Alþýðublaðið - 30.05.1978, Blaðsíða 9
9
SK2T
Þriðjudagur 30. maí 1978
Frekar barizt um menn en málefni
á Sauðárkróki
segir Jón Kaiisson efsti maður á A-lista
,/Við Alþýðuflokksmenn
vorum í erfiðri aðstöðu hér
á Sauðárkróki, þar eð við
fengum tvö framboð við
hliðina á okkur sem ekki
voru áður, það eru Sam-
tökin og Alþýðubandalagið
sem voru með sérf ramboð.
Þrátt fyrir þetta höldum
við okkar hlutfalli svo til
óskertu og erum með milli
13 og 14% greiddra at-
kvæða," sagði Jón Karls-
son efsti maður á lista Al-
þýðuflokksins á Sauðár-
króki. Það voru Alþýðu-
f lokksmenn og sameinaður
listi Framsóknar og Al-
þýðubandalags sem skip-
uðu meirihluta bæjar-
stjórnar á Sauðárkróki síð-
asta kjörtimabil.
„Um mynduin meirihluta er
erfitt að spá nú.ia, sagði J^n, en
Framsóknarrnenn og SanTtaka-
mann hafa þegar lýst yfir stuðn-
ingi við núverandi bæjarstjóra
sem aðrir flokkar hafa ekki tekið
afstöðu til. bvi hlýtur það að vera
þessara flokka að taka að sér að
hafa forystu um myndun meiri-
hluta.”
„Það gerði .okkur nokkuð
erfitt fyrir i kosningabaráttunni
núna að ég varð fyrir persónuleg-
um árásum af hálfu samstarfs-
flokksins i sambandi við sögu-
burð sem var verið að læða út um
mig, og fólk virðist vera gjarnt á
að trúa slikum vitleysum.
Um hvaða mál var helzt kosiö?
Sannleikurinn er sá að það var
ekki kosið um nein sérstök mál,
enda voru menn meira og minna
með sömu málin á oddinum.
betta voru frekar átök um menn
en málefni!
Spiluðu landsmálin inn i kosn-
ingarnar á Sauðárkróki? „Það er
náttúrulega augljóst að Sjálf-
stæðisflokkurinn biður mikið af-
hroð i kosningunum og liggja til
þess einkum tvær ástæður. Fyrst
og fremst eru það landsmálin og
einnig innanflokks átök. Þeir los-
uðu sig við forystumann sinn i
bæjarmálunum og það er enginn
vafi á að flokkurinn geldur þess.”
Hvað viltu segja um úrslitin á
landsmælikvaröa?
„tJrslitin á landsmælikvarða
eru ótviræður vitnisburður um að
það vantraust sem núverandi
rikisstjórn hefur meðal fólksins i
landinu. Að sama skapi eru úr-
slitin stuðningur við stjórnarand-
stöðuna. Það eru fyrst og fremst
efnahagsmálin og fálmið og ráða-
leysiö i sambandi við kjaramálin
sem ráöiö hafa úrslitum. Þetta er
greinileg visbending um það sem
verður i þingkosningunum.”
„Ekki óeðlilegt að Alþýðubandalagið
hafi forystu um myndun meirihluta”
— segir Jóhann Möller efsti maður á A-lista á Siglufirði
A Siglufirði var meiri-
hlutastjórn Alþýðuflokks,
Framsóknar, og Sjálf-
stæðisflokks síðasta kjör-
timabil. i kosningunum nú
vann Alþýðubandalag einn
mann á móti einum manni
sem Sjálfstæðisflokkurinn
tapaði. Fulltrúatala Fram-
sóknarflokks og Alþýðu-
f lokks í bæjarstjórn er hins
vegar óbreytt.
Jóhann Möller efsti maður á
lista Alþýðuflokksins á Siglufirði
hafði þetta að segja um úrslit
kosninganna þar i bæ: bað er
skemmst frá þvi aö segja að við
Alþýðuflokksmenn á Siglufirði
höfum ekki fengið þá aukningu I
kjörfylgi flokksins hér og flokkur-
inn virðist hafa fengið viðast ann-
ars staðar á landinu. Ef til vill má
rekja þetta að einhverju leyti til
þess að ekki hafi orðið jafn mikil
ynging á listanum hér og annars
staðar. Þrátt fyrir allt held ég að
við megum sæmilega vel við una.
Það virðist vera eins hér og ann-
ars staðar, að aðgerðir rikis-
stjórnarinnar hafi haft mikið að
segja i þessum kosningum ef litið
er til landsins i heild, en á Siglu-
firði hefur þetta fyrst og fremst
orðið Alþýðubandalaginu til
framdráttar.
Heldur þú að meirihlutinn á
Siglufiröi verði óbreyttur næsta
kjörtimabil? „Um það er ekkert
hægt að segja ákveðið á þessu
stigi málsins, en mér finnst per-
sónulega ekki óeðliiegt að Al-
þýðubandalagið sem orðinn er
stærsti flokkúrinn hér hafi forystu
um myndun meirihluta. Einn af
bæjarstjórrrarmönnum Alþýðu-
bandalagsins hefur lýst yfir
áhuga sinum á að mynda meiri-
hluta með Alþýðuflokknum, en
hvort sú verður raunin er ekkert
hægt að segja um enn sem komið
er.”
Viðræður um vinstri meirihluta
þegar hafnar í Njarðvík
„Það sem fyrst og
fremst er athyglisvert við
þessar kosningar hér, er
hvað landsmálin hafa haft
afgerandi áhrif á úrslitin,"
sagði Hilmar Þórarinsson
efsti maður á A-lista í
Njarðvik.
1 Njarðvik varð mikil fylgis-
aukning hjá Alþýöuflokknum sem
bætti við sig manni á móti einum
manni sem Sjálfstæðisflokkurinn
tapaði. Þar með féll meirihluti
Sjálfstæðismanna sem hafa haft
hreinan meirihluta i Njarðvíkum
undanfarið Jcjörtimabil.
Sagðist Hilmar þakka þessa
aukningu þvi, hve duglegir Al-
þýðuflokksmenn hefðu verið i
600 manns á fundum á Austurlandi
Bjarni Guðnason, prófessor,
skipar efsta sæti á lista Alþýðu-
flokksins við þingkosningar i
Austurlandskjördæmi. Bjarni
hefur farið vföa um kjördæmiöog
haldið marga fundi, smáa og
stóra.
Hann hefur efnt til 6 stórra
funda, og þá hafa sótt nær 600
manns. Fundirnir hafa veriö á
Fáskrúösfirði, Eskifirði, Seyöis-
firöi, Neskaupstað, Egilsstöðum
og Höfn I Hornafiröi. Viimundur
Gylfason hefur verið með Bjarna
á þessum fundum, sem bæði hafa
þótt fróðlegir og skemmtilegir.
Mest fundarsókn var á Seyðis-
firði, nærri tvö hundruð manns,
en minnst á Neskaupstað, svo
merkilegt, sem það kann nú að
viröast..
kosningabaráttunni, en einnig
taldi hann að ungt fólk á listanum
hefðu orðið til að afla honum auk-
inna vinsælda.
Sagðist Hilmar vongóður um
að vinstri flokkarnir mynduðu
meirihluta og væru viðræður þeg-
ar hafnar milli þessara aðila.
„Crslit kosninganna á lands-
mælikvarða sýna best hve stefnu-
laus þessi rikisstjórn hefur verið
enda virðist fólk vera búið að fá
sig fullsatt af henni.”
Frá Fjölbrautaskól-
anum á Akranesi
Athygli skal vakin á þvi að umsóknar-
frestur um skólavist er til 10. júni. Ekki
verður unnt að tryggja þeim nemendum
skólavist er leggja umsóknir sinar inn eft-
ir þann tima.
t skólanum eru starfandi fimm námssvið
sem greinast siðan i nokkrar námsbrautir
hvert:
1. Bóknámssvið
2. Heilbrigðissvið
3. Iðn- og tæknisvið
4. Uppeldis og samfélagssvið
5. Viðskiptasvið.
Á iðn og tæknisviði verður meðal annars
boðið upp á verkbrautir i tré, málm, raf-
iðnaði og hárgreiðslu, einnig fyrsta stig
vélstjóranáms og undirbúningsnám fisk-
iðnskóla.
Á uppeldis og samfélagssviði er boðið upp
á eins til tveggja ára námsbraut i, sam-
vinnu við húsmæðraskólann að Varma-
landi. Veitir það nám réttindi til að stjórna
litlum mötuneytum og býr nemendur und-
ir nám i matsveina-og veitingaþjónaskóla.
Allar nánari upplýsingar um námsbrautir
og skólastarfið veitir skrifstofa skólans,
simi 93-2544 kl. 9-12 og 13-15 alla virka
daga.
Skólameistari.
HRAUNB0RGIR
— orlofshús sjómannasamtakanna,
| Grímsnesi
Orl«fshús Sjómannasamtakanna að
Hrawti, Grimsnesi, verða leigð frá og með
laugardeginum 3. júni 1978. Væntanlegn-
dvaiargestir hafi samhand við undirrituð
féttg sm.
Skipstjóra- og stýrimannafélagið Aldan
Sjómannafélag Reykjavikur
Sjómannafélag Hafnarfjarðar
Sjómannafélag Akraness
Verkalýðs- og sjómannafélag Geröahrepps
Verkalýðs- og sjómannafélag Grindavikur
Verkalýös- og sjómannadeild Miðneshrepps
Verkalýös- og sjómannafélag Keflavikur
Skipstjóra- og stýrimannafélagið Ægir
Skipstjóra- og stýrimánnafélagiö Kár, Hafnarfiröi
Starfsmannafélag Hrafnistu og Laugarássbiós.
Hitaveita Suðumesja óskar eftir tilboðum
i lagningu dreifikerfis i Gerðum 1. áfanga.
útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
Hitaveitu Suðumesja, Vesturbraut 10 A,
Keflavik og á verkfræðistofunni Fjarhitun
h.f. Álftamýri9, Reykjavik gegn 20.000 kr.
skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Hita-
veitu Suðurnesja fimmtudaginn 8. júni kl.
14.00.
Staða tryggingalæknis
Hjá Tryggingastofnun rikisins er laus hálf
staða tryggingalæknis. '
Laun samkvæmt samningi fjármálaráð-
herra og Læknafélags íslands.
Umsóknir sendist Tryggingastofnun rikis-
ins, Laugavegi 114, Reykjavik, eigi siðar
en 15. júni 1978.
Reykjavik, 23. mai 1978.
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS
UT B 0 B