Alþýðublaðið - 04.04.1978, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 04.04.1978, Blaðsíða 1
Verkalýdsfélagið á Seyðisfirði auglýsir útflutningsbann, þann 7. n.k. Geysilegt magn af fiski og loðnuafurðum bfður lestunar Endurskoðum ákvörðun okkar, ef ASÍ tekur af skarið um aðgerðir, segir formaður félagsins Með þessari aðgerð hyggjumst við þrýsta á önnur félög og samtökin i heild.til þess að ákveða sem fyrst að láta til skarar skriða um ein- hver jar aðgerðir, þótt ég annars eigi von á að ákvarðana frá þeim sé Verka- manna- samband- ið þingar um af- greiðslu- bann Stjórn Verkamannasam- bands Islands hélt fund í gær til aö ræöa væntanleg- ar aðgerir i tengslum við afgreiöslubann á útflutn- ingsafurðir. Að líkindum verður félögum í sam- bandinu sent erindi um efnið og má ætla að að- gerðir hef jist á timabilinu 10. til 14. þessa mánaðar. skammt að biða,” sagði Hafsteinn Friðþjófsson, formaður verkalýðs- félagsins á Seyðisfirði i viðtali við Alþýðublaðið i gær. Verkalýðsfélagið á Seyðisfirði ákvað að boða til útflutnings- bannsins nú um helgina og sagði Hafsteinn að ákvörðunin hefði verið tekin á trúnaðarráðsfundi, eftir að félagsfundur hafði heimilað stjórn að gripa til þessarar aðgerðar. Ekki sagði Hafsteinn að þetta hefði veriðað neinu leytiákveðið i sarnráði við önnur verkalýðsfélög eystra heldur eingöngu þar á Seyðisfirði. 1 Verkalýðsfélaginu eru nú um 250 manns en sjálf framkvæmdin mun ekki leiða til atvinnutaps nema 10-15 manna. Miklar birgðir loðnu- mjöls og lýsis. Ctflutningsbannið mun einkum snerta fisk i frystigeymslum frystihússins sem eru sneisafull- ar svo og útflutning á loðnumjöli og lýsi, enóhemjumagn af þvi biður lestunar á Seyðisfirði. Blaðamaður spurði Hafsteinn hvort sérstök ályktun hefði verið gerð i félaginu i tilefni af þessari ákvörðun en svo sagði Hafsteinn ekki vera. Hins vegar mætti eiga von á að stjórn verkalýðsfélags- ins endurskoðaði afstöðu sina um þessar aðgerðir ef ákvarðanir yrðu auglýstar af hálfu alls- her jarsamtakanna innan skamms eða áður en útflutnings- bannið hefst, þann 7. nk. AM Dýrast fólksbill á Islandi Þetta eru bilarnir hans Kjartans Sveinssonar. Sá til vinstri heitir Lincoln Continental Mark V. Jubilee og er sérstök og dálitið dýr hátíðarútgáfa af Lin- coln. Bíll þessi kom til landsins í gær og mun dýrasti og fínasti bíll á landi hér. Sá til hægri er gamli bíll- inn hans Kjartans og mun verða seldur. Á baksiðu er fréttakorn um Lincolninn. AB-mynd GEK Fjármálaráöuneytió sækir í sig veörió:_ Fjöldi uppsagna hjá Orku- stofnun fyllir þriðja tuginn Sl. föstudag sagði Alþýðublaðið frá fyrir- ætlun Fjármálaráðuneyt- isins um að skera niður mannafla hjá Orkustofn- un, án samráðs við stofn- unina og reyndar í trássi við Iðnaðarráðuneyti. Blaðið hefur nú komist að þvi að enn fleiri eru á uppsagnarlista hjá ráðu- neytinu og að kurr mikill riki nú hjá starfsfólki Orkustofnunar af þessum sökum. Blaðiö náði tali af Arna Hjaltasyni einum þeirra manna sem eru á lista yfir þá, sem ekki fengu laun sin greidd i lok febrúar, en mánuði áður hafði orðiö dráttur á launagreiðslum til nokkurra manna, sem var leiðréttur skömmu siðar og bor- ið við að um mistök hefði verið að ræða. Þegar kom að launa- greiðslu i lok febrúar, komu enn engin launin, en þess i stað bréf með nöfnum 18 manna, þar á meðal Arna, sem Fjármála- ráðuneytið ekki vildi fallast á að greiða laun lengur. Hafði ráðn- ingarsamningur þessa fólks, sem var til eins árs og rann út hinn fyrsta febrúar, þá verið endurnýjaður á vanalegan hátt, til eins árs i viðbót. Fjölgar á uppsagnarlist- anum. Arni sagði að enn heföi borizt i viðbót við listann með nöfnum hinna 18, listi yfir 12 manns i viðbót, sem Fjármálaráðuneyt- ið vildi ekki fallast á að væri ráðnir lengur og fjöldi þeirra, sem þannig eiga ekkart at- vinnuöryggi á Orkustofnun orð- inn 30. Þessir 12 eru fólk, sem launaö er af Orkustofnuninni sjálfri og þvi ekki á launalista hjá Fjármálaráðuneyti, en ráðuneytið krafðist uppsagnar þeirra eigi að siöur. Þessir 12 fengu að vanda laun sin greidd af Orkustofnun, en þeir 18, sem ekki fengu laun sin, fengu greidd 70% launa sinna fyrir aö- stoð Orkustofnunar og afgang, 30%, skömmu fyrir páskana. Margt af þessu fólki tekur laun sin i lok hvers mánaðar, en ekki fyrirfram og var þvi tilfinnan- lega á þeim einstaklingum brot- ið, með þessari aðferð. Hagsmunasamtök stofn- uð Sem nærri má geta er mikill kurr i starfsmönnum vegna þessa máls, enda er að sjá að ekki sé miklu atvinnuöryggi fyrir að fara á þessum stað, hjá þeim hluta starfsliðsins, sem ekki hefur fasta ráðningu, en meðal þess hóps eru flestir yngri sérfræðingar, sem varla gætu beitt starfskunnáttu sinni eða fengið starf þar sem hún nyti sin á öðrum stað i bráð. Hafa þvi verið stofnuö nokk- urs konar hagsmunasamtök innan stofnunarinnar, og munu allflestir starfsmanna eiga þar hlut að máli. AM

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.