
Ný Ijóðabók frá Tómasi Guðmundssyni
Heim til þín ísland
Heim til þín island
nefnist ný Ijóöabók eftir
Tómas Guömundsson.
Kristján Karlsson ritar
kynningarorð á bókar-
kápu/ og segir m.a:
En mig langar til a6 geta um
tvennt sem mér er hugstætt i
sambandi viö þessa nýju bók. 1
fyrsta lagi eru þaö ýmis kvæöi,
sem ort eru i hátiöarskyni. Mér
hefur sjaldan fundist Tómas
Guömundsson merkilegra skáld
en einmitt I þessum kvæöum.
Ég hygg, aö vér finnum, aö
þessi kvæöi eru ný tegund
hátíðaljóöa, og ólik þvi sem áö-
ur hefur tiökast, bæöi listrænni
og vitsmunalegri i senn. Það er
einkennilegt afrek aö yrkja svo
blómin í sönanum
persónuleg kvæöi i búningi
formlegra lofsöngva.
í ööru lagi viröist mér, aö i
ýmsum hinum ljóðrænni kvæöa
bókarinnar kenni dýpri sárs-
auka hjá skáldinu en nokkru
sinni fyrr gagnvart mætti eyði-
leggingarinnar I öllu lifi. Ég veit
ekki hvort þessi kvæöi eru meiri
skáldskapur, en til dæmis gam-
ankvæöin, sem lika er aö finna i
þessari bók; ég veit aðeins, aö
skáldstilí Tómasar Guðmunds-
sonar er nógu óbrigöull til aö
leyfa honum hvort tveggja...”
Bókin ,,Heim til þin Island” er
125 blaðsiður aö stærö, i vönd-
uðu bandi. Hún er gefin út af
Helgafelli. —JSS
Út er komin bókin
// Blómin i söngnum" eftir
Margréti Friðjónsdóttur.
Er þetta fyrsta bók
höfundar, sem notar
óvenjulegt tjáningar-
form/ þvi Ijóð/ og sögu-
brot eru ofin saman og
tengd í einu stefi.
Fjallað er um tiltekinn liö
refsimála-myndatökur viö
auögunarbrotum og gerö sam-
liking viö ,,lykilinn”-brenni-
TÓMAS GUÐMUNÐSSON
'HEIM TIL ÞÍN.
ÍSLAHP
markiö sem fyrrum tiökaöist
Máliö kann aö hafa nokkra sér-
stööu hér á landi vegna fámenn-
is þjóðarinnar.
t þessum „uppsláttaralbúm-
um” eru yfirleitt myndir af
smávægilegustu auögunarbrot-
um sem eiga sér staö, til þess er
fólk lendir i ævialbúminu-saka-
skránni- en þaðan kemst eng-
inn út.
Bókin er 96 blaðsiöur aö
stærö, gefin út af bókaútgáfunni
Letri.
—JSS
Blómin í söngnum
^Landsþing menntaskólanema:
D
MEÐALMENNSKA
RÍKIR í MENNTA-
MÁLUNUM
Landssamband isienzkra
menntaskólanema hélt sitt
11. landsþing dagana 29. og
30. október sl. Þingið sóttu
fulltrúar allra mennta-
skóla á landinu og fjöl-
brautarskólunum í Breið-
holti og Flensborg.
LIM er hagsmunasamtök is-
lenzkra framhaldsskólanema og
heldur árlega þing, sem er æösta
vald i málefnum þess. A þingun-
um eiga sæti fimm fulltrúar frá
hverjum aöildarskóla. Milli þinga
er framkvæmdavaldiö hins vegar
i höndum stórnar sambandsins,
en i henni sitja tveir fulltrúar frá
hverjum aöildarskóla. Um dag-
legan rekstur sér svo fram-
kvæmdastjórn, skipuð þrem
mönnum sem allir eru úr sama
skóla. Or menntaskólanum I
Kópavogi á siöasta ári, en veröur
skipuö þrem nemendum Mennta-
skólans viö Hamrahliö næsta
starfsár.
A þinginu var meöal annars
samþykkt reglugerö fyrir Menn-
ingartengslasjóö LIM, en sam-
kvæmt henni er tilgangur sjóösins
aö styrkja samskiptin milli skól-
anna, meö þvi til dæmis aö
styrkja ferðir leikhópa, kóra,
hljómsveita og listsýninga. Einn-
ig skipti þingiö verkefnum á milli
starfshópa i skólunum, svo sem
umfjöllun um menntaskóla/fjöl-
brautarskóla, frumvarp um
framhaldsskóla og spurninguna
um hvort jafnrétti sé til náms á
Islandi.
A öörum málum sem þingiö
kom inn á má nefna leiöir til aö
lækka bókakostnaö nemenda á
framhaldsskólastigi, vinnubrögö
rikisváldsins i byggingarmálum
skólanna á Iandinu, kröfu um aö
rikisvaldið greiöi þeim starfs-
kröftum laun sem starfa viö mat
sölur skólanna, svo sem fordæmi
séu fyrir viö kennaramötuneyti
og önnur mötuneyti á vegum
rikisins. Þá voru samþykktar
ályktanir um menntamál, starfs-
fræöslu, bókasöfn og lestraraö-
stööu og þá meðalmennsku sem
nú rikir i menntamálum þjóöar-
innar, meö tilliti til laga úm
grunnskóla og frumvarps til laga
um framhaldsskóla. —hm
Svipmynd frá þingi Landssambands Islenzkra menntaskóianema.
Samtök sveitarf élaga
á Vesturlandi f unda
Aðalfundur Samtaka
sveitarfélaga í Vestur-
landsk jördæmi verður
haldinn í Munaðarnesi um
næstu helgi/ 11. - 12.
nóvember. Rétt til fundar-
setu eiga 50-60 fulltrúar
sveitarstjórna á Vestur-
landi auk gesta.
Á dagskrá fundarins eru
skýrslur stjórnarfor-
manns/ Húnboga
Þorsteinssonar og fram-
kvæmdastjóra, Guðjóns
Ingva Stefánssonar.
Einnig veröa fluttar skýrslur
frá Fræösluráöi Vesturlands,
samgöngunefnd samtakanna og
Byggðadeild Framkvæmdastofn-
unar rikisins.
Aöalmál fundarins aö þessu
sinni veröur framhaldsnám á
Vesturlandi og flytja Vilhjálmur
Hjálmarsson menntamálaráö-
herra og Ölafur Asgeirsson skóla-
meistari fjölbrautarskólans á
Akranesi framsöguerindi.
Gert er ráö fyrir aö fundinum
ljúki um miðjan dag á laugardag.
Getraunaspá Alþýðubladsins:
140.000 krónur
fyrir ÍO rétta
Vegna plássleysis féll spáin út
úr blaðinu i gær en við vonum að
ekki komi að sök, þó hún sé ein-
um degi á eftir áætlun.
Flest toppliðin töpuðu um siö-
ustu helgi, Notthingham Forest
tapaöi öðrúm leik sinum á
keppnistimabilinu, Manchester
liðin töpuðu bæði og einnig Liv-
erpool. Þessi fjögur töp komu
algerlega aftan að spámannin-
um okkar og þvi höfðum viö aö-
eins 8 rétta.
En úrslitin komu fleirum á
óvart. I 11. leikviku kom enginn
seðill meö 12 eða 11 rétta. Fjórir
seðlar voru með 10 rétta og var
vinningurinn á hvern þeirra
139.500 krónur. 55 raðir voru
með 9 réttum leikjum og var
vinningurinn á hvern þeirra
4.200 krónur.
Arnsenal-Coventry.
Þetta verður leikur vikunnar. Lundúnaliðið er mjög gott um
þessar mundir en það er Coventry lika, hefur enda komið ótrú-
lega mikið á óvart I vetur með góðum leik sinum og er komið i 2.-
4. sæti. Við spáum jafntefli, en til vara að heimavöllurinn hjálpi
Arsenal nægilega til að sigra, þeir eru enn ósigraðir á heima-
velli. (Fyrsti tvöfaldi leikurinn).
Aston Villa-Middlesbro.
Villa er óðum að færast i „heimavallar-stuðið”, en liðið var
frægt fyrir að tapa nánast aldrei leik á heimavelli en stefna að
ja'fntefli á útivelli. Nú leikur liðið mjög vel og Andy Gray er
óstöðvandi. Heimasigur.
Bristol City-Derby.
Leikurinn er jafnteflislegur, Derby er heldur að sækja á en er
enn á hættusvæðinu. Bristol City gengur flest i óhag, en liðið má
ekki við þvi að tapa á laugardaginn. Jafntefli.
Everton-Birmingham.
Everton var eitt af fáum toppliðum 1. deildar, sem ekki tapaði
á laugardaginn var. Liðið er nú komið í annað sæti ásamt WBA
og Coventry. Middlesbro dinglar um miðja deild og sýnir litil til-
þrif. Heimasigur.
Leicester-lpswich.
Nú situr Leicester á botninum, hefur aðeins unnið einn leik i
vetur. Liðið er lélegt og virðist ekki eiga sér uppreisnar von i vet-
ur. Útisigur.
Manchester City-Leeds.
City hefur verið i nokkrum öldudal undanfarið og hefur dottið
úr 1. sæti niður i 6. — 9. sæti á fáum vikum. Ef liðið, sem flestir
spáðu sigri i deildakeppninni i ár fer ekki fljótlega að stiga öld-
una, fer að verða óhætt að afskrifa það i toppbaráttunni. Við spá-
um heimasigri en til vara jafntefli, þvi Leeds er ekki auðsigrað
lið. (Annar tvöfaldi leikurinn).
Norwich-Chelsea.
Chelsea vann sætan sigur á Forest á laugardaginn og liðið er á
uppleið. Norwich er sterkt lið og hefur enn engum leik tapað á
heimavelli, unnið 5 og gert tvö jafntefli. Við spáum heimasigri en
jafntefli til vara. (Þriðji tvöfaldi leikurinn).
Notthingham Forest-Manchester United.
Við spáum þvi, að Forest tapi ekki stigum tvo leiki i röð og
vinni þvi slakt United liðið.
West Ham-WBA.
WBA-liðið er frábært um þessar mundir og það verður tæpast i
erfiðleikum með að sigra West Ham, en West Ham er eina liðið i
fyrstu deild sem enn hefur ekki unnið leik á heimavelli.
Wolves-Newcastie.
Newcastle-liðið er aðeins farið að rumska og hefur nú jafn-
mörg stig og Leicester, en liðin liggja hlið viö hliö á botninum.
Eftirtekja Newcastle á útivelli hefur aöeins veriö eitt stig og viö
spáum, að ekki bætist i það safn i þessum leik.
Crystal Palace-Tottenham.
I liði Tottenham eru miklir markaskorarar, liðið hefur skorað
33 mörk i vetur eða 9 mörkum fleira en þaö liö sem næst kemur.
Útisigur.
Southampton-Blackpool.
Þetta er jafnteflislegur leikur. Southampton hefur enn ekki
tapað leik á heimavelli, unnið alla utan tvo. En Blackpool er i
toppbaráttunni og má ekki missa mörg stig. Jafntefli en heima-
sigur til vara. (Fjórði og siðast tvöfaldi leikurinn)
— ATA
Leikir 12. nóv. 1977.
Arsenal-Coventry ...
Aston V.-Middlesbro
Bristol City-Derby ..
Everton-Birmingh. ..
Leicester-Ipswich ...
Manch. City-Leeds ..
Norwich-Chelsea ....
Nott’m F.-Man. Utd.
West llam-VV.B.A. ...
Wolves-Newcastle ...
C. Palace-Tottenham
Southampton-BIackp.
X