Alþýðublaðið - 17.01.1978, Síða 6

Alþýðublaðið - 17.01.1978, Síða 6
Bæjarráð Sigluf jarðar Mótmælir sölu Siglósfldar og bræðsluskipinu Norglobal Mánudaginn 2. janúar kom bæjarráð Sigluf jarð- ar saman til fundar á skrifstofu bæjarstjóra. Á fundi þessum voru born- ar fram tvær mótmæla- tillögur, önnur gegn hug- myndum um sölu Lag- metisiðjunnar Siglósíld, en hin um bræðsluskipið Norglobal. Er hér rakið efni tillagnanna beggja: 1. Mótmæli gegn sölu rikisfyrirtækja á Siglu- firði. Bogi Sigurbjörnsson og Sigur- jón Sæmundsson leggja eftirfar- andi tillögu fram: „Aö gefnu tilefni vegna fram- kominnar tillögu nefndar um sölu rfkisins á Lagmetisiöjunni Siglö-sfld, og hugmynd um sölu á hlutabréfaeign rikisins I Þor- móöi ramma h.f. á Siglufiröi, samþykkir bæjarráö Siglufjarö- ar eftirfarandi: Bæjarráö Siglufjaröar itrekar eindregiö fyrri ályktanir sinar um mikilvægi þeirra fyrirtækja sem rfkiö er eignaraöili aö, fyrir allt atvinnulif staöarins og minnir á þær atvinnulegu for- sendur, sem lágu til grundvallar viö stofnun þeirra. Þrátt fyrir hina formlegu eignaraöild ríkisins, er stjórnun þessara fyrirtækja i höndum heimamanna og hefur rekstur þeirra gengiö vel undanfarin ár. M.a. vegna starfrækslu þessara fyrirtækja hefur atvinnulif á Siglufiröi gjörbreytzt til hins betra á undanförnum árum, og veröur nú ekki annaö séö en aö þar veröi áframhald á i framtiö- inni. Bæjarráö Siglufjaröar mótmælir þvi harölega öllum þeim hugmyndum sem geta stefnt i hættu þvi atvinnuöryggi sem loks eftir haröa áratuga baráttu hefur tekist aö skapa á Siglufiröi. Sala þessara fyrirtækja nú gæti leitt til öryggisleysis i at- vinnumálum bæjarins og þann- ig valdiö ófyrirsjáanlegum erfiöleikum í atvinnumálum bæjarins á nýjan leik. Ef fyrirtækin yröu seld er hugsanlegt aö þau lentu f hönd- um fjáraflamanna, sem heföu aörar hugmyndir um hlutverk þeirra i siglfirsku atvinnulffi en Siglfiröingar almennt telja æskilegt. Afskifti atvinnurekenda, bú- settra utanbæjar, á liönum ára- tugum, ætti aö vera hér nægi- legt viti til varnaöar. Bæjarráö Siglufjaröar mót- mælir þvi eindregiö framkomn- um hugmyndum um sölu þess- ara fyrirtækja og skorar á Al- þingi og rikisstjóm aö leggjast gegn hugmyndum nefndarinnar i þessu efni.” Tillagan var siöan borin undir atkvæöi, aö undanskilinni siö- ustu málsgreininni, sem hefst á oröunum: Bæjarráö Siglufjarö- ar mótmælir eindregiö.... Samþ. meö þrem atkv. Björn Jónasson leggur til aö siöasta málsgreinin veröi svo- hljóöandi: Bæjarráö Siglufjaröar sam- þykkir aö visa framkominni hugmynd um sölu hlutabréfa- eignar rikisins i Þormóöi ramma h.f. og tillögu um sölu Lagmetisiöjunnar Sigló-slld til stjórnafélaganna og óskar eftir umsögn meö rökstuöningi. Tillagan er felld meö tveim atkvæöum gegn einu. Þá var sföasta málsgreinin borin undir atkvæöi óbreytt og samþykkt þannig meö tveim atkvæöum gegn einu. 2. Mótmæli við leigu Norglobal. Bogi Sigurbjörnsson og Sigur- jón Sæmundsson leggja eftirfar- andi tillögu fram: „Vegna þeirrar heimildar, sem rikisstjórnin hefur veitt til leigu og starfrækslu á bræöslu- skipinu „Norglobal” á komandi loönuvertiö innan Islenskrar landhelgi vill bæjarráö Siglu- fjaröar taka fram eftirfarandi: 1. Loönubræösla er vaxandi, og er oröin afgerandi þáttur I at- vinnulifi meira en 20 sveitar- félaga um land allt. Ariö 1977 var allur loönuafli lands- manna unninn I verksmiöjum I landi, samtals rúmlega 800 þús. tonn, aö útflutningsverö- mæti um 15 milljaröar króna, og gekk sú vinnsla vel, þó ekki hafi veriö um erlendar verk- smiöjur aö ræöa. Bæjarráö Siglufjaröar telur þjóöhagslega rétt aö allur loönuafli landsmanna veröi áfram unninn I islenskum verksmiöjum og af islensku verkafólki, og aö aflageta loönuveiöiflotans veröi frekar tryggö meö flutningi aflans þegar þess er þörf frá miöun- um til þeirra verksmiöja, sem til eru á landinu, en meö leigu á erlendum verksmiöjum. 2. Bæjarráö Siglufjaröar vill vekja athygli á þvi, aö ekki veröur annaö séö en hráefnis- nýting bræösluskipsins „Nor- global” sé óvenju léleg og jafnvel óeölileg, og af þeirri ástæöu sé þaö þjóöhagslega nauösynlegt aö loönuaflinn veröi allur unninn i landi, þar sem hráefnisnýting hefur orö- iö mun betri. Á vetrarvertlöinni 1976 var lýsisnýting hráefnisins hjá Framhald á bls. 14. Nýr deildar- stjóri í fjár- málaráðuneytinu Gunnlaugur M. Sigmunds- son hefur verið settur deildarstjóri í fjármála- ráðuneytinu frá 1. janúar 1978 að telja. Gunnlaugur mun veita gjalda- deild ráöuneytisins forstööu en aöalviöfangsefni þeirrar deildar er gerö greiösluáætlana gjalda rikissjóös og aö fylgja þeim áætl- unum eftir. Þá sér deildin um samantekt á tillögum ráöuneytis- ins um fjárveitingar til stofnana þess sem og aöalskrifstofunnar. Gunnlaugur M. Sigmundsson er Gunnlaugur M. Sigmundsson. fæddur 30. júní 1948 og hefur hann veriö fulltrúi I fjármálaráöuneyt- inu frá 1. júnl 1974. Þriðjudagur 17. janúar 1978 tSSSSó Blessað barnalán á sviðinu á nýjan leik Miðnætursýningar Leik- félags Reykjavikur á þeim vinsæla ærslaleik Kjartans Ragnarssonar, Blessuðu barnaláni, hef jast nú aftur í Austurbæjarbíói, en leik- urinn gekk fyrir fullu húsi í allt haust og munu nú um 20 þúsund manns hafa séð hann. Sýningar verða framvegis um miðnættið á laugardögum. Meö hlutverkin i leiknum fara Margrét Olafsdóttir, Guörún As- mundsdóttir, Siguröur Karlsson, Soffla Jakobsdóttir, Valgeröur Dan, Ásdls Skúladóttir, Steindór Hjörleifsson, Sólveig Hauksdótt- ir, GIsli Halldórsson, Guömundur Pálsson, Sigriöur Hagalin og Gestur Gislason. Brezk Ijóðskáld á Kjarvalsstöðum Hér á landi eru staddir tveir góðir gestir, Ijóð- skáldin Peter Mortimer og Heith Armstrong frá Norð- ur Englandi, en þeir voru hér á ferð fyrir tæpum tveimur árum og lásu þá upp að Kjarvalsstöðum og annars staðar við góðar undirtektir og vöktu Þorskastríðssöngvar þeirra sérstaka athygli, en þar fóru þeir hraksmánar- legum orðum um yfirgang landa sinna. Báðir eru þeir ötulir rithöfundar og hafa flutt verk sin víða um Bretland, svo og í Svíþjóð og Vestur-Þýskalandi. Rit- stýra þeir tveimur bók- menntaritum, „Iron" og „Strong Words", hafa gef- ið út margar bækur með Ijóðum, prósa og vinnur Mortimer nú að þvt að gera eina lengstu skáldsögu sem skrifuð hefur verið. Á hún að heita „The Entire Life of James Jerame Jr." og inniheldur u.þ.b. 400 per- sónur og verður hún um 400.000 orð á lengd full- gerð. Þeir Mortimer og Arm- strong hafa ekki látið aðr- ar listgreinar í friði að heldur. Mortimer skrifar reglulega um kvikmyndir fyrir blað þar í héraði og Armstrong er höfundur að leikriti sem flutt var á jöðrum Edinburgh hátíð- arinnar, skrifar fyrir út- varp og vinnur nú að gerð söngtexta. Jólafundur SINE, Sam- bands íslenskra náms- manna erlendis var hald- inn 2. janúar síðastliðinn. Þar var fjallað um starf SINE á vormisseri, og enn- fremur samþykkt einróma eftirfarandi stuðningsyfir- lýsing: „Jólafundur SINE haldinn 2. jan. 1978 lýsir yfir fyllsta stuön- ingi slnum viö baráttu starfs- manna Landssmiöjunnar gegn fyrirhuguöum aögeröum rikis- Munu þeir lesa upp í fundarsal Kjarvalsstaða miðvikudaginn 18. janúar kl. 20.30. Hugsanlegt er að íslensk Ijóðskáld taki þátt í gamninu með þeim. Síðar í vikunni munu þeir væntan- lega lesa í menntaskdlum, t.a.m. í Menntaskóla Reykjavíkur föstudaginn 20. janúar á sama tíma. valdsins sem miöa aö þvl aö hætta rekstri Landssmiöjunnar, og kippa þar meö grundvellinum undan lifsafkomu 80—100 laun- þega, meö um 200 manns á fram- færi sínu”. Skrifstofa SÍNE er I félags- stofnun Stúdenta viö Hringbraut og er opin milli 10 og 12 fyrir há- degi. Hún veitir m.a. upplýsingar um nám erlendis, innritunarfresti o.fl. Þeim sem hyggja á nám er- lendis n.k. vetur er bent á aö inn- ritunarfrestur viö erlenda skóla rennur viöa út snemma vors eöa enn fyrr, og þvi ekki seinna vænna aö huga aö þvl nú. SINE lýsir stuðningi við Landsmiðjumenn

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.