Vísir - 28.10.1969, Blaðsíða 2

Vísir - 28.10.1969, Blaðsíða 2
VISIR . Þriðjudagur 28. október 1969. Getraunaspá Vísis - eftir HALL SIMONARSON UMSETNINGIN hjá getraununum vex stöðugt og enginn aft- urkippur kom í starfsemina, þótt getraunimar séu í hverri viku, en margir óttuðust það í fyrstu. Hinir stóm „pottar“ undanfarið eiga eflaust þátt I því, en þeir stafa aftur af þvi hve úrslitin hafa verið óútreiknanleg í ensku knattspymunni síðustu vikumar — oftast um helmingur leikjanna á seðlin- um jafntefli. Það hefur hins vegar gert það að verkum — öfugt við það, sem hér er — að vinningar á Bretlandseyjum hafa verið með lægsta móti, en vinsælasta getraunaformið þar er að „tippa“ á jafnteflisleiki. Og þá em það leikirnir 1. nóvember. Allan Ball, einn bezti knattspyrnumaður Englands, sækir hér að Gemmel frá Skotlandi í leik. KANGASNIEMI BÆTTIHEIMS- MET SITT • Finnska kempan Karlo Kang- asniemi setti nýtt heimsmet í einni grein lyftinga á sunnudaginn, hann pressaöi 180 kg. i milliþunga- vigt, en fyrra heimsmetið átti hann sjálfur, það var 177.5 kg. Gerðist þetta á móti i Lahtis í Finnlandi. vlangasniemi setti einnig heims- met samanlagt í milliþungavigt, lyfti alls 530 kg. (180-160 og 190 kg.) en bezt átti hann 527.5 kg. áöur og var þaö heimsmet. 1 bantamvigt lyfti Erkii Anttila 101 kg. í aukatilraim í pressunni. Þessi árangur er einu kílói betri en Noröurlandametið. 1 millivigt náöi Juhani Mursu ágætum árangri, lyfti samanlagt 447.5 kg. Bumley — Newcastle 1 Burnley hefur unniö tvo síð- ustu heimaleikina og skoraö átta mörk í þeim og ætti að ráða vel við Newcastle. Úrslit tveggja síðustu innbyrðis leikja þessara liða 1—0 og 2 — 0 fyr- ir Bumley, en 1967 vann New- castle með 2 —0 í Bumley. New castle hefur aðeins unnið einn leik af 9 á útivelli i haust, en gert þrjú jafntefli. Chelsea — Coventry 1 Chelsea hefur ekki tapaö á heimavelli sínum í London 1 haust — og unnið þrjá af síð- ustu fjórum leikjum þar. 1 fyrra vann Chelsea I þessum leik 2 — 1, en jafntefli varð árið áð- ur 1—1, en það var fyrsta ár Coventry í 1. deild. Coventry hefur þrívegis tapað á útivelli I haust — unnið. 4 sinnum, 2 jafntefli. C. Palace — Arsenal 2 Bæði þessi lið eru frá London og það merkilega er, að þau hafa aldrei leikið saman I deildakeppninni áður. Arsenal er eitt frægasta lið Englands, en Palace leikur nú I fyrsta sinn I 1. deild. Arsenal hefur náð betri árangri á útivelli, en heima i haust, og þrátt fyrir lé- lega leiki undanfarið er liðið sigurstranglegt gegn nýliðun- um. Derby — Liverpool X Langt er síöan þessi lið hafa leikið saman eða frá því þau vom bæöi I 2. deild keppnis- ,Fjárausturinn" i iþróttastarfið: Glímumenn fá 40.50 kr. styrki til starfseminnar 9 Það er mjög almennt að fólk, sem ekki þekkir náið til íþróttanna I landnu og þess starfs, sem fram fer innan félaga og iþróttasam- handa, segi eitthvað á þessa leiö: „Alveg er ég undrandi á þessum fjáraustri af almannafé i íþóttim- ar“ Þetta er svo ótrúlega almenn skoöun, að engu taii tekur. Þess vegna er líklega hollt að líta á reikninga eins lítils sérsambands, Glímusambands íslands, sem er sér- samband þeirra íþróttamanna, sem stunda þjóðaríþróttina, Islenzku glímuna, en virkir þátttakendur innan sambandsins eru samkvæmt slðiwtu sktfrslum samtals 862, þar s: 443 16 ára og eldri, en 418 undir 16 ára aldri. Otbreiðslustyrkurinn, sem ÍSÍ gat veitt á síðasta ári var 30 þús. krón- ur, en rekstrarstyrkur ÍSÍ var 5000 krónur. Ævifélagagjöld námu þrem þúsundum og vaxtatekjur voru 844.73 krónur. Þá er einn liður eftir, 30 þús. króna tekjur af sjón- varpsþáttum. Sannarlega ber rekstrarreikning- ur GLl ekki vitni um bruðl með tæpar 70 þús. kr., sem skipast I svo marga staði. Kostnaður vegna glímukennslu var eðlleg stærsti liðurinn, 38.678 krónur og hefur þeim peningum áreiðanlega verið skynsamlega varið, — en nægir þó alls' ekki, þama þarf mun stærra átak tfl. En engu að síður sýna reikning- arnir 26 þús. króna halla og niöur- stöðutölur rekstrareiknings eru aö- eins 95.064 krónur og 14 aurum betur. Samband með 862 meðlimi fær þvl aðeins 40 krónur og 50 aura á mann til jafnaðar til að reka starf- semi sambandsins. Engum dylst hugur um hversu nánasarlegar þessar upphæðir eru. Að fé sé „ausið“ I íþróttastarfiö eru móðg- andi ummæli. Hinsvegar má alveg taka undir það álit margra mætra mann, aö hið opinbera fjárfesti ó- skynsamleg lítið I heilbrigðum þjóðfélagsþegnum en það verður aðeins gert með því að gera íþrótta- hreyfingunni kleift að reka eðlilega starfsemi — og þar er ekki um neitt að ræða annað en peninga til að svo megi verða á dögum vaxandi efnishyggju. tímabilið 1961-1962. Jafnteflis legur leikur en rétt er þó að hafa I huga, að Derby hefur tap að tveimur síðustu leikjum sín- um heima. Liverpool hefur tap- að tveimur leikjum á útivelli I haust, fyrir Manch. Utd. og Newcastle, gert 3 jafntefli og unnið 3. Everton — Nottm. Forest 1 Þetta ætti að vera einn af þessum öruggu leikjum, ef hægt er að tala um nokkuð ör- uggt I enskri knattspymu. Ever ton hefur unnið alla 8 leiki sina á heimavelli I haust. Þrfr síð- ustu leikir þessara liða á Goodi son Park, leikvelli Everton I Liverpool, fóru þannig 2 — 1, 1—0 og 0—1, eða sigrar fyrir Everton tvö síðustu árin. Ipswich — Manch. City X í fyrra sigraði heimaliðið á Highfield Road með 2—1 — en var árið áður I 2. deild. Ipswich hefur aðeins unnið 2 leíki heima I haust — en gert 3 jafntefli I 8 leikjum. Allt jafnt hjá City á útivelli, 3 sigrar, 2 jafntefli og 3 töp og eftir þennan leik gætu tölumar orðið 3-3-3. Manch. Utd. — Stoke 1 I fyrra varð jafntefli mflli þessara liða á Old Trafford 1—1, árið áður vann United 1—0 og 1967 varð jafntefli 0—0. amkvæmt þvl ætti Unied að vinna nú! Manch. Utd. tap- aöi tveimur fyrstu heimaleikj- um sinum I ágúst, en hefur ekki tapað síðan. Stoke hefur slakan árangur úti — aðeins 5 stig af 18 mögulegum. Southampton — West Ham X Southampton hefur gert 5 jafntefli heima I haust og leikir þessara liða undanfarin tvö ár I Southampton 2—2 og 0—0. West Ham hefur ekki unnið leik á útivelli — gert '2 jafntefli I 7 leikjum. Sunderland — Leeds Utd. 2 Leeds hefur ekki tapað I Sund erland undanfarin ár — gerði þó reyndar jafntefli 1968 2—2. Sunderland er I neðsta sæti, og hefur aðeins unnið einn leik heima I haust — 5 jafn- tefli — 3 töp. Leeds hefur að- eins tapað einum leik, gegn Everton og ætti að sigra I þess- um leik. Tottenham — Sheff. Wed. X Það er sama sagan hjá Tott- enham og Arsenal — bæði frá Norður-London — að bæði lið- in hafa náð betri árangri á úti- velli en heima 1 haust. Totten- ham hefur tapað 4 leikjum heima, unnið 3 og gert eitt jafn tefli, en Sheff. Wed. hefur tví- vegis gert jafntefli á útivelli f haust. 1 þessum leik l fyrra vann Sheffield með 2 — 1 — en árin tvö á undan vann Totten- ham með sömu markatölu. Wolves — W.B.A. X Mjög stutt er á milli þessara borga, sem eru í Miðlöndum Englands, rétt norðan við Birm- ingham- Jafntefli líklegt 1 fyrra vann Albion 0—1, en árið áður varð jafntefli 3—3, Úlfamir hafa gert 5 jafntefli heima í níu leikjum, tapað einum leik. Sheff. Utd--Blackbum 1 Þama mætast tvö af efstu Jið unum 1 2. deild. 1 fyrra vann Sheffield 1 þessum leik 3—0 og hefur náð ágætum árangri á heimavelli í haust, unnið sjö leiki, gert eitt jafntefli og tap- að einum. Blackbum hefur unn- ið tvö leiki á útivelli, gert 4 jafntefli I 8 leikjum. —■ hsím. Staðan f 1. deild er nú þessi: Everton 17 14 2 1 39-15 30 Liverpool 17 9 6 2 34-18 24 Derby C. 17 8 5 4 24-13 21 Leeds Utd. 15 7 7 1 26-15 21 Man. City 16 8 4 4 26-16 20 Wolves 17 6 8 3 26-22 20 Coventry 17 7 5 5 21-19 19 Chelsea 16 5 8 3 18-16 18 Man. Utd. 17 6 7 5 26-25 18 Stoke City 17 6 6 5 26-27 18 Tottenham 17 7 4 6 22-24 18 Nottm. For. 16 3 9 4 18-21 15 Bumley 17 4 7 6 21-25 15 Arsenal 17 3 9 5 13-18 15 Newcastle 17 5 4 8 17-17 14 West Ham 16 4 5 7 20-23 13 W.B.A. 17 4 5 8 21-26 13 C. Palace 16 2 8 6 16-24 12 Ipswich 16 3 5 8 15-23 11 Sheff. Wed. 17 3 5 9 17-30 11 South’pton 17 2 6 9 23-35 10 Sunderland 17 2 6 9 12-29 10 Marokkó í HM-urslitin 9 Marokko er tíunda þjóöin, sem náði sér í eitt af 16 sætunum i úrslitakeppni HM í knattspymu í Mexikó næsta sumar. Marokko vann Sudan I Casablanca með 3:0 og á nú aðeins eftir leik við Nígeríu, en sá leikur skiptir ekki lengur máli. • Marokko hefur 5 stig eftir 3 leiki, Sudan 3 stig eftir 4 leiki og Nígería 2 stig eftir 3 leiki. PRENTHN-GVHING Prenlum tyrir einslaklinga og iyrirleeki Áherzia ISgð á vandaða vinnu LIIMDARPREIMT- SF ; KLAl'PARVTIG tl (liorniKlap|>irsl.oo ti-iUarij.)SlMI ?I877

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.