Vísir - 20.03.1970, Síða 7
VlSIR . Föstudagur 20. marz 1970.
® Notaðir bfilar til sölu
cTWenningarmál
Háttur að It uasa
Ólafur Jónsson skrifar um bókmenntir:
Úlfar Þörmóósson:
Sambftnd
eða blómið sem grær yfir dauð-
ann
Grágás, Keflavík 1969. 150 bls.
■fjlfar Þormóðsson gaf út
fyrstu skáldsögu sína fyrir
nokkrum árum, og var það satt
að segja furðu barnslegt og
frumstætt verk. Önnur bók
hans, einnig skáldsaga, er ó-
neitanlega miklu lipurlegar stíl-
uð en Sódóma-Gómorra var á
sínum tíma, höfundinum hefur
ávaxtazt allvel það pund sem
þar mátti þrátt fyrir allt
merkja. Meira en „framför“ höf
undar kann þó að vera vert um
það nána samhengi sem greina
má á mílli bókanna. Ungæðisleg
rómantíska fyrri sögunnar er
eftir sem áður undirrót mann-
lýsingar hinnar nýju söguhetju,
skáldsins Yngva Jóns. Og rösk
legur fcásöguháttur, dálitið
kaidranaleg afstaða til söguefn-
is hinnar nýju sögu, viðleitni
höfundar að sjá það utan og
ofan frá á náskylt við fyrri
söguna þó sá né annar sögu-
háttur tækist þar til engrar
Wítar. Hvort tveggja þetta kann
að benda tfl að Úlfar Þormóðs-
son eigi raunveruleg erindi aö
rækja’ í- sagnagerð.
Þar meðier anoísem ekki sagt að
Sambönd, eða blómiö sem grær
yfir dauðann, sé ýkja góð saga
eins og hún kemur fyrir. En
bún er að sumu leyti smellin.
Sagan greinir frá ungu fólki,
hjúskapar- og búskaparstofm*p
; nú á dögum og tilheyrandi kapp
hteupi um lífsgæðin. Yngvi Jón
j verður að gefa frá sér skáldskaD
ardraumana og tekur til að
Þorsteinn Antonsson:
Þá, nú og svo framvegis
Ljóð
Heigafeil, Reykjavík 1969.
57 bls.
jþorsteinn Antonsson gaf út
fyrstu bók sína, skáldsöguna
Vetrarbros fyrir nokkrum ár-
um, og var það að mörgu leyti
álitlegt byrjunarverk. Önnur
bók hans kom út litlu fyrir jól
og hefur verið fullkomlega
hljótt um hana síðan, mikið ef
hún hefur svo mikið sem sézt
i bókaverzlunum. Má þó ekki
minna kosta en ný verk ungra
höfunda eða höfundarefna séu
minnsta kosti nefnd á nafn.
Hitt er svo annað mál að með
sanngimi verður varla dæmt
um höfundinn af þessari bók
frekar en blaðagreinum og rit-
gerðum hans sem hann hefur
birt urmul af síöan skáldsagan
kom út. Að visu virðist mér
hvarvetna í ritgerðum Þorsteins
Antonssonar bregða f.frir eftir-
tektarverðum hugmyndum,
athugunum og skoðunum, höf-
undar virðist i þeim. eins og
skáldsögunni vera aö bisa við
einhver þau vandamál sem hon-
um er f senn nauðsyn og ofur-
efli að orða til hlítar. Sama
kann að sínu leyti að gilda til-
raunir hans til ljóðagerðar I
þessari bók. En Vetrarbros
naut við miklu meiri ritleikni
en seinni textar höfundarins,
auðkennilegrar lýsinga- og frá-
sagnargáfu sem fremur en heim
spekileg umræða sögunnar vakti
áhuga lesandans og hélt honum
við efni hehnar. Ljöðabók Þor-
steins, fyrsti þáttur hennar, Þá,
hefst með einkennilega sterkum
Ijóðrænum textum sem að veru-
legu leyti byggjast á náttúru-
lýsingum, en eru þó öldungis
ólfkir • vénjubundinni ljóðrænu
eins og hún gerist eftir form-
byltingu. En meira verður ekki
úr. Sízt lætur honum að yrkja
með hefðbundnu lagi, rími og
stuðlum, sem fáeinar tilraunir
eru gerðar til í bókinni. Og
mestallur texti hennar er undar
lega óráðinn, formlaus, ekki sízt
síðasti þátturinn, Framvegis,
sem er samfelldur ljóðaflokkur,
og minnir að því leyti á ritgerð-
ir Þorsteins. Að yrkja og semja
er þrátt fyrir allt fyrst og
fremst háttur að hugsa. Þrátt
fyrir allt bera textar Þorsteins
Antonssonar þess vott að hann
hugsi ekki að annarra hætti
heldur fyrir sig, — þó hann hafi
að svo komnu enn ekkj komið
orðum að eiginlegum efnivið sin
um. Eins og í skáldsögunni er
það átök höfundarins við efnið
máliö, hugmyndirnar, sem frek-
ast vekja eftirtekt, en miðað við
vinnubrögð skáldsögunnar
benda hinir seinni textar til
eftirgjafar, ónógrar vinnu, hrá-
ir; óloknir, óhugsaðir tíl hlítar.
kjör vio allra httófi..
erfiða hörðum höndum fyrir lífs
þægindum konu sinnar. Auðvit-
að fara þau að byggja — í sam
lögum við vin skáldsins sem hef
ur sín „sambönd" í lagi. Þaö
hefur Yngvi Jón hins vegar ekki
enda fer eftir því: vinurinn
hlunnfer hann í ggingarmál-
unum og spillir fyrir honum
konunni. Skáldið stendur slypp-
ur uppi að sögulokum. Það verð
ur aö sönnu bjargræði hans því
að þar meö öðlast hann frelsi
sitt að nýju, frjáls að lifa sínu
innra og andlega lífi eins og
blómið sem grær út yfir gröf
og dauða. Og þó er frelsi hans
ekki djúptækara en svo að í
sögulokin er það berlega gefið
í skyn að allt gæti farið á sömu
leið að nýju, gengið í hring.
Þá er hinn frjálsi maður og
skáld sem sé kominn með konu-
efni upp á arminn að nýju.
Tvímælalaust er þarna tekið
á söguefni og það efni sem
mjög er í vindinn um þessar
mundir: lífsfirrtu verðmæta-
mati, átökum hversdags og
skyldu og innri kröfu. Sagan
veit beint að hversdagsh'fi sam
tíðarinnar og ritháttur höfund-
ar stefnir því í snið skops og
ádeilu. En Úlfar Þormóðsson
hefur varla fullnægjandi vald á
efnivið sinum enn sem komið,
er, gerir sér félagslegþ-pg'póli-
tískt viðfang sögunnar alltof
auðvelt eins og bæði sést af
brottrakstri Yngva Jóns frá
kennslu og lýsing varnarliðs jg
Vallarins sem þó má ekki nefna
réttu nafni í sögunni og svo
lýsing hins nýríka sambands-
fólks. Meira raunsæis þarf við
til aö skop hvað þá ádeila verði
virkt í sögu. Ritháttur höfundar,
LEIGAN s.fT|
Vinnuvélar til leigu
N
í
f-
SÍM! 30S76.
innréttingum, klæða-
skápum, og sðlbekkjum.
Fljöí og gðð afgpeiðSIa>
Gerum iöst tilb., leitiö uppl<
lúsooiiðMerkslieði NBS m BBIS
Súðaipvoei ^4 - Sfmi 31360
HÖFDATCJNI 4 - SIMI 234-80
þó rösklegur sé, er þráfaldlega
við það að snúast upp i tiktúrur,
tilgerð, og málfar hans er eng-
an veginn lýtalaust. Um mann-
lýsingar er tæplega að tala i
sögunni, vinurinn Pétur og
Hulda Rós eiginkona eru bæði
allra einföldustu manngerving-
ar. Það væri skaðlaust ef at-
burðir sögunnar, samhengi fólks
og atvika fullnægðu aðalefninu
sem auðvitað er lýsing Yngva
Jóns sjálfs, eða gæfu höfundi
færi á að, skyggna samtið sína
og hætti hennar úr hæfilegri
fjaríæ’gð til að sjá raunveruleg
deilj á henni. Svo langt er ekki
komið. — en vissulega gefur
hin nýja saga Úlfars Þormóðs-
sonar ástæðu til aö ætla að
meö meiri ástundun geti hann
komizt upp á lag með að skrifa
dugandí skop og ádeilu, góðar
sögur.
Volkswagen 1300 ’66 ’67 ’68 ’69
Volkswagen 1600 L. ’67
Moskvitch ’68
Willys ’66
Land Rover dísil ’66
Litlar Steypuhrœrivélar
Múrhamrar m. borum og f/eygum
RafknOnir Steinborar
Vatnsdœlur (rafmagn, benzin )
Jarðvegsþjöppur Rafsuðutœki
Víbratorar
Stauraborar
Slipirokkar
Hiíablósarar
Hættir samtíðar