Vísir - 28.10.1969, Page 6
V í S 1 R . Þríöjúdagur 28. október 1969.
6
Siiissfp e%2Tmmma
furuir frá
Lulfieiðuffii
Hlutabréf og skuldabréf hljóti
sömu skattmeðferð og sparifé
• Síðustu „sexur“ Lot'tleiða hafa
nú verið seldar. reyndar ekki langt
heldur til Flughjálpar, sem Loft-
leiðir eru sjálfar eigandi að, en hol-
lenzka flugfélagið Transavia ann;-—‘
flugrekstur á. DC-6 flugvélar félags
ins Flughjálpar eru þá orðnar 5, en
Loftleiðir hefur selt 4 þeirra, eifi
fór til Chile og var afhent þar á síð
asta ári.
® Önnur flugvélin, sem nú er seld
ber einkennisstafina TF-LLA, og er
söguleg flugvél, því hún er fyrsta
DC-6B flugvél Lcftleiða og kom
hingað í byrjun desember 1959. Hin
vélin er TF-LLB og kom hingað f
marzbyrjun 1960. Báðar voru áður
í leigu hjá Transavía.
• Samningur Transavia um rekst
urinn á Flughjálp mun renna út nú
8. nóv. IVTunu Loftleiðir þá taka
við flugrekstrinum af hollenzka flug
félaginu. Aðalstöðvar flugreksturs-
'ns munu verða í Luxemb., en bók-
^hald f Reykjavík. Einar Ólafsson
mun verða fyrirliði Flughjálpar-
manna í Luxemburg, en Þorsteinn
Jónsson yfirmaður flugliðsins í Sao
Tomé.
— segir i ályktun Verzlunarráðs
„Hlutabréf og skuldabréf hljóti I spariskírteini ríkissjóðs. Sama gildi
sömu skattmeðferð og sparifé eða I um vexti og arð af þessum eign-
Endurheimt !ands-
ins úr eyðingunni
ura.“ Svo segir í ályktun Verzlun-
arráðs Islands, sem samþykkt var
á aöalfundi þess um helgina.
Verzlunarráð vill gera margvísleg
ar aðrar breytingar á skattakerf-
inu. Afskriftir verði miðaðar við
endurkaupsverð hverju sinni og að-
stöðugjöld og landsútsvör verði
felld niður, en í stað þeirra komi
hækkun söluskatts, sem þeim nem-
ur. Þá verði skattfrjáls arðgreiðslu-
heimild félaga hækkuð úr 10% í
20%.
Þá megi og endurmeta vörubirgö-
ir, þegar almenn verölags- og kaup-
gjaldsbreyting á sér stað, án þess
að matsbreytingin hafi áhrif á
skattskyldar tekjur.
Stálu bensíni
nf bifreiðum
Tveir unglingar voru staðnir að
verki f fyrrinótt við að stela ben-
síni af bifreiðum, sem stóðu á bif-
reiðastæði Aðalbílasölunnar við
Skúlagötu (hjá Barónsstíg). Höfðu
þeir meðferðis brúsa og slöngu og
ætluðu sér að soga bensínið upp úr
bensíngeymum bílanna, sem þarna
voru geymdir, en af því var þó ekki
i þetta sinn, þar sem lögreglan
kom að þeim, áður en þeir voru
byrjaðir. t
— Höfuðmarkmið nýstofnaðra samtaka um
landgræðslu og náttúruvernd
Ég vænti mikils góðs af þessum
samtökum og tel þau geta unnið
mikið starf að náttúruvemd í víð-
asta skilningi þess orðs, sagði Há-
kon Guðmundsson, yfirborgardóm-
ari f viðtali við Vfsi í gær, en
hann er formaöur Landgræðslu- og
náttúruverndarsamtaka íslands,
sem stofnuð voru að Hótel Sögu
á laugardaginn.
Markmið samtakanna eru í stuttu
máli að stuðla að heftingu gróöur-
eyðingar og jarðvegseyðingar lands
ins, stvöja Iandgræðslustarf, hamla
gegn spillingu landsins og stuðla að
góðri umgengni við landiö, sagöi
Hákon. — Þannig er ekki ótrúlegt
að samtökin taki við herferöinni
Hreint land — fagurt land, sem
Æskulýðssamb. íslands og Náttúru-
fræöafélagið hafa gengizt fyrir auk
fjölda annarra verkefna m. a. upp-
græðslu örfoka lands, sem ung-
mennafélögin hafa staðið fyrir.
Aðeins félög geta orðið aðilar að
þessum samtökum, ekki einstakling
ar. 14 félög hafa .þegar gengið í
samtökin, en búast má við að þau
verði a. m. k. 20—30 innan tíðar.
Til aö gefa hugmynd um, hvaða
félög eiga aðild að samtökunum má
nefna Búnaöarfélagið, Ungmennafé-
lögin, Skógræktarfélag íslands,
Ferðafélag íslands, Vinnuveitenda-
sambandið, Garöyrkjufélagið, Lions
félög, Rotaryfélö® o. fl. Æskulýðs-
samband íslands getur sem slíkt
ekki orðið aðili að samtökunum,
vegna skipulags þess sjálfs, en það
verður styrktarfélag.
Einn þátturinn í þessu starfi verð
ur að skapa allsherjarhreyfingu fyr-
ir endurheimt landsins úr eyð-
ingunni, koma í veg fyrir mengun
o. s. frv., sagði Hákon Guðmunds-
son.
Sérfræðingur
Staöa sérfræðings í svæfingum og deyfingum við svæf-
ingadeild Borgarspítalans er laus til umsóknar. Laun
samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar viö Læknafé-
lag Reykjavíkur.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
sendist sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur, Borgarspítalanum
fyrir 25. nóvember 1969.
Reykjavík, 24. 10. 1969.
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur.
PFAFF BYLTING Á 40 ÁRA AFMÆLI
Á 40 ára afmæli PFAFF umboðsins I dag þökkum við 40 ára ánægjuleg viðskipti og
getum glatt húsmæður landsins með þeim tíðindum, að PFAFF verksmiðjumar hafa
bert byltingu í gerð PFAFF saumavéla — reyndar allra saumavéla.
Myndin hér að ofan sýnir nýju vélina. Gjörið svo vel og Iítið inn til að skoða þessa
merku nýjung.
Pfaff, Skólavörðustíg IA — Sími 13725