Vísir - 22.07.1969, Side 16
Þriðjudagur 22. júlí 1969.
AUGLÝSINGAR
AÐALSTR>fTI 8
SÍMAR 1-16-40
1-56-10 og 1-50-99
AFGREIÐSLA
AÐALSTRÆTI 8
SÍMI 1-16-60
SVANS-PRENT
sm» «m i - tiMAi «mk o« m
TRYGGINGr
* * *
LAUGAVEGI 178
SÍMI 21120
7
KostnaSur
á ísafírði
við hafnargerð
unéir áætlun
Beðið eftir harðvibi frá S - Ameriku
9 Hafnargerð á ísafirði geng-
ur vonum framar en þar er sem
kunnugt er verið að byggja nýja
og allstóra hafnargarða. Vísir
hafði í morgun tal af bæjarstjór-
anum. Jóhanni Einvarðssyni og
gerði hann nokkra grein fyrir
helztu atriðum framkvæmd-
anna.
Hann sagöi, að langt væri nú
komið að keyra út garðana og
myndi því væntanlega lokið
skömmu eftir mánaðamót. Tilboöa
hefur verið leitaö í bryggjusmíöina,
og sagði bæjarstjóri, að búið væri
að vinna úr þeim aö mestu. Beðið
er eftir ákveöinni harðviðartegund
frá S-Ameríku og á meöan væri
verið aö undirbúa sökkla o.þ.h.
Hann sagði, að von væri á dýpkun
arskipinu Hák síðari hluta ágúst-
mánaöar.
Jóhann Einvarðsson kvaö áætlað
an kostnaö við framkvæmdirnar
21,3 milljónir króna. Hann gat þess
til dæmis um kostnað, aö keypt
væri efni í fyrirstööugarða, 13 þús.
rúmm., brimvamargarða, 17 þús.
rúmm. og innri garða, 10 þús.
rúmm.
Flaug heimatilbáinni fíugvélinni
beint í sjóinn
Flugvélasmiðurinn ekki af baki dottinn
■ Heimatilbúna flug-
vélin geystist eftir flug-
vellinum á Akranesi og
fólksvagnsmótorinn
gekk eins og bezt varð á
kosið. En þá tók vélin að
rása og sveigja nær sjón
um, og að lokum fékk
flugmaðurinn Sigurður
Arnmundsson ekki leng
ur við hana ráðið og
steyptist hún út af flug-
brautinni og hvolfdi í
sjóinn.
Sigurður hefur í mörg ár ver-
ið að smíða þessa flugvél og
kostaö til nær öllum frístund-
um sínum, auk talsverðra fjár-
muna. Flugvélin er knúin meö
elztu gerð af fólksvagnsmótor,
en flest annað hefur Siguröur
smíðað sjálfur heima hjá sér.
Og síðan rann sú stóra stund
upp að flugkosturinn skyldi
reyndur. Talsvert af fólki frá
Akranesi var komið út á flug-
völl til þess aö sjá hvað úr yröi.
Stóð það allnærri brautinni,
svo Sigurður varð aö taka flug-
fast við fjöruna,
þaö fjarri áhorfendum. að engin
hætta væri á slysum.
Flugferðin endaöi með fyrr-
greindum hætti og lenti Sigurö-
ur í sjónum, undir öllu saman.
Var þá farið að huga að líðan
hans og kom í ljós að hann var
löskuð
— Sennilega er gallinn sá, aö
skrokkurinn er of stuttur, sagði
þessi hugrakki flugmaöur við
fréttamann Vísis. — Ég er að
hugsa um að lengja stélhalann
og athuga, hvort hún hættir
ekki að rása svona við það. Ég
gerj mér vonir um að koma
henni í loftiö næst, þegar ég
reyni.
Það er fátítt, aö íslendingur
reyni sjálfur að gera einhverj-
ar tilraunir eða uppfinningar og
er þetta því athyglisvert fram-
tak hjá Sigurði.
— Ég hef ekki fjárráð til að
kaupa flugvél og því er þetta
eina leiðin sem ég sé til að
fljúga, sagði Siguröur.
'■ TrinirwiiraT—'—>*
Sigurður Arnmundsson stendur hér heíll á húfi í bílskúrnum sínum og heldur á skrúfunni. Á miðri
mynd sér framan á flugvélina, en vængurinn er geymdur uppi til vinstri.
® 150 þúsund krónum var stol
ið úr íbúð einni í Skipholti
aðfaranótt sunnudagsins, meðan
íbúarnir höfðu brugðið sér út
úr bænum um helgina, líkt og
aðrir borgarbúar.
Eigandinn hafði þessa stóru pen
mgaupphæð heima hjá sér, vegna
þess að hann hafði ætlaö a'ð inna
af hendi greiöslu hárrar fjárhæðar
á föstudagskvöld, en þegar það
fórst fyrir og hann þurftj úr bæn-
um á laugardag, vannst honum
ekki tími til aö koma peningunum
í banka.
Þjófurinn eða þjófarnir hafa brot-
izt inn um glugga á bakhlið húásins
og komizt síðan inn í íbúðina.
Ekkert hefur komið fram af pen
ingunum ennþá, né heldur hefur lög
reglan haft hendur í hári þjófanna.
® Dætur fjallkonunnar hafa
gert víðreist síðustu árin og
vekja víða athygli fyrir fegurð
og yndisþokka, sem við höfum
þekkt í meir en þúsund ár.
9 Ein þeirra, Eyrún Herberts
dóttir, prýddi forsíðu Daily
Express nú á dögunum, þar sem
hún var aö sóla sig í einum al-
menningsgarði London. Þar eins
og hér er það veðrið, sem er
efst í hugum manna, en ólíkt
því, sem hér er, er það hita-
bylgja, sem er til umræðu.
• Bretar og raunar fleiri þjóð-
ir hætta aldrei að undrast,
að hér skuli ekki vera .heim-
skautaloftslag á vetrum og það
150
króna
þúsund
þjófnaði
Loks sagði bæjarstjóri, að verkið
gengi vel og frekar á undan áætlun
en eftir. Þegar verkið var u.þ.b.
hálfnaö hefði kostnaður reynzt
vera heldur undir áætluðu meðal-
verði. Hann sagði og, að veður hefði
verið allgott og aðstæður hentugar.
íslenzk stúlka í brezkri
hifabylgju
sem meira er. „Veðrið á íslandi
er mildara en í Bretlandi á vet-
urna“, hafa þeir eftir löndu okk
ar og þeir rengja hana ekki. —
Hún hefur samanburðinn, ekki
þeir.
• Eyrún vinnur á Ferðaskrif-
stofu íslands í Piccadilly.
Vilhelmínumálið
er í rannsókn
• Saksóknari ríkisins mun innan
skamms fá til meðferðar mál
það, sem risið er út af ungbaminu
Vilhelmínu Guðmundsdóttur, sem
fæddist með klofinn hrygg og
tekin var af bamadeild Landspít-
alans og flutt til meðferðar á
sjúkrahús í Kaliforníu. Yfirlæknir
barnadeildarinnar hafði krafizt S
rannsóknar á málinu.
• Sakadómur Reykjavíkur hefur fj
framkvæmt rannsóknina aö .)
beiðni dómsmálaráðherra og mun á
henni senn lokið. Hefur hún beinzt j
að tveimur atriðum, annars vegar J
að meðhöndlun barnsins á barna-
deild Landspítalans og hins vegar j
að forsendum frétta í Vfsi af þessu
máli. Munu gögnin senn verða send
til saksóknara, sem sföan úrskurð-
ar, hvort eitthvað verður gert í
málinu frekar.