Vísir - 25.02.1969, Blaðsíða 4

Vísir - 25.02.1969, Blaðsíða 4
Blaðahöldurinn, Hugh M. Hefn er, sem gefur út Playboy og hefur grætt stórfé á Playboy-klúbbun- um, sem hann hefur sett á lagg- irnar f Bandaríkjunum og Bret- landi, hefur enn hlaðið utan um sig. Við eignir hans hefur nú bætzt 5 milljón dollara þota, sem hann nefnir „Stóru Bunny.“ En Bunnies kalla enskumælandi menn þjónustustúlkurnar, sem ganga um beina í Playboy-klúbb unum, en þær eru klæddar kanínu búningum. Meðal annars ágætis, sem flug vélin hefur til að bera, er stórt sporöskjulaga, tvíbreitt rúm í afar rúmgóðu svefnherbergi. Reyndar eru í flugvélinni svefnpláss fyrir 15 manns. í vélinni er íburðarmik ið baðherbergi með keramik- sturtu. -X Seglskútuáhugmenn í Chicago hafa þegar hafið undirbúning til rauna til þess aö fá þá Konstant- in Grikkjakonung, og Harald krónprins Norðmanna til þess að etja kappi i kappsiglingum. Chi- cago-búar hafa þegar skotið sam- an í 25 þúsund dollara verðlaun, sem eiga að koma sigurvegaran um til góða. Konstantin konung- ur er fyrrverandi ólympíumeist- ari í siglingum og Haraldur krón prins hefur eitt sinn unnið heims meistgratitilinn. Vonir manna hafa nú vaknað um það, að koma megi Elizabetu drottningu II á sjóinn á nýjan leik í maí-mánuði. Vélarbilun kom fram í jðmfrúferð skipsins og olli Bretum, sem voru nýbúnir að fá skipið afhent, miklum von- brigðum. Fyrirtækið, sem smíðaði túr- bínuhreyflana í þetta annars svo glæsflega skip, segist nú hafa fundið vélarbilunina og telur fyr- irtækið verkfræðinga sfna geta verið búna að ráða bót á hilun- inni í maí. mmmmoBmífjrxaumamammmmmamiK: Gömul kúrekahetja og félagi Roy Rogers horfinn til feðranna Gabby Hayes, sem allir munu kannast við frá því þeir voru ungir og fóru i þrjú-bíó að sjá Roy Rogers eða Hopalong Cass- idy, er nú látinn — 83ja ára að aldri. Hann lagðist inn á sjúkrahúsið, sem kennt er við St. Jósef, í Hollywood, vegna hjartasjúk- dóms, en lézt á sjúkrahúsinu eft- ir nokkurra vikna legu. Hinn skeggjaði öldungur kom venjulega fram í kúrekahlutverk- um sínum druslulega til fara og fór venjulega með hlutverk ein- hvers gamlingja, sem ungur var þó í anda og gaf í engu ungu mönnunum eftir. Enn hrópa böm- in upp, þegar Gabby birtist á hvita tjaldinu. Allir unnu Gabby og skyldi nokkur geta gleymt þessum gamla skrögg, sem venju lega var eins og naðra þotinn upp, ef yrt var á hann, en hafði þó alltaf, þegar á reyndi, að geyma hjarta úr gulli. Gabby lék í 174 kvikmyndum (í flestum þeirra var hann meö hattkúfinn sinn gamla, meö barð- ið að framan nælt upp með stórri öryggisnælu). Plestar þessara mynda voru í Hopalong Cassidy- seríunni. Skeggið sitt lét hann sér vaxa 1929 og rakaði það aöeins einu sinni af sér. Það var árið 1939 og hann gekk um skegglaus i fjóra mánuði. „En ráðskonan mín sá mig skegglausan og var nærri dáin úr hræðslu," sagði Gabby Hayes vin- um sinum. „Ég leit þá í spegilinn og var sjálfur nærri dáinn úr hræðslu líka. Síðan hef ég aldrei rakað mig aftur.“ George Francis Hayes, eins og hann hét réttu nafni, fæddist í Wellsville í New York-fylki 7. maí 1885, víðsfjarri Villta vestr- inu, sem þá var óðum að spekj- ast. Hann var mikill íþróttamaður í æsku og fyrsta hlutverkið, sem hann fékk, var einmitt hlutverk loftfimleikamanns í myndinni „Regnbogamaðurinn". Hann var alla ævi mikill áhugamaður um baseball (ameríska slagboltaleik- inn) og það kom fyrir að kunn- ingjar sáu hann hlusta á útvarps Iýsingar kappleikja í tveim út- varpsstöðvum í senn, og þá af tveim kappleikjum. Þótt Gabby væri í hlutverkum sínum jafnan illa til fara og larfa- legur, þá átti það engan veginn við hann í einkalífinu. Þar var hann jafnan með bezt klæddu mönnum og hann tók flestum heimsborgurum fram, hvað við kom að þekkja og meta góð vín og góðan mat. minnast hans. Tvö hlutabréf í Tom Jones h.f., með gítarinn sinn. Einn kaffibolli ómerkti dóminn Hæstiréttur Iwoa-fylkis í Banda ríkjunum ómerkti fyrir nokkru dómsúrskurð undirréttar vegna tíu dropa af kaffi, eða þar um bil. Dómi undirréttar hafði verið áfrýjað og við rannsókn hæsta- réttar kom í ljós, að sýslumaður og starfsfólk hans höföu lagt dómendum undirréttar til ókevp- is kaffi, meðan á meðferð málsins stóð. „Auðvitað heldur enginn okkar því fram, að dómurum undirrétt- ar verði mútaö með andviröi eins kaffiboJla,“ sagði forseti hæsta- réttar, þegar hann las niðurstööu dómsins. „En við, eins ög allir dómarar þessa lands, gerum mjög strangar kröfur til sjálfstæðis dómara við málsmeðferðir og því fyrirskipum við ný réttarhöld yfir áfrýjanda." Áfrýjandi James Carey, hafði verið dæmdur I undirrétti fyrir innbrot. Skipt um hjarta f sex ára telpu Humperdinck, takk! Fjórði hjartaþeginn, sem banda rískir læknar hafa skipt um hjarta í, er 6 ára gömul telpa, Christine Corhn. Aðgerðin var gerð nú nýlega og segja læknar hennar, að hún sé á góðum batavegi. Christine litla fæddist með gall- að hjarta, en fram til síðasta árs William Becker. vissu læknar engin ráð til þess að veita henni heilsubót, en þá hófst öld hjartaskiptanna. Henni var gefið hjarta úr 7 ára gömlum dreng, William Becker aö nafni, en hann fórst í bílslysi 13 skurðlæknar framkvæmdu aðgerðina, sem tók 914 klukku- stund. Christine Corhn. 1 viöleitni til þess að snúa á skattyfirvöld konungsveldisins Bretlands, hafa dægurlagasöngvar amir Tom Jones og Engelbert Humperdinck, ákveöiö að gera hlutafélag úr sér sjálfum. Jones, sem hefur um $2.400.000 (reiknað í íslenzku er fjárhæðin of lygileg, til þess að hægt sé að birta hana) í árstekjur, og Hump- erdinck, sem er um það bil hálf- drættingur á við Jones, hafa nú Ubaldo Lumini er einn af stór- um hópi verkfræðinga, sem beita allri snilligáfu sinni í viðleitni til þess að forða skakka turninum í Pisa frá því að falla. Hann hefur slegið fram frá- bærri hugmynd til lausnar vand- ?Sa»BSSSBIP'* stofnað fyrirtæki, sem þeir kalla „Management Agency and Mus- ic“. Hyggjast þeir bjóða þriðjung fyrirtækisins til sölu á $7 milljðn- ir á verðbréfamarkaðnum í Lond- on einhvern tíma í næsta mán- uði. Hvemig væri nú fyrir einhvern íslenzkan auðmann sem á allt af öllu og þarf ekki að neita sér um neitt, að kaupa sér nú ríflegan hlúta af einum Humperdinck? ræðunum með skakka turninn. en hugmvnd þessi er svo góð a okkur þykir hún ná langt út fynr endamörk alls ímyndunarafls- Hann vill láta toga í turninn hinum megin frá! Snilldarhugmynd

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.