Vísir - 28.10.1969, Blaðsíða 4

Vísir - 28.10.1969, Blaðsíða 4
Heríerð gegn sígarettureyking- um í dönskum framhaldsskólum • .......................................................... Spor úr Charleston. Charleston var vinsaell dans, „þegar amma var ung“, eins og táningarnir segja. Er því ekki að efa að margir aðdáendur hans urðu fyrir miklum vonbrigðum, er andvígismenn dansins uröu ofan á í baráttunn- gegn honum en helzta slagorð þeirra var, að ef þetta „ósiðiega sprikl“ yrði ekki tekið föstum tökum þegar í upphafi, við hverju mætti þá búast í framtíð- inni. George Best, stjarná Manchest- er United, fær nú -bráðlega sam- keppni á fótboltaveUinum frá sinni tilvonandi ektakvinnu, Evu Haraldsted. Hún spilar nefnilega meö nýstofnuðu knattspyrnufé- lagi, sem hefur þaö sér til ágætis og jafnframt sérstöðu að inni- halda einungis kvenfólk. George Best og félagi hans f Manchester United, 'Allan Ball, þjálfa stúlkurnar ókeypis, en kona Allans er einnig í liðinu og þar má einnig finna eina feg- urðardrottningu, Jennifer Lowe að nafni. Liðið er styrkt af bóka- firma nokkru. Ætlunin er að píurnar keppi á ýmsum kappleikj um sem haldnir eru til ágóða fyr- ir góðgerðastarfsemi, og mót- herjar þeirra frá ýmsum sjón- varps- og útvarpsstöövum. Hér fyrir nokkrum árum var mikil herferð gegn sígarettureyk- ingum í íslenzkum skólum. Var meöal annars sýnd áhrifamikil kvikmynd um lungnakrabba, sem afleiðingu af sígarettureykingum og örlög þess er meinið hlýtur, en það er því miöur í mörgum tilfell- um dauðinn, þar eö sjúkdómur- inn uppgötvast venjulega það seint að fá ráð eru til bjargar. í Danmörku hafa þeir nú gefiö út mjög fræðandi bók um síga- rettureykingar og alvarlegar af- leiðingar, sem þær geta haft fyrir reykingafólk. Er ætlunin, áð kenn arar í framhaldsskólum fái þessa bók í hendur ásamt litprentuðum myndlista, sem þeir eiga að nota við fræðslu sína um hættu og skaðsemi sígarettureykinga. Eru meðal myndanna til dæmis nákvæmar myndir af sundur- skorinni lifur, sem krabbinn hef- ur lagt undir sig og eyöilagt, einnig er þar að finna eftirminni- lega mynd af litdökku lunga, skemmdu af krabba af völdum sígarettureykinga. Myndunum fylgja svo ýmsar ógnvekjandi upplýsingar eins og til dæmis, aö 7000 deyja árlega í Danmörku úr lungnakrabba af völdum sígarettureykinga. Er það von útgefenda bókarinn ar, að koma megi í veg fyrir, að jafnmargir unglingar byrji á reyk ingum, og komið hefur í ijós, og svo ungir sem raun ber vitni og í jafnríkum mæli, þegar þeir nú fái að vita um skaðsemi og hætt- ur þær, er því geti fylgt. Jafnvel vonast þeir einnig til að þeir sem þegar eru komnir upp á lagið hætti. , V Lifur eyðilögð af krabbafrumum. Mynd þessi er í litum í kennslubókinni. Enn fjölgar á dauðsfallaíista eiturlyfjaneytanda hans bíöi ef til vill etthvað betra en þeir hafi kynnzt í sínum sæl- ustu eiturlyfjavímum. Listi ungs fólks í Danmörku sem hefur látizt af völdum eitur- lyfja telur nú tíu nöfn. Fólk þar í Iandi hefur velt því fyrir sér, hvernig hinum, sem eftir I.ifa en neyta eiturlyfja að staö- aldri, verði við að frétta í. sífejlu. um dauösföll félaga sinna; vitandi það að meö sérhverri nýrri sprautu eru þeir ef til vill að binda enda á líf sitt. Blað eitt þar í landi fór því á stjá til að kynna sér andrúms- loftið, er ríkti meðal hinna eftir- lifandi eiturlyfjaneytenda. Flestir af þessum neytendum hafa stofn- að með sér klúbba, og koma þeir saman í húsnæði klúbbsins, og aðstoðar þá hver og einn félaga sína eftir beztu getu við að inn- byrða eitrið, aðallega er því sprautaö inn í æð, en lyfiö er fljótvirkast þannig. Klúbbfélagar virtust ekki láta á sig fá, þó aö frétzt hefði nýlega Hér sjáum við George Best segja kærustunni sinni, Evu Haraldsted til við markspyrnu. um lát félaga, sem sannanlega höfðu látizt af notkun eiturlyfj- anna. Virtist lítið um þaö rætt félaganna á meðal, enda þótt allt- af yæri til einn og einn, sem tók síika hluti nærri sér, éinkúm’ef þeir. sjálfir voru í slæmu sálar- og Iíkamsástandi. Hins vegar væri algengasti hugsanagangurinn sá, aö félaginn væri dauöur, búinn að vera, og þaö væri hins vegar gleymt næst, er maður sprautaði eitrinu í sig. Það kom fram i þessari könn- unarherferð hjá blaðinu, að félag- arnir voru blátt áfram undrandi yfir að ekki skyldu dauðsföllin yfirleitt vera fleiri, þar sem flest ir af þeim sem byrja á neyzlu lyfjanna hafi ekki hugmynd um, hvað þeir eru með í höndunum, þekktu styrkleika lyfjanna ekki, og færi því oft illa. Einnig væru brögð að því að lyfin væru „úld- in“ er seljandinn léti þau af hendi. Einn lýsti áhrifunum þann ig er hann hafði sprautað „úldnu“ ópíunt í handlegg sinn, að líkast væri sern hann ætlaöi að rifna af. Yfirleitt voru eiturlyfjaneyt- endumir sammála um það, aö þeir vildu gjarnan vinna, en ein- ungis við og við. Þeir treystu sér ekki til aö mæta reglulega til yinnu, þar sem þaö krpfðis.t bæöi samastaðar og vekjaraklukku, enda væri erfitt fyrir manneskju, sem hefði vanið sig á að vera á fötum, meðan almenningur svæfi að fara aö breyta því allt í einu. Þaö væri heldur ekkert aðkallandi •fyrir þá að útvega sér fasta at- vinnu, þar sem mjög auövelt væri að fá peningaöastoð hjá „bænum“ eins og félagamir kalla það. Félagamir hafa litlar áhyggj- ur af því að neyzla þeirra á eiturefnunum verði þeim aö ald- urtila. Margir þeirra hafa dvalið á sjúkrahúsum, fangelsum og vandræðaheimilum. Á sjúkrahús- unum hafa þeir meðal annars séð staulandi gamalmenni, sem þar bíða dauða síns ellihmm og ó- sjálfbjarga og segja þeir, að þann ig kæri þeir sig ekki um að verða og hafi því litlar áhyggjur af því þó að þeir nái ekki háum aldri. Einnig segjast þeir ekkert hræð ast dauöann, þar sem handan . 24 ára gamail ópíumneytandi. Drengjatýpan á tímamótum Horuð með stór augu var öhún fyrirmynd drengja„týpunnar“. í dag er Audrey Hepburn, sem sögð er hafa markaö tízku „drengjatýpunnar", stödd á tíma- mótum, „óvissa tímabilinu", eins og kvikmyndaleikstjórar nefna það. Er þaö nafnið á tímabili því, sem sérhver kvikmyndastjarna lendir í, er mesti frægöarljóminn, sem umlokið hefur nafn hennar fyrst eftir uppgötvunina, er óðum aö hverfa. Árið 1957 var hún aöalnafnið, sem kvikmyndaframleiöendur í Hollywood státuðu sig af. Unga horaða stúlkan með drengjalega útlitið, stóru augun og stutta hár- iö komst í tízku og hinar brjósta miklu bombur urðu að víkja úr sessi, hvað vinsældir snerti. All- ar ungar stúlkur vildu lfkjast Hepbum. Hepburn, sem er 172 cm á hæð og vegur aðeins 49 kg er hins vegar himinsæl f hvert sinn, sem henni tekst að bæta á sig nokkr um pundum. Sennilega á hinn hor aöi líkami hennar upphaf sitt að þakka eða kenna svelti því, er hún varð að þola er Þjóðverjar hernámu Holland, en hún átti einmitt heima í Arnhem, er varð bæja verst úti og Þjóðverjar jöfn uðu nær við jörðu. Fjölskyldan flýði síðar til Amsterdam, þar sem Hepburn tók að nema ballett. Hepburn, sem nú er 40 ára, er nýskilin við mann sinn, leikarann Mel Ferrer, éftir 13 ára hjóna- bánd, og er gift aftur 28 ára gömlum sálfræöingi, Andrea Dotti að nafnL

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.