Vísir - 12.12.1969, Blaðsíða 4
a ný
eftir 9
ára hlé
Elvis Presley hefur nýlega sung
ið inn á nýja hljómplötu og fór
upptakan fram í International
Hotel í Las Vegas, þar sem við
staddur var fjöldi fólks, eins og
nú er að færast í tfzku við hljóm
plötuupptöku.
W.
Elvis
Presley
byrjaður
Cassius Clay á leiksviði
„Buck White" heitir söngleik-
ar, sem færður hefur verið wpp
á Broadway, og hefur nú undan-
farið hfotið töluvert harða
dóma gagnrýnenda, sem greini-
lega finnst flestum lítið til leiks-
ins koma.
Aðalhlutverk þessa söngleiks
er í höndum Muhammed Ali, sem
Fagnaðarlæti áheyrendanna
koma þá einnig fram á plötunni
og þeir voru ósparir á þau við
Presley, sem bendir til þess, að
hann hafi engu glatað af vin-
sældum sínum þessi tíu ár, sem
hann hefur staðið fyrir framan
kvikmyndatökuvélamar. Allan
þann tíma hefur hann lítið sem
ekkert komið fram og sungið fyr
ir viðstadda áheyrendur.
En nú hefur hann serti sagt
gert samning til fjögurrá vikna
við International Hotel um að
skemmta gestum hótelsins, og
þeír sem viðstaddir voru fyrstu
söngskemmtunina (og um leið
upptökuna) segja, að hann hafi
engu gleymt úr sinni gömlu
tækni.
Hótelin þama í Las, Vegas hafa
oft gert það, til þess að laða
gesti að, að ráða til skemmtunar
ýmsa frægustu skemmtikraftana,
sem völ er á, eins og Frank
Sinatra, Ann-Margret, Bing Cros
by o. fl., og um þessar mundir
stendur aðalkeppnin innbyrðis
milli hótelanna Intemational og
The Flamingo, en þar skemmtir
Tom Jones, og það verður aö
segjast, að Presley gamli hefur
betur, eins og stendur. Gagnrýn-
endur þar vestra segja Presley
syngja af meiri tilfinningu en
Tom Jones, sem hafði þó ekki
orð á sér fyrir að vera neitt gauð.
Einhver orðaði það þannig, r.ð
honum fyndist orðið of mikið
„verzlunarbragð” að söng Tom
Jones, og „að i-ann sæi í anda
dollarana fljúga út úr munni hans
þegar hann syngi“.
MmSjtí
betur er þekktur undir nafninu um sé ekki hrósað. Ðæmigerð
Cassius Clay — fyrrum heims- ummæli eru þessi: „Það ér frek-
meistari í hnefaleikum í þuHga- ar leikstjóra og sýningarstjóra
vigt. í umsögnum gagnrýnenda að kenna, þótt ekki takist betur
er farið fremur vinsamlegum orð til.“
um um kappann, Clay, þótt hon- Frumsýning leiksins var fyr-
ir helgi og viðstaddur hana var
meöal annarra Floyd Patterson,
íyrrum keppinautur Cassiusar
Clay, og óskaði hann leikaran-
um hjartanlega til hamingjú með
frammistöðuna.
. .
•- —Míé&M . .
Muhammed Ali í hlutverki sínu í „Buck White“.
•••••■••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••«••••••••••
Brá hnífi að hálsi
nrt&k i 'Uiftííl f & 9a<1 ,0^6'KJðÍV
ivb ‘P i*Xt; .in;«vám-Étq
söngst j örnunnar
Cindy Birdsong — einni Supreme-systra — rænt at heimili sinu i Kaliforniu
Einni hinna frægu Supreme-
systra, Cindy Birdsong, var
rænt í síðustu viku af heimili
sínu á Lönguströnd í Kaliforníu.
Henni tókst að sleppa úr klóm,
mannræningjans með því að
stökkva úr bíl hans á ferð.
Þennan dag, sem þetta gerðist,
hafði hún tvo gesti stadda heima
hjá sér í dagstofunni, þá Charles
Hewlett og Howard Meak. Hún
brá sér andartak inn I svefnher-
bergið, en þar lá ræninginn í
leyni.
Hann brá hnífi að há'lsi hennar
og neyddi hana til þess að binda
gestina báöa, en ók síðan af
stað með hana 1 bifreiö frá Löngu-
strönd áleiðis til Hollywood. En
Cindy herti upp hugann og tefldi
á tvær hættur, þegar hún fleygöi
sér út úr bílnum, um leiö og ræn-
inginn neyddist á einni beygj-
unni til þess að draga ögn úr
hraðanum. Hún haföi verið nægi-
lega hyggin til þess að bíða með
stökkið, þar til hún sá bíla, sem
voru á leiðinni úr gagnstæðri átt,
og tókst henni að stöðva einn
þeirra, en ræninginn þorði ekki
aö tefja, þegar hann sá bílinn,
heldur ók á brott.
Skömmu síðar kom lögreglan
á vettvang og hóf eftirför, en
ræninginn hefur ekki fundizt enn
þá. Það voru gestir hennar, sem
gerðu lögreglunni viðvart, en
þeim tókst að losa sig úr fjötr-
unum af eigin rammleik.
Alls hafði ræninginn ekið
Cindy Birdsong um 30 kílómetra
vegalengd, þegar hún slapp frá
honum.
Við byltuna, þegar Cindy
stökk úr bílnum hruflaöist hún og
hlaut nokkrar smáskrámur, en
slapp án meiri háttar meiðsla.
Hún var flutt á Memorial-sjúkra læknar plástruðu skrámur henn-
húsi Löngustrandar, þar sem ar.
Hún stökk úr bíl mannræningjans á ferð, þegar hann haíði ekió
um 30 kíiðmetra vegaiengd.