Vísir - 20.03.1970, Blaðsíða 4

Vísir - 20.03.1970, Blaðsíða 4
V í SIR . Föstudagur 20. marz 1070. ARMANN sló KR iít Allt aetlaði um koll aö keyra þeg- ar flautan gall við, og sigur Ár- manns yfir KR var staðreynd, lang- |>ráÖur en verðskuldaður sigur sem nú fyrsta varð að veruleika. Sú staðreynd er blasir nú við, að KR- ingar, sem voru langefstir í mótinu ásamt ÍR, eiga ekki lengur mögu- leika á fyrsta sætinu eftir þennan ósigur, og það verður að kallast kaldhæðni örlaganna, að þetta fyrir- komulag á íslandsmótinu er sam- kvæmt tillögu KR-inga, og má segja, að þeir hafi fallið á sjálfra sín bragði. Þótt þessi nýskipan mála, að láta 4 efstu liö leika til úr- slita um íslandsmeistaratitilinn, sé vissulega spor í rétta átt og geri mótið tvísýnna og skemmtilegra, er vissulega stór galli í kerfinu, þar sem efsta liö getur tapaö einum leik í úrslitum, og verið þar með úr leik. En hvað um það. og víkj- um að gangi leiksins. Það var greinilegt í byrjun leiks- ins, hversu þýðingarmikill hann ÍR vann öruggan sigur yfir KFR — og leikur til úrslita við Armann lR-ingar áttu ekki í neinum erf- iöleikum með KFR í gærkvöldi, og sigruðu þá nokkuð auðveldlega í undan-úrslitum og tryggðu sér þar með réttinn til að leik um úrslita- sætið við Ármann. Þótt leikurinn gengi nokkuð skrykkjótt fyrir sig var sigur fR aldrei í hættu, til þess var munurinn á liðunum of mikill, en samt var liðið langt frá sínu bezta og það sem gerði gæfumun- inn var að KFR-ingar voru það einnig. ÍR-ingar byrjuðu leikinn af mikl- um hraða og kafsigldu KFR-inga strax í byrjun, eftir sex mínútur var staðan 18:6 og auðsýnt að ekki yrði um neina ógnun frá KFR að ræða. Sami munur hélzt út há*fleikinn og var staðan í hálfleik 40:27. 1 seinni hálfleik auka ÍR-ingar forystuna í 19 stig á fyj-stu mínútunum 50:31, en fóru þá að spara aðalmennina og leyfa þeim yngri að spreyta sig og við það jafnaðist leikurinn nokkuð, og lokatölumar urðu 79:65. Flest stig fyrir fR skoraði Birgir, 26 stig og var langbeztur ÍR-inga, Þorsteinn 11 Kristinn 10 Agnar 8 og Siguröur 7. Fyrir KFR skoraði Þórir 21 stig og hitti samt óvenju illa í þessum leik Kárj 10, Rafn 9 og Sigurður 8. Dómararnir sluppu sæmilega frá auðveldum leik, þótt ekki hafi þeir verið til fyrirmyndar. — þvþ — var, leikmennimir frekar óstyrkir i sóknarleik sfnum, en spiluðu vörn- ina því stífar. og má m. a. marka það af því, að eftir sex mínútna leik, var staöan aðeins 4:4, sem er óvenjulega lág skomn hjá sterkum liðum. En eftir þessa byrjunarörð- ugleika fór heldur að lifna yfir leikn um, og á næstu þrem mínútum breyta Ármenningar stöðunni í 10:6, og á 12. mínútu í 14:8, en á næstu mínútu taka KR-ingar góðan sprett og jafna stöðuna í 14:14. Þegar fjórar mínútur eru til hálf- leiks, er staðan jöfn 16:16, en þær mínútur er eftir voru, voru alger eign KR-inga, sem skoruðu 10 stig gegn 4, og var hittni Ármenninga þessar mínútur næstum á núll- punkti, staðan í hálfleik var því 20:26 KR í vil. sex stiga munur. Seinn; hálfleikur var mjög jafn framan af, Ármann skorar fyrstu fjögur stigin en KR jafnar strax og eftir sex mínútur er fimm stiga munur KR í vil 35:30, Á næstu þrem mínútum ná Ármenningar að jafna metin 36:36 og á þrettándu mínútu hafa Ármenningar náð sex stiga forskotj 46:40, og var það ekki sízt að þakka Rúnari, sem hirti næstum öll fráköst undir körfu Ár- menninga. Á næstu þrem mínútum skora Ármenningar 9 stig gegn sex stigum KR. sem öll voru skoruð af Indónesíumanninum David og Ár- mann 9 stig yfir þegar þrjár mínút- ur erú eftir áf Ieiktírrta. Sföustu mín- útur leiksins léku KR-ingar pressu- ■vörn sem örþrifaráö, en allt kom fyrir ekki og Ármann var hinn ör- uggi sigurvegari á lokamínútunum, og þegar flauta dómarans gall við, mátti lesa tölurnar 66:57 og sigur Ármanns var staðreynd. Þegar á heildina er litið, áttu Ár- menningar góðan leik, nema hvað hittnin í fyrri hálfleik var langt undir meðallagi og hefðj hún ekki brugðizt, er ekkj gott að segja nema munurinn hefði verið enn meiri, en raunin varð á. Jón Sig- urðsson áttj stórgóðan leik nú sem endranær og skoraði 34 stig, Hall- grímur átti ágætan dag og skoraði 10 stig, en Birgir var langt frá sínu bezta og skoraði aðeins 7 stig, Sig- urður skorað; 6 stig og Sveinn 4, og áttu báðir ágætan leik. Ármanns Iiðið er nokkuð jafnt og enginn sem sker sig neitt úr nema Jón, sem bar höfuð og herðar yfir aðra leikmenn á vellinum. KR-liðið var nú ekki fugl né fisk- ur miðað við fyrri leiki. þrátt fyrir að Hjörtur Hansson var sóttur til Svíþjóðar til að leika með Hðinsu og má þar fyrst og fremst kenna um fáránlegum innáskiptingum þjálfarans, sem skipti svo ört inn á, að leikmenn voru varla famir að hitna þegar þeir voru teknir út af aftur. Kolbeinn var eini maðurinr sem eitthvaö sýndi og David þær fáu mínútur sem hans naut við, eD Kristinn var tekinn út af á ákaflega „kritisku“ augnabliki, þrátt fyrit að hann var langdrýgstur KR-inga viö fráköstin. Stigin skoruðu: Kol- beinn og Einar 15 hvor, Kristint? og David 10 og Hjörtur 5. Dómaramir f leiknum, Ingj og Kristbjöm, vom ákaflega mistækir í dómum sínum enda leikurinn frekar erfiður, en það er ekki nema mannlegt að skjátlast. — þvþ — Úrslitin í kvöld — IR og Ármann berjasf um fitilinn Eftir hinn óvænta sigur Ár- manns yfir KR í gærkvöldi, má sjá að allt getur gerzt í körfu- bolta ekkj síður en í knatt- spymu, og hver er kominn til með að segja að Ármann geti ekki alveg eins sigrað I'R eins og KR, þega,r ísinn er á annað borð broðriþ? Leikir ÍR og Ármanns 'áð Öhdanförnu hafa ávallt verið jafnir þó sigurinn yrði að vísu ávallt IR megin, en hvaö gera Ármenningar nú, þegar sjálfsör- yggið er fengið með sigri ýfir stórveldinu KR, og eitt er víst, að ÍR-ingar ganga ekki of sigur- vissir til leiks í kvöld, því það hefur orðið mörgu stórliðinu að falli, og ekkj vilja þeir falla i sömu gryfjuna og KR-ingar. Ármenningar mæta ömgglega tvíefldir til leiks í kvöld, og láta sinn hlut áreiðanlega hvergi fyrt en í fulla hnefana. Þeir hafa nú rofið skarð í einveldi ÍR og KR, og þá er ekki annað en að standa sig því vandinn eykst meö veg- semd hverri. ■ .... , Það er sem sagt i kvöld kl. 8 sem I’R og Ármann berjast um fyrsta sætið og KR og KFR um þriðja sætið, og em áhorfendur hvattir til að mæta tímanlega til að tryggja sér sæt; og fylgjast vel með úrslitaleikjunum. Leikið er í íþróttahúsinu á Sel. tjarnarnesi. — þvþ - mennirnir" hrein- lega áttu — en hraðkeppnin var sviplaus sýníng með^óllu • Hún hefði skilið næsta Ift- ið eftlr í hugskotl manna, sem fjöimenntu á hraðmót KR í gærkvöldi, skemmtunin, ef ekki hefðu komið hama fram lið KR og FH frá 1958, þegar þessi lið vom sem mestir keppi- nautar í Háiogalandi. Einkum var það Guðjón Ólafsson, sem þarna sýndi íslenzkum mark- vörðum, hvernig slíkt starf skal af h endi leysasL Aliir okkar heimsmeistarakeppnismenn og þeirra félagar sýndu hins vegar iítil tiibrif. og stemningin var eins langt niðri og hægt er að hugsa sér. Fram vann KR með 5:3 i fyrst leik kvöldsins, og það heyrðist varla hvatningaróp, enda þót.t leikurinn væri jafn. Valur vann síðan Víking 7:4 og Haukar unnu FH 8:7 f leik sem var hnífjafn og hefði átt að vera æsispennandi, en bara virtist alls ekki vera það þrátt fyrir allt. Haukar lékú strax á eftir við Fram í undanúrslitum og unnu Haukar þann leik með yfirburð- ura 10:5, enda vantaðj Framara rrrenn eins og Ingólf Óskarsson og Sigurð Einarsson í lið sitt. í úrslitaleiknum, sem fram fór að loknum skemmtilegum, en of löngum leik gömíú feist- aranna, unnu Haukar Val 5:4, en undir lokin virtust Haukamir ætla að glopra greinilega unnu tafli á heimsku eins. leik- mannsins, sem fór að nota hefndarráðstafanir við mótherj- ana með þeim árangri að honum var víSað 'af 'I'éikveili á mjög hættulegu augnabliki. Með því að tefja og halda boltanum tókst Haukum að halda 5:4 og vinna þetta tilþrifalitla mót. En víkium aðeins nánar að leik kvöldsins, milli FH og KR. FH virtist ætla að vinna með yfirburðum en slíkt mun hafa gerzt fvrir 12 árum líka, þegar FH hafði yfir 6:0 eftir nokkrar mínútur og síðar 12:2, en I<R iafnaði rétt fvrir leikslok í 18:18. I gær komst FH hins vegar í 4:1 og virtist KR-ingum fyrirmunað að skora framhiá Kristófer. Það var eiginlega elckj fvrr en HM- markvörður okkar, Hjalti Einars son kom í markiö, aö KR-ingar virtust telja sér það samboðið að byrja skorunina. I hálfleik var staðan.jþfn 7:7, en í seinni hálfleik kón®ýí ljós almennara úthald KR-iiíéanna, sem munu hafa æft allvel fyrir þennan leik, náðu þeiiy 4 — 5 marka forskoti á tíma, en unnu 15:13. Mér fannst margt athyglis- vert við þessa gömlu leikmenn, einkum Guðjón Ólafsson, sem sýndi okkur hvemig markvarzl- an var fyrir nokkrum árum. Ég held að ég sé ekki að gera nein- um rangt til, þegar ég segi aö hann hafi sýnt beztan Ieik allra markvarða kvöldsins, og þó fékk hann á sig strembin skot, m.a. skot upp í markvinkilinn, hörkuskot, sem Guðjón „flaug“ eftir á sinn sérstæða hátt. Og lengi mátti heyra innileg fagnað- arlætí og klapp áhorfendanna. sem þá fyrst vöknuðu af værum blundi. Þá var gaman að sjá aftur leikmenn eins og Reyni Ólafsson, sem sýndi m. a. frá- bær vítaköst hvað eftir annað. Þessi tvö atriði hafa verið mjög veik í leik liða okkar, einnig landsliðsins, en þarna sáu leik- menn okkar sem sé hvernig út- færa . á þessi atriðþ_ pg vonandi lærðu þeir eitthvaö af þessari sýningu. — jbp — Guðjón Óiafsson fór hamföruin í markinu í gær, rétt eins og í gamla daga. Hér átti að „vippa'* yfir hann, en hann gat réit teygt sig í boltann og lyft honum yfir þverslána.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.