Alþýðublaðið - 30.05.1978, Blaðsíða 5
5
Þriðjudagur 30. maí 1978
Meirihluti stjórnarflokkanna í Kópavogi kolféll:
Krafa kjósenda að myndaður verði nýr
meirihluti
Þá er tíðindamaður Al-
þýðublaðsins hafði sam-
band við Guðmund Odds-
son, efsta >■ mann á lista
Alþýðuf lokksins í Kópa-
vogi og spurði hann álits á
kosningaúrsiitum þar f
bæ, tjáði hann sig mjög
ánægðan. Er það og
reyndar engin furða þar
eð flokkurinn bætti þar
við sig hvorki meira né
minna en rúmlega 100%
atkvæða. Við siðustu
sveitarstjórnarkosningar
hlaut flokkurinn 446 at-
kvæði og 2 menn kjörna.
Auk Guðmundar á nú sæti
í bæjarstjórn Kópavogs
fyrir hönd Alþýðuflokks-
ins Rannveig Guðmunds-
dóttir.
Listi Framsóknarflokksins
hlaut nú 1187 atkvæöi en hafði
áður 1403. Aö visu bauð hann
fram ásamt Samtökum frjáls-
lyndra og vinstri manna i sið-
ustu sveitarstjórnarkosningum,
1974. bvi miður mun atkvæða-
fjöldi þessi nægja framsóknar-
mönnum til þess að halda inni i
bæjarstjórn þeim tveimur full-
trúum er þeir hlutu áður. Listi
Sjálfstæðisflokksins, D-listi,
beið mikið afhroð i kosningum
þessum og hlaut nú einungis 975
atkvæði i stað 1955 áður. Hafa
þeir nú 2 fulltrúa i bæjarstjórn i
stað fjögurra áður. Að visu má
segja að sjálfstæðismenn hafi
gengið þriklofnir til kosninga i
Kópavogi i ár: þ.e. K-listi borg-
ara, er hlaut 800 atkvæði og einn
mann kjörinn og S-listi sjálf-
stæðisfólks er hlaut 711 atkvæði
og einn mann kjörinn auk D-
lista. G-listi Alþýðubandalags-
ins fékk i sinn hlut 1700 atkvæði,
en hafði áður 1475 og 3 menn
sem siðast.
Það var álit Guðmundar
Oddssonar að i kosningunum
hefðu kjósendur áréttað kröfu
sina um nýjan meirihluta i
bæjarstjórn Kópavogs. „Það
væru svik við kjósendur væri
ekki myndaöur nýr meirihluti i
bæjarstjórn, meirihluti annarra
en þeirra er hann mynduðu
siðastliðið kjörtimabil”, var álit
hans. Guðmundur sagði það
vera sina skoðun að það er orðið
hefði meirihlutanum að falli,
væri sú óstjórn er verið hefði á
málefnum Kópavogskaupstaðar
i stjórnartið hans.
Að lokum kvðast Guðmundur
vera i sjöunda himni i tilefni
þess sigurs er Alþýðuflokkurinn
hefði unnið i sveitarstjórnar-
kosningunum á sunnudaginn.
Mjög ánægðir Alþýðuflokksmenn í Hafnarfirði:
„Alþýðuflokkur-
inn næststærsti
flokkurinn í
Reykjanes-
kjördæmi”
Að sögn Harðar
Zópaníassonar eru þeir al-
þýðuflokksmenn í Hafnar-
firði mjög ánægðir með úr-
slit sveitarstjórnarkosn-
inganna þar í bæ. Reyndar
á þetta við um úrslít kosn-
inganna i Reykjaneskjör-
dæmi i heild, þar sem Al-
þýðuf lokkurinn hefur unn-
ið mjög á og er hann nú
næststærsti flokkurinn í
því kjördæmi. I Hafnar-
firði bætti flokkurinn við
sig hvorki meira né minna
en 366 atkvæðum.
Hann hefur nú 1274 en hafði áð-
ur 908 atkvæði þar i bæ. Þótt full-
trúatala flokksins hafi ekki aukist
i bæjarstjórn munaði þó sáralitlu
að fulltrúarnir yrðu þrir i stað
tveggja. Stóð „baráttan” milli 2.
manns Alþýðubandalagsins og 3.
manns Alþýðuflokksins. Þrátt
fyrir að Alþýðuflokkurinn bætti
við sig flokka mest reyndist þó
aukning Alþýðubandalagsins
þeim best hlutfallslega.
Sjálfstæðisflokkurinn tapaði
einum manni i Hafnarfirði, hafði
hann áður haft 5 en hefur nú ein-
ungis 4. Það var Alþýðubandalag-
iö sem jók fylgi sitt sem fyrr segir
og krækti i 5. manninn frá sjálf-
stæðismönnum. Framsóknar-
flokkurinn tapaði nokkru fylgi
sem og vfðast hvar annars staðar.
Óháðir, eða H-listinn i Hafnar-
firði, juku fylgi sitt dálitið þ.e. að
atkvæðamagni.
Að áliti Harðar, er nú situr i
bæjarstjórn Hafnarfjarðar f.h.
Alþýðuflokksins ásamt Jóni
Bergssyni, er ekki óliklegt að
nokkrar breytingar kunni að eiga
sér stað hvað varðar meirihluta-
stöðuna þar i bæ. S.l. kjörtimabil
mynduðu óháðir og sjálfstæðis-
menn meirihluta i bæjarstjórn.
Hörður sagði landsmálin tvi-
mælalaust hafa átt sinn þátt i
hvernig atkvæði féllu i Hafnar-
firði. Hann sagði að svo virtist
sem Alþýðuflokkurinn væri nú i
mikilli sókn um allt land, og sem
fyrr getur, ekki sist i Reykjanes-
kjördæmi.
Hörður sagði að lokum að þeir
alþýðuflokksmenn i Hafnarfirði
myndu reyna að hafa sem mest
þau áhrif á stjórn bæjarmála i
Hafnarfirði er þeir gætu. Hvort
sem þeir yrðu i meiri- eða minni-
hlutaaðstöðu i bæjarstjórn og
myndu þá málefni ráða.
„Skoðanakannanir” síddegisblaðanna:
Gáfu vísbendingu
tíska strauma
—gerðu ráð fyrir lakari hlut Alþýðubandalags
„Kosningaspár" síð-
degisblaðanna Vísis og
Dagblaðsins, sem birtar
voru 22. maí, vöktu tals-
verða athygli, þrátt fyrir
að skiptar skoðanir væru
um það hve viðtækar
ályktanir mætti af þeim
draga. Enda þótt mikið
vantaði upp á að vísinda-
lega væri unnið að könn-
ununum, einfaldlega
vegna þess að þær voru
fyrst og fremst hugsaðar
sem skemmtilegur leikur
blaðanna og lesendanna,
má þó greinilega sjá að
kannanirnar gáfu vis-
bendingu um viss atriði i
úrslitum borgarstjórnar-
kosninganna. Báðar
kannanirnar leiddu í Ijós
fylgisaukningu Alþýðu-
flokksins.
Visir gerði ráð fyrir að
Alþýðubandalagið tapaði fylgi.
Dagblaðið hins vegar gerði ráð
fyrir að Alþýðubandalagið bætti
við sig og fengi fjóra kjörna.
Bæði blöðin spáðu fylgishruni
«'*ííÍ8í
hjá Framsókn, Dagblaðið spáði
flokknum einum fulltrúa i borg-
arstjórn en Visir engum! Varð-
andi Sjálfstæðisflokkinn, þá
spáðu bæði blöðin að meirihlut-
inn myndi haldast, DB spáði
ihaldinu 8 mönnum, en Visir var
ekkert að skera skammtinn við
nögl og lét ihaldið hafa 11 menn!
í báðum blöðunum var
athyglisvert hve stór hópur
fólks var óákveðinn og einnig
hve margir neituðu að svara
spurningum um pólitiska
afstöðu. 11.4% neituðu að svara
Visi, en 9% DB, óvissir voru
12.4% hjá Visi en 21% hjá DB.
Hópur „óvissra kjósenda” er
þarna óeölilega hár og er skýr-
ingin m.a. sú, að við könnun
beggja blaða var notuð sú að-
ferð að hringja i kjósendur sem
um póli
lentu i úrtaki. Erlendar stofnan-
ir sem annast skoðanakannanir
um stjórnmálaskoðanir nota yf-
irleitt heimsóknir til fólks þar
sem talið er að betra sé að fá
fólk til að svara af eða á með
beinu sambandi. Gallup-stofn-
unin notar t.d. ætið heimsóknir i
sinum frægu könnunum á póli-
tiskum straumum meðal fólks.
Meö þvi móti fást tryggari nið-
urstööur og hópur „óvissra
kjósenda” verður mun minni.
Annaö mikilvægt atriði er, að
fjöldi fólks sem lenti i úrtaki sið-
degisblaðanna er fjarri þvi að
teljast marktækur i skoðana-
könnun. Annað blaðið hringdi i
400 manns, hitt i 300 manns.
Samkvæmt upplýsingum AB,
myndi lágmarksúrtak kjósenda
i Reykjavik vera 2.500 manns.
En hvað um það, þetta var
bara leikur hjá siðdegisblöðun-
um, sem þau vöruðu við að taka
alvarlega. Vissulega gaf leikur-
inn visbendingar, Dagblaðiö
virðist þó hafa verið öllu get-
spakara i þetta sinn.
Hvort DB reynist eins get-
spakt um þingkosningaúrslitin i
Rvik skal ósagt látið, en það
spáir Sjálfstæðisflokknum 36%
og 5 þingmönnum, Alþýöu-
flokknum 28% og 3 mönnum,
Alþýðubandalagi 27% og 3
mönnum, Framsókn 8% og 1
manni, og Samtökunum 1% og
engum manni. Sem sagt: krat-
arnir eiga að hirða einn mann af
ihaldi og Framsókn og fá þrjá
kjördæmakjörna i Reykjavik.
Sameiginlegir framboðsfuidir
í Norðurlandskjördæmi eystra
Frambjóöendur stjórn-
málaflokkanna í Norður-
landsk jördæmi eystra
hafa ákveðið, að efna til
sameiginlegra framboðs-
funda fyrir alþingiskosn-
ingarnar 25. júní. Þetta er
nýmæli í kosningabaráttu
í kjördæminu, en slikir
sameiginlegir fundir
hafa ekki verið haldnir
síðan Norðurland eystra
varð eitt kjördæmi.
Ákveðnir hafa verið 12 fundir
á jafnmörgum stöðum. Funda-
höldin hefjast i Hrisey 1. júni og
lýkur á Akureyri i siðustu viku
fyrir kosningar.
Fundirnir verða sem hér seg-
ir:
1. júni: Hrisey.
2. júni: Þelamerkurskóla.
3. júni: Laugaborg.
7. júni: Húsavik.
8. júni: : Laugum.
9. júni: Grenivik.
10. júni: Ólafsfirði.
12. júni: Dalvik.
13. júni: Kópaskeri.
14. júni: Raufarhöfn.
15. júni: Þórshöfn.
Ekki hefur verið ákveðinn
fundardagur á Akureyri, en
hann verður i siðustu viku fyrir
kosningar.
Allir fundirnir verða nánar
auglýstir siðar á viökomandi
stöðum.
(Frá frambjóðendum >
Ritstjórn Alþýðu-
blaðsins er í
Síðumúla 11
Alþýðuflokkurinn baud nú fram einn sér á ísafirði:
TTVið erum mjög ánægðir með úrslitin”
Að sögn Kristjáns Jónasson-
ar, nýkjörins fulitrúa Alþýðu-
flokksins I bæjarstjórn ísa-
fjarðarkaupstaðar, er hann
mjög ánægður með úrslit
sveitarstjórnarkosninganna þar
i bæ. Auk hans á nú sæti i bæjar-
stjórn fyrir hönd Alþýðuflokks-
ins Jakob ólafsson.
Kristján sagöi að fyrir kosn-
ingar hefði verið talið aö Al-
þýðuflokkurinn myndi eiga i
erfiðleikum með að koma inn i
bæjarstjórn tveimur mönnum.
En reyndin hefði orðið sú að
sáralitlu hefði mátt muna að
flokkurinn kæmi inn þriðja
manni. Hann sagði óánægju
með rikisstjórnina hafa átt
mestan þátt i framgangi
stjórnarandstööuflokkanna á
Isafirði. En undanfarin ár hafa
þeir alþýöuflokksmenn haft
meirihlutasamstarf með sjálf-
stæðismönnum i bæjarstjórn.
Kristján sagði Alþýðuflokkinn
hafa tvimælalausa forystu á
Vestfjörðum og aöra „vinstri”-
menn ganga þriklofna til kosn-
inga þann 25. júni n.k. Þar væru
á ferðinni Alþýöubandalags-
menn, Samtök frjálslyndra og
vinstri manna auk fylgismanna
Karvels Pálmasonar. Hvað Al-
þýðuflokksmenn varðaði væru
þeir einhuga og myndu örugg-
lega fara fram á við i alþingis-
kosningunum.
Hvaö varöaði næsta bæjar-
stjórnarmeirihluta vildi Krist-
ján ekki tjá sig um að sinni.
Hann sagði það að visu nokkuö
mótast af þvi hvernig sjálf-
stæðismenn litu á málið þ.e.
hvort þeir skoðuðu kosningaúr-
slitin sem vantraustsyfirlýsingu
á fulltrúa sina i bæjarstjórn eða
eingöngu á rikisstjórnina. Hann
sagði alþýðuflokksmenn mundu
koma saman innan tiðar til um-
fjöllunar um væntanlegan
bæjarstjórnarmeirihluta.
UTANHÚSMÁLNING
Tilboð óskast i utanhúsmálningu fjölbýlis-
hússins Engjasel 70-72 Reykjavik.
Útboðsgagna má vitja á skrifstofu
B.S.A.B. Siðumúla 34.
Tilboð verða opnuð á sama stað mánudag-
inn 12. júni.
B.S.A.B.