Vísir - 28.10.1969, Qupperneq 5
V1SI R . Þriöjudagur 28. október 1969.
5
Þrem hefði átt
ioka
niðurstaba Neytendasamtakanna um fiskbúðir i Reykjavik
TVeytendablaöiö, sem er nýút-
komið inniheldur mikinn
•fróðleik, sem oft er staöfæröur
upp á Island og einnig kannanir,
sem gerðar eru hér.
Meöal efnisins eru grainar
um mjólk og mjólkurumbúðir,
fisk og fiskverzlanir, verð á
veitingum, dagstimplun á mat-
vörum, kartöflumáliö svokall-
aða, sjónvarpsauglýsingar,
nýja neytendalöggjöf og á-
brygðarmerkingar á húsgögnum.
Allt era þetta efni, sem koma
okkur öHum við, öll erum við
neytendur.
Meðal efnisins er könnun á
fiskverzlunum i Reykjavík, sem
viö ætlum að víkja nánar að.
Fulltrúar Neytendasamtakanna
heimsóttu þær 46 fiskverzlanir
sem skráöar eru í Reykjavik, í
jÆí—ágúst sl. sumar. I töflu er
svo skýrt frá þeim niðurstöðum
er þeir komust að varðandi
fjölbreytni fisktegunda, loftræst
ingu, afgreiðslusvip og heildar-
svip og hvaða einkunnir hver
verzlun fékk fyrir þessa liði.
Neytendasamtökin komust að
því að geysimikill munur var á
fiskbúöunum. Sama morgun og
komiö var í fiskbúö, þar sem
fengust 16 núsmunandi tegundir
af fiski var komið í aöra fiskbúð
þar sem aðeins saltfiskur og
ýsuflök voru^til sölu. Sami mis-
munurinn var á hreinlæti í fisk-
búðunum. Þrjár fiskbúöanna
fengu þá einkunnargjöf, aö þeim
hefði átt aö loka vegna skorts
á hreinlæti, þær voru allar í hús-
um, sem einnig voru notuð fyrir
fbúöir.
I töflunni kemur í Ijós, að af
46 fiskverzlunum í Reykjavík
eru aðens 8, sem fá einkunnina
ágætt fyrir fjölbreytni fiskteg-
unda, en ennþá verri verður út-
koman, þegar einkunnir eru
gefnar fyrir loftræstingu, af-
greiöslurými og heildarsvip, fyr-
ir það fá aðeins 2 fiskbúðir i
borginni einkunnina ágætt, fyrir
hvern liðinn um sig. Hins vegar
eru þaö fleiri fiskbúöir sem fá
einkunnina gott fyrir áðurtalda
liði en þær sem fá einkunnirnar
sæmilegt, slæmt og mjög lélegt.
Þessi niðurstaða sýnir svo að
ekki er um aö villast, að fisk-
veiðiþjóðin íslendingar á margt
eftir ólært um frágang á hráefni
sínu og verzlunarhætti í sam-
bandí við það. — Kemur þaö
nokkrum á óvart?
Konan og
' stjórnmálin í
Húsfreyjunni
„Cpjall um konur og stjórn-
^ mál“ nefnist grein eftir
Ase Eskeland, sem er meðal
efnis í nýútkomnu hefti af Hús-
freyjtmni.
„Jafnréttismálið“ svokallaða
hefur gremilega hafið innreið
sina í íslenzk blöö og tímarit ef
dæma má eftir þessari grein og
fleiri, sém hafa birzt annars
staðar undanfama mánuði. Oft
er það svo að framboðið sam-
svarar eftirspurninni og því má
draga þá ályktun, að vaknandi
áhugi sé á þjóðfélagsaðstöðu
konunnar meöal almennings
hér
Meðal annars efnis Húsfreyj-
unnar, að þessu sinni, má geta
greinarinnar „Fleira þarf en for-
eldra" smásögu eftir Selmu
Lagerlöf, Manneldisþáttarins,
Heimilisþáttarins og tveggja
greina frá Leiöbeiningarstöö
húsmæðra. Nefnist önnur þeirra
„Kunnum við að nýta frystikist-
una?“ og „Kjöteftirlit og kjöt-
gæöi“.
Hvítt, gyllt og svart
Tvær buxnadragtir til kvöldnotkunar. Önnur er hvít, við
hana eru bornir gylltir eyrnalokkar og silfurlitir skór. Hin
samanstendur af glitrandi smókingjakka úr brókaði við svart-
ar buxur, viö hana eru bornir gulleymalokkar og gylltir skór.
Taxti Félags kjólameistara
T Tm daginn birtum við smá-
könnun á þvi á hvaða veröi
hægt værj að fá saumaskap á
ýmsum flíkum hjá saumakonum
í borginni. Nú hefur formaður
Félags kjólameistara, Sigríður
Bjarnadöttir, gefið okkur upp
taxta Félags kjólameistara á
ýmsum flíkum. Það skal tekið
fram að viötalið, sem birtist á
Kvennasíöunni við Sigríöi Bjarna
dóttur, saumakonu var ekki við
formann Félags kjólameistara,
en þær eru nöfnur.
Hér kemur taxti Félags kjóla-
meistara: einfaldur kjóll 1500
krónur, pils 700 kr„ blússa 800
kr. Þetta er lágmarkstaxti á ó-
fóðraðar flíkur, síðan bætast
30% við, á þær flíkur, sem eru
fóðraðar. Félag kjólameistara
hefur engan taxta fyrir kápur
eða dragtir, sem flokkast annars
staðar. í lokin má taka fram, að
ef kemur fram galli eða vansnið
á flík frá saumakonu, sem er
meölimur í félaginu, hefur við-
skiptavinurinn rétt á þvi að fá
gallann bættan.
Reglugerð um sniða og saumasamkeppni
,NORÐURLJÓSAFÖT 1970#
„Norðurljósaföt“ skulu eingöngu vera úr Álafoss
norðurljósaefnum sem fást hjá Álafoss og umboðs-
mönnum um tand allt.
Fatnaður allur á yngri sent eldri, konur og karla er
móttekinn í samkeppnina, sem stendur til 10. janúar
1970.
Fatnaður skal merktur dulmerki og sendur til Ála-
foss, Þingholtsstræti 2, en upplýsingar um framleiösl-
una settar í lokað umslag með dulmerki utan á og
sendist formanni dómnefndar frú Dýrleif Ármann,
Eskihlíó 23, Reykjavík.
Verölaunin veröa sem hér segir:
1. verðlaun Kr. 25.000.00
2. verölaun Kr. 5.000.00
3.-10. verölaun Kr. 1.000.00 hver
Þau skilyrði eru sett að Álafóss hafi framleiöslurétt
á verðlaunafatnaðinum og sýningarrétt í 4 mánuði.
Dómnefnd skipa eftirtaldir: frú Dýrleif Ámiann Eski
hlíð 23, Reykjavík, frú Auður Laxness, Gljúfrasteini,
Mosfellssveit og Björn Guömundsson klæðskeri, Hlið-
arvegi 10, Kópavogi.
ÁLAFOSS hjf
BORÐKROKSHUSGOGN
ELDAVELAR
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 16 SÍMI 14275
n Einum strð
Fáið þér:
ELDHUSVIFTUR
ELDAVELASETT
KÆLISKÁPA
FRYSTISKÁPA