Alþýðublaðið - 23.12.1977, Síða 9
S&T Föstudagur 23. desember 1977
JÓLABLAÐ 9
myndir & texti:
Atli Rúnar
Halldórsson
Krakkarnir á Geðdeild
Barnaspítala Hringsins
við Dalbraut héldu
mikinn jólafagnað á
þriðjudaginn og var þar
margt manna: starfs-
fólk, foreldrar, systkini,
ættingjar og fleiri.
Undanfarna daga og vik-
ur hafði staðið yf ir undir-
búningur fyrir fagnað-
inn, æfð jólalög og leikir,
húsið þvegið og pússað i
hólf og gólf og skreytt.
Spenningurinn var orðinn
mikill loks þegar 20.
desember rann upp.
Dagskráin hófst með
því að fluttur var helgi-
leikur, sem æfður hefur
verið stíft á Dalbrautinni
undanfarið. Lesið var úr
jólaguðsp jallinu og
atburðir þar leiknir.
Fjöldi barna og starfs-
manna tók þátt í f lutning-
um, sem þótti takast með
miklum ágætum. Hafði
greinilega verið lögð
mikil vinna í allan undir-
búning, t.d. búningasaum
á vitringa, hirðingja,
engla og Ágústus keisara.
Síðan var f arið í nokkra
leiki. Menn kepptust um
að sprengja blöðrur og
vefja niður af
pappírsrúl I um, en
hápunkturinn var sá er
tveir krakkar fengu það
verkefni að vefja Sverri
Bjarnason deildarlækni á
Dalbrautog einn pabbann
úr salnúm inn í salernis-
pappír! Gengu báðir svo
rösklega til verks, að þeir
Sverrirog pabbinn líktust
helzt egypskum múmíum
þegar upp var staðið!
Þá var dansað af mikl-
um móð í kring um jóla-
tréð við harmóníkku-
undirleik, en í miðju kafi
gerðist það að guðað var
hressilega á glugga. Voru
þar komnir tveir fúl-
skeggjaðir og góðlegir
jólasveinar með úttroðna
poka á bakinu. Kvaðst
annar heita Kertasníkir,
en blaðamaður náði ekki
nafni hins. Af limaburð-
um og vaxtarlagi gæti
hann þó hafa heitið
Gáttaþefur. Kertasníkir
sagði til skýringar nafni
sínu að hann væri hið
mesta sníkjudýr og kæmi
það sér vel nú, þar sem
hann og hinir jólasvein-
arnir stæðu í því að safna
í byggingars jóð fyrir
jólasveinablokk í Breið-
holtinu! Fengu allir
gotteríspoka frá körlun-
um, auk þess sem hann
Gunnar litli Valur fékk
bíl í afmælisgjöf (hann
átti afmæli þennan dag)
og allir sungu af raust:
,,Hann á afmæli hann
Gunnar, hann á afmæli í
dag!"
Að lokum fengu allir
dýrindis veitingar í
eldhúsinu: rjómaís, flat-
kökur, smákökur og
fleira, og voru þeim gerð
góðskil. Krakkarnir léku
sér á göngunum og var
ekki annað að sjá en að
þeim líkaði lífið alveg
bærilega! Var það sam-
dóma álit manna, að jóla-
fagnaðurinn á Dalbraut-
inni haf i tekist með glæsi-
brag og sjaldan hefur
undirritaður skemmt sér
betur á balli!
Pabbinn orbinn múmia!
Jólasveinarnir voru skeggjaöir mjög og hárpriiöir, rétt eins og jólasveinar eiga aó vera.
Sverrir læknir breytist i miimlu.
Atriði Ur helgileiknum: Agóstus keisari lætur fara vel um sig i hásætinu, en englarnir láta sér nægja að
sitja á hörðu gólfinu.
Blöðrublásturskeppni.
i