Vísir - 13.08.1969, Qupperneq 2
V1S IR . Miðvikudagur 13. ágúst.
Margir virðast kaiiaðir til
að verða golfmeistarar
— en fáir útvaldir — Pétur Bj'órnsson vakti
mestu athyglina / gærdag, þegar golfmenn
fengu „forsmekkinn" af landsmótinu
- glæsilegt vallarmet
□ „Það er útilokað að segja nokkuð um hver
meistaraflokksmanna fer með sigur af hólmi“,
sögðu sérfræðingarnir í Grafarholti í gær, en þá
fengu menn rétt forsmekkinn af þeirri miklu
keppni, sem golfmenn heyja nú næstu dagana. —
Einn mjög fær golfleikari sagði að sér kæmi ekki á
ðvart þótt nöfnin, sem kæmu til greinu væru 12—16
talsins.
Annar, vanur keppnismaöui
sagði: „Þeir reynslulitlu koma
vart til greina, þeir detta niður
á dag og dag góðan, en á milli
eiga þeir slæman leik. Það sem
gfldir er að vera jafn alla dag-
ana“.
Þaö sem örugglega vakti
mésta athyglina í gærdag- var
það þegar næst síðasti hópur-
inn í klúbbakeppninni kom inn
í golfskála, Pétur Björnsson var
ekki meðal „hinna þriggja stóru“
i síðasta hópnum, en Pétur kom
þó með nýtt vallarmet og hafði
bætt met Einars Guðnasonar
um 3 högg, hann sló 18 holum-
ar á 73 höggum, sem er 4 meira
en par vallarins, en þegar for-
gjöf Péturs er tekin til greina
er hann vitanlega með nettó-
högg langt undir pari. Völlur-
inn er þó alls ekki auðveldur,
flatimar flestar erfiðar yfirferð
ar.
Þorbjöm Kjærbo, íslandsmeist
arinn í fyrra, virðist eiga erfiða
daga framundan, ætli hann aö
verja titil sinn, sem hann hef-
ur áreiðanlega í hyggju, þvi
hann er mikill keppnismaður. 1
gær fór Kjærbo völlinn á 80
höggum, Gunnar Sólnes á 78
og Sævar Gunnarsson á 77, en
tveir þeirra síðamefndu keppa
fyrir Akureyri.
Golfkljbbur Reykjavíkur
vann klúbbakeppnina á 473 högg
um, Akureyri fór völlinn á 502
höggum, Suðurnesjaklúbburinn
á 507, Vestmannaeyjar á 537,
Keilir á 539 og Nesklúbburinn
á 582, en Pétur Bjömsson, aðal-
maður Nesklúbbsins og Gunnar
Sólnes keppa enn undir öðmm
merkjum, Gunnar fyrir Akureyri
og Pétur fyrir GR.
ídag hefst sem sé keppnin
í Grafarholti og er reiknaö meö
að fyrstu keppendur í meistara
flokki, sem eru alls 32, fari af
stað í hádeginu, en keppni fyrsta
dags á að ljúka milli 18 og 19
í kvöld.
Auk nafna sem hér á undan
eru nefnd má minnast á menn
eins og Óttar Ýngvason og Ólaf
Bjarka Ragnarsson, sem em báð
ir þekktir fyrir keppnishörku
og báðir hafa reynsluna í harðri
keppni íslandsmótsins, hinn
unga Hallgrím Júlíusson frá
Vestmannaeyjum, sem hefur get
iö sér gott orð, Gunnlaug Ragn-
arsson, sem hefur staöið sig vel
að undanförnu, ogreyndarmætti
fleiri upp telja, sem til greina
gætu komiö sem meistarar.
INNIHURÐIR
Framleiðum allar gerðir
af innihurðum
Fullkuminn vélahustur—
ströng vöruvundun
Hafiö per synt
200 metrana?
Keilubraut
sett upp í Reykjavík
SUSUUflHR EIÍASSON M.
Auðbrekku 52-sími 41380
1
I. DEILD
KEFL A VÍKURV ÖLLUR:
Í.B.K. - FRAM
KL. 19.30
Mótanefnd
• Svo sem kunnugt er var Tóm-
sltundahöllin opnuð á síðastliðnu
sumri og rekin i tilraunaskyni um
skeið með kappakstursbrautum fyr-
ir smábfla eingöngu. Áform eigenda
félagsins var frá upphafi að auka
fjölbreytni leiktækjaá staðnum,yrði
tilraunarekstri þessum vel tekið
og þá sérstaklega að koma upp
keilubrautum (bowling), en það er
ein vinsælastatómstundaiðjamanna
um víða veröld, og má geta þess
til gamans, að sögu keiluspils í ó-
trúlega svlpaðri mynd þess, sem
það nú er, má rekja um 7 þúsund
ár aftur í tímann.
Á daginn kom, að aðsókn var
mikil að Tómstundahöllinni og und-
irteknir fólks góðar. Var því ákveð
ið að hrinda hinum upphaflegu hug
myndum í framkvæmd og hafa nú
miklar og gagngerar breytingar far
ið fram á tækjakosti fyrirtækisins,
auk þess sem húsakynni þess hafa
veriö stækkuð og endurbætt. S. 1.
sunnudag var Tómstundahöllin,
sem er til húsa á homi Laugavegar
og Nóatúns, síðan opnuð að nýju
og er tækjakostur fyrirtækisins nú
4 28 feta keilubrautir, knattspymu-
og körfuboltaspil, kúluspil og önn
ur þau leiktæki, sem vinsælust
erú erlendis. Eru öll tæki þessi raf
knúin og sjálfvirk fyrir 10 kr. mynt
ina. Mikið er um staði sem þenn
an edendis, þar sem þeir njóta ein
dæma vinsælda. Er það því von
forá$amanna Tómstundahallarinn-
ar, að svo verði einnig hér, ekki
sízt með tiliti til hinna fjölbreyttu
möguleika, sem hér eru á þessu
sviði, Auk þessa vinna eigendur
Tómstundahallarinnar aö því að
koma upp tækjum sem þessum víða
um landið, og er þess að vænta,
aðeinhver tæki verði t. a. m. komin
í gagnið á Akureyri innan tíðar. —
Tómstundahöllin verður opin frá
kl. 14.00 til 23.00 dag hvem og
gildir þar 16 ára aldurstakmark.
Til að útiloka yngstu kynslóðina
ekki með öllu, verður einnig opið
fyrst um sinn á laugardögum og
sunnudögum frá kl. 9.30 til 12.30
fyrir börn yngri en 16 ára. Aðaleig
endur Tómstundahallarinnar eru
Hlöðver Öm Vilhjálmsson og Óli
A. Bieltvedt
„Hefði átt
að gerast
á morgun"
sagði Pétur Bj'órnsson
eftir stórglæsilegan
hring i Grafarholti
/ gær — bætti vallar-
metið um 3 högg
„Þetta hefði átt að gerast á
morgun", sagði Pétur Björns-
son, eftir að hann hafði leikið
18 holu hringinn f Grafarholti
á 73 höggum, sem er frábær
árangur. „Auðvitað reyni ég að
sanna það að þetta hafi ekki
verið einskær heppni“, sagði
Pétur, „ég veit að ég er í góöri
æfingu og ég reyni aö gera
eins vel og ég get næstu daga“.
Reyndar var Pétur ekki allt-
af heppinn í keppninni, lenti í
erfiöleikum eins og aðrir. Hins
vegar átti lukkan það til að
grípa inn í, a. m. k. í eitt skipt-
iö, þegar boltinn rakst utan f
urð utan vallar og spýttist lang
ar leiöir inn á völlinn aftur. Þann
ig er golfið höpp og óhöpp á
víxl.