Alþýðublaðið - 04.04.1978, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 04.04.1978, Blaðsíða 2
2 Þriðjudagur 4. apríl '(978. Eftir hádegi á laugardag flutti dr. Arnór Hannibalsson athyglisvert erindi um Kennaraháskólann, menntun kennara almennt og frum- varpið um Kennaraháskólann, sem nú liggur fyrir Alþingi. A þess- ari mynd er Helga Einarsdóttir kennari að bjóða ráðstefnugesti vel- komna aö loknu matarhléi á laugardag. Um síðustu helgi var haldiri/ á vegum Fræðslu- nefndar Alþýðuflokksfél- ags Reykjavikur/ ráö- stefna um skólamál. Þátt- takendur voru um eitt- hundrað talsíns, allt kenn- arar, skólastjórar og aðrir einstaklingar sem starfa innan f ræðslukerf isins. Meðal þeirra, sem heim- sóttu ráðstefnuna og tóku þátt í umræðunum voru: Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra, Helgi Elíasson fræðslu- málastjóri og Baldur Jóns- son rektor Kennaraháskóla íslands. Einnig sóttu ráð- stefnuna þrír starfsmenn menntamálaráðuneytisins/ deildarstjori og fulltrúar. A föstudagskvöld flutti Guðmundur Magnússon fræðslu- stjóri erindi, sem hann nefndi „Fræðsluskrifstofur og hlutverk þeirra — nokkur aðkallandi við- fangsefni”. Skólamálarádstefn an tókst vel — Flokkspólitísku þrasi vísað á bug A laugardag voru flutt þrjú er- indi: Guðrún Helga Sederholm tók fyrir efnið „Grunnskólinn — framkvæmd og markmið”, dr. Arnór Hannibalsson talaði um „Frumvarp til laga um Kennara- háskóla tslands”, og dr. Gylfi Þ. Gislason ræddi um „Stefnu Jafn- aðarmanna i Menningarmálum”. A sunnudag voru tekin fyrir eft- irfarandi efni: „Lánamál náms- manna”, „Frumvarp til laga um framhaldsskóla”, og „Fjölbrautaskólinn, uppbygging hans og framtið”. Ræðumenn voru: Tryggvi Jónsson, dr. Bragi Jósepsson, Þorkell Steinar Ellertsson og Ingvar Asmunds- son. Að framsöguræðum loknum voru almennar umræður og var þátttaka i þeim mjög mikil og stóðu fundir báða dagana, laug- ardag og sunnudag allt fram á kvöldmat. Akveðið hefur verið að gefa út erindin, sem flutt voru á ráðstefn- unni. Þá hafa einnig verið settir á laggirnar vinnuhópar til þess að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið. I þessum vinnuhópum munu starfa 7-10 kennarar i hverjum hóp, og hafa ýmsir sem ekki gátu komið þvi við að mæta á ráðstefnunni óskað eftir að fá að taka þátt i þessum störfum. Það hefur ekki farið framhjá neinum að þessi ráðstefna hefur vakið mikla athygli og ekki sizt fyrir þá sök, að öllu flokkspóli- tizku þrasi var visað á bug og áherzla lögð á hin raunverulegu og efnislegu vandamál islenzkra skólamála. Ráðstefnugestir voru sammála um, að nauðsynlegt væri að kenn- arar legðu sig meira fram en ver- ið hefur við það að hafa áhrif á stefnumótun hinna ýmsu þátta skólamála. Þessi ráðstefna verð- ur þvi að teljast stórt framlag til þess að örva kennarastéttina til athafna. Menntamálarábherra sótti ráð- stefnuna bæði á föstudagskvöld og eftir hádegi á iaugardag. Með honum á myndinni eru dr. Gylfi Þ. Gislason og Hörður Zóphanias- son skólastjóri, en hann var formaður framkvæmdanefndar ráðstefnunnar. Auk hans voru i framkvæmdanefnd þær Heiga Einarsdóttir og Guðrún H. Jóns- dóttir kennarar. ALMENNIR BORGARAFUNDIR Ungt fólk með A-lista efnir til almennra borgarafunda viðsvegar um Reykjavik á næstunni. AUSTURBÆR, FJÆR MIÐBÆ miðvikudaginn 5. april kl. 20.30 i kaffiteriunni Glæsibæ. Framsögumenn: Finnur Torfi Stefánsson, Vilmundur Gylfason. Fundarstjóri: Marias Sveinsson. AUSTURBÆR, NÆR MIÐBÆ fimmtudaginn 6. april kl. 20.30 i Domus Medica. Framsögumenn: Eiður Guðnason, Jóhanna Sigurðardóttir. Fundarstjóri: Rúnar Björgvinsson. VESTURBÆR OG MIÐBÆR miðvikudaginn 12. april kl. 20.30 i Félagsstofnun stúdenta við Hringbraut. Framsögumenn: Helgi Skúli Kjartansson, Vilmundur Gylfason. Fundarstjóri: Bjarni P. Magnússon. ÁRBÆJARHVERFI fimmtudaginn 13. april kl. 20.30 i húsnæði Rafveitunnar við Elliðarár. Framsögumenn: Jón H. Karlsson, Vilmundur Gylfason. Fundarstjóri: Jón Einar Guðjónsson. BREIÐIIOLTSHVERFI mánudaginn 17. april kl. 20.30 i húsnæði Kjöts og fisks að Seljabraut 54. Framsögumenn: Árni, Gunnarsson, Jóhanna Sigurðardóttir. Fundarstjóri: Bogi Þór Siguroddsson. Framsögumenn flytja stuttar framsöguræður, og siðan gefst fundar- mönnum kostur á að bera fram fyrirspurnir eða stuttar athugasemdir. Fundirnir eru opnir fyrir alla. Alþýðuflokkurinn vill ræða mál sin og sam- félagsins sem viðast og við sem flesta hæfi. UNGT FÓLK MEÐ A-LISTA

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.