Vísir - 22.07.1969, Blaðsíða 13
VIS IR . Þriðjudagur 22. júlí 1969.
13
EINKAUMBOÐ FYRIR KUBA SJÓNVARPS- OG.tÍtVARPSTÆKI
Laugaveg 10 - Sfml 19IS2 - Reykfavfk
UMBOÐSMENN 1 RVÍK: TRÉSM. VÍÐIR OG VERZL. RAFORKA.
UMBOÐSMENN UTI A LANDI: VERZL. ÞÓRSHAMAR, STYKK-
ISHÓLMI; MAGNÚS GlSLASON, STAÐARSKÁLA; GUÐJÓN
JÓNSSON, ÞINGEYRI; ODDUR FRIÐRIKSSON, ISAFIRÐI;
PÁLMI JÓNSSON, SAUÐARKRÓKI; HARALDUR GUÐMUNDS-
SON, DALVIK; ALFREÐ KONRÁÐSSON, HRlSEY; SJÓNVARPS-
HÚSIÐ HF., AKUREYRI; SIGURÐUR ÞÓRISSON, HLÉSKÓGUM
HÖFÐAHV.; ÞORST. AÐALSTEINSSON, STRÖND v/MÍVATN.
Jfefaifb&íGoúi
Frá skriffinnsku
til hagræðingar.
Þjóðfélaginu er nauðsyn að
setja strangar reglur á ýmsum
sviðum. En reglum vill fylgja
ýmis skriffinnska, eins og geng-
ur. Það versta er, hve oft geng-
ur seint aö hagræða ýmissi skrif
finnsku til hins betra, þó öll-
um sé Ijóst að hverfa þurfi frá
flóknu eftirliti og skriffinnsku til
einíaldara eftirlits og forms.
Sem dæmi um gjörsamlega ó-
fært ástand er bifreiðaskoðun í
Reykjavík og víðar, enda margir
orðið til að gagnrýna það fyrir-
komulag. Allflestir þurfa að
bíða frá einum og allt að þrjá
tíma eftir afgreiðslu. Ettginn éf-
ar, að bifreiðaskoðun er nauð-
syn, meira að segja mjög brýn
nauðsyn, en fyrirkomulaginu
þarf að gjörbreyta, svo að bið
verði helzt engin. Það þarf að
taka það með í reikninginn að
nálega aliir þeir sem bíða.þurfa
eftir afgreiðslu, eru vinnandi
menn úr ýmsum stéttum, svo
biðtiminn er glataðar vinnu-
stundir, annað hvort fyrir þann,
sem bíður eða fyrirtækið sem
hann vinnur hjá. Ljóst er að í
heild er um margar glataðar
vinnustundir að ræða, sem þjóð
in leggur siálfri sér á herðar.
Annað náskylt mái er útgáfa
og framlenging ökuleyfa. Þegar
til dæmis eru framlengd öku-
leyfi, þá þarf að leggja fram
augnvottorð, myndir og sakar-
vottorð. Augnvottorðs og mynd
ar þarf auðvitað að afla sér með
nokkurri fyrirhöfn, og erfitt er
að sjá, hvemig komast megi hjá
því. En sakarvottorð ætti yart
að þurfa að láta sækja eöa
senda. Ctgefandi skírteinis á að
geta kynnt sér, til dæmis í gegn
um síma, hvort viökomandi hef-
ur áður misst skírteini sitt eða
hefur unnið sér það til óhelgi
að hann hafi ekki rétt til fram-
lengingar.
Þannig vill það verða á mörg-
um sviðum, að fólki er gert a.ð
þurfa að afla sér gagna á tfma-
frekan hátt. Eftirlit og reglur
eru nauðsyn, en oft á tíðum má
gera þetta eftirlit miklu einfald-
ara og útgáfa ýmissa leyfa og
skírteina getur í mörgum tilfell-
um verið miklu einfaldari í fram
kvæmd en nú er.
Bifreiðaskoðun þarf að dreif-
ast yfir lengra tímabil til að
gera tilraun til að stytta biðtíma
fyrir bifreiðaeigendur, og einnig
er spuming hvort ekki sé hent-
ugra að láta bifreiðaskoðun fara
fram enn fyrr á árinu, en ekki
teygjast yfir það tímabil, sem
fjöldi verkstæða hefur lokað
vegna sumarleyfa eða vinnur að-
eins með hálfum starfskrafti.
Útgáfa ökuskfrteina gæti til
dæmis farið þannig fram, að
hún ætti sér stað vissa daga í
mánuði, þar sem augnskoðun
gæti farið fram á staönum, og
einnig myndataka. Þá væri líka
fyrirbyggt annað en um nýjar
myndir væri að ræða. Fyrir gæti
legið skrá yfir þá, sem ekki hafa
heimild til endurnýjunar skír-
teinis síns, svo útgefendur skír-
teinis geti fullvissað sig um, að
viðkomandi umsækjandi hafi
rétt til endumýjunar. Þannig
væri reynt að hagræða litils
háttar á þessu sviði, því fljót-
lega kæmi i Ijós hve marga daga
þyrfti að hafa slíka fyrirgreiðslu
í mánuði hverium. Öll afgreiðsla
á sama stað til sparnaðar á tima
sem öilum er dýrmætur í anna-
sömu þjóðfélagi.
Þrándur í Götu.
ERÐLAUNAPENINGAFt
VERÐLAUNAGRIPIR
FÉLAGSMERKI
UÓSASTILUNGAR
BræSurnir Ormsson ht
Lágmúla 9, sími 38820.
(Beint á móti bensínstöö BP viö Háaleitisbr.)
Magnus E. Baldvinsson
Laugavegi 12 - Sími 22804
HOTEL
VARÐBORG
AKUREYRI
SÍMI 96-12600
FERÐAFÖLK! Bjóðum yður
fl. gístingu og greiðasölu
vistlegum húsakynnum á
■ianneiörnu verði.
I , 1 s # { A ■
¥ i •. ■ R? ' í/ff I i
Núgetaallirefgnast KUBA
Þrátt fyrir vísindi og þekkingu nútímans er eitt það fyrirbrigði, sem fremur lítið ér vitað um.
Þetta fyrirbrigði er síldin. Enginn virðist vita hvaðan hún kemur, hvert hún fer, hvort hún veið-
ist og jafnvel ekki hvað fyrir hana fæst, ef hún veiðist. Þatta væri þó allt í góðu lagi, ef. þannig
hefði ekki einmitt hitzt á, að við íslendingar byggjum afkomu okkar að verulegu leyti á síldinni;
Því skiptast hér á skin og skúrir tíðar en víðast annars staðar. — Við Ieggjum mikla áherzlu á
það, að fylgjast með þörfum og óskum viðskiptavina okkar. Þessvegna bjóðum við nú viðráðan-
legri greiðsluskiimála en áður. Til 25. júlí n.k. seljum við KUBA sjónvarpstækin með aðeins 20%
útborgun (kr. 4—6 þús.). Nú geta allir eignast KUBÁ sjónvarpstæki. Kaupið KUBA, það borgar sig.
3JA ARA ABYRGÐ