Vísir - 28.10.1969, Side 16
VISIR
Þriðjudagur 28. október 1969.
SKRRR SKRÚFUR LHmiR
(-;—| Úrualshnnduerhf.
bJBIBSi
m
LAUGAVEG 178 -StMI 3 56 97
I
AUGLÝSIHGAR
AÐALSTRyfTI 8
SÍMAR 1-16-00
1-56-10 og 1-50-99
INNRÉTTINGAR
IEIdur /
bókabíl
ELDUR kom upp í bókabíl
Borgarbókasafnsins um kaffi-
leytið í gær. Kviknaði í vél
bflsins og urðu þar einhverj-
ar skemmdir, en aðrar
skemmdir urðu ekki í bílnum, i
nema hvafl bækur kunna að
hafa skemmzt eitthvað óveru i
lega af reyk, og var það ekki
fullkannað síðast þegar lög-
reglan vissi um málið.
Stýrimaðurinn
látinn
Jóhann Ægir Egilsson, stýri-
maður, lézt i gærkvöldi á Land-
spítalanum af völdum brunasára,
sem hann hlaut í bruna um borð 1
Lárusi Sveinssyni SH, þar sem bát-
urinn lá í höfn í Ólafsvík. Jóhann
Ægir var 36 ára gamall Reykvík-
ingur til heimilis að Stangarholti
16. Hann var einhleypur.
Srotizt inn í Kaup-
félag Hafnarf jarðar
Verzlunarstjórinn í Kaupfélagi
í-Iafnfirðinga kom að tómum kass-
anum í morgun. Brotizt hafði verið
'nn i búð kaupfélgsins við Strand-
"’ötu i nótt og stolið þaðan 2—3000
;rónum, sem vorq I kassanum, en
■'kki er enn afl. fuilu kannað hvað
tek'ð hefur vefió"þar annað.
Dyrnar út í portið við verzlunina
höfðu orðið fyrir hnjaski. Átta milli-
metra gler sem í hurðinni var hafði
ve'rið brotið. Sá, sem þama hefur
verið að verki hefur haft með sér
einhver verkfaeri, því ekki hefur
hann brotið svo þykkt gler með
herum höndum.
Ekkert var annað skemmt í verzl-
unirini svo að sjá mætti í fljótu
bragði.
Börnin fylgjast spennt með í leikhúsi lögreglunnar.
r
r
— Brúðuleikhús lógreglunnar nýtur góðrar að-
L .
sóknar — rúmlega 1000 si'ó' ára^'böm- á' viku <
— Þú ert bara aö verða
skrautlegur í framan! sagði
lítill hnokki, Guðmundur, við
plástraðan strák, sem hann
riefndi Kálla kalda, en
frammi í sai sátu um 60 börn
á sjö ára aldri — öll úr Laug-
arnesskólanum — og hlust-
uðu á.
7 ára bekkirnir F, K og T
voru þama samankomnir í nýju
lögreglustöðinni við Snorra-
braut I boði lögreglunnar og
horfðu á brúðuleikhúsið nýja,
sem bættist fyrir viku við hiö
annars mjög svo blómstrandi
leikhúslíf borgarinnar.
Þetta nýja leikhús þarf ekki
að kvarta undan lélegri aðsókn.
Áhorfendur, sem komið hafa til
þess aö sjá þennan 25 mínútna
leikþátt Ármanns Kr. Einarsson-
ar (er barnabókahöfundurinn
vinsæli gerði i samvinnu við Iög-
reglu Reykjavíkur), fóru yfir
þúsundið í gær.
Aa v/su standa hin leikhúsin
ekki'eiiis vel að vígi í samkeppn-
inni, þar sem þetta býður upp á
ökuferð milli skólans og lög-
reglustöðvarinnar í lögreglurút-
unni, sem er mikið ævintýri sjö
ára manneskjum.
"v - Sáðitfar líka hlustað af mikilli
andakt á Guðmund, Kalla kalda
og Pál lögregluþjón á sviði
brúöuleikhússins og ekki spillti
það fyrir, þegar Ásmundur Matt-
híasson, varðstjóri, afhenti öll-
um í lok heimsóknarinnar „Litla
löggukallinn“ — endurskins-
merki til minja.
Það féll líka í góðan jarðveg
hjá þessum litlu gestum lögregl-
unnar, þegar Óskar Ólason, ýfir-
Iögregluþjónn, ávarpaði hópinn
fyrir leiksýningu og sagði m. a.:
„Enginn á að vera hræddur við
lögguna og þó að pabbi og
mamma segist skulu ná 1 lögg-
una, ef þið viljið ekki borða salt-
fiskinn, þá er það bara í plati.
Löggan skiptir sér ekki af svo-
leiðis.“ (Þá létti greinilega mörg-
um).
Eftir á sagði yfirlögregluþjónn
inn blaðamanni Vísis, að því mið-
ur væri brögð að því, að foreldr-
ar notuðu lögregluna sem grýlu
á börnin, „þótt minna væri orð-
ið um slíkt í seinni tíð, sem betur
fer, en kannski áður, þegar það
olli lögreglunni mestum vand-
ræðum í viöleitni hennar til þess
að leiöbeina yngri borgurunum
í um;ferðinni.“
Áreiðanlega var enginn þeirra,
sem söng af fullum hálsi „1 skól-
anum, í skólanum er skemmt -
legt aö vera“ við gítarspil eins
lögregluþjónsins, hið minnsta
hræddur við lögregluna.
Skák Guðmundar og
Smeikal er á bls. 10
í blaðinu í dag
,Háttvís, með hlýjuorð á vör'
„Hún skal vera háttvis með hlýjuorð á vör,
hiklaus i svörum, ö>rugg og snör.
„Brosandi" rödd hennar bera skal til þín
boðin, sem þig vantar — þetta er stúlkan mín.
Með greind og ljúfu sinni hún greiðir vanda þinn,
svo gaman er að hringja á vinnustaðinn minn“.
Ofanritaðar ljóðlínur eru tekn-
ár úr „Litlum óði til simastúlk-
unnar“ eftir J. Bjarklind, þar
sem slegið er fram hugmyndum
um eiginleika símsva-rans. Hins
vegar er hvergi í þessum óði
hægt að finna kjörorð íslenzkra
símsvara „augnablek", sem sí-
fellt dynur bó í eyrum þeirra,
ér þurfa að hringja í síma fyrir-
tækí hér í borg.
Páttur slmsvarans i hinum al-
menna rekstri fyrirtækja er
meiri heldur en flestir gera sér
grein fýrir í fljótu bragði. Marg-
ir viðskiptavinir fá þar sín
fyrstu kynni af fyrirtækinu, og
er það vægast sagt fráhrindáridi
að leita svara hjá hrokafullum
og óþolinmóðum símsvara, sem
helzt vildi segja, hvað kemur
pér allt þetta við, eða þeim, sem
ekkert veit og vísar viðskipta-
vininum frá einum aðila til ann-
ars, þannig að hann fær Iltið
annað út úr krafsinu en suð og
skiptihringingar frá skiptiborð-
inu.
Stjórnunarfélag íslands hefur
gert sér grein fyrir mikilvægi
þessarar stéttar og hyggst því
til undirstrikunar halda nám-
skeið fvrir símsvara, dagana 3.,
4. og 5. nóvember n.k.
Ætlunin á þessu námskeiði er
að fjalla um starf og skyldur
símsvarans, eiginleika, símsvör-
un og tækni. Ennfremur veröur
kynning á notkun símabúnaöar,
kallkerfa o. s. frv.
FRIÐRIK VARÐ SJÖUNDl
— Skorti 3 vinninga til að komast upp
Skákmótinu í Aþenu er lokið, og
varð Friörik Ólafsson sjöundi í röð-
inni af átján keppendum með 9 V2
vinning. Skorti hann þrjá vinninga
til að ná þriöja sætinu, sem þurfti
til þess að komast áfram í milli-
svæðamótið. Vinningahlutfall Frið-
riks er 56%.
Sigurvegari varð Matulovic, Júgó
slavíu, með 13 vinninga, óg í 2.—3.
sæti Hort, Tékkóslóvaklu, og Húbn-
er, Vestur-Þýzkalandi með 12 y2 v.
Heyrzt hefur, að Hubner hafi verið
boðið að koma til lslands í vetur
til að keppa á alþjóölegu skákmóti
hér.
Friðrik er væntanlegur heim i
miðri vikunni.
Á VÆÐDMÓ T/J) í fíÞB/VU
Þannig lftur skáktaflan út að loknu mðtinu í Aþenu.