Vísir - 08.04.1969, Síða 1
VISIR
Sakadómur lagði
hald á öil vínföng
Fannst látínn
á lákarsgálfínu
Einn skipverja á v.b. Húna fannst
látinn á lúkarsgólfinu í bátnum,
þar sem hann lá í Grindavíkurhöfn
á laugardagsmorgun. Engir ytri á-
verkar sáust á manninum, né neitt
ffriörik og Guðmundur berjast. Milli jreirra er fjörleg dansmynd, enda fór einvígið fram í dans- Sem bent gæti til þess aö andlát
skólahúsnæði Hermanns Ragnars. hans hefðj borið að með óeðlilegmn
hætti. — Síðast vissu félagar hans
af honum í hópi þeirra um kl. 2
um nóttina.
Rannsóknarlögreglan í Hafnar-
firði hefur tekið málið til rann-
sóknar, og veröur hinn látni kruf
inn
næturkiúbbanna
— V'mib væntanlegt sónnunargagn i dómsrannsókn
SAKADÓMUR gerði nætur-
’dúbbunum í borginni heimsókn
há gleðin stóð þar hæst aðfara-
nótt skírdags. Fóru fulltrúar
sakadóms á alla næturklúbbana,
sem orðnir eru fimm að tölu
ng lögðu hald á allt vín, sem
bar var geymt. Menn héldu þó
hvf, sem þeir voru með í glös-
unum.
Þessar aðgerðir eru að sögn
Hreins Sveinssonar, fulltrúa saka-
dómara, liður í dómsrannsókn og
er lagt hald á vínföngin, sem hugs-
anleg sönnunargögn f málinu.
Sakadómur fékk lögregluaðstoð
við þessar aðgerðir á sumum stöö-
unum, vegna þess hve fjölmennt
var þar, en þes^ar aðgerðir fóru þó
Friðrik og Guð-
mundur sömdu um
jafntefli
Skákþingi Islands mun ljúka
f kvöld, en segja má að úrslita-
skákin hafi verið tefld í gær-
kveldi með einvígi milli þeirra
Friðriks Ólafssonar og Guð-
mundar Sigurjónssonar er end-
aði með jafntefli.
Guðmundur var sá eini sem tal-
ið var að gæti ógnað sigri Frið-
riks, sem tók nú aftur þátt f mót-
inu eftir G ára hvíld. Staðan fyrir
skákina var sú að Friðrik var meö
8 vinninga en Guðmundur 7 og
hefði hann orðið að vinna hygð-
■st hann ná Friðriki, en eftir þessa
næst síðustu umferð, á Friðrik
eftir að tefla við Freystein Þor-
hergsson og Guðnundur við Hall-
dór Jónsson, og nægir Friðriki jafn
reflj til að sigra í mótinu.
Geysilegt fjölmenni fylgdist með
n'nvigi þeirra Friðriks og Guðmund
ar, einkum fyrri hluta dags, en í
gærkvöldi var þessi spennandi skák
aftur tekin fyrir og lauk með jafn-
tefli eins og fyrr greinir.
fram án átaka, að því er Vísir bezt
vissi í morgun.
AUmikið magn af víni var til
10. síða.
SKÍÐALANDSMÓTIÐ á ísafirði hefur víst ekki farið from hjá neinum, en það er eitt af því fáa, sem
gerist um páska á íþróttasviðinu hér á landi. Þessar ungu dömur festi ísak Jónsson, ljósmyndari Visis,
á filmu þegar landsmótið var sett.
Það viðrað illa á ísafirði sem og annars staðar á Iandinu um páskana og í morgun biðu 350 manns eftir
flugfari suður, en ófært var fyrir flugvélar, sem biðu albúnar að fljúga eldsnemma í morgun. Frá Ak-
ureyri var hins vegar flogið og voru 350 á skrá þar einnig.
Um Skíðalandsmótið og aðra íþróttaviðburði má lesa á bls. 2, 3 og 4 í blaöinu í dag.
ALGERT VERKFALL A FIMMTUDAG
OG FOSTUDAG
Eigendur geta unnib i eigin verzlunum.
Flestar verzlanir og mjólkurbúðir lokast.
Blóö koma ekki út.
0 Algert verkfall mun
verða á Reykjavík-
ursvæðinu á fimmtu-
dag, náist ekki sam-
komulag fyrir þann tíma
sem ólíklegt er talið. —
Verzlunarmenn eru með
al þeirra, sem boðað
hafa tveggja daga verk-
fall, á fimmtudag og
föstudag.
Þannig verða flestar stærri
verzlanir lokaöar þessa daga, en
eigendum er heimilt að vinna f
eigin verzlunum með fjölskyld-
um sínum, svo að einhverjar
smærri verzlanir munu verða
opnar. Heildverzlanir lokast. —
Guðmundur H. Garðarsson, for-
maður VR, sagði í morgun að
verkfallið mundi verða jafnvíö-
tækt og síðast, er verzlunar-
menn fóru í verkfall fyrir nokkr
um árum. Einnig hefur ASB,
Félag afgreiðslustúlkna í brauða
og mjólkurbúðum, boöað vinnu-
stöövun, svo að mjólkurbúöir
lokast. Blöð koma ekki út.
Aö sögn Hannibals Valdimars
sonar, forseta ASÍ, í morgun
mun verkfallið ná til milli 30 og
40 verkalýðsfélaga, flestra í
Reykjavík og nágrenni. Meðal
þeirra má nefna: Verkamanna-
félagið Dagsbrún, Verkakvenna-
félagið Framsókn, Iðju, félag
verksmiðjufólks í Reykjavík,
Hið íslenzka prentarafélag, Bak-
arasveinafélag íslands, Félag bif
vélavirkja, Félag íslenzkra raf-
virkja, Félag járniðnaðarmanna,
Trésmiðafélag Reykjavíkur, Múr
arafélag Reykjavíkur og mörg
fleiri.
Verkalýðsfélögin £ Hafnarfiröi
og á Akureyri hafa boðað vinnu
stöðvun, svo og allmörg félög
annars staðar á landinu.
Hannibal Valdimarsson sagði,
að ekki hefði staðið til, að verk-
fal'ið yrði algert nema á Reykja
víkursvæðinu, og væri alger
samstaða um vinnustöðvunina.
Framhaldió ákveðið á
fimmtudag.
Hannibal sagöi að ekki væri
endanlega ákveðið, hvemig
framhaldsaðgerðum yrði hagað,
»-»■ 10. sfða.
Truflaði
útvarpsmessu
• Það gerðist á skírdag í ann-
að skipti á skömmum tíma, að mað-
ur nokkur, Helgi Hóseasson, reyndi
að trufla útvarpsmessu. Nú á skír-
dag greip hann fram í ræöu séra
Gísla Brynjólfssonar, þegar hann
var að lýsa vígsiu sonar síns, sr.
Brynjólfs Gíslasonar í Dómkirkj-
10. síöa.
FANNST LIGGJANDI í
BLÓÐI SÍNU
— hafði orðið fyrir likamsárás
Maður nokkur fannst Iiggj-
andi í blóði sínu meðvitund-
arlaus í húsi einu vestur í bæ
aðfaranótt laugardags.
Sjúkraliði hafði verið tilkynnt
um manninn og komu slökviliðs-
menn aö honum og fluttu hann á
slysavarðstofuna.
Maöurinn hafði hlotið áverka á
höfði og var í fyrstu ekkert vitað
hvað fyrir hann hafði komið, en
síðar upplýstist, að hann hafði orðið
fyrir Iíkamsárás. Árásarmaðurinn
var hvergi nærri, þegar komið var
að hinum slasaða.
Seinna náðist hann þó eftir lýs-
ingu, sem hinn slasaði gat gefið á
honum, þegar hann komst til með-
vitundar.