Vísir - 25.02.1969, Blaðsíða 13

Vísir - 25.02.1969, Blaðsíða 13
13 Bíafra söfnun Rauða kross Islonds • Allir bankar og spari- sjóðir taka við fram- lögum. ^TVOJUM • FramlÖS tfl Rauða BÁGSTADDA krossins em frádrátt- arhæf til skatts. VISIR . Þriðjudagur 25. febrúar 1969. *—sksubp -ms-' ~ Bréf frá Rafmagnsveitu Reykjavíkur um umferðarmálin „1 þætti yðar var nýlega rætt um umferðarmál, þ. á m. um götulýsingu. Af því tilefni eink- um vegna bréfs Sigurðar Ágústs sonar, vill Rafmagnsveita Reykjavíkur koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri: Utan Reykjavíkurborgar, þ.e. í Kópavogsbæ, Mosfellshreppi, Garðahreppi (suður að Hraun- holtslæk) og Seltjamames hreppi svo og við þjóðvegi, t.d. Hafnarfjarðarveg og Vestur- iandsveg, annast Rafmagnsveita Reykjavíkur allar. aukningar og endurbætur á götulýsingu, þó aðeins að frumkvæði viðkom- andi bæiar- eða hreppsyfirvalda, enda bera bæiar- eða hreppsfé- lögin kostnaðinn. Er ekki annað vitað, en Raf- magnsveitan hafi sinnt öllum óskum viðkomandi yfirvalda, að því er tekur til götulýsingar. Ríkisvaldið hefur sýnt þess- um málum furðulítinn skilning, og bví hafa þjóðvegirnir orðið verst út undan. Dæmi: Ártúns- brekka, en þar var lýsing loks sett án bess að tryggt væri, að Vegagerð ríkisins greiddi kostn aðinn, enda hefur hún þverskall azt við greiðslu æ síðan. Dæmi: Hafnarfjarðarvegur í Garða- hreppi, en þar var fjárveiting skorin svo við nögl, að lýsing er aðeins öðrum megin vegar- ins, nema við Silfurtún. Nýtt dæmi í uppsiglingu: Reykjanesbrautin nýja, frá Blesugróf suður fyrir Breiðholt. Urhférðardéiid borgarverk- fræðings og Rafmagnsveitu Reykjavíkur hafa undanfarin ár gert tilraun með liósmerki og Iýsingu gangbrauta. Slikum Ijós- um verður eflaust fjölgað á næstunni hér ; Reykjavík. Hins vegar liggur engin formleg beiðni fyrir um uppsetningu gangbrautarljósa frá hendi ná- grannahreppa eða bæjarfélaga, en Rafmagnsveitunni er kunnugt um að þessi mál eru þar í at- hugun. Gangbrautarljósin sem síðast voru sett upp hér í Reykjavík, t.d. við Miðbæjarskólann og við Hofsvallarötu lýsa bó nokkuð inn á gangstéttina og fullnægja því kröfum f nefndu bréfi S.Á. Hitt ber að leggja alveg sér staka áherzlu á, að gangbrautar lýsingu af þessu tagi má ekki setja nema: 1. Gangbrautin sé mjög greini lega gerð (zebra-baut). 2. Götulýsing umræddrar götu fullnægi vissum lág- marksskilyrðum. Hættan er sú, að óvænt hindr un utan gangbrautarinnar, t.d. fótgangandi, sem gengur yf- ir götu spölkorn aftan við gang brautina sjáist verr en ella. Or- sökin er hinn mikli munur á birtu gangbrautarinnar og um- hverfisins. Þar sem gangbrautir eru þannig lýstar er því alveg sérstök nauðsyn að fólk noti gangbrautina, en stytti sér ekki leið fram hiá henni. Það er alger misskilningur í bréfi S. Á., að götuljósastólpar séu ekki staðsettir í innanverð- um beygjum, vegna erfiðleika við að staga stólpana. Á- stæðan er allt önnur, nefnilega sú, að lýsing stólpa innan i beygjum kemur að litlum sem engum notum (nema götumar séu mjög breiðar). Er þá um- ferðarsjónarmið ráðandi, þ.e. lýsingin á að gera ökumanni kleift að sjá vel fram á veginn. Hér er um að ræða viður- kennda reglu í allri götulýsingu, enda er þetta ekki bundið við loftlínustólpa, heldur alla götu ljósastólpa (nýleg dæmi hér í Reykjavík: Sogavegur, Breiða- gerði, Langholtsvegur). Það er nefnilega ekki lýsing- in frá stólpa beint niður á göt- una, sem mestu máli skiptir, heldur endurkast stólpa sem eru alllangt framundan. Þetta er sér staklega áhrifamikið, þegar götu yfirborðið er blautt (endurkast frá stólpum innan í beygjum fer hreinlega út fvrir götuna, fram hjá ökumanni). Hins vegar eiga stólpar utan í beygjum að vera mun þéttar en á beinum götukafla. Þetta þarf að lagfæra á nokkmm stöðum við- Suðurlandsbraut í Reykjavík, þar eð varanleg gerð þeirrar götu mun enn dragast nokkuð. Rafmagnsveita Reykjavíkur.“ Þetta er vissulega fróöleikur til viðbótar beim sem fyrir var fram kominn um þessi mál. Á- nægjulegt er til þess að vita, að gangbrautarljósum skuli verða fjölgað á næstunni hér í borg- inni, eins og fram kemur í bréf inu, en nágrannabyggðirnar ættu að taka þá framtakssemi til fyrirmyndar. Sérstaklega virðist vera brýn þörf á að setja upp gangbrautarlýsingu í Garðahreppi, en þar er svo lítil lýsing fyrir, en götumerkingar auk þess mjög máðar. Við þökk um Rafmagnsveitunni, sem og Sigurði Ágústssyni bréfin um þetta efni, sem sýna að menn meö áhuga fjalla um þessi brýnu öryggismál í umferðinni. Áhuginn vekur þó alltaf vonir um úrbætur, ef eitt eða annað er talið mega breytast til batn- aðar. Þrándur í Götu. Borgarafundur tm mjólkursölumál verður haldinn miðvikudaginn 26. febrúar kl. 20.30 í Sigtúni v/Austurvöll. FRAMSÖGUMENN: Sækja mikið i Öpelinn • Tveir unglingspiltar, 14 ára og 16 ára, stálu aðfaranótt sunnudags tveim bifreiðum og léku sér á þeim fram undir morgun í Kleppsholtinu og Laugarásnum. Til þeirra náðist eftir aö þeir höfðu gert tilraun til þess að brjótast inn í biðskýli SVR við Laugarásveg. Hvorugur piltanna hafði aldur til þess að aka bifreið, en á laug- ardag tóku þeir saman ráð sín og ákváðu að stela bíl um nóttina. Um kl. 3 um nóttina kom annar þeirra heim til hins og vakti hann. Þeir höfðu fyrir löngu valið sér ^íltegundina, sem þeir ætluöu að stela — neinilega Opel, þvi aö þeim var kunnugt um þann vana margra Opeleigenda, að loka ekki kveikju- Iásnum, eftir að þeir hafa drepið á bílum sínum. Á Kleppsveginum tóku þeir einn slíkan og óku honum um Klepps- holtið, Sundahafnarsvæðið og Laug arásinn, en þá vildi hinn yngri taka í stýrið. Var þá spenningurinn svo mikill að fá að aka, að annan bíl þurfti til fvrir þann yngri og þann tóku þeir við Ásveginn. Var það einnig Opel, sem eigandinn hafði ekki hirt um að loka kveikjulásn- um í. Segir síðan ekki af ferðum þeirra, nema það, að þeir urðu tóbakslausir og ákváðu að brjótast inn í sælgætisverzlunina í biðskýli SVR við gatnamót Sundlaugavegar og Laugarásvegar. Þar brutu þeir rúðu inni í biðskýlinu og annar skreið inn, en þorði svo ekki að brjótast inn í sælgætisverzlunina þegar til kom. Hins vegar hafði einhver séð tii þeirra í biðskýlinu og gerði lög- reglunni viðvart. Kom lögreglan að þeim í tveim bílum- og var annar pilturinn króaður af á Laugarás- veginum, en hinn slapp á sínum bíl. Faldi hann sig, en gaf sig svo fram þegar á leið sunnudaginn. Björg Stefánsdóttir húsmóðir Sigurður Magnússon framkvæmdastjóri Vignir Guðmundsson blaðamaður Höskuldur Jónsson deildarstjóri Fundarstjóri: Steinar Berg Björnsson. Forstjóra og öðrum forustumönnum Mjólkursamsölunnar i Reykjavík hefur verið boðið sérstaklega á fundinn. ALLIR VELKOMNIR. HEIMDALLUR F.U.S. Skandinavisku dansaramir þrír,. hússins á „Fiðlaranum á þakinu“ sem taka þátt í sýningu Þjóðleik- | eru nú komnir til landsins, og Gengu á ís úr eyjum til lands Nokkrir menn gengu á ís úr Brokey á. Breiðafirði og upp að Dröngum á Skógarströnd í vikunni sem leið. Mikill lagís hefur verið á innanverðum Breiðafirði. Höfnin í Stykkishólmi hefur verið ísilögð og bátarnir hafa orðið að brjóta sér leið út innsiglinguna. Nú um helgina losnaði mikið um ísinn á firðinum og rak til hafs. Hefur ástandið mjög batnað í Stykkishólmshöfn. mættu þeir í fyrsta sinn á æfingu í leikhúsinu í gærmorgun og er myndin tekin við það tækifæri. Er þetta í fyrsta sinn síðan í „My fair lady“ sem Þjóðleikhúsið fær erlenda dansara til að taka þátt í sýningu. Dansaramir eru frá vinstri Leif Bjorneseth, frá Noregi sem hefur tekið þátt í yfir 100 sýn- ingum á „Fiðlaranum“ í Osló Frank Shaw frá Bandaríkjunum, sem kemur hingað frá Svíþjóð fyrir milligöngu leikstjórans Ivo Kramer, þá er Collin Russel, ballettmeistari Þjóðleikhússins og loks Svenn Berglund frá Noregi, sem hefur tek- ið þátt í 75 sýningum á „Fiðlaran- um í Osló. Gert er ráð fyrir að frumsýningin verði um miðjan mánuðinn, en aðalhlutverkin leika sem kunnugt er þau Róbert Arn- finnsson og Guðmunda Elíasdóttir. Norsku dansaramir í Fiðlaranum komnir

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.