Vísir - 20.03.1970, Blaðsíða 9
9
V í SIR . Föstudagur 20. marz 1970.
28 ára gamall prentsmiðjueigandi beið bana, þegar bifreið hans hvolfdi á Reykjanesbraut.
26 dauðsf'áll af slysf'órum á 2}/i mánuði
H
gert sér Ijóst, að nokkuö þarf til
svo að háskóli verði starfræktur
eins og vert er til að halda uppi
samtímis kennslu og vísinda-
starfsemi í landinu, og var það
til dæmis ævintýralegt fyrir ís-
lending að koma í sagnfræði-
álmu stofnunarinnar, en þar eru
nú starfandi yfir 20 sagnfræðing.
ar, sem sérhæfa sig í hinum ein-
stöku tímabilum og viðfangsefn-
um mannkyns og þjóðarsögu, og
rennur manni það sárt til rifja
hve hin gamla svokailaða „sögu-
þjóð‘‘ stendur sig tæpt í þessum
samanburði. En þess má annars
geta, að í háskólanum í Björgvin
eru alls um 4 þúsund stúdentar,
svo fjöldinn er ekki eins marg-
falt meiri og þessi starfsaðstaða
gæti bent til.
Utan við glugga sagnfræði og
heimspekistofnunarinnar blasir
svo við hin stóra og nýtízkulega
háskólabókhlaða í Björgvin, en í
henni eru 600 þúsund bækur og
allstórt handritasafn. Það er |
líka mikill munur að gera hér |
samanburð á þrengslunum á 1
háskólasafnskompu Björns Sig- 1
fússonar og þessu glæsilega §
húsi, sem hefur yfir 300 lestrar- |
sæti fyrir stúdenta. En öll þessi 5
mikla bygging er gjöf eins auö- I
manns til háskólans. Sá sem 1
hafðj efni á aö láta byggja þann- B
ig heilt háskólabókasafn hét I
Mowinckel og var stórskipaeig- g
andi í Björgvin. Er brjóstinynd 1
af honum i anddyri safnsins og |
þess gætt að halda stöðugt við 8
lifandj biómum við stall henn- |
ar. I
T/" ringum háskóiann i Björgvin |
hefur vaxið upp nokkur há-
menntastétt í bænum, sem mér
virðist telja sig standa þrepi of-
ar öðrum í þjóðfélagsstiganum
og er kannpki ekkj l^ust við að
nokkurrar hégórpagjmj' og hroka
gæti þar, því' að' stéttaskipting
er hér meiri en við þekkjum
heima á Islandi. En þó standa I
háskólakennarar stóru þrepi |
neðar í mannfélagsstiganum en 0
stórmógúlar borgarinnar, út- |
gerðarfjölskyldur og ýmsar |
gamlar bergenskar ættir, og |
setja voldugar kaupsýsluhallir |
þeirra svip sinn á miðborgina, g
svo sem hið risavaxna kauphús |
Sundtfjölskyldunnar. en fyrir- |
tæki hennar heldur nú upp á 125 |
Ara starfsafmæli sitt. Þannig |
virðast gamalgrónir bergenserar |
áhrifamiklir og auðsælir i bæn- |
um. Þó gæti maður efazt um |
það á stundum, að þetta væri %
stórbær. Þannig er skemmtana- |
líf og kvöldlíf einstaklega fá- I
breytiiegt. Það er helzt að slang
ur af fólki safnast saman um
það leytj sem bíösýning er að
hefjast á kvikmyndahúsinu
Eldorado, og er það gamaliegt
hús, sem minnir einna helzt á
Gamla bíó í Reykjavík, og þetta
slangur af fólki, sem fer á bíó
gætj einna helzt minnt á þegar
sýning er að hefjast í Alþýðu-
húsinu á ísafirði. Eitt helzta
veitingahúsið er Chianti-rest-
aurantinn uppi á járnbrautarstöð
inni, en hann stendur mestpart
auður. og enn má nefna dans-
stað sem kallast Stjörnuklúbb-
urinn, í gömlu og þröngu hús-
næði. Hann er að vísu svo full
ur að fólk stendur í biðröð ut |
an við hann til að fá að sjá eitt á
hvað sem kallað er nektarsýn-
ing, en er vegna strangra sið-
gæðisreglna Vestiendinga einna
likast barnasýningu í KFUM.
Enda er almennt viðurkennt að
Björgvinjarbúar hafi það alls
ekki fyrir sið að sækja veitinga
hús eða skemmtanir, heldur sitja
beir heima og skemmta sér helzt
við að horfa á sjónvarp. Og þeir
>ætu ekki látið sig dreyma um
nglingadansstað eins og Tóna-
;iæ.
10. Slöa
□ ÓHUGNANLEGA tíð
dauðsföll af slysför-
um hafa einkennt hið
nýja ár, eða það sem af
því er liðið. Þessi fá-
menna þjóð hefur misst
28 einstaklinga sína með
válegum hætti á ekki
lengri tíma en mán-
uði.
Það er raunalega hár tollur,
sem við höfum orðið aö gjalda
dauðanum í slysum, og skilur
eftir sig mörg gleðivana heimili.
Svo títt er höggvið í sama tréð,
aö tíminn hrekkur engan veg-
inn til þess að lækna síðasta sár,
þegar það næsta bætist við.
Á sjötíu og fimm dögum þessa
árs hafa tuttugu og fimm ein-
staklingar farizt á voveiflegan
máta, en það samsvarar einu
dauösfalli á þriggja daga frgsti.
„Þaö er hörmulegt, hve grátt
viö höfum veriö leikin á nýja
árinu,“ sagði fulltrúi Slysavarna
félags íslands, Hannes Hafstein,
þegar blaðamaður Vísis leitaði
upplýsinga hjá honum um fjölda
dauðaslysa á árinu. Enginn kann
á því skýringar, hvers vegna
svo afdrifarík óheppni eltir okk-
Strax á nýársmorgun reið
fyrsta áfallið yfir, þegar spurð-
ist, að þrjú ungmenni höföu
drukkna-ð í Reykjavíkurhöfn,
eftir að bifreið þeirra hafði runn
ið fram af bryggju og hrapað
í sjóinn.
En svo dundu hörmungarnar
yfir hverjar á eftir annarri. Tíu
sjómenn fórust með vélbátnum
Sæfara 10. janúar
Þrír skipstjórar drukknuöu.
þegar árabát frá Stokkseyn
hvoífdi 18. jan. og daginn eftir
drukknaöi sjómaöur i Vest-
mannaeyjum, og 67 ára járn-
smiöur hrapaði til bana viö
vinnu sína.
Ellefu ára telpa lét lífið í bif-
reiðarslysi á Þrengslavegi þann
10. janúar og tíu ára gömul telpa
beiö bana, þegar hún varö fyrir
vörubifreið á Húsavík 3. febr.
79 ára gömul kona lézt af völd-
um meiðsla, sem hún hlaut, þeg-
ar hún varö fyrir bifreiö á gang-
braut á Snorrabraut í Reykja-
vík.
, Tvltugur íþróttamaöur fórst,
þegar svalir hótelbyggingar,
sem hann gisti í London, hrundu
1. febrúar, en undir lok febrú-
ar fórst 58 ára gömul kona í
eldi, sem kom upp í starfsmanna
íbúðum að Reykjalundi.
Óvitabarn, 1 y2 árs gamali
drengur, lézt af völdum lyfja,
sem hann tók inn í fikti, og enn
einn sjómaöur hverfur í ægis-
dætur, að þessu sinni í Ytri-
Njarðvík.
I byrjun marz fórust þrír ein-
staklingar á tveim dögum. 25
ára ísfiröingur lézt af völdum
meiðsla, sem hann hlaut, þegar
vélsleði hans valt. Daginn eftir
drukknaði 2ja ára drengur I Víf-
ilsstaðalæknum í Garöahreppi og
samdægurs drukknaði 15 ára há-
seti á togaranum Svalbak í Eyja
firði.
Þessari raunalegu talningu
lýkur svo með bifreiðarslysinu
um síðustu helgi, þar sem 28
ára prentsmiðjueigandi í Kefla-
vík beið bana, og það síðasta
varö í gær, þegar tæplega sex-
tugur verkstjóri drukknaði í
höfninni í Hafnarfirði.
Alls eru þetta 26 dauösföll
sem SVFÍ hafa borizt tilkynn-
ingar um, og þar af eru 8 af
völdum bílslysa (líka ungmenn-
in 3, sem drukknuðu í Reykja-
víkurhöfn, 14 af vöildum drukkn-
unar í sjó eöa vötnum og 4 af
ýmsum öðrum ástæðum.
I skýrslu SVFÍ yfir dauöaslys
á árinu 1969 sést, að í janúar,
febrúar og marz f fyrra fórust
23. I marzmánuöi þá fórust
fimmtán 'menn, en þar af fór-
ust sex menn með skipunum
Fagranesi óg Dagnýju, og stór-
slys varð um borö í Ha-llveigu
Fróðadóttur, þar sem sex menn
létust í eldsvoöa. Alls fórust 64
einstaklingar af völdum slysa
alit árið 1969. —GP—
TÍSIfiSPIB:
Hvernig verður yður
innanbrjósts, þegar þér
fréttið um slys?
Ingibjörg Gísladóttir, skrifstofu-
stúlka: „Ef slys verða á fólki,
þá tekur maður það nærri sér,
sérstaklega ef um ungt fólk er
að ræöa.“
Sólrún Ragnarsdóttir, húsmóðir:
„Ég tek það ákaflega nærri
mér.“
Eínar Guðnason, þjónn: „Maður
fyllist alltaf óhugnaði í hvert
sinn, sem maður fréttir slíkt,
sérstaklega ef slys verða á
fólki."
Sigurbjörn Á. Friðriksson, sölu-
stjóri: „Ég tek það ekki nærri
mér nema um sivs sé að ræða
á fólki. Mér finnst átakanlegast,
ef stórar fjölskyldur missa fyr-
Óttar Öktósson, verzlunarmað-
ur: „Ég tek ákaflega nærri mér
að heyra um slfkt.“