Vísir - 12.07.1969, Page 3
VÍSIR . Laugardagur 12. júlí 1969.
3
■ ■
Kosningabaráttan
að hefjast í Vestur
Þýzkalandi
Hinar árlegu
tjaldsamkomur
Kristniboðssambandsins verða að þessu sinni
við Nesveg skammt frá Neskirkju, dagana 13.
—20. júlí, hvert kvöld kl. 8.30
MargSr ræðumenn: Prestar, kristniboðar og
leikmenn. — Hljóðfærasláttur og söngur.
Sérstakar barnasamkomur verða mánudaginn
14. og fimmtudaginn 17. júlí kl. 6 e.h.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
KRISTNIBOÐSSAMBANDIÐ
Læknisstaða
í Landspítalanum er laus til umsóknar staða
sérfræðings í lyflækningum með sérþekkingu
í nýrnasjúkdómum. Laun samkvæmt kjara-
samningum Læknafélags Reykjavíkur og
stjórnarnefndar ríkisspftalanna.
Umsóknir með upplýsingum um námsferil,
fyrri störf og aldur sendist stjórnarnefnd rík-
isspítalanna, Klapparstíg 26 fyrir 15. ágpst n.k,
Reykjavík 11. júlí 1969.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
Vélamaður óskast
Vélamaður vanur vinnu á skurðgröfum óskast
til afleysninga í sumarleyfum. Uppl. í síma
40235.
HINN VEL KLÆDDI
TUNGLFARI LÍKIST
HELZT SKJALDBÖKU
Eftir rúma viku eiga tunglfar
amir bandarísku að lenda á
mánanum. Eins og afskræmi-
legt ferfætt rándýr svífur
tunglferjan til lendingar og
aftur út henni teygist eldhali.
Rykmökkur byrgir útsýni
geimfaranna. Svo birtir til.
Allt er hljótt. Þeir eru ekki í
skemmtiferð, heldur er þeim
ætlað að kynnast aðstæðum á
tunglinu, taka myndir, koma
fyrir tækjum og safna sýnis-
homum. Ef tii vill leiðir ferða
lag þeirra til þess að skammt
verður að bíða, að menn
skrepoi í tunglferð í sumar-
ieyfinu.
Hinn vel klæddi tunglfari lík-
ist helzt skjaldböku, sem staul-
ast um á tveimur fótum. Allur
útbúnaöurinn, sem hann ber í
gönguferðinni, vegur 82 kíló en
það jafngildir 14 kílóum á tungl
inu, þar sem þyngdaraflið er
minna.
Aðalvandræöin eru umfangið.
Allar hreyfingar eru hægar og
þær verða að vera úthugsaðar.
Til að vemda tunglfarann gegn
loftleysi tunglsins verður að
vera stöðugur straumur kalds
súrefnis um búninginn. Þess
vegna veröur hann mjög stífur
og illmeðfærilegur
Geimfarinn verður að sigrast
á þessari stífni til að geta beygt
handlegg eða hreyft fæturna.
Reynt er aö gera þessar hreyf-
ingar sem auðveldastar. Þó
verður stöðugt að neyta afls til
þess að búningurinn þrýsti
hinum beygða lim ekki til baka.
Vísindamenn hafa ekki gert
sér Ijóst, hvort það auðveldi
eða torveldi hreyfingum, að
þyngdaraflið er minna á tungli
en jörðu. „Við komumst að því,
þegar þeir koma á tunglið,"
segja sérfræðingarnir.
Það er ekki búizt við, að þeir
meiði sig, Armstrong og Aldrin,
fyrstu mennirnir á tunglinu. —
Búningurinn á að vemda þá
gegn því ... og svo eru þeir
með hjálma, sem víst er ekki
hægt að brjóta með sleggju.
Þeir hafa sérstaka „tunglskó“
sem Armstrong ber þegar hann
gengur niður níu þrep, aftur á
bak, og stígur vinstra fæti á
yfirborð tunglsins.
Hvemig klæða þeir sig í allt
þetta í geimfarinu? „Það er eins
og tvær stelpur reyni að búa
sig á ball 1 símaklefa."
* •
Svona eru tunglskómir, sem geimfararnir verða í.
■
morgun
útlönd í morgun
útlönd 1 morgun
útlönd í raorgun
útlönd
■ Forvextir voru hækkaðir í Sví-
þjóð nýlega úr 6 í 7 af hundr-
aði.
■ Vikimtið Newsweek segir
manntjón Bandarlkjanna 1 Ví-
etnam allmiklu meira en greint er
f hinum opinberu vikulegu skýrsl-
um, því að þær greina frá mann-
tjóni á' vígstöðvunum, en alls munu
um 42.000 Bandaríkjamenn hafa lát
ið lífið í Víetnam I þyrluslysum
og af öðrum slysförum og veikind-
um, og eru þá einnig talin með
sjálfsmorð. Samkvæmt opinberum
skýrslum í júní var talan 36.625.
■ Newsweek segir, að Nixon
forseti hafi ekki fengið nema hluta
af launum sínum í maí og ekki sent
hvað þá meira í júní — raunveru-
léga vegna þess að forsetakaupið
hefði verið hækkað í 200.000 doll-
ara (árskaup), bæði var fé ekki fyr
ir hendi og ekki búið að ganga fylli-
lega frá breytingunni fyrr en um
miðjan júní, vegna seinagangs á
skrifstofunni sem slík mál annast.
Víða er pottur brotinn!
■ Sama vikurit ræðir flugher
Egypta. Þeir hafa 330 sovézkar or-
ustuþotur og 52 sprengjuflugvélar,
6n ekki nema 120 næ^ilega þjálfaða
flugmenn til þess að stjórna þeim.
Þeir þyrftu að hafa 400 miðað við
flugvélafjöldann, en það tekur tvö
ár að þjálfa herþotuflugmann.
Þingkosningar í Vestur-Þýzka-
landi fara fram i september í haust
og má nú segja að kosningabarátt
an sé hafin, þar sem Krlstilegi lýö-
ræðisflokkurinn hefir á þingi í Ess
en samþykkt stefnuskrá I 20 lið-
um.
Aöalræöuna á þessum fundi flutti
dr. Kiesinger kanslari V-Þ. og kom
hann víða við sem að líkum lætur.
Hann hafnaði gagnrýni jafnaðar-
manna, félaga kristilegra lýðræðis-
sinna í samsteypustjóminni, sem
halda þvl fram, að stefna flokksins
hafi beinzt í fhaldsátt, til „hægri viö
flokk þjóðernis-lýöræðissinna
(NPD)”. Dr. Kiesinger kvað flokk
sinn aðeins miða að því að unga
fólkið fái sín tækifæri. „Fortíð þjóð
ar vorrar má ekki vera því til
hindrunar" sagði hann, „að þjóð
vor haldi áfram að vera til og
blómgast."
Kiesinger mælti gegn stefnu þjóð
emis-lýðræðissinna og að þeir
fengju fulltrúa kjöma á sambands
þingið.
Dr. Kiesinger þakkaði Kristilega
lýðræöisflokknum „kraftaverkið",
hina efnahagslegu viðreisn í land-
inu, og stefnu hennar væri að þakka
að gjaldmiðill landsins væri nú
„harðasti gjaldmiðill heims“.
Hann sagöi að stjórn landsins
hefði veriö gagnrýnd fyrir aö hafa
ekki nægan áhuga á, að aðild Bret
lands aö Efnahagsbandalagi Evr-
ópu fengist framgengt, en þetta
hefói ekki við rök að stvðjast. Bonn
stjórnin hefði engu minni áhuga
á aðild Breta en aðrar ríkisstjórnir
en hún gæti ekki hætt á, að á-
greiningur um málið yrði til þess að
spilla samstarfinu milli Frakka og
Vestur-Þjóðverja.
Dr. Kiesinger kvað stjóm sem
Kristilegi lýðræðisflokkurinn mynd
aði eftir kosningarnar mundu leit
ast við að leysa öll vandamál út af
skiptingu Iandsins, og bjóða Austur
Þjóðverjum upp á viðræður, en ekki
viðurkenna Austur-Þýzkaland sem
sjálfstætt þýzkt ríki.
Dr. Kiesmger