Vísir - 17.03.1970, Blaðsíða 9
V í SIR . Þriðjudagur 17. marz 1970,
Samkvæmt rannsókn-
um eru tannskemmdir í
ungum börnum hvergi í
heiminum eins algengar
og á íslandi. — Rætt við
þrjá tannlækna, sem
hafa með tannviðgerðir í
börnum að gera, og eru
þeir sammála um, að
það heyri til undantekn-
inga ef börn hafa farið
til tannlæknis áður en
þau hefja skólagöngu.
Telja þeir nauðsynlegt
að fara með börnin til
tannlæknis þegar frá
tveggja ára aldri.
„Fluor það bezta sem við þekkjum". Ólafur Höskuldsson að störfum í Heilsuvemdarstöðinni.
Börn þurfa að fara til tann-
: -Jtj fjf H J í í 51 .i
læknis frá tveggja ára aldri
„Vcnumst til að geta byrjað
á sex ára börnum'-. Óii Bielt-
vedt, yfirskólatannlæknir.
Almenningsálitinu
þarf að breyta
/Vlafur Höskuldsson er eini
islenzki tannlæknirinn, sem
hefur lokið sérnámi í bama-
tannlækningum, og því fyrsti
tannlæknirinn sem við spjölluð-
um við. Ólafur var við námíAla-
bama og hefur unnið á barna-
stofum I Birmingham og síðar i
Stokkhólmi, þar sem hann vár
einnig við rannsóknir m. a. á
fluor. Við byrjum á að spýrja
Ólaf um hin ýmsu efni, sem fram
hafa komið á seinustu árum tii
að koma í veg fyrlr tann-
skemmdir.
„Ennþá höfum við ekki fundið
neitt, sem er betra en fluor, en
sjálfsagt á það eftir að finnast.
Stöðugt er unnið að tilraunum
með fluor, það er sett í drykkjar-
vatn, í mat eða gefið í töflu-
formi. Sjálfur gef ég mínum
bömum fluortöflur en ég býst
þó ekki við að það verði fram-
tíðarlausnin.‘‘
„Hvað með fluorrannsóknir
hér á landi?“
„Þær hafa nú ekki verið mikl-
ar mér vitanlega, en þaö hefur
verið rætt um að setja fluor í
drykkjarvatn, eins og gert hefur
verið víða erlendis. Fyrst þyrfti
að gera frumrannsóknir á því,
hvað við fáum mikið fluor frá
náttúrunnar hendi hér á landi,
t.d. í fiski.“
„Svo að við víkjum að bama-
tannlækningum hvað telur þú
að böm þurfi að vera gömul
þegar þau koma fyrst til tann-
læknis?“
„Tveggja ára helzt. Ég hefi
fengið börn á þriðja ári sem
hafa ekki eina heila tönn í munn-
inum. Hér þarf að gerbreyta al-
menningsálitinu. Fólk heldur að
bamatennumar skiptj engu
málí og flest böm fara ekki til
tannlæknis fyrr en þau koma í
skóla. Þetta er alrangt. Ef þarf
að fjarlægja bamtennur, þá ger-
breytast beinin og bamiö fær
oft allt annað útlit. Barnatenn-
urnar eru eins konar vegvísir
fyrir fullorðinstennurnar, svo að
þær komi á réttum stað og í
réttri röö Þess vegna er mjög
slæmt að þurfa að fjarlægja
þær,“ sagð; Ólafur að lokum.
Mjög sjaldgæft að börn-
in hafi komið til tann-
læknis áður en þau
hefja skólagöngu.
„Tjaö telst til hreinna undan-
tekninga ef 7 ára bömin
hafa séð tannlæknastól, áður en
þau byrja í skólanum, enda er
yfirleitt mjög mikið um skemmd
ir hjá þessum aldursflokki,“
sagðj skólatannlæknirinn í
Melaskólanum, Einar Magnús-
son, en Einar lauk námi s.l. vor
og hefur starfað sem skólatann-
læknir í vetur.
„Verður þú var viö aö tann-
skemmdir séu algengari hjá ein-
um aldursflokki en öðrum?“
„Það er erfitt að segja um
það, þar sem eldri bömin hafa
flest farið áður til tannlæknis.
Mest þarf því að gera við í þeim
yngstu.“
„Em börnin mjög hrædd við
tannlækninn?"
„Nei, þau em það ekki. Auð-
vitað þyrftu þau að byrja að fara
til tannlæknis miklu fyrr. Þá
myndu þau venjast við að láta
gera við tennurnar, og yfirleitt
eru tannskemmdir í mjög ung-
um bömum ektó svo yfirgrips-
miklar, að þau finni mikið til
Það getur hins vegar verið erfið
reynsla, ef mikið þarf að gera
í fyrsta sinn sem bömin fara til
tannlæknis. Ég verð þó að segja
að þetta gengur yfirleitt mjög
vel og það er aöeins einn og
einn. sem er teljandi hræddur
vlð borinn."
„Hver heldurðu að sé á-
stæðan fyrir því, að foreldrar
senda börnin ekki fyrr tfl tann-
læknis?“
„Ætlý trassaskapur sé ekki
helzta orsökin. Fójlk gerir sér
ekki grein fyrir hvað þetta er
þýðingarmikið."
„En hvað þá meö almenna
umhirðu tannanna, fylgjast for-
el^ar nægilega vel með börn-
unum, t.d. f sambandi við burst-
un og því likt?“
„Það verður sjálfsagt seint
nægilega vel fylgzt með þvf, og
ennþá eru alltof margir foreldr-
ar sem ekki fylgjast nógu vel
með bömunum," sagði Einar.
rúbr. ’v:.
Fluorburstunin
gefur góða raun.
'Y'firskólatannlæknirinn i
Reykjavík, óli A. Bieltvedt
er sá þriðji, sem við töluðum
við, en hann hefur verið yfir
skólatannlækningum í Reykja-
vík í tæp 5 ár.
„Skólatannlækningar lágu svo
til alveg niðri frá 1961—1965,
og nú eru nær fimm ár síðan við
byrjuðum á skipulögöum skóla-
tannlækningum. ! fyrra var mik-
il breyting á þessari starfsemi,
þegar við fengum aðstöðu i
Heilsuvemdarstöðinni. en þar
höfum vjð sex stofur og í skólum
borgarinnar eru fimro stofur."
„Eijt nokkrar breytingar fyr-
irhugaðar á pessari staríseri ,-r“
„Viö vonumst til að geta hafið
skólatannlækningar á sex ára
börnum áður en langt um líður.
Það er næsta verkefni okkar,
því að þaö er alltof seint að
byrja með sjö ára bömin. Tenn-
ur þeirra eru yfirleitt mjög illa
farnar, þegar þau koma til tann-
læknisins. Þó held ég að foreldr-
ar séu að vakna til meðvitundar
um að það þarf að láta skoða
barnatennur ekki síður en full-
orðinstennur Við höldum uppi
mjög yfirgripsmikilli upplýsinga-
starfsemi til foreldra um hirð-
ingu tanna barna og tann-
skemmdir f börnum. Til dæmis
sendum við bömin með plagg
til foreldranna og ég held að fólk
sé fariö að hugsa meir um þetta,
þó aö árangurinn komi kannski
ekki strax í Ijós,
Fólk er farið að gera sér grein
fyrir, hvað tannskemmdir em
hættulegar, t.d. fyrir meltinguna.
Áöur var aðeins talað um melt-
inguna í maganum og þörmun-
um, en nú er fólk farið að gera
sér grein fyrir, að meltingin
hefst f munninum.“
„Hvemig hefur fluorburstun-
in, sem þið hafið verið með f
skólunum, gefizt?"
„Samkvæmt línuritum, virðast
tannskemmdir hjá börnum, sem
hafa fengið reglulega fluorburst-
un, heldur fara minnkandi. þó
að um verulegan árangur geti
vart verið að ræða fyrr en eftir
nokkur ár.“
„Hvernig fer fluorburstunin
fram?“
„Börnin em látin bursta tenn-
urn^ upp úr fluorupplausn
fimm sinnum yfir skólaárið.
Auðvitað vær; æskilegast, að
fluor væri blandað f neyzluvatn-
ið, og vonandi verður það gert
áður en langt um líður,“ sagði
Ólj ennfremur.
Við látum þá lokið þessu
spjalli um tannviögeröir f böm-
um, og vonum aö foreldrar dragi
af þvf einhvem lærdóm. — þs.
„Aðeins einn og einn er telj-
andi hræddur". Einar Magn-
ússon gerlr viö tennur í nem-
anda Melaskólans.