Vísir - 14.08.1969, Qupperneq 7
V í S I R . Fimmtudagur 14. ágúst 1969.
7
morguii
útlöiid í morgun
útlönd i morgun.
útlönd i rao rgun
útlönd
Hafnað uppástungu írska lýðveldisins
um friðargæziusveitir til N-írlands
Barizt í gær fram eftír nóttu í 7 borgum N-írlands
B Franskutr maður fulltrúi hjá
NATO var handtekinn í Paris fyrir
nokkrum dögnm, sakaöur um alvar
leg brot á öryggislöggjöfinni. Á til
kynningu franska innanríkisráðu-
neytisins vau' sagt, aö hann yrði
leiddur fyrir sérstakan dómstól sem
fallar um slik mál. Nánara um starf
mannsins í aðalstöð NATO í Bruss
el, var ekki ti’greint, né heldur var
birt nafn hans.
H Sovézki hershöfðinginn Alexei
Jepishev, sem kom fyrir skemmstu
til Prag sem leiðtogi hernaðarlegr
ar sendinefndSr, hélt í gær ófram
viðræöum við dr. Husak, flokksleiö
íoga Tékkóslóvakíu, Svoboda rík-
isforseta og Dzur landvarnaráð-
herra. Otvarpiö i Prag segir, að til
umræöu séu „sameiginleg hags-
munamál“ og fari viðræður fram
„innan ramma Varsjárbandalags-
ins“. Það er öllum vitanlegt, segir
í NTB-frétt, að nefndin kom í þeim
tilgangi að girt yrði fyrir uppþot
á innrásardaginn 21. þ.m.
ffi í Kaupmannahafnarfrétt segir
að tekin séu til starfa í Danmörku
samtök, sem nefnist „Frelsisbanda
lagið“ 1 þeim tilgapgi að greiöa fyr
ir þeim, sem óslca dvalar- og at-
vinnuleyfis í Rhodesíu. Samtökin,
en í þeim mun ekki fjölmennur hóp
ur, munu hafa tengslí við stjórnina
í Rhodesíu. Samtökin segja það
ekki tilgang sinn að hafa nokkur
afskipti af innaniandsmálum Rhod-
esín, en „stofnað hafi verið í fyrsta
sinn síöan Rhodesía lýsti yfir sjálf
stæði 1965 — til opinberra tengsia
milli Rhodesíu og Skandinavíu.“
Tíu norsk útgeröarfyrirtæki
sem gert hafa út um 100 báta til
síidveiða í norðurhöfum (Islands-
sildfisket) hafa til athugunar aö
leita opinbers stuðnings. Síldar-
bátar viö Bjarnarey hafa ekkert
aflað vikum saman og flestir bát-
anna nú í þann vegrnn að byrja
aðrar fiskveiðar. Ekki er talið von
laust að síldveiðarnar glæðist í
september.
fl Öeirðir blossuðu upp aftur
í gærkvöldi í Londonderry
og síðdegisblöðin birtu um það
fréttir undir fyrirsögnum slík-
! um sem þessum: NÝ ORRUSTA
í LONDONDERRY, BOGSIDE í
UMSÁTRI.
Óeirðir höfðu einnig brotizt út
í nokkrum borgum öðrum, þar sem
ráðizt var gegn lögregiustöðvum
og varpað bensínsprengjum. Víða
gat að líta logandi hús í London-
derrv og í hinum borgunum sumum
voru kveikt bál á götunum og hjól-
barðar og fleira notaö sem elds-
neyti, og yfir eldlínuna var svo
varpað bensínsprengjum og grjóti.
I Londonderry greip lögreglan tii
skotvopna í fyrsta sinn, en aðeins
í aðvörunarskyni. Táragas var not-
að og beðizt afsökunar af opinberri
háifu, að til þess hefði oröiö aö
grípa. Þing Noröur-írlands hefur
verið kvatt saman til aukafundar.
Lynch forsætisráðherra Eire —
Irska lýðveldisins — flutti sjón-
varps- og útvarpsræðu í gærkvöldi
og skoraði á brezku stjórnina að
fara fram á það, að Sameinuðu
þjóðirnar sendu friðargæzlusveitir
til Norður-írlands, þar sem stjórn
landsins gæti ekki lengur haldið
uppi friði og ró í landinu, og einnig
krafðist hann þess, aö lögreglan
á Norður-írlandi hætti árásum sín-
um á róniverskt-kaþólskt fólk. For-
sætisráðherrann kvað stjórn lýð-
veldisins ekki lengur geta horft á
það, sem væri að gerast í Norður-
írlandi án þess að láta til sín taka,
og kvað framtíðarlausnina hljóta
að veröa sameiningu írlands.
James Chichester-Clark svaraði
þegar ræðu Lynch og kallaði upp-
ástungu hans hjákátlega og ræðu
hans grófa íhlutun um mál Norður-
trlands.
Formælandi brezku stjórnarinnar
sagði í gærkvöldi, eftir aö Lynch
hafði flutt ræðu sína, að það væri
fyrir utan verksvið Sameinuðu þjóð
anna að hafa afskipti af málinu.
Lynch skýrði frá því í ræðu
sinni, aö ambassador lýðveldisins
hefði verið faliö að gera grein fyr-
ir tiliögunni, og var sagt síðar í
fréttum frá New York, að ambassa-
dorinn hefði gert U Thant grein
fyrir afstööu stjórnar sinnar, en
Frá Samvinnuskólanum
Bifröst
Samvinnuskólinn Bifröst er fullskipaður vet-
urinn 1969—1970. Væntanlegum nemendum
er gefinn kostur á að tryggja sér skólavist
veturinn 1970—1971. Umsóknir skulu hafa
borizt fyrir 1. september næstkomandi. Um-
sóknir sendist skólastjóra að Bifröst eða Bif-
röst-fræðsludeild, Sambandshúsinu, Reykja-
vík. Þeir sem áður hafa sótt um skóiann, en
ekki hlotið skólavist, eru vinsamlega beðn-
ir að endurnýja umsóknir sinar, hafi þeir hug
á aö hefja nám við skólann haustið 1970.
Skólastjóri.
ekki lagt fram formlega tillögu
um, aö friðargæzlusveitir vrðu
sendar.
F- rr í gær flutti James Chichest-
er-Ciark útvarpsræðu og bað menn
gæta stillingar.
Meöai 7 borga, sem rteiröir urðu
i í gær, eru Beifast, Armagh og
Irmiskillen og Newry, þar sem vopn
aöir unglingahópar náðu miöhluta
borgarinnar á sitt vald um sinn.
Kl. 7 í morgun var sagt í brezku
fréttaútvarpi að í morgunsárið
hefði allt verið með nokkurn veg-
inn kyrrum kjörum á Norður-ír-
landi.
Callaghan innanríkisráðherra Bret
lands, sem var í leyfi utan borgar-
innar, ræddi við Wilson forsætis-
ráðherra, sem einnig er í sumar-
leyfi, um ástand og horfur á Norð-
ur-írlandi, og varð að ráöi, að Cail-
aghan færi þegar til London og biði
þaðan frekari fregna frá N-Irlandi.
Londonderry í gær:
Lögreglan i Londonderry geröi
innrás í Bogside (kaþólska hverfið)
i gt-. og beitti kylfum, táragasi og
vatnsfallbyssum, eftir aö nokkur
kyrrð virtist komin á snemma í
morgun eftir bardagana J fyrradag
og fyrrinótt. Þegar birtrífertí'lb#'
arnir að manna götuvirkin að nýju
og að bvggja ný. Lögregluliðið varð
blátt áfram aö sprengja sér leiö —
eins og það er orð;.ð — inn í hverf-
ið — og var þetta í fyrsta skipti 1
hálfa öld, sem slíkt hefur gerzt í
brezkri eða norður-írskri borg.
Ófagurt var um að litast í hverf-
inu eftir hina bióðugu bardaga, sem
geisað höfðu, rjúkandi rústir, log-
andi götuyirki, eyðilagðir bilar
og götur stráðar glerbrotum. Al-
gert öngþveitisástand var ríkjandi.
Eins og áður hefur verið getið
særðust í átökunum á annað hundr-
að manns, þar af yfir 90 lögreglu-
menn. í mestri hættu var lög-
reglumaður, sem varð fyrir bensin-
sprengju, og var það snarræði fé-
laga hans að þakka, að honum var
fo. Z:.5 frá að verða „brennandi
blys“.
Bernadette Devlin sakaði í gær lögregluna í Londonderry um að
hafa gripið til gasnotkunar gegn uppreistarmönnum — í seinustu
ftéttum er farið að kalla rómversk-kaþólska, sem berjast mann-
réttindabaráttunni, uppreistarmenn. — Mótmælendur saka ung-
frú Ðevlin um að hafa hvatt til uppreistar.
Rússar og Kíu verjar berjast
á landamærum Smkiaag
© Enn var barizt á landamærum
Kína og Sovétríkjanna, er síðast
fréttist, en klögumálin gengu á víxl
um upptökin og fréttum bar ekki
saman um hvar barizt væri.
í fréttum frá Moskvu var sagt
* Tunglfararnir
hylltir i Hew York
og Chicago
TUNGLFARARNIR, Armstrong,
Aldrin og Collins, voru hylltir í
gær í New York af 4 milljónum
manna, að því er gizkaö er á,
er þeir óku eftir Broadway.
„Konfetti" og marglitum papp
írræmum rigndi yfir þá og kon-
ur þeirra úr gluggum skýjakljúf-
anna.
í fylgd með geimförunum var
Lindsay borgarstjóri og Paine,
I vfirframkvæmdastjóri geimrann
sóknastofnunarinnar.
Hvarvetna blöktu fánar Banda
ríkjanna og Sameinuöu þjóö-
anna.
I ráöhúsi New York-borgar
heiöraði Lindsay borgarstjóri
tunglfarana meö gullmerki borg-
arinnar, sem er æðsta heiðurs-
merki sem húr, veitir.
Frá ráöhúsinu var ekið tii að-
I alstöðva Sameinuðu þjóðanna
þar sem U Thant og Armstrong
ávörpuðu mannfjöldann.
frá átökum á landamærum Kazh-
akstan, en í kínverskum fréttum,
að um 400 manna sovézkt liö hefði
ráðizt inn í Sinkiang, stutt skrið-
drekum og þyrlum, og fellt marga
menn. í fréttum frá Kína var því
og haldið fram, að Rússar væru að
auka liö sitt á þessum sióöum.
I fréttum frá Moskvu voru Kín-
verjar sakaöir um upptökin og að
mannfall hefði oröió, en ekki faríð
nánar út í það.
Talið er, að hetta séu mestu
landamærabardagar þar eystra síð-
an í marz.
Lundúnaútvarpið minriti á þaö,
er sagt var frá þessum atburðum,
aö þaö væri í Sinkiang, sem Kín-
verjar gerðu tilraunir sínar meö
kjarnorku.
Útboð
Landsvirkjun óskar hér íneð eftir tilboðum í
lagningu háspennulínu frá Búrfellsvirkjun að
Sigöldu og Þórisvatni samtals’um 47 km. —
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Lands-
virkjunar, Suðurlandsbraut 14, Reykjavík, frá
og með föstudegi 15. ágúst gegn 1000,— kr.
skilatryggingu. Tilboðum skal skilað á sama
stað fyrir kl. 14.00 hinn 25. ágúst n.k., en þá
verða þau opnuð og lesin upp að bjóðendum
viðstöddum.
Reykjavík, 14. ágúst 1969.
Landsvirkjun
srraa