Vísir - 22.07.1969, Síða 3

Vísir - 22.07.1969, Síða 3
Ársþing Glímu- sambands íslands Ársþing Glímusambands íslands verður haldið í Reykjavík sunnu- daginn 19. október n.k. og hefst kl. 14 árdegis á Hótel Sögu. Tillögur frá sambandsaðilum, sem óskast lagöar fyrir ársþingið, þurfa að hafa borizet til Glímusambands- ins þrem vikum fyrir þingið. Bætti metið um 30 metra! — Stórbættur árangur / jbr/jbrouf FRI og Æskunnar, stærsta iþróttamóts á landinu, sem um 4500 tóku jbátt Lang umfangsmesta íþróttamóti á landinu lauk nýlega, — 4500 manns tóku þátt, en 26 af 36, sem rétt áttu á úrslitasætum, mættu að Laugarvatni til að keppa til úr- slita. Þetta var þríþraut FRÍ og Æskunnar. Unga fólkið lét ekki illviðri á sig fá meðan keppnj fór fram, en á sama tima mátti sjá íþróttafor- * ystumenn og blaöamenn meö upp- I bretta kraga á hlaupum undan 'veðrinu, en þeir voru þá að skoða hið nýja mannvirki, íþróttamiðstöð ÍSÍ Árangur allur á mótinu var mun betri en fyrr, enda kom í ljós að flestir höfðu æft dyggilega fyrir keppnina. Náöist bættur árangur í 5 flokkum af 6. Athyglisverðast af öllu var bolta- kastið, — undirbúningsgrein fyrir spjótkast, en þar var metið bætt um 30 metra! Gunnar Einarsson, 14 ára nemandj úr öldutúnsskóla í Hafnarfirði, kastaði 84.03 metra. Bezti Norðmaður 1 sams konar keppni á dögunum kastaði 73 metra. í þrautinni náði hann 1.55 í hástökki og 7.6 í 60 metra hlaupi. AUs var stigatalan 3591 stig, en síðast var árangur í sama flokki 2802 stig. Bezti Norðmaður hlaut 3078 stig. Þá var athyglisverður árangur Sigríðar Jónsdóttur, 12 ára, Sel- fossstúlku, systur Þuríöar sundkonu og bræðranna Guðmundar og Sig- urðar, sem. athygli vöktu á Meist- aramótinu um helgina. Hún fékk 8.4 í 60 metrunum, 1.35 stökk hún í hástökk; og kastaði boltanum (tennisbolti) 45.19 metra. Hún fékk 3315 stig, en árangur síðasta ár var 2904 stig, Norska metið er að- eins 12 stigum betra en árangur Sigríðar Vel skal um hnútana búið. Neytir allra bragða Bítlahljómsveit leikur d sundmóti Kveöjusundmót verður haldiö í sundlauginnj í Laugardal í kvöld og hefst kl. 8. Er þetta mót meö nokkuð öðrum hætti en sundmót- hafa áður verið og er þaö haldið til þess aö styrkja íslenzka sund- landsliöið til utanfarar. Meöal annars verður blööruboð- sund og náttfataboðsund. Þar að auki leikur vinsæl ungiingahljóm- sveit. Landsliðsfólkið tekur þátt í boðsundinu ásamt nokkrum fleirum sundmönnum. Sennilega mun margan fýsa að sjá þessa skemmt- un, þvi að auk hennar verður keppt í „alvöru“ í nokkrum stuttum sundgreinum. íslenzka liðið sem er skipað mjög ungu fþróttafólki fer til Skot- lands n.k. mánudag og keppir þar í grennd við Glasgow en heldur síð- an áfram og keppir við Dani og Svisslendinga. Þá fara nokkrir á Norðurlandamótið í Sviþjóð og koma þeir síðustu heim þann 10. ágúst. • Þaö er sennilega langt síöan andinn í einu landsliðj hef- ur veriö eins góöur og hjá landsliöinu í knattspyrnu. Þess- ar myndir eru úr Saltvík frá því á laugardagskvöldið. Sú stærri er af spilaboröj með knattspyrnumönnum og átti raunar að fylgja frétt í gær í blaðinu, en varð viðskila við efnið vegna rúmleysis. • Litla myndin er skemmti- leg. Halldór Björnsson, rauðhærði grallarinn í landslið- inu og Albert Guðmundsson, formaöur KSÍ, eru hér i hörku baráttu um knöttinn. Þessi stór- merka mynd sýnir að Halldór vflar ekki fyrir sér að neyta bragða, ef út í það fer. LIV PANTI-HOSE Heildsala ÞÓRÐUR SVEINSSON & CO H/F Sfmi 18700 LlV-sokkabuxurnar eru ótrúlega endingargóðar, þær fást vlða í tízkulit, og þremur stærðum. Reynið þessa tegund. LlV-sokkabuxur kosta aðeins kr. 115/70

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.