Vísir - 28.10.1969, Blaðsíða 8

Vísir - 28.10.1969, Blaðsíða 8
8 V1S IR . Þriðjudagur 28. október 1969. Útgefandi: Reykjaprent h.f. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aðstoöarritstjóri: Axe) Thorsteinson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingar: Aðalstræti 8. Simar 15610, 11660 og 15099 Afgreiðsla: Aöalstræti 8. Sími 11660 Ritstjórn: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur) Áskriftargjald kr. 165.00 á mánuði innanlands t lausasölu kr. 10.00 eintakiö Prentsmiðja Vísis — Edda h.f. Ónotuð gullnáma í vegagerð Útboð framkvæmda ryðja sér nú hvarvetna til rúms í opinberum rekstri hér á landi. Einstaka mistök hafa átt sér stað í útboðum, einkum áðúr fyrr, þegar út- boðslýsingar voru ónákvæmari en nú. En í heild er árangurinn gífurlega hagstæður eins og mörg fræg dæmi sanna. Hinir opinberu aðilar hafa með þessum hætti getað tryggt sér hagstæðustu samninga á hverj- um tíma. Reykjavíkurborg hefur rutt brautina í þessari nýju stefnu. Smíði opinberra bygginga í borginni og gerð gatna er nú undantekningarlaust boðin út. Reynslan sýnir, að yfirleitt eru flest tilboð innan við áætlaðan kostnað og lægstu tilboðin langt innan við hann. Með þessu hefur Reykjavíkurborg sparað sér ótaldar millj- ónir króna á undanförnum árum. Útboð færast einnig í vöxt hjá ríkinu, enda er það yfirlýst stefna ríkisvaldsins, að framkvæmdir þess séu boðnar út. En í reyndinni fer það eftir stofnun- unum, hve inikið útboð eru notuð. Og alltof mörgum stofnunum líðst að stunda gömlu og dýru aðferðirnar. Undanfarið hafa vakið athygli sérlega lág tilboð einkaaðila í vegagerð, annars vegar í lagningu vega Landsvirkjunar uppi á öræfum og hins vegar í gerð hraðbrautar yfir Elliðaár og Ártúnsbrekku. Þessi lágu tilboð minna okkur á, að enn er Vegamála- skrifstofan ekki farin að bjóða út vegagerð. Mjög erfitt er að skilja, hvers vegna þetta er látið danka. Rekstur íslenzkrar vegagerðar kostar meira en 600 milljónir króna á ári. Þetta er einn af veiga- meiri útgjaldaliðum ríkisins. Af þessu almannafé mætti spara tugmilljónir króna, ef framkvæmdir væru boðnar út. Þar á ofan mundu ríki og sveitarfélög fá skatta og útsvör af vegagerðinni, ef einkaaðilar tækju hana að sér, en Vegamálaskrifstofan er skattfrjáls. Þarna er annar sparnaðarliður, sem skiptir milljón- um króna á ári. Vegagerðin á umsvifalaust að hætta rekstri tækja sinna og selja þau, t. d. starfsmönnum sínum. Á þann hátt fengi ríkið dálaglegan skilding til viðbótar. Og ný fyrirtæki mundu bætast í hóp þeirra, sem fyrir eru í þessari atvinnugrein. Það þarf ekki að óttast, að tilboð verði of há, því að samkeppnin verður hörð. Allir vita, hve óhemjuleg verkefni bíða í vegagerð, en fé er hins vegar af skornum skammti. Það stríðir því gegn heilbrigðri skynsemi, að ríkið skuli neita sér um augljósan og gífurlegan sparnað með útboði vegagerðar. Það er raunar í hróplegu ósamræmi við stjórnarstefnuna. Hvað þýðir að prédika sparnað, þegar allir sjá eyðslusemi hjá ríkinu? Með snörum handtökum er unnt að kippa þessu vandamáli í lag á augabragði. Fróðlegt verður að sjá, hvað það tekur langan tíma. Og svo eru fleiri stofnanir, .sem verða að fara að bjóða út framkvæmdir sínar. Hjartafíutning- um fer fækkandi Dr. Barnard og vinkona hans, Barbara. „Blaiberg lifði leng- ur en við bjuggumst við.“ Þannig tók gamli sjúkdómurinn sig nú upp að nýju í hinu nýja hjarta Blaibergs. Dr. Blaiberg lifði lengur en vænzt var Hjartaflutningum fjölgaði mjög í lok ársins 1968, en nú hefur þeim fækkað svo, að fjöldi þeirra er svipaður og var fyrstu mánuði þessarar nýlundu. Og enn segir dr. Bamard: „Ég fæ ekki séð, aö dauði dr. Blaibergs sé svona mikilvægur. Honum gekk betur en fyrst var ætlað. Við gáfum honum fyrst hálfan mánuð, sem hann mundi lifa eftir aðgerðina, síðan 17 daga og síðan eitt ár.“ Dr. Blai- berg lifði miklu lengur en lækn- ar höfðu talið. Sérsræðingamir skoða nú hug sinn um frekari aðgerðir, en óneitanlega hefur myndazt nokkur stffla, að minnsta kosti í bili. MeS auknum efasemdum um hagnýti hjartaflutninga kem- ur ■ vaxandi áhugi á gervi- hjörtum, til dæmis gerðum úr plasti. um framhald þeirra lífdagar dr. Blaibergs eru met, sem veröur að „slá“.“ 10 læknar halda áfram. Þó hefur fráfall dr. Blaibergs dregið mátt úr áhugamönnum. Læknar í Montreal í Kanacja hafa hætt hjartaflutningum í bili, en þeir höfðu framkvæmt flutninga í níu tilvikum. Af 56 læknum, sem gert hafa slíkar aðgerðir, eru nú aðeins um tíu tilbúnir til að halda áfram á sömu braut á næstunni. Dr. Barnard hefur þó alls ekki gefizt upp. Hann hyggst endurbæta aðferðir sínar og sýna heiminum árangurinn með að lengja lífdaga þeirra tveggja, sem enn eru á lífi af hjartaþeg- unum í Höfðaborg. Hann leggur meðal annars áherzlu á sérstakt mataræði þeirra og gefur þeim ný lyf. Lát dr. Philip Blaibergs hinn 17. ágúst í sumar, 593 dögum eftir hjartaflutninginn urðu dr. Barnard nokkur vonbrigöi. Barnard taldi í fyrstu, „að „hjartað hefði gefið sig“, en varð um síðir þess vísari, að hjarta Blaibergs hafi eyðilagzt á sama hátt og upprunalegt hjarta hans. Æðarnar sem veita blóði til hjartavöðva, þrengdust og hörönuðu með ólíklegum hraða. Á 19 mánuðum var Blaiberg af þeim sökum jafnsjúkur og hann haföi verið fyrir aögerðina. Læknar skoða hug sinn „Það má líkja læknun um við herforingja, sem hafa orðið fyrir miklu manntjóni," segir Christ ian Barnard, hinn frægi hjartaskurðlæknir. „Nú íhugum við, hvort við eigum að safna liði til nýrra áhlaupa.“ Vissulega hefur dregið úr á- huga læknanna á hjartaflutning- um. Fjöldi þeirra náöi hámarki í nóvember í fyrra, tuttugu og sex flutningar. Nú í ágúst og september í ár eru þeir aðeins tveir i hvorum mánuði. 31 lifir. At-145 sjúklingum, sem feng- ið höfðu „nýtt hjarta" frá upp- hafi þessara aðgerða og þar til Dr. Blaiberg. „Þetta met verð ur að „slá““. nú, lifir þrjátíu og einn. Ellefu hafa lifað lengur en eitt ár frá aögerðinni. Þetta er að vissu marki nokkur árangur, þegar athugað er, að margar skurðað- gerðir til dæmis við krabbameini þjóna þeim tilgangi einum, að halda lífinu í sjúklingunum í nokkrar vikur eða mánuði. Ein- hverjir færustu hjartaskurö- Iæknar heimsins, Bandaríkja- mennirnir Lillehei og Adrian Kantrowitz, eru ekki af baki dottnir. „Þegar einn maður lifir í 19 mánuði,“ segir Lillehei um Blaibergsmálið, „þá lifir sá næsti ef til vill í 38 mánuði eða jafnvel í þrjú ár. Hinir löngu Peir segja... Ófarir öfgamanna í Japan „Dagur styrjaldarmótmæla er liðinn í Japan. Hann sýndi greini legar en nokkru sinni, að það er orðið nær óhugsandi að vinna nokkuð með ofbeldi. Dreifðir hópar stjómleysingja úr röðum stúdenta náðu engum árangri á móti herlögreglu, sem beitti járn aga í mætti yfirburöa sinna á landi, sjö og í lofti. Áhrifamiklar lögregluaðgerðir og sú niðurstaða aö japanskt þjóð félag hafnaði afdráttarlaust mót- mælaaðgerðunum, hlýtur að hafa vakið þá tilfinningu í brjóst um stjómleysingjanna, að þeir séu einangraðir í veikburða sér- vitringahópum, vonlausir um ár- angur. Sumir áhorfendur þessara at- burða óttast, að þessi þróun muni knýja margt ungmennið til örvæntingarfullra verka. Aörir minnast orða brezka sagnfræð- ingsins Ivan Maurice, sem sagði, að þaö væri ógnvekjandi stund, þegar engar stúdentaó- eirðir væru lengur í Japan.“ Neue Ziircher Zeitung (Zúrich). Þrýstingurinn á Líbanon „Nú er mikill þrýstingur á Libanon, eins og var árið 1958. Herskáari Arabariki, einkum Sýrland og írak, knýja á. Mun- urinn er sá, að nú er Líbanon samtímis í þeirri hættu, aö ísra- elsmenn grípi til hefndaraðgeröa vegna stöðugrar starfsemi skæruliða Palestínuaraba, sem hafa komið sér vel fyrir í suður- hluta landsins nálægt Ianda- mæram ísraels ... Hvað gerist, ef ráöizt er inn fyrir landamæri Líbanon, og á- rásarmenn eru ekki skæruliðar eða hermenn ísraels, heldur Sýr lendingar og írakar. Mundu n.= bandarískir sjóliðar grípa aftur í taumana í Beirat? Sé hugsað til Vletnam, þá er það harla ó- líklegt." Daily Telegraph (London). siiíiman'UiÞ.'T 11 r r 7 7 .? Yr'* '* • '• r f Ý ? Ý '>■ f h » V \ . i v. i\

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.